Tíminn - 25.03.1975, Page 7
Þriðjudagur 25. marz 1975.
TÍMINN
7
Gísli Kristjánsson:
Heimaaflað fóður
og hið innflutta
Tilbúni áburðurinn hækkaði I
fyrra, svo um munaði. Vitað er að
hækkun hans verður miklu meiri
á þessu ári, hvernig svo sem hag-
rætt verður verðhækkun þeirri á
búvöru, sem af þeirri hækkun
hlýzt. Því er meiri nauðsyn nú en
nokkru sinni að nýta heimaaflaða
framleiðslu svo sem framast er
unnt, bæði búfjáráburð og svo
heimafengið fóður, þvi að eins og
sakir standa er innflutt fóður i
mjög háu verði.
Þegar þetta er skráð er ekki bú-
ið að leggja saman og meta magn
þess heimafengna fóðurs, sem
aflað var sumarið 1974. Þó er vit-
að að það var minna en árið áður,
að rúmmáli talsvert minna, en
vafasamt að gæði þess hafi
nokkru sinni verið jafn mikil al-
mennt. Við mat forðagæzlunnar á
gildi heysins til fóðurs á þessum
vetri var höfð hliðsjón af efna-
greiningum, sem búið var að gera
á eftirtekjunni snemma vetrar.
Er það bæði sjálfsagt og eðli-
legt, efnagreiningar eru ekki
bara gerðar fyrir forvitni sakir
heldur til þess, að á þeim megi
byggja gildismat svo að gera
megi ljóst strax á haustnóttum
hvers viröi það er, sem bændur
hafa til fóðurs handa búfé slnu
vetrarlangt.
-Jafnaðarlega mestum við hey
að meöaltali þannig, að um það
bil 2 kg. þurfi I hverja fóður-
ingu, en svo sem öllum bændum á
að vera kunnugt er fóðureining
(F.E.) mælikvaröi á gildi fóðurs
rétt eins og krónan er mælikvarði
á verðgildi hins og þessa. Gildi
fóðursins, heyjanna, sem bændur
eiga I hlööum og stökkum, er efa-
laust betra en nokkru sinni og
jafnvel meira en 10% betra en
meðaltaliö.
Efnagreiningarnar á fóðrinu
frá slðasta sumri, sem hafðar
voru til hliðsjónar, þegar fóður-
forðinn var metinn að þessu sinni,
byggðist á þessum tölum:
Weðaltal
kg.hey
Landshlutar:
Vesturland............... 1.84
Vestfirðir.............. 1-64
Norðurland.............. 1-77
Austurland.............. 1.89
Suðurland............... t .99
Hámark Lágmark.Kg hey i
G. meltaniegt prót. Ikg.
Prótein % í þurrefni
Það er eðlilegt og sjálfsagt, að
sveiflur frá hæstu mörkum til
hinna lægstu séu talsverðar eða
miklar, en viðleitni öll miðar að
þvi að finna meðalgildið. Af töl-
unum hér að ofan má ráð) að
breytileiki I fóðurgildi heyjanna
hefur verið óvenjulitill, en það
segir aftur, að nýting hefur verið
sérlega jöfn. Vonandi eru
geymsluskilyrðin það einnig, svo
að rýrnun fóðursins við geymslu
sé ekki nema eðlileg. Þess ber að
geta, að gildistölur fyrir einstaka
landshluta eru byggðar á mis-
jafnlega miklum fjölda efna-
greininga, en gildismunurinn frá
þvi lakasta til hins bezta er Htill
og segir það sina sögu um meira
öryggi I matinu en annars er aö
jafnaði.
A súluritinu, sem fylgir grein
þessari er ekki tilgreint upp-
skerumagn slðasta sumars af
þeirri ástæðu, að uppgjöri er ekki
lokið.
Litið til liðinna ára
í vissu tilliti standa bændur á
tlmamótum. Með hverju ári að
undanförnu hefur notkun tilbúins
áburðar farið vaxandi. Túnin
hafa stækkað, bústofninn hefur
vaxið og fóðrun búfjárins hefur
farið batnandi frá ári til árs. Þótt
hey hafi I ýmsum árum verið af
skornum skammti hefur innflutt
kjarnfóður og kraftfóður yfirleitt
veriö sérlega ódýrt, þangað til
slðastliðið ár, er það hækkaði
mjög ört og próteinvörur raunar
árið áður. (Þess ber að geta hér I
sviga, að sjálfsagt er að gera
greinarmun á kjarnfóðri og kraft-
fóðri eins og gerist með öðrum
þjóðum kjarnfóður er kjarni =
korn, en kraftfóður er blanda af
mjöli og próteinvörum, og þá tal-
aö um próteinkraftfóður þegar
um ræðir sérlega próteinauðug
efni).
Eins og nú horfir er ekki unnt
að spara tilbúinn áburð, svo nemi
verulegu magni, en hitt er rétt að
Meltaniegt % prótein
g. prótein
Ikg. iþurrefni.
80.0 14.4
80.9 14.4
87.6 15.3
77.1 13.9
84.7 14.9
F.E. 2,3 kg. 1.5 kg.
130 40
20.7 9.2
hugleiða, hvernig heimafenginn
áburður verði betur nýttur en að
í Árbæjarhjáleigu i Holtahreppi i Rangár-
vallasýslu er i óskilum
rauðvindóttur hestur
með blesu, ómarkaður, þriggja vetra
gamall. Hesturinn verður seldur
miðvikudaginn2. april 1975, kl. 15, ef rétt-
ur eigandi hefur ekki gefið sig fram fyrir
þann tima.
Hreppstjóri Holtahrepps,
simi um Meiritungu.
Jörð til sölu
Jörðin Urðarbak i Þverárhreppi V-Hún. er
til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Á jörðunni
eru fjárhús fyrir 300 f jár ásamt hlöðum og
20 hektara túni. Veiðiréttur i Rauðalæk
(silungur og lax).
Nánari upplýsingar i sima 95-1386. Tilboð-
um sé skilað fyrir 15. april til Heimis
Ágústssonar, Sauðardalsá V-Hún.
undanförnu og svo hvernig sá að-
keypti er nýttur.
Niðurstaðan af ræktun og
áburðarnotkun er og þarf alltaf
að vera: Mikið og gott heyfóður
og þvi betra hey, sem bóndi hefur
til umráða, þeim mun auðveld-
ara er að spara aðfengið kjarn-
fóður og kraftfóður. Og þótt aldrei
sé unnt að spara það með öllu, ef
fá skal þær afurðir af búfénu, sem
það hefur arfborna hæfileika til
að skila, þá er gott heimaaflað
fóður forsenda þess að spara
megi að marki hið aðkeypta.
Ef viö lltum svo til liðinna ára
og skoðum hvað við höfum haft af
heimafengnu fóðri, og samtlmis
litið á tákn súluritsins til þess að
gera okkur grein fyrir hve mikið
fóður hefur verið aðfengið, þá
sýnir það sig, samkvæmt mati
forðagæzlunnar, að af samana-
lögðu fóðri búfjárins, sem notað
er vestrarlangt, nemur hið
innflutta um 30% ofurlltið mis-
jafnt frá ári til árs, en mest var
það árið 1970 eða 37% af saman-
lögðu vetrarfóðri. Olli þvi að
sjálfsögðu árferðið, sem gerði
hey bænda gildislítil það ár.
Með þvl að lita á súluritið og
skoða efri hluta þess, innflutt fóð-
ur siðustu 6 árin I samanburði við
neðri hluta súlnanna, sem tákna
heimafengna fóðrið, er auðsætt,
að magn hins aðkeypta er tals-
vert meira en fyrrum. í þvl sam-
bandi er vert -að geta þess, að
fjöldi alifugla og svína hefur auk-
izt verulega þessi ár og þar eð
fóður þessara búfjargreina er að
mestu innflutt telur það meira á
súluhæðinni, en áður gerðist
Gera má ráð fyrir, að allt að 2/5
hins innflutta fóðurs sé varið til
framleiðslu eggja, fuglakjöts og
svinakjöts.
Hórft fram á leið
Það orkar varla tvimælis, aö
innflutt fóður muni bráðlega
lækka I verði á erlendum mark-
aði, en verð þess fer varla eða
ekki niður á það svið, sem fyrr
gerðist. Oðru máli gegnir um
tilbúinn áburð. Alþjóðafregnir og
skýrslur segja, að skortur verði á
honum til ársins 1980, en þá er
gert ráð fyrir, að komnar verði I
fulla notkun þær feiknastóru
áburöarverksmiðjur, sem nú er
verið að byggja og eru á undir-
búningsstigi á ýmsum stöðum
heimsins.
Sjálfsagt er að viðhafa ýtrustu
viðleitni til að nýta heimafenginn
áburð og hið sama gildir um
heimafengna fóðrið. Við hljótum
að flytja inn korn til fóðurs I
nokkrum mæli, en ekki halda
áfram þeirri háðulegu aðferð, að
flytja úr landi allar tegundir
mjöls þess, sem unnið er úr fisk-
afurðum og flytja inn í þeirra stað
miklu gildisrýrari próteinvöru.
Sú aðferð er molbúaháttur, sem
að undanförnu hefur verið viðhöfð
og útflutningsaðilar ekki verið
viðmælanlegir um að breyta til
skynsamlegra athafna og þjóð-
hagslegra hentari.
1 umræðum I sjónvarpi þann 13.
febrúar s.l. var komið inn á
spurninguna um magn búvöru,
sem framleidd er og hefur verið
með notkun innflutts fóðurs. 1 þvl
sambandi má segja, að fyrir all-
mörgum árum notuðum við
próteinfóður af innlendum upp-
runa fyrst og fremst, en slöustu
árin hefur allt próteinfóður verið
Til sölu
bílkrani
Tegund Hiab 550, 3,2
tonn, 1 1/2 árs, lítið
notaður. Allar nánari
upplýsingar í síma 95-
4662, eftir kl. 19 á
kvöldin.
flutt út, en til landsins aftur lakari
vara af llku tagi. Sá innflutningur
gerir hækkandi innflutningsstölur
að sjálfsögðu, og svo hitt, aö það
goða hefir verið selt til aö kaupa
hið laklega I staðinn.
1 næstu grein skal svo drepiö á
hvað gera ber.
hvað I þvi felst.
Súlurnar gefa til kynna magn
aflaðs fóðurs tjáð I fóðureining-
um, en fóöureining er samnefnari
fyrir gildi fóðurtegunda, rétt eins
og krónan er samnefnari fyrir
verðmætamat hins og þessa.
Tvær fremstu súlurnar túlka,
að framtal hreppstjóra hefur ver-
ið I hestburðum, en hestburðir
voru ákaflega misjafnir og gildi
þess heys að sama skapi vand-
metiö. Frá og með 1966 er fóður-
fengurinn mældur I rúmmetrum
samkvæmt forðagæzlulögunum
frá 1965. Frá sama tima er á
öruggari hátt unnt að meta gildi
fóðursins, einkum þegar fóður-
Liklega er gildismat bagga-
súlnanna tveggja ofrausn, en
eftirfarandi 8 súlur eru nærri
réttu lagi. Þær sýna aflaðan
heyfeng frá ári til árs, og ofan á
þær bætist innflutta fóðrið, kjarn-
fóðrið og kraftfóðrið, sem flest
árin hefur numiö I kring um 30%
af samanlögðu vetrarfóðri, og
mest árið 1970, en þá var þaö 37%
af samanlögöu vetrarfóöri, enda
var þá vandræöaár I heimafengn-
um. Innflutningur erlends fóðurs
hefur numið 60-70 milljónum
fóðureininga áriega siðustu árin,
en heyaflinn I kring um 200
milljónum F.E. árin 1972 og 1973.
Af heyfengnum hefur aðeins
verið verkað i vothey árlega
6-10% og er það allt of litið.
—I I I I —11 ■
SpariÖ
þúsundir í
Sumardekk
Jeppadekk
aff ffveim
dekkjum
aff fjórum
dekkjum
TÉKKNESKA BIFREIDAUMBODID
Á ÍSLANDI H/F
AUÐBREKKU 44 - 46 SÍMI 42606