Fréttablaðið - 07.02.2005, Qupperneq 9
1Hvað kostar að leysa út kött semeftirlitsmenn á Suðurnesjum fanga?
2Kínverska nýárinu var fagnað aðKárahnjúkum í gær, ár hvaða dýrs
var að hefjast?
3Hvað heitir varaformaður Framsókn-arkvennafélagsins Freyju í Kópavogi?
SVÖRIN ERU Á BLS. 26
VEISTU SVARIÐ?
8 7. febrúar 2005 MÁNUDAGUR
Valdaránið í Framsóknarfélaginu Freyju í Kópavogi:
Aðalfundur ákveð-
inn í vikunni
KÓPAVOGUR Stefnt er að því að
halda stjórnarfund í Freyju, fé-
lagi framsóknarkvenna í Kópa-
vogi, í vikunni og verður ákveðið
hvenær aðalfundur verður hald-
inn. Hann skal boða með viku fyr-
irvara. Flokksþing Framsóknar-
flokksins verður haldið föstudag-
inn 25. febrúar.
Laganefnd flokksins úrskurð-
aði aðalfund Freyju ólögmætan en
ekki var tekið á nýliðunum sem
gengu í félagið nokkrum klukku-
stundum fyrir fundinn.
Páll Magnússon, aðstoðarmað-
ur iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
sagðist enga skoðun hafa á úr-
skurðinum. Leiðtogi hefði fallið
frá. Fram undan væru sveitar-
stjórnarkosningar og allir væru
að reyna að styrkja sig í flokkn-
um, hann væri engin undantekn-
ing þar á.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir,
kona Páls, var ein þeirra sem
stóðu að hinu meinta valdaráni.
Hún sagði að konurnar myndu
hittast í vikunni til að ákveða
framhaldið. Tvennt kæmi til
greina, ná samkomulagi milli
funda eða fara í framboð.
Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi
umhverfisráðherra, vildi ekki tjá
sig um málið. - ghs
BRAKIÐ Á FJALLINU
Flugvél Kam Air flaug á fjallið Chaperi Ghar í Afganistan. Aðstæður eru erfiðar á slysstað,
fjallið bratt og snævi þakið. Lögregla og björgunarmenn höfðu ekki komist á staðinn
síðdegis í gær en búist var við að allir um borð, 104 talsins, væru látnir.
Hátt í 100 mál bíða afgreiðslu Samkeppnisstofnunar:
Stofnuninni líkt við
viðskiptahindrun
AFGANISTAN, AP Þyrlur frá NATO,
hundruð lögreglumanna og fjalla-
björgunarmenn frá Slóveníu
reyndu að komast að flugvélar-
brakinu á Chaperi-fjalli í Afganist-
an í gær en gekk erfiðlega vegna
aðstæðna. Þoka var á staðnum,
frost og skyggni slæmt. Þyrlan
reyndi að flytja fjallabjörgunar-
mennina upp á fjallið en gat ekki
lent þar sem fjallið er bratt og
snævi þakið.
Óttast er að allir hafi látist en
um borð í vélinni voru 104 menn,
96 farþegar og 8 áhafnarmeðlimir.
Talið er að 24 erlendir ríkisborgar-
ar frá fimm löndum hafi verið um
borð en ekki er vitað nánar um
þjóðerni þeirra.
Flugvélin var Boeing 737-200 frá
flugfélaginu Kam Air, sem er fyrsta
einkaflugfélagið í Afganistan eftir
að Talibanar fóru frá völdum.
Vélin var á leið frá Herat til
Kabúl en hætt var við lendingu
vegna erfiðra veðuraðstæðna og
ákveðið að fara frekar til Peshawar
í Pakistan. Talið er að hún hafi
verið í hríðarbyl þegar hún flaug á
fjallið. ■
TRYGGINGAMÁL Smári Ríkharðsson
hjá Íslandstryggingu segir Sam-
keppnisstofnun ekki taka á málum
sem skyldi og kallar stofnunina al-
vöru viðskiptahindrun sem geri nýj-
um fyrirtækjum á markaði erfitt
fyrir. Íslandstrygging bíður enn úr-
skurðar Samkeppnisstofnunar
vegna kæru sem lögð var fram í
nóvember árið 2002.
