Fréttablaðið - 07.02.2005, Qupperneq 51
Lágafellskirkja er ein elsta kirkja á höfuð-
borgarsvæðinu. Hún var reist árið 1889
eftir harkalegar deilur, sem segir nánar af
Innansveitarkroniku eftir Halldór Laxness.
Lágafellskirkja er timburkirkja á steingr-
unni en hönnuður hennar var Hjörtur
Hjartarson, forsmiður. Miklar endurbætur
og viðgerðir hafa farið fram á kirkjunni
síðar, þær mestu 1956 þegar kirkjan var
lengd um 3 metra eða sem svarar lengd
kórsins og auk þess gert við hana skrúð-
hús norður úr kórnum. Lágafellskirkja
þjónar Mosfellsprestakalli og sóknar-
prestur er séra Jón Þorsteinsson.
Ný lán fram
fyrir gömul
Þegar hugað er að endurskipulagn-
ingu fjármála er mikilvægt að hafa í
huga að Íbúðalánasjóður veitir við-
skiptavinum sínum veðleyfi fyrir ný
lán fram fyrir gömul lán sjóðsins
óski þeir eftir því.
Skilyrðin eru þau að samanlögð
fjárhæð hins nýja láns og eldra láns
Íbúðalánasjóðs fari ekki yfir gildandi
hámark lána sjóðsins nú, 14,9 millj-
ónir, og ekki fram úr 90% af mat-
verði íbúðar. Þá getur fjárhæðin ekki
farið yfir gildandi brunabótamat
íbúðar.
Að auki eru ákveðnir skilmálar
sem uppfylla þarf svo þetta sé unnt.
Þeir skilmálar eru eftirfarandi:
Heimildin tekur einungis til lána
sem þinglýstur eigandi er greiðandi
að. Hægt er að víkja hvort heldur er
fyrir nýjum lánum og/eða eldri lán-
um. Eftirtalin lán mega ekki víkja í
veðröð; lán úr Byggingarsjóði verka-
manna, lán til leiguíbúða eða búsetu-
réttaríbúða, ILS-veðbréf. Ekki er
hægt að víkja fyrir öðrum veðsetn-
ingum en skuldabréfalánum sem
falla undir og fá samrýmst íslenskum
lögum. Íbúðalánasjóði er heimilt að
hafna því að víkja í veðröð telji hann
skilmála skuldabréfsins/-bréfanna
óásættanlega fyrir sig sem síðari
veðhafa eða ef hann telur ástæðu til
að ætla að hin nýja veðsetning sé
málamyndagerningur.
Íbúðalánasjóði er heimilt að hafna
því að víkja í veðröð ef vanskil á áhví-
landi láni/lánum eru orðin slík að
greiðsluáskorun hefur verið send út.
Íbúðalánasjóði er heimilt að láta
framkvæma, á sinn kostnað, sérstaka
athugun á verðmæti eignarinnar.Ef
óskað er eftir að áhvílandi viðbótar-
lán víki í veðröð þá skal það háð sam-
þykki Varasjóðs húsnæðismála. Þá
þurfa ákveðin gögn að fylgja umsókn
um skilyrt veðleyfi vegna þessa:
Greiðslumat, ekki eldra en tvegg-
ja mánaða. Greiðslumatið er það
greiðslumat sem gert var hjá lánveit-
andanum vegna lántökunnar. Hafi
ekkert greiðslumat verið gert eða ef
um eldri lán er að ræða er hægt að
gera greiðslumat í gegnum vefsíðuna
www.ibudalan.is eða með því að setja
sig í samband við Íbúðalánasjóð.
Ef samanlögð fjárhæð nýs láns og
eldri lána Íbúðalánasjóðs fer upp fyr-
ir fasteignamat íbúðar þarf verðmat
hinnar veðsettu íbúðar frá löggiltum
fasteignasala; ekki eldra en tveggja
mánaða.
Sé beiðnin gerð í tengslum við
kaupsamning þarf ekki verðmat fast-
eignasala. Þá þarf að senda afrit
kaupsamningsins. Þá, eins og
endranær, hefur Íbúðalánasjóður
heimild til að láta trúnaðarmann sinn
gera sérstakt verðmat á sinn kostnað.
Ef um nýtt/ný lán er að ræða ljós-
rit af lánsloforði. Ef um eldra lán er
að ræða þarf ljósrit af skuldabréfi/-
bréfum og útprentun á stöðu lánsins
úr tölvukerfi skuldareigandans.
Eyðublöð vegna þessa er að finna á
vefsíðu sjóðsins, www.ils.is.
Höfundur er sviðsstjóri þróunar-
og almannatengsla Íbúðalánasjóðs.
Réttur kaupandi að réttu húsi þýðir rétt verð
fyrir rétta eign. Traustir og öruggir samningar
tryggja síðan ánægjuleg viðskipti.
Réttur aðili að réttum kaupum er grunnur að
tryggum viðskiptum og trygg viðskipti eru
uppistaðan að ánægðum viðskiptavinum.
Reiknaðu dæmið alla leið
réttur kaupandi - rétt verð
©
g
an
d
ri
- G
u
ðm
u
n
d
u
r A
n
d
ri
Sk
ú
la
so
n
| Tákn um traust ]
Markaðssetning og kynning íbúða og
umhverfis, traust skjala- og samningagerð
ásamt ráðgjöf og upplýsingaþjónustu er aðeins
lítill hluti þeirra verka sem við sinnum fyrir þig.
Markviss kynningaráætlun tryggir það að rétti
kaupandinn verði var við þína eign.
M-þjónusta – 595 9015 / 8 200 215
rétt verð - rétt þóknun
G.Andri | gandri@holl.is | Davíð | david@holl.is | beinn sími 595 9015 | gsm: 8 200 215
Guðm. Andri | Davíð
Ekki kasta...
krónunni til að spara aurinni il i
Lágafellskirkja
SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
TÍMABIL
0
50
100
150
200
250
300
28/1 - 3/2
198
24/12 - 30/12
184
31/12 - 6/1
123
7/1 -13/1
153
14/1-20/1
152
21/1-27/1
173
FJÖLDI
HALLUR MAGNÚSSON
HÚSIN Í BÆNUM