Fréttablaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 15
Verkfræðistofan Línuhönnun náði fyrir skemmstu þeim áfanga að hafa starfað í aldarfjórðung. Á þeim tíma hefur starfsemi fyrir- tækisins vaxið mjög, en ársvelta þess nemur nú um milljarði króna, starfsmenn orðnir yfir hundrað og starfssvið 16 talsins. „Fyrirtækið er stofnað í kring- um hönnun á háspennulínum, svona eins og nafnið ber með sér,“ segir Sigurður Ragnarsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Línu- hönnunar. „Svo áttuðu menn sig fljótlega á að á þessu einu saman yrði ekki lifað og starfssviðunum tók að fjölga jafnt og þétt allt til dagsins í dag þegar við erum orð- in alhliða ráðgjafarfyrirtæki sem spannar flest svið verkfræðinn- ar.“ Línuhönnunin var samt ekki aflögð og er að sögn Sigurðar einn af hornsteinunum í rekstri fyrir- tækisins. „Við höfum meira að segja getið okkur góðs orðs á því sviði á erlendum vettvangi, svona í ljósi okkar miklu reynslu, og vinnum að slíkum verkefnum um allan heim.“ Sigurður segir fyrirtækið gera ráð fyrir auknum vexti næstu ár, en á síðustu fimm til sjö árum hafi fyrirtækið tvöfaldað starfsmanna- fjöldann. „Bara núna síðasta mán- uðinn fjölgaði okkur um tíu, þannig að ég sé fram á að við höld- um áfram að stækka og dafna og bæta nýjum starfssviðum í sarp- inn. Við sjáum fram á aukin erlend verkefni,“ segir hann og bætir við að fyrirtækið búi sig undir að ákveðinn samdráttur geti fylgt góðæri hér innanlands. „Við ætl- um að minnka þá niðursveiflu í okkar rekstri með því að auka okk- ar veltu erlendis enn frekar frá því sem nú er.“ Þá telur Sigurður að fyrirtækið sé komið nálægt því að ná þeirri stærð sem hagkvæm getur talist á innanlandsmarkaði. „Miklu stærri fyrirtæki á sviði verkfræði gætu tæpast borið sig á þessum markaði. Ég get nú samt alveg séð fyrir mér að fyrirtækið fari úr 100 manna starfsmanna- fjölda, eins og er í dag, upp í um 150 starfsmenn.“ Vegna samkeppni við önnur fyrirtæki segir Sigurður tæpast hægt að fara út í smáatriði varð- andi til hvaða nýrra starfssviða fyrirtækið horfi. „En það eru ótal tækifæri til dæmis í sjávarútvegi, ferðamanna- og hátækniiðnaði. Þá eru tækifæri á álmarkaði sem hér er sístækkandi og svo matvælaiðn- aði. Þetta hafa kannski ekki verið meðal þessara hefðbundnu verk- fræðisviða, en þarna sjáum við tækifæri,“ segir Sigurður. ■ 14 7. febrúar 2005 MÁNUDAGUR CHARLES DICKENS (1812-1870) fæddist þennan dag. Horfa til stækkunar á nýjum sviðum TÍMAMÓT: LÍNUHÖNNUN Í ALDARFJÓRÐUNG „Stórmenni eru sjaldan úr hófi upptekin af fatavali sínu.“ Óhemjuvinsældir bóka Charles John Huffam Dickens, sem uppi var í Englandi á Viktoríutímanum, endurspeglast best í því að aldrei hefur bók hans selst upp án þess að vera endurprentuð og þær því allar fáanlegar enn. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Ásgerður Sveinsdóttir, Þrastarási 1, Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 26. janú- ar. Jarðsett hefur verið í kyrrþey. Bertha Konráðsdóttir, Rofabæ 31, Reykjavík, lést þriðjudaginn 1. febrúar. Guðbjörg Ágústsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík, lést föstudaginn 4. febrúar. Guðmundur Tryggvason, áður til heim- ilis á Miklubraut 60, lést fimmtudaginn 3. febrúar. Hildur B. Kærnested lést mánudaginn 31. janúar. Ingibjörg Guðjónsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 1. febrúar. Jóhannes Kr. Guðmundsson, Reyrengi 4, lést fimmtudaginn 3. febrúar. Kristín Ásmundsdóttir, fyrrverandi verslunarmaður, lést miðvikudaginn 2. febrúar. Ólína Ben Kjartansdóttir lést laugar- daginn 29. janúar. Valgerður Þórðardóttir, Funalind 13, Kópavogi, lést miðvikudaginn 2. febrúar JARÐARFARIR 11.00 Jósefína V. Benjamínsdóttir verður jarðsungin frá Fossvog- skapellu. 13.00 Oddur Halldórsson, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. 15.00 Ingibjörg Guðjónsdóttir, Hrafn- istu, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju. FÆDDIR ÞENNAN DAG 1478 Sir Thomas More, forseti ensku lá- varðadeildarinnar og rithöfundur. 1834 Dmítri Mendelejev, rússneskur efnafræðingur. 1867 Laura Ingalls Wilder, barnabóka- höfundur. 1885 Sinclair Lewis, rithöfundur. 1906 Aisingyoro Henry Puyi, síðasti keisarinn í Kína. 1912 Sir Russell Drys- dale, listamaður. 1934 Earl King, blússöngvari og gítar- leikari. 1945 Pete Postlethwaite, leikari. 1960 James Spader, leikari. 1960 Steve Bronski, úr Bronski Beat. 1966 Chris Rock, leikari og skemmti- kraftur. 1985 Tina Majorino, leikkona. AFMÆLI Haukur Pálmason verkfræðingur er 75 ára í dag. Þorsteinn Vigfússon, Húsatóftum 1a, er að heiman á sjötugsafmæli sínu í dag. Laurel Anne Clyde prófessor er 59 ára í dag. Atli Rafn Kristinsson framkvæmdastjóri er 58 ára í dag. Birgir Þór Bragason þáttagerðarmaður og bílakall er 48 ára í dag. Helgi Bogason knattspyrnuþjálfari er 41 árs í dag. Ingólfur Bjarni Sig- fússon fréttamaður er þrítugur í dag. Hrafnhildur Haf- steinsdóttir fegurð- ardrottning er 29 ára í dag. Ívar Örn Sverrisson leikari er 28 ára í dag. FORSVARSMENN LÍNUHÖNNUNAR Ríkharður Kristjánsson framkvæmdastjóri, Árni Björn Jónasson stjórnarformaður og Sigurður Ragnarsson aðstoðarframkvæmdastjóri. Á myndina vantar Odd Hjaltason verkefnastjóra. Þann 7. febrúar árið 1979 fékk 68 ára gamall maður hjartaáfall og drukknaði í sjónum við strendur Brasilíu. Maðurinn var einn hataðasti böðull nasista, dr. Josef Mengele. Hann var læknir sem framkvæmdi svívirðilegar pyntingatil- raunir á föngum í útrýmingarbúðunum í Auschwitz auk þess að taka þátt í að velja hverjir skyldu líflátnir í gasklefum búðanna. Mengele náðist aldrei og fór í 35 ár huldu höfði undir margvíslegum dulnefnum. Það var ekki fyrr en 1985 að lík hans fannst og á það voru borin kennsl í sameiginlegu átaki banda- rískra, þýskra og suður-amerískra yfir- valda. Árið 1992 var svo staðfest með DNA-rannsókn að líkamsleifarnar væru í rauninni hans. Mengele hafði verið dæmdur fjarverandi til ævilangrar fang- elsisvistar í læknahluta Nürnberg-réttar- haldanna árið 1946. Hryllilegar aðfarir Mengeles í útrýming- arbúðunum hafa orðið efniviður í margvíslegan skáldskap og aðfarir hans voru lyginni líkastar. Meðal annars gerði hann rannsóknir á tvíburum, en þeim sýndi hann sérstakan áhuga. Hann reyndi að sauma systkin saman til að búa til „tilbúna“ síamstvíbura, sprautaði litarefni í augu barna til að reyna að breyta augnlit þeirra og prófaði marg- víslegar aflimanir og aðrar skurðaðgerð- ir. Fórnarlömb hans, sem á annað borð lifðu tilraunir hans af, voru svo yfirleitt aflífuð eftir á, til að hægt væri að rann- saka þau nánar með krufningu. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1793 Austurríki og Prússland gera með sér bandalag gegn Frakklandi. 1942 Húsmæðraskóli Reykjavík- ur tekur til starfa. Fyrsta skólastýra var Hulda Á. Stefánsdóttir. 1964 Innrás breskra rokkara á Bandaríkjamarkað hefst þegar þúsundir skrækjandi aðdáenda taka á móti Bítl- unum í New York við upp- haf tónleikaferðalags þeirra. 1974 Concorde-þota lendir í fyrsta sinn á Keflavíkurflug- velli. 1974 Bretland eftirlætur smáeyj- unni Grenada í Karíbahafi sjálfstæði. 1984 Geimfararnir Bruce McCandless II og Robert L. Stewart fara í fyrstu örygg- islínulausu geimgönguna. Joseph Mengele fékk slag og drukknaði Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér á síðunni má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Júlía Valsteinsdóttir sem lést á Sólvangi, Hafnarfirði, að morgni 29. janúar verður jarð- sungin frá Hafnarfjarðarkirkju, þriðjudaginn 8. febrúar klukkan 13.00. Henning Þorvaldsson, J. Steinunn Alfreðsdóttir, Birna Friðrika Þorvaldsdóttir, Jón Ragnar Jónsson, Valdís Ólöf Þorvaldsdóttir, Steinar Harðarson, Sigurbjartur Á. Þorvaldsson, Sveinsína Björg Jónsdóttir, Guðmundur Páll Þorvaldsson, Helga Aðalbjörg Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Flengingar og bolluát Í dag er bolludagur, en hann er ávallt mánudagurinn í sjöundu viku fyrir páska og getur því fall- ið á tímabilið frá 2. febrúar til 8. mars. Dagurinn dregur nafn sitt af bolluátinu sem einkennir hann, en hingað barst hann seint á nítj- ándu öld. Þá tengist bolludeginum annar siður en sjálft átið, en það er sú venja að vekja menn með fleng- ingum. Sú venja er raunar talin hafa flust yfir á bolludaginn frá öskudegi, sem er á miðvikudag- inn. Í kaþólskum sið var ösku dreift með nokkurs konar vendi á öskudag og guðhræddir menn flengdu sjálfa sig í iðrunarskyni. Við siðbreytinguna fluttust fleng- ingarnar yfir á aðra daga sem skemmtun og hér á landi tóku börn þær að sér á bolludaginn. Sums staðar er haft fyrir sið að börnin veki foreldra sína með flengingunum og fái svo jafn margar bollur um daginn og högg- in sem þurfti til að koma foreldr- unum til meðvitundar. BOLLUVENDIR Oft koma börn heim til sín með vendi sem búnir hafa verið til í leik- eða grunnskólanum. LH-HÓPURINN Línuhönnun er í hópi 7 fyrirtækja sem ganga undir nafninu LH-hópurinn, en fyrirtækið er misstór hluthafi í þeim öll- um. Þetta eru Línuhönnun, LHtækni, Forverk, Umsýn hf., Scandicplan í Berlín og Hecla sem hefur aðsetur í París. LHtækni sinnir verkfræðilegri forritun- argerð á breiðum grundvelli. Forverk er gamalgróið fyrirtæki sem í ársbyrjun 2002 rann að mestu saman við rekst- ur Línuhönnunar undir sviðinu „Þétt- býlistækni og mælingar“. Scandicplan var stofnað 1995 í Berlín og er nú al- farið í eigu Línuhönnunar, en það heldur utan um verkefni í Þýskalandi. Hecla er svo nýtt fyrirtæki með aðsetur í París, en því er ætlað að vera tengiliður við fjarlæga markaði, svo sem í Afríku, Austur-Evrópu og víðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.