„Uppsagnartími trygginga, sem
er mánuður, gerði okkur mjög erfitt
fyrir og gerir enn. Þegar við kom-
um á tryggingamarkaðinn þurftum
við á ná viðskiptavinum frá öðrum
tryggingafélögum með betri kjör-
um. Félögin höfðu aftur á móti mán-
uð til að bjóða sömu viðskiptavinum
enn betra verð án þess að lækka
stofnverð trygginganna almennt,“
segir Smári. Íslandstrygging kærði
og vildi úrskurð til að stöðva ferlið.
Smári segir að vorið 2003 hafi
borist bréf frá Samkeppnisstofnun
um að farið væri að styttast í úr-
skurðinn. Níu mánuðum síðar kom
annað bréf um að úrskurðað yrði í
málinu innan tveggja mánaða en nú
árið 2005 hefur úrskurður ekki enn
fallið. „Samkeppnisstofnun virkar
ekki ef það tekur mörg ár að fá
niðurstöðu,“ segir Smári.
Guðmundur Sigurðsson hjá Sam-
keppnisstofnun segir fleira starfs-
fólk vanta á stofnunina en til þess
þurfi meira fjármagn. Tveir til þrír
menn hafi að jafnaði unnið að olíu-
málinu í þrjú ár, nú sé því lokið og
þeir geti snúið sér að öðrum verk-
efnum. Hátt í eitt hundrað verkefni
bíða úrvinnslu.
- hrs
Helsingjaborg:
Slösuðust við
hreinsunina
HELSINGJABORG Yfir 4.500 íbúar í
Helsingjaborg í Svíþjóð fengu að
snúa heim seinnipartinn í gær, en
þeir urðu að rýma íbúðir sínar á
föstudagsmorguninn eftir að
brennisteinssýra lak úr tanki á at-
hafnasvæði verksmiðjunnar Kem-
ira í miðborg Helsingjaborgar.
Hættan er talin liðin hjá.
Hreinsað hefur verið um helgina.
Tveir slökkviliðsmenn slösuðust
þegar þeir voru að hreinsa
slökkviliðsbíl og starfsmaður
hreinsunarfyrirtækis steig óvart í
brennisteinspoll. Fótur hans
bólgnaði upp og var hann fluttur á
sjúkrahús. ■
Grunaðir hryðjuverka-
menn:
Ætluðu að
nota ísbíla
ÓFRIÐUR Embættismenn í Kúvæt
staðfestu í gær að þeir hefðu
handtekið grunaða hryðju-
verkamenn sem lagt hefðu á
ráðin um árásir á bandaríska
hermenn.
Mennirnir höfðu áformað að
fylla ísbíla af sprengiefni til
árásanna. Í yfirheyrslum kom
fram að til hefði staðið að stilla
sakleysislegum ísbílum og sölu-
vögnum við hraðbrautir og
sprengja þá í loft upp þegar
hermenn ferðuðust þar um á
leið sinni til Íraks.
Um fjörutíu manns hafa ver-
ið handteknir á síðustu vikum í
Kúvæt eftir að yfirvöld þar
upphófu mikla herferð gegn of-
beldismönnum úr röðum
múslima. ■
AÐALHEIÐUR SIGURSVEINSDÓTTIR
Nýliðarnir í Freyju ætla að ræða við
óánægðar framsóknarkonur sem lengi
hafa reynt að komast í stjórn Freyju og
ákveða síðan framhaldið.
SLYSSTAÐURINN Í AFGANISTAN
Boeing 737-200 var á leið frá Herat til Kabúl þegar hætt var við lendingu og ákveðið að
halda frekar til Peshawar í Pakistan. Vélin hvarf í kafaldsbyl.
Mannskæðasta slys í sögu Afganistan:
Björgunarmenn
komust ekki
Boeing 737 með yfir 100
manneskjur um borð á
leið frá Herat til Kabúl.
Afganistan
KabúlHerat
Ír
an
Pakistan
Peshawar
Túrkmenistan
Boeing 737-200
Úsbekistan