Tíminn - 09.02.1975, Blaðsíða 27
Sunnudagur 9. febrúar 1975
Tí MIÍVN'
21
UAA 10 BEZTU LP-PLÖTURNAR 1974
Nr. 4 Change Change
StJ ISLENZKA HLJÓMSVEIT,
sem spáð hefur verið mestum
frama erlendis, er að sjálfsögðu
hljómsveitin Change. Hún sendi
frá sér LP-plötu skömmu fyrir
siðustu jól, sem nefnd var ein-
faldlega Change, i höfuðið á
hljómsveitinni. Sú plata fékk
menn til að gapa af undrun, og
þegar við reiknuðum saman
atkvæði í þessari skoðanakönn-
un, kom i Ijós, að platan hafði
hlotið fjórða sætið i þessari
könnun.
Það þarf ekki að fara i neinar
grafgötur um það, að hljóm-
sveitin Change er sú hljómsveit,
sem hvað mestar vonir hafa
verið bundnar við, allt siðan
Magnús og Jóhann komu fram i
dagsljósið með tónlist sina. Um
þessar mundir standa þeir fé-
lagar i Change i samningagerð
við stórhljómplötufyrirtækið
POLYDOR, og ef þeir komast
inn fyrir þröskuldinn hjá þvi
fyrirtæki, ætti svo sannarlega
ekki að væsa um þá. Fátt er þvi
betur viðeigandi nú en að senda
þeim hugheilar óskir um
árangursrika samningagerð.
Uppruna Change má rekja
allt til þess að tveir ungir Kefl-
vikingar, Magnús Sigmundsson
og Jóhann Magnússon fóru að
syngja og leika saman I gagn-
fræðaskóla. Nokkrum árum
siðar fóru þeir fyrst að vekja
verulega athygli, og gáfu þeir
þá út LP-plötu, sem hét Magnús
og Jóhann. Hlaut platan þokka-
legar viðtökur og þótti bera þess
vott, að mikils væri að vænta af
þessum tónlistarmönnum i
framtiðinni. Ari eftir þennan at-
burð sendu þeir frá sér litla
plötu með titillaginu Yakketty
Yak, og nefndu sig þá Change.
Er skemmst frá þvi að segja, að
platan hlaut sérlega góðar við-
tökur og titillagið var á hvers
manns vörum i langan tima.
Þegar hér var komið sögu,
komust þeir félagar á samning
hjá Orange-hljómplötufyrirtæk-
inu I Bretlandi, sem þá var ný-
lega stofnað. Sama ár gáfu þeir
út plötu á Islandi undir nafninu
Pal Brothers, og var Candy Girl
þar sem A-hliðslag og varð
mjög vinsælt.
Nokkru siðar var hljómsveitin
Change stofnuð af Magnúsi og
Jóhanni, Birgi Hrafnssyni og
Sigurði Karlssyni. Birgir kom
úr Hljómum, og þar áður var
hann i Svanfriði, en Sigurður
kom úr Svanfriði.
Siðastliðið vor hélt hljóm-
sveitin til Bretlands að freista
gæfunnar. I fyrstu hugði
Orange-fyrirtækið á stóra hluti
með Change, en gugnaði um
siðir á öllu saman og Change
yfirgaf fyrirtækið á siðasta
hausti.
Stuttu siðar rak á fjörur
þeirra viðfrægan útsetjara og
upptökustjóra, H.B. Barnum að
nafni, en áður en lengra er
haldið skal þess þó getið, að
Orange-fyrirtækið gaf út tvær
litlar plötur með Change, sem
litið þótti I varið.
Arangur samstarfsins við
H.B. Barnum sá svo dagins ljós
með LP-plötunni Change, en þó
skal það haft i huga, að hljóm-
sveitin var komin vel á veg með
plötuna, þegar Barnum kom til
sögunnar — og þvi má ætla að
áhrifa hans gæti jafnvel nokkru
minna en fólk hefur álitið. Plat-
an hlaut góða dóma, og Change
má svo sannarlega vel við una
að hafna hér i f jórða sæti, þvi að
ekki má gleyma þvi, að skila-
frestur i könnunina rann út að-
eins þremur vikum eftir að plat-
an kom hér á markað.
Change bættist nýlegá góður
liðsmaður, þegar Björgvin Hall-
dórsson söngvari (og gltarleik-
ari) gekk i Change. Hljómsveit-
in er um þessar mundir i samn-
ingagerð viö Polydor og vinnur
að efni á nýja stóra plötu, sem
H.B. Barnum mun aðstoða við.
.B. Barnum, hinn
viðfrægi útsetjari
og upptökustjóri,
sem vinnur nú að
gerð nýrrar LP-
plötu með Change,
og Magnús Sig-
mundsson, sem
óþarft er að kynna.
Nr. 5 Borboletta Santana
HLJÓMSVEITIN
SANTANA sendi frá
sér LP-plötu undir lok
siðasta árs, og var
plötunni gefið nafnið
Borboletta. Þessi
ágæta hljómplata
hafnaði i fimmta sæti
skoðanakönnunina.
Hljómsveitin Santana var
stofnuð i San Francisco árið
1966 af Carlos Santana, gitar-
leikara og söngvara, Gregg
Rolie, hljómborðsleikara og
David Browne bassaleikara.
Skömmu slðar bættust við þeir
José Areras, sem lék á
trommur, bongos og trompet,
og Michael Carabello, sem söng
og lék á congas og ýmis
ásláttarhljóðfæri. Allir voru
þeir ættaðir frá Mið-Ameriku.
Tónlistin sem þeir léku var og
undir miklum áhrifum þaðan, —
hún var einskonar sambland af
svokallaðri Latin-Amerikan
tónlist, og jass með nútíma
poppivafi.
Hljómsveitin vakti fyrst at-
hygli árið 1970, og komst þá á
samning hjá CBS hljómplötu-
fyrirtækinu, — en ári siðar sló
hún I gegn svo um munaði á hin-
um viðfrægu Woodstock-hljom-
leikum, og hefur æ siðan átt
miklum vinsældum að fagna um
allan heim. Árið 1971 bættust
tveir nýir liðsmenn I hljóm-
sveitina — Joseph Escoredo,
sem lék á ýmis ásláttar-
hljóðfæri og Neal Schon gitar-
leikari.
A þessum tima breytist still
hljómsveitarinnar og hún tekur
að flytja mun léttari tónlist en
áður en þó með suður-
ameriskum blæ. Á þessum ár-
um gefa þeir út tvær LP-plötur,
Abraxas og third Album, sem
ná gifurlegum vinsældum, ekki
sizt fyrir frábæran gitarleik
Carlos Santana, sem hefur alla
tið siðan verið talinn einn bezti
gitarleikari i heimi.
Eftir Third Album leystist
hljómsveitin upp einkum vegna
þess að Carlos Santana gerðist
skyndilega afar trúhneigður
Siðla árs 1972 endurvakti hann
Santana, og var hún þá skipuð
eftirtöldum mönnum: Carlos
Santana (gitar söngur), Tom
Coster (orgel), Leon Ratillo
(rafmagnspianó, mellotron og
söngur), Michael Shrieve
(trommur), Davie Browne
(bassi), Armando Pereza
(ásláttarhljóðfæri) og Jósé
Areas (ásláttarhljóðfæri og
congas)
Fyrst eftir endurvakningu
hljómsveitarinnar virtist sem
hún væri að hverfa aftur til
uppruna sins, jassins og mikilla
suður-ameriskra áhrifa. Þó
þykir ýmislegt benda til þess
að tónlist þeirra sé nú æ meira
að nálgast það sem þeir sendu
frá sér á Abraxas og Third
Album, og kemst siðasta plata
þeirra, Borboletta, næst þeirri
tónlist af siðari tima plötum
Santana.
Hljómsveitin Santana hefur
gefið út eftirtaldar plötur: 1.
Santana 1970, Abraxas 1971,
Third Album 1972,
Caravanserai 1972, Welcome
1973 og Borboletta 1974.
Af þessum eru taldar beztar
Abraxas 1971 Third Album 1972
og Borboletta 1974.
Við veljum sjálfir
NÚ-TÍMAAAENN VELJA ÞÆR 10 PLÖTUR,
SEM ÞEIM ÞÓTTU BEZTAR Á ÁRINU 1974
1. Dark Horse — George
Harrison
2. Fulfillingness First Finale
— Stevie Wonder
3. Late for the Sky — Jack-
son Browne
4. From the Mars Hotel —
Greatful Dead
5. Langspil — Jóhann G.
Jóhannsson ____________
Gunnar Salvarsson
umsjónarmaður
Nú-tímans
6. The place I love — Splinter
7. Change — Change
8. Mother Lode — Loggins
and Messina
9. Chicago VII — Chicago
10. Peace on You — Roger
McGuinn
1. Peace On You — Roger
McGuinn
2. Fulfillingness First Finaie
— Stevie Wonder
3. Close Up The Honky Tonks
— Flying Burrito Brothers
4. From The Mars Hotel —
Greatful Dead
5. Grievous Angel — Gram
Parsons_______________
Gunnar Gunnarsson
hljómplötugagn-
rýnandi Nú-tímans
6. Miles Of Aisles — Joni
Mitchell
7. Pretzel Logic — Steely
Dan
8. Unborn Child — Seals and
Crofts
9. No Other — Gene Clark
10. Preservation Act 2 — The
Kinks
1. Bad . Company — Bad
Company
2. Spider Jiving — Andy
Fairweather Low
3. Change — Change
4. Mother Lode — Loggins
and Messina
5. Fullfillingness First
Finale — Stevie Wonder
Sigurður Þór
blaðamaður
Nú-tímans
6. Eagles On The Boarder —
Eagles
7. 461 Ocean Boulevard —
Eric Clapton
8. Pretzel Logic — Steely
Dan
9. Late For the Sky — Jack-
son Browne
10. No Other — Gene Clark