Tíminn - 04.05.1975, Blaðsíða 15
14
TÍMINN
Sunnudagur 4. mai 1975.
Sunnudagur 4. mai 1975.
TÍMINN
15
Hvað gera þan í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum?
H\að gera þau í tómstundúnum? Greinaflokkur H\að gera þau i tómstundunum?
ekki tómstundastörf sin vegna
þess aB hann sé yfirþreyttur
maður eða kvalinn af starfi sinu.
Siður - en svo. Tómstundavinna
hans á ræturi færni hans sjálfs og
fjölbreytilegum hæfileikum.
Bilasmiðar á Eskifirði,
húsasmiðar i Reykjavik
Hér er nú Róbert til okkar
kominn, og við skulum ekki hafa
formálann lengri, heldur byrja á
spurningunum.
— Hvenær byrjaðir þú að hafa
einhver hjáverk meðfram aðal-
starfi þinu, Róbert?
— Strax. Alls konar dútl og fönd-
ur hefur fylgt mér slðan ég var
bam og unglingur austur á Eski-
firði. Hús foreldra minna stóð
ofarlega I þorpinu, fjallshliðin var
fasthjá, og við strákarnir lékum
okkur alltaf þarna uppi i
brekkunum. Við bjuggum okkur
til sjálfstætt vegakerfi, enda
þurfti þess með, þvi að bilakostur
var mikill. Við áttum tuttugu bila,
þegar flest var, og þeir voru allir
smiðaðir af mér. Það voru mfnar
fyrstu smiðar.enaö visu ekki þær
siðustu. Ég hef alltaf haft gaman
af að handleika hamar og sög, en
auðvit;að er ekki þar með sagt, að
það séu nein ósköp, sem eftir mig
Hggja.
— Smiðar þú ekki alltaf hér
heima fyrir?
— Ég grip i að laga, þegar þess
þarf með, og geri svona það
nauðsynlegasta, en lltið meira
nú orðið.
— Byggðir þú ekki sjálfur ibúðar-
hús þitt?
— Ekki þetta hérna, nei, það var
húsið i Smáibúðahverfinu. Árið
1952 byrjaöi ég á fbúðarhúsi i
Melgeröi 5 i Sogamýrinni. Þá var
Innflutningsnefnd enn við lýði, og
þeir sem voru að byggja þurftú
oft að standa i biðröð.sern náði
alla leið frá Arnarhvoli að húsi
Jóns Þorsteinssonar, áður en þeir
komust á skrifstofu Innflutnings-
nefndar á annarri hæö f Arnar-
hvoli. Það gat farið heill dagur I
þetta, og það þótt erindiö væri
ekki meira en fá leyfi fyrir nokkr-
um spýtum, járni eða sements-
poka.
Fjárhagurinn leytði ekki að
keypt væri vinna nema eins litið
og framast var hægt að komast af
með, svo ég sló upp mótunum
sjálfur, og upp úr grunninum
mokuðum við hjónin i sam-
einingu. Stundum komu sam-
starfsmenn minir úr leikhúsinu
og hjálpuðu mér, og þá reyndi ég
alltaf að koma þvi á þá að
hreinsa sementið af mótunum,
þvi að það þótti mér svo leiðin-
legt! Um haustið, þegar fór að
verða meira að gera i leikhúsinu,
fór ég oft inneftir á kvöldin og var
þá að smiða til klukkan þrjú á
næturnar. Það var feikilega
gaman, þótt það væri erfitt.
Þetta gerðu lika allir, svo að ég
var hvorki einmana, né heldur að
ég fyndi til þess að ég væri á neinn •
hátt öðru visi en nágrannar
mlnir, þótt ég væri að þessu. Það
var mikill byggingahugur i mörg-
um á þessum árum, en
nefndirnar sem alls staðar riðu
húsum, geröu mörgum lifið leitt.
Tók það ráð að smiða
húsgögnin sjálfur
Svo kom aö þvi að ég seldi hús
mitt i Melgerði 5 og keypti Ibúð i
Alfheimum. En fyrir átta árum
fluttist ég hingað i Kópavog og
keypti þetta hús hér við Hóf-
gerðið. Það er múrhúðað
timburhús, og tekið að eldast og
þegar ég kom hingað, þarfnaðist
það nokkurra endurbóta. Mér
finnst alltaf kostur á húsum,
þegar þau veita eitthvert svigrúm
til athafna, og er ekki að orð-
lengja, að þessu húsi hér hefur
verið breytt mjög verulega. Og
þaðhef égallt gert sjálfur. Ég sá,
að með þvi gat ég gert tvennt i
einu: Lagað hús mitt og breytt
þvi eftir minu höföi, og fengið um
leið útrás fyrir smiðaáráttu mina.
— Hefur þú ekki smiðað innan-
stokksmuni i húsin þin þegar þau
sjálf voru fullgerð?
— Ég veit ekki, hversu viröulegt
orö við eigum aö nota um þær
smiðar. Jú, þegar húsið mitt i
Melgeröinu var komiö undir þak,
voru ekki til nein húsgögn i það —
og þar að auk ekki til neinir
peningar til þess að kaupa hús-
gögn fyrir. Hér var þvi ekki
nema um tvennt að ræða: að
duga eða drepast, liggja á gólfinu
eða aö reyna að bjarga sér Ég brá
á það ráð, sem mér þótti vænleg-
ast i svipinn, fór til gamals vinnu-
veitanda mins, sem ég hafði áður
unnið hjá, en hann flutti inn
smlðaáhöld og byggingarefni.
Þama fékk ég gabónplötur, sem
höfðu verið yzt i pakka og voru
gallaðar á jöðrum, og voru þvi litt
seljanlegar. Þessar plötur fékk ég
fyrir mjög aðgengilegt verð,
dröslaði þeim heim kjallarann
hjá mér, klambraði saman
hefilbekk og smiðaborði, hengdi
verkfærin sem ég átti upp á vegg
og fannst þetta þar með orðið
harla gott smiðaverkstæði. Siðan
tók ég til starfa, og má segja, að
þama hafi ég smiðað öll þau hús-
gögn, sem við hjónin þurftum að
nota á næstu árum.
— Attu ekki eitthvað af þessum
húsgögnum ennþá?
— Það er nú orðið litið. Dætur
okkar hjónanna uxu úr grasi,
eins og lög gera ráö fyrir, og flugu
úr hreiðrinu. Þegar þær voru aö
byrja að búa, var auðvitað ekki úr
alltof miklu að spila hjá þeim, svo
að ég eftirlét þeim smám saman
þessa virðulegu smiðisgripi
mina. En fleira kom til. Sum
gömlu húsgögnin, sem ég hafði
smiðað, gengu svo úr sér, að við
þau var ekkert að gera, annað en
að aka þeim á haugana, og lentu
6vi þangað. Nú er ekki eftir hér
eima, nema þrir stólar, sem ég
hef tekið svo mikilli tryggð við, að
ég hef ekki timt aö láta þá frá
mér, hvorki á haugana né annað.
,,Hérna úti á lóðinni er
skúr, fullur af spýtna-
rusli og verkfærum.”
— Ekki ertu hættur að smiða þótt
þú sért kominn i ágætt hús, og
hafir löngu birgt þig upp að hús-
gögnum?
— Ég er steinhættur að smiða
húsgögn, enda er vist nóg komið
afþeim! En ég kann alltaf vel við
mig með hamar og sög á milli
handanna og grip hvert tæk-
færi sem býðst til þess að föndra
eitthvað. Þessu húsi hér fylgir
stór og mikill garður, og ég er svo
heppinn, aö viðhaldið á honum
krefst dálftillar smiðavinnu. Og
sú vinna hefur lika þann kost, að
hún er unnin utan dyra. Hérna úti
á lóöinni er skúr, fullur af spýtna-
rusli og verkfærumÞau voru vist
ekki mörg eða nýtizkuleg, tækin,
sem ég hengdi hróðugur upp á
vegg i kjallaranum i Melgerði 5
fyrir rösklega tuttugu árum, og
vist hefur smiðaáhöldum minum
fjölgað siðan þótt varla geti ég
sagt að ég eigi gott áhaldasafn.
Það var ekki fyrr en i fyrra, sem
ég eignaðist vélknúna sög með
viðeigandi búnaði, en hún hefur
lika veriö óspart notuð, siðan hún
kom I mina eigu.
— Hér er parket á stóru
stofugólfi. Varla hefur þú lagt það
sjálfur?
— Jú, ég baukaði nú við það i
tómstundum minum, en það er
varla hægt að kalla það neinn sér-
stakan myndarskap. Þetta er
svokallaö fljótandi parket, það er
hvorki límt né neglt niður, heldur
er lagöur undir það sérstakur
pappi til þess að einagra það frá
steininum, en það er ekki neglt á
grind, eins og þó er algengt að .
gera. Já, ég hafði ákaflega
gaman af að raða þessu saman,
þótt ég, eins og ég sagði áðan,
telji þaö ekki neitt sem ástæöa sé
til að hæla sér af.
Tvisvar hefur silfurlampinn frægi falliö Róbert Arnfinnssyni I skaut. Og hér gefur aö lfta lampana tvo, ásamt blaöagreinum um þau verk, sem
Róbert fékk viöurkenninguna fyrir.
STARF LEIKARA er
lifrænt og viðburðarikt.
Hann kynnist mörgum,
ekki aðeins flytjendum
og njótendum leikbók-
mennta, heldur líka þvi
ágæta fólki, sem aldrei
hefur verið til, nema i
huga einhvers leikrita-
höfundar. Leikarinn
þarf að læra að skilja
það fólk, sem hann tekur
þátt i að skapa, og
leikari, sem gæddur er
miklum hæfileikum,
hlýtur alltaf að fá mörg
og ólik verkefni við að
glima. Þessu fylgir ærin
tilbreytni, og þvi liggur
nærri að láta sér detta i
hug, að leikarar hafi
minni þörf fyrir
tómstunda vinnu en
margir aðrir. Og þó er
ekki vist, að málið sé
alveg svo einfalt. Ef til
vill getur sjálf fjöl-
breytnin orðið þreyt-
andi.
Róbert Arnfinnsson leikari,
sem hér veröur rætt við, stundar
Róbert Arnfinnsson
Stólarnir þrfr, þeir einu sem eftir eru af húsgögnunum, sem Róbert Arnfinnsson smiöaöi sér foröum.
„Ég hef aldrei
verklaus verið,’T
segir Róbert Arnfinnsson leikari í þessu viðtali, en hann iðkar
smíðar, hljóðfæraleik og sitthvað fleira í frístundum sínum,
enda hefur hann alveg losnað við tómleikann, hinn leiða fylgifisk
margra nútímamanna
Lesmál: VS.
Myndir: Gunnar
i vinnuherberginu.
öll húsdýraeignin
eru þrir svartir
hundar
— Nú ert þú alinn upp úti á lands-
byggðinni og hefur átt heima i út-
jörðum á Stór-Reykjavikur-
svæðinu. Hefur þig aldrei langað
til þess að eiga skepnur?
— Þegar ég var drengur að alast
upp austur á Eskifirði, eignaðist
ég svartan hund. Þegar ég var
kominn hingaö til Reykjavikur og
farinn aö búa i Melgerði 5 I Soga-
mýrinni, eignuðumst viö annan
hund, og svo vildi til, að hann var
lika svartur, þótt ekki væri ég
neitt sérstaklega að sækjast eftir
þeim lit.
Svo liöu árin. Þegar við vorum
komin hingað i Kópavoginn, fór
ein dætra okkar fram á að fá hund
i afmælisgjöf, en mér tókst ekki
að útvega hann fyrir þann tima.
Það var ekki auðveldra en svo að
verða sér úti um þá hér á þeim
árum. En svo gerðist það einn
góöan verðurdag að samstarfs-
maður minn I leikhúsinu kom til
min blaðskellandi og sagði, að
fyrir tilviljun gæti hann útvegað
mér hund. Systir þessa ágæta
mannshafði látð frá sér hund, en
fengið hann endursendan, og nú
stóð hann mér til boða. Jú, mikil
ósköp, ég þaut af staö heim til
konunnar og sótti hundinn. Hann
var svartur eins og hinir.
— Gátu ekki kynni þin við gulu
tikina hans Bjarts i Sumarhúsum
kveikt I þér löngun til að eignast
eina slika?
— Nei, ekki fór nú svo, og voru þó
kynni okkar og samstarf meö
miklum ágætum, bæöi á
leiksviöinu á meðan veriö var að
leika Sjálfstætt fólk, og utan þess,
þegar ég var að hæna hana að
mér meðan á æfingum stóð.
Siðasta reynsla min af hunda-
haldi hér varð ekki nógu góö,
þegar til lengdar lét, enda er lög-
gjöfin um þau efni heldur neikvæð
I garö hundaeigenda. Auk þess
kom fleira til: Eftir að ferðir
minar til útlanda urðu tfðari og
dvalirnar lengri, varö æ erfiðara
að vera meö skepnur hér heima.
Það er hvorki hægt að skilja hund
eftir einan i ibúðinni, þegar lagt
er upp i langferö, né heldur að
koma honum fyrir annars staðar.
Fáir kæra sig um slikt
„tökubarn” og þar að auki
viðbúið, að hundurinn yrði ókyrr
og erfiður á ókunnugum stað.
Annað húsdýrahald hefur alveg
fariö fyrir ofan garö og neöan hjá
mér. Hestamennska er vinsæl, og
hún virðist vera að ná sifellt meiri
og meiri tökum á samstarfs-
mönnum minum ileikarastétt, en
þar er ég ekki með. Ég held, að
égeigi ekki eftir að stunda hesta-
mennsku, og geri tæplega ráð fyr-
ir öðru húsdýrahaldi en hér hefur
veriö talað um. Ætli ég láti mér
ekki nægja þessa þrjá svörtu
hunda,sem orðiðhafa á vegi min-
um.
úrklippusafnið fyllir
fjörutiu möppur
— Finnst þér þú ekki hafa mis-
jafnlega mikla þörf fyrir
tómstundavinnu þina, eftir þvi
hversu erfið þau hlutverk eru,
sem þú ert með á prjónunum?
— Jú, það er talsvert til i þvi.
Sum hlutverk eru þannig, að
ógemingur er að gefa neinu öðru
gaum á meðan verið er aö vinna
að þeim. Þá kemst ekkert tóm-
stundadútl að. En þetta er ákaf-
lega misjafnt. Og einn þáttur
tómstundavinnu minnar er
beinlinis tengdur leikhúsinu.
— Nú gerir þú þá fleira en aö
smiða, þegar þú átt fri?
— Já, já, margt fleira! Frá þvi að
ég kom fyrst fram sem statisti i
Vopnum guðanna hjá Leikfélagi
Reykjavíkur árið 1943, hef ég
safnað öllum blaðaumsögnum og
blaöadómum um þau leikrit, sem
ég hef tekið einhvern þátt i.
Möppur með þessum úrklippum
eru orðnar fjörutiu, og það liggur
þegar mikil vinna i þvi að koma
þvi öllu fyrir. Þegar annrikiö i
Framhald á 17. siöu.
Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur
Hvað gera þau í tómstundunum? Greinafiokkur
Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum?