Fréttablaðið - 07.02.2005, Blaðsíða 54
LEIKIR GÆRDAGSINS
MÁNUDAGUR 7. febrúar 2005 17
27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
6
6
4
- í gó›um málum
Enska úrvalsdeildin
SOUTHAMPTON–EVERTON 2–2
0–1 James Beattie (4.), 1–1 Peter Crouch (36.),
2–1 Henri Camara (55.), 2–2 Marcus Bent (90.).
CHELSEA–MAN. CITY 0–0
STAÐAN
CHELSEA 26 20 5 1 49–8 65
MAN. UTD. 26 16 8 2 43–16 56
ARSENAL 26 16 6 4 58–30 54
EVERTON 26 14 6 6 31–27 48
LIVERPOOL 26 13 4 9 41–27 43
MIDDLESB. 26 11 7 8 41–35 40
BOLTON 26 11 6 9 35–32 39
CHARLTON 26 11 5 10 30–36 38
TOTTENH. 26 10 6 10 33–30 36
MAN. CITY 26 8 9 9 31–27 33
A. VILLA 26 8 8 10 29–33 32
NEWCASTLE 26 7 10 9 37–43 31
PORTSM. 26 8 6 12 29–38 30
BIRMINGH. 26 7 8 11 29–33 33
FULHAM 26 8 5 13 33–44 29
BLACKB. 26 5 10 11 21–36 25
C. PALACE 26 5 7 14 29–40 22
NORWICH 26 3 11 12 26–48 20
SOUTH. 26 3 10 13 28–43 19
WBA 26 2 11 13 23–49 17
MARKAHÆSTU MENN
THIERRY HENRY, ARSENAL 17
ANDY JOHNSON, C. PALACE 15
JERMAIN DEFOE, TOTTENHAM 11
ANDY COLE, FULHAM 10
JIMMY F. HASSELBAINK, MIDDLESBR. 10
ROBERT PIRES, ARSENAL 10
MILAN BAROS, LIVERPOOL 9
AIYEGBENI YAKUBU, PORTSMOUTH 9
SHAUN WRIGHT-PHILLIPS, MAN. CITY 9
FREDRIK LJUNGBERG, ARSENAL 8
ROBBIE KEANE, TOTTENHAM 8
PAUL SCHOLES, MAN. UTD 8
DIDIER DROGBA, CHELSEA 8
Tveir leikir í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Chelsea tapaði tveimur
dýrmætum stigum
FÓTBOTI Lið Chelsea, sem hefur
verið á mikilli siglingu í ensku úr-
valsdeildinni undanfarið, varð að
sætta sig við jafntefli á heimavelli
við Manchester City í gær. Chel-
sea-menn óðu í færum í leiknum
en náðu ekki að nýta sér það og
uppskáru aðeins markalaust jafn-
tefli. Í fyrri leik gærdagsins voru
það svo liðsmenn Everton sem
stálu senunni enn eina ferðina í
vetur þegar þeir björguðu stigi á
elleftu stundu á útivelli gegn
Southampton.
Chelsea-liðið lék án Hollend-
ingsins Arjen Robben sem er
meiddur, en hefur verið aðal-
sprautan í liðinu og lykilmaður í
velgengni þess undanfarið. Það
virtist ekki ætla að koma að sök í
gær, því Chelsea óð í færum og
gerði sig líklegt til að valta yfir
andstæðingana. Það átti hins veg-
ar ekki fyrir leikmönnum Chelsea
að liggja að vinna og blanda af
óheppni þeirra og frábærri mark-
vörslu David James, markvarðar
Manchester-liðsins, kom í veg
fyrir sigur þeirra. Gestirnir áttu
líka hættuleg færi í leiknum og á
góðum degi hefðu þeir allt eins
getað stolið sigrinum, en þeir
náðu ekki að skora frekar en and-
stæðingarnir. City-menn geta þó
vel við unað, enda hafa þeir nú
hirt 4 stig af Chelsea í vetur, sem
er árangur sem ekkert annað lið
getur státað af. Þetta var í fyrsta
skipti síðan 9. desember sem lið í
úrvalsdeildinni nær að hafa stig
af Chelsea-liðinu, en þá gerði það
2-2 jafntefli við meistara Arsenal.
Eiður Smári Guðjohnsen lék allan
leikinn fyrir Chelsea og náði ekki
að skora þrátt fyrir ágæt færi.
Á St. Mary’s mættust heima-
menn í Southampton og spútniklið
Everton í hörkuleik. Það var fyrr-
um leikmaður Southampton,
James Beattie, sem skoraði fyrsta
mark leiksins en hann gekk í rað-
ir Everton fyrir 6 milljónir punda
fyrir stuttu og var því að spila
sinn fyrsta leik á St. Mary’s fyrir
annað félag. Hinn leggjalangi Pet-
er Crouch náði að jafna leikinn
fyrir hlé og heimamenn komust
svo yfir í síðari hálfleik með
marki frá Senegalanum Henri
Camara. Bæði lið fengu nokkur
færi til að skora á síðustu mínút-
um leiksins, en það var ekki fyrr
en komið var fram yfir venjuleg-
an leiktíma að Marcus Bent, fram-
herji Everton, sleit sig lausan og
skoraði frábært mark eftir gott
einstaklingsframtak. Chelsea er
áfram á toppi ensku úrvalsdeild-
arinnar með 65 stig, 9 stigum á
undan Manchester United, sem er
í öðru sæti. Everton tryggði stöðu
sína í fjórða sætinu með stiginu í
dag og hefur hlotið 48 stig. Lið
Southampton er í verulegum
vandræðum og er í næstneðsta
sæti með aðeins 19 stig. ■
FOWLER Á FULLRI FERÐ Robbie Fowler, framherji Manchester City, sést hér í baráttu
við franska varnarmanninn William Gallas hjá Chelsea í leik liðanna á Stamford Bridge í
gær. Tékkneski miðjumaðurinn Jiri Jarosik fylgist grannt með gangi mála.