Tíminn - 09.02.1975, Qupperneq 19
18
TÍMINN
Sunnudagur 9. febrúar 1975
Sunnudagur 9. febrúar 1975
TÍMINN
19
Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum?
ar. En myndir þess bindis gerðí
Halldór Pétursson listmálari.
Ég tók þennan þráð aftur upp
löngu seinna, er ég sá á vegum
Þjóðvinafélagsins um útgáfu á
siðustu útvarpsfyrirlestrum
Helga Hjörvar, er fjölluðu um
konur á Sturlungaöld. Fékk ég
Gunnar Eyþórsson fréttamann til
að teikna nokkrar myndir i þá út-
gáfu.
Gunnar varð einnig við tilmæl-
um minum um að teikna myndir i
kver, sem ég tók saman um likt
leyti og nefndi Gamansemi Eglu-
höfundar, en kverið var gjafabók
Almenna bókafélagsins 1967.
Loks er þess skemmst að minn-
ast, aö út kom á siðast liðnu ári i
umsjá minni á vegum Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs og Þjóð-
vinafélagsins íslendingasaga
Sturlu Þórðarsonar með myndum
eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur
og Eirik Smith.
— Hvernig var háttað mynda-
valinu i þeirri útgáfu?
• — Ég tók þann kost að velja
fyrst rúmlega hundrað atriði úr
sögunni, svo að tryggt væri, að
myndirnar rööuðu sér nokkuð
jafnt og þær yrðu fjölbreyttar að
efni. En siðan völdu þau Þorbjörg
og Eirikur sér viðfangsefni úr um
helmingi þessa efnis.
Sturlu Þórðarsyni er m jög lagið
aö bregða upp lifandi myndum,
svo að af miklu efni er þarna að
taka.
Hundrað ár i
Vesturheimi
— Þú hefur lengi haft áhuga á
málefnum tslendinga vestan
hafs. Hvernig er sá áhugi til kom-
inn?
— tslendingar i Kanada og
jafnframt i Bandarikjunum söfn-
uðu á sinum tima miklu fé og gáfu
Manitobaháskóla i Winnipeg með
þvi skilyrði, að komið yrði á fót
við skólann, þegar ákveðnu
marki hefði verið náð, sérstakri
kennsludeild i islenzkri tungu og
bókmenntum.
Það kom svo i minn hlut að
verða fyrsti kennari við þessa
deild, og fór ég vestur i þvi skyni i
nóvembermánuði 1951. Allan tim-
ann sem ég var vestra ferðaðist
ég mikið um byggðir tslendinga,
og var mestur leiðangur sá er ég
fór sumarið 1955, en þá ók ég frá
Winnipeg til Spanish Fork i Utah
til að taka þátt i hátiðahöldum
landanna þar á aldarafmæli ts-
lendingabyggðarinnar i Utah.
Kjartan Ó. Bjamason var ráð-
inn til þessarar ferðar með mér,
og tók hann myndir, bæði litkvik-
mynd og ljósmyndir, hvar sem
við komum meðal tslendinga. Að
loknum hátiðahöldunum i Span-
ish Fork fórum við suður til Los
Angeles, siðar norður ströndina
allt til Vancouver og þaðan út á
Vancouver-eyju, en siðan austur
á bóginn allt til Manitoba. Höfð-
um við ekið alls um 17 þúsund
kilómetra, áður en ferðinni lauk.
Þegar ég kom hingað heim al-
kominn að vestan 1956, sýndi ég
kvikmynd úr þessari ferð, Hundr-
að ár i Vesturheimi, viða um
land, og 1970 sýndi ég hana einnig
i allmörgum stöðum vestan hafs
við góða aðsókn.
Raddir að vestan
og bréfin til
Stephans G.
A ferðalaginu vestra hafði ég
með mér segulbandstæki og átti
viðtöl við tslendinga bæði þá og
endranær, og er þar varðveittur
fjöldi radda. Sumum þessum við-
tölum var útvarpað hér heima á
sinum tima, og nefndist sá þáttur
Raddir að vestan. Ég minnist
þess, að einn gamall landi, er ég
ræddi við i Winnipeg, var fæddur
1866 og sagði frá hátiðahöldum i
heimasveit sinni i Borgarfirði
1874. Ég býst ekki við að við eig-
um á segulbandi márgar frásagn-
ir sjónarvotta af svo gömlum við-
burðum. Aðrir, er ég ræddi við,
voru fæddir vestan hafs á fyrstu
árum Islendinga þar og gátu sagt
frá atburðum, sem nú eru að
verða aldargamlir.
Á ferðalögum um byggðir Is-
lendinga vestan hafs var ævintýri
að koma t.a.m. á slóðir Stephans
G. Stephanssonar, bæði i Norður-
Dakota og Alberta, og hitta börn
hans, er þá voru þrjú á lifi, en nú
er Rósa, yngsta dóttirin, orðin
ein eftir. Þau fólu mér á hendur
bréfasafn Stephans, sem nú er
komið i Landsbókasafn, en ég hef
verið að vinna i igripum að útgáfu
úrvals bréfa til hans. Ég er að
vona, að þriðja og siðasta bindið
komist út á þessu ári.
— Frá hverjum verða bréfin i
þvi bindi?
— Þeir eru nú margir eða
t.a.m.: Theodóra Thoroddsen,
Jakobina Johnson, Sigriður
Brandsson, Guttormur J. Gutt-
ormsson, Jón Jónsson frá Sleð-
brjót, Baldur Sveinsson, Sigfús
Blöndal, Sigurður Guðmundsson
og fleiri.
inni f Reykjavik. Ég átti heima i
Suðurgötu, þaðan sem gaf að lita
yfir Tjörnina, og ekki steinsnar
niður á tjarnarbakkann, enda fór
ég daglega á skauta, þegar svell
var, og stundum tvisvar á dag.
Þar sem ég bý núna, i Garða-
hreppi rétt við Hafnarfjörð, sé ég
út um gluggann niður á lækinn og
skautasvellið þar, en ég verð að
játa, að ég er ekki eins fljótur og
ég var áður að hafa mig á skauta,
þótt alltaf sé jafngaman að reyna
sig við keðjuna og önnur gömul
skautabrögð, þegar út i það er
komið.
Þegar i Menntaskólann kom,
var handknattleikur undir stjórn
Valdimars Sveinbjörnssonar
leikfimikennara eftirlætisiþrótt-
in. Ég iðkaði þann leik mikið alla
tið i skóla, gekk þá snemma i KR
og keppti'i meistaraflokki þess fé-
lags nokkur ár.
Handknattleikurinn var ekki þá
orðinn eins og nú einn af atvinnu-
vegum þjóðarinnar, ef svo mætti
segja, eða sú vertið, sem aldrei
bregzt. Mig minnir, að ég heyrði i
Iþróttafréttum, að kappleikir
vetrarins i þessari grein einni
yrðu nokkur þús. Það væri ekki
litið grettistak, sem þessi hópur
Iþróttamanna gæti lyft, ef hann
beindi þótt ekki væri n?ma broti
allrar þeirrar orku, er i leikinn
fer að öðrum viðfangsefnum, er
gætuveriðengu siður holl og ef til
vill þroskavænlegri.
1 sambandi við handknattleik-
inn mætti máski geta þess, að ég
samdi um hann, þegar ég var i 6.
bekk Menntaskólans, ritgerð, er
ég hlaut fyrir svonefnd Gull-
pennasjóðsverðlaun. Samkeppnin
var að visu ekki hörð, þvi að þetta
var held ég eina ritgerðin, sem
send var dómnefnd það vorið!
Ritgerð þessi var prentuð I
Iþróttablaðinu 1944.
Nokkru siðar þýddi ég úr þýzku
handknattleiksreglur, og voru
þær prentaðar á vegum Iþrótta-
sambands Islands 1946.
Doktorsritgerð um
Hómersþýðingar og
útgáfa Flateyjar-
bókar.
Þegar ég hóf nám i íslenzkum
fræðum við Háskóla Islands
haustið 1943, datt mér i hug, að
gaman væri jafnframt að læra
dálitið i grisku, og fékk ég leyfi til
að sækja kennslustundir i henni i
guðfræðideild, en kennari var
Kristinn Armannsson. Hljóp þeg-
ar talsvert kapp I mig við grisku-
námið, þvi að ég brauzt á einu
misseri gegnum námsefni hálfs
annars vetrar og lauk griskuprófi
I janúar 1944. Ég segi frá þessu
hér vegna þess, að þetta nám réð
siðar úrslitum um það verkefni,
er ég löngu siðar kaus að fjalla
um i doktorsritgerð minni, Hóm-
ersþýðingar Sveinbjarnar Egils-
sonar.
— Vannst þú ekki mikið að út-
gáfu Flateyjarbókar á sinni tið?
— Jú. Ég var vist ekki sloppinn
úr griskuprófinu, þegar ég byrj-
aði ásamt frænda minum, Vil-
hjálmi Bjarnar frá Rauðará, er
þá var einnig við nám i islenzkum
fræðum, að vinna að nýrri útgáfu
Flateyjarbókar undir handleiðslu
Sigurðar Nordals prófessors.
Frumkvöðull þeirrar útgáfu
var Jónas Sveinsson læknir, en
hann hratt siðar af stað i kjölfar
hennar Islendingasagnaútgáf-
unni, sem dró áður en lauk langan
hala.
Lestur Flateyjarbókar og kynni
við Sigurð Nordal urðu hollur
skóli. Vinnan við Flateyjarbók
stóð eina tuttugu mánuði og var
auðvitað nokkuð erfið að vetrin-
um samhliða náminu, en sumrin
1944 og 1945 urðu drjúg, þótt við-
brigði væru að sitja inni við próf-
ur. nnnDogi Guómumtsson hefur frá barnæsku verið handgenginn
skautaiþróttinni og cr snjall i þeirri grein. — Þegar Ijósmyndara Tim-
ans bar að garði, tók landsbókavörður fram skautana sina og greip
nokkrar æfingar, sent honum cru tamar frá fornu fari. Og víst hafði
hann áhugasama áhorfendur. Börn á ýmsum aldri horfðu á eins og þau
vildu segja: Hvaö er þcssi fulloröni inaður aö vilja á svellið til okkar?
Eöa: Hvenær skyldi ég ná svona góðuin árangri?
Timamyndir Gunnar.
ÞAÐ ER dr. Finnbogi
Guðmundsson lands-
bókavörður, sem i dag
ætlar að segja lesendum
Tímans frá þvi hvernig
hann notar þær tóm-
stundir, sem honum gef-
ast frá daglegum störf-
um.
Þegar við höfðum komið okkur
fyrir á hinu fagra og vingjarnlega
heimili, sem þau hafa búiö sér
rétt ofan við Hafnarfjörð, dr.
Finnbogi og Kristjana Helgadótt-
ir læknir, kona hans, þá var nú
hugkvæmni blaðamannsins ekki
meiri en svo að fyrsta spurningin
var eitthvað á þessa leið:
Skautaferðir og
handknattleikur
— Hvað hefur þér þótt
skemmtilegast að gera I tóm-
stundum þinum, landsbókavörð-
ur?
— Ég veit ekki, hvað þú vilt
fara langt aftur i timann, en ef
rifja skal upp, hver áhugamálin
voru forðum daga, koma tnanni
fyrst i hug skautaferðir á Tjörn-
arkalestur i stað þess að vera I
vegavinnu norður i landi.
Þegar þvi Flateyjarbókarvinn-
unni lauk haustið 1945, fannst mér
dálitið strembið að setjast þegar
á skólabekkinn og dreif mig I
nokkurra vikna ferð til Sviþjóðar
og skrapp þá jafnframt til Kaup-
mannahafnar. Ég hef alla tið haft
mikla ánægju af ferðalögum bæöi
innan lands og utan, og komum
við ef til vill að þvi siðar.
— Þú hefur iiklega ekki látiö
staðar numið við útgáfustörfin,
þótt Flateyjarbók væri frá?
—• Siðar á námsárum minum
vann ég nokkuð á vegum Islend-
ingasagnaútgáfunnar, meðal
annars að útgáfu Karlamagnús-
sögu með Bjarna Vilhjálmssyni.
Fornar sögur með
myndum
— En hvað um myndir i útgáf-
um fornsagna, sem þú hefur séð
um?
— Árið 1949 sá ég um útgáfu á
nokkrum þáttum úr fornum sög-
um með myndum, og hét það
bindi Þá riðu hetjur um héruð —
Myndirnar voru teknar úr hinu
kunna verki, Vore Fædres Liv, er
prentað var upphaflega i
Kristjaniu (Osló) 1898, og hafði
norski málarinn Andreas Bloch
gert myndirnar.
Annað bindi áþekkt kom út 1950
na npfndist Heika svÍDÍr fornald-
Ritstörf og ræktun lands eru
með hollari viðfangsefnum
Rætt við dr. Finnboga Guðmundsson, landsbókavörð, sem annast
umfangsmikla útgáfustarfsemi í tómstundum og á í garði
sínum rós, upprunna á leiði Stephans G. vestur í Alberta
Bréfin til Stephans segja mikla
sögu. Bréf hans sjálfs eru oft ekki
nema hálfsögð saga. Þegar þess
er gætt, hve mörg af kvæðum
Stephans hafa orðið til vegna
sambandsinsog kynnanna við allt
þetta fólk, getum við aldrei full-
þakkað þvi — og birting bréfanna
er að minnsta kosti tilraun til þess
aö greiða að nokkru þá þakkar-
skuld.
önnur viðleitni min til að kynna
Islendinga vestan hafs og málefni
þeirra, kemur enn fremur að
nokkru fram i bókinni Að vestan
og heiman, en hún var prentuð
1967 og er safn af ræðum og grein-
um frá timabilinu 1951—1966. Þá
kom út i minni umsjá 1956 ritið
Foreldrar minir, þar sem fjórtán
kunnir Islendingar vestan hafs
minntust foreldra sinna. Loks hef
ég hjálpað dálitið til við útgáfu á
sumum verkum Islendinga
vestra, er prentuð hafa verið hér
heima, en ekki skal það tiundað
hér.
Ritstjórn Andvara, —
útgáfa á
Orkneyingasögu
— En hvað Um önnur rit- eða
útgáfustörf?
• — Um það er ekki margt að
segja. Ég hef i Landsbókasafni,
siðan ég kom þangað 1964, séð um
útgáfu Árbókar safnsins, en i
henni eru birtar, auk skýrslna um
starfsemi og skrár um árlegan Is-
lenzkan ritauka, ýmsar ritgerðir
um Islenzka bókfræði eða bók-
menntir. Hafa starfsmenn safns-
ins lagt hér mest efni til, en jafn-
framt er leitað til annarra um
einstakar greinar. Þetta hefur
mér þótt skemmtilegt viðfangs-
efni, og ef til vill vegna þeirrar
reynslu, sem ég fékk i þessu
starfi, æxlaðist það svo, að ég
varð 1968 annar tveggja ritstjóra
Andvara. Hinn ritstjórinn var
Helgi Sæmundsson, er annazt
hafði einn um ritið langt árabil.
Við unnum svo saman að And-
vara þangað til i hitteðfyrra, að
menntamálaráð óskaði eftir þvi,
að stjórn Þjóðvinafélagsins réði
ein ritstjórn hans, og hef ég þvi
verið einn að baksa við hann sið-
an.
— Er auðvelt að fá efni I tima-
rit eins og Andvara?
— Það er ekki eins auðvelt og
menn kynnu að ætla. Timaritin
eru mörg og margt, sem keppir
við þau. Þau gegna ekki jafn-
miklu hlutverki og þau gerðu fyrr
á öldinni.
— Hvers konar efni finnst þér
að sitja eigi i fyrirrúmi i And-
vara?
— Ég tel, að reyna eigi að hafa
Framhald á 30. siðu.
Hér situr landsbókavörður fyrir framan hið veglega bókasafn dr.
Rögnvaldar Péturssonar, sem gefið var Landsbókasafni tslands og Há-
skóía islands, og kom hingað til lands fyrir nokkru, eins og sagt var frá
hér I blaðinu nýlega.
Undir Lambakletti i Fljótshlið er sumarbústaður landsbókavarðar og
konu hans. Myndin er tekin ofan af Lambaklettinum. það sér niður yfir
hvanngrænar sléttur Suðurlands og vesturjaðar Eyjafjalla gægist fram
lengst til vinstri.
i hrauninu fvrir ofan Hafnarfjörð hafa þau dr. Finnbogi Guðmundsson
landsbókavöröur og kona lians, Kristjana Helgadóttir læknir ræktað
fagran garð með hinum fjölbrevtilcgasta gróðri. Þessi mynd er tekin
þar á björtum sumardegi.
Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur
Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum?
Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum?