Tíminn - 06.06.1975, Side 1
Bónus-
kerfið jók
laun og
afköst
um 30%
JG—Reykjavlk. Með bónuskerfi i
Sambandsverksmiðjunum á
Akureyri hefur tekizt að hækka
laun starfsfólksins að meðaltali
um 30% og afköst svipað. Þetta
kom fram i yfirlitsræðu Erlendar
Einarssonar, forstjóra SIS á aðal-
fundi Sambandsins i gær.
Tekizt hefur að koma á bónus-
kerfi i verksmiðjunum á Akur-
eyri. Á það fyrst og fremst við um
Gefjunni og Iðunni, en verið er að
færa það út i hinum verksmiðjun-
um. Með þessu kerfi er gert stór-
átak til vinnuhagræðingar, en
einnig hefur það haft þau áhrif, að
lun starfsfólks hafa hækkað að
meðaltali um 30% og afköst svip-
að.
Stór stund í
Olía qreidd með ull
Það var stór stund i islenzkri knattspyrnu, þegar tsland
sigraði Austur-Þýzkaland i Evrópukeppni landsliða 2:1 i gær-
kvöldi. Ásgeir Sigurvinsson skoraði annað mark islenzka liðsins
eins og sést á myndinni að ofan. A litlu myndinni sjást a-þýzki
markvörðurinn og varnarmaður horfa á eftir knettinum i netið.
Timamyndir Róbert.
JG—Reykjavik. Samband is-
lenzkra samvinnufélaga er nú að
ganga frá þriðja samningnum við
rússneska samvinnusambandið,
þar sem olia er greidd með ullar-
vörum. Þetta kom fram i yfirlits-
ræðu Erlendar Einarssonar, for-
stjóra StS á aðalfundi sambands-
ins að Bifröst i gær.
Þegar oliukreppan náði
hámarki i byrjun siðastliðins árs
bauð rússneksa samvinnusam-
bandið farm af oliu gegn greiðslu
iullarvörum. Af hálfu Sambands-
ins var lögð áherzla að, að unnt
yrði að afgreiða upp i samninginn
ullarflikur, frá hinum ýmsu
prjónastofun úti á landi, en rekst-
ur þeirra var i hættu vegna verk-
efnaskorts. Samið var um sölu á
60 þúsund ullarflikum, sem fram-
leiddar voru úr Gefjunargarni hjá
prjónastofum viða um landið. I ár
hefur verið gengið frá öðrum
samningi um yfir 40 þúsund flik-
ur, og þessa dagana er verið að
ganga frá þriðja samningnum um
sama magn. Jafnframt hefur
náðst samkomulag um oliufarm á
móti ullarvörunum. Með þessu
móti hefur tekizt að efla smáiðn-
að i þorpum og kaupstöðum, en
það hefur einmitt verið á iðnaðar-
stefnuskrá Sambandsins að vörur
úr verksmiðjunum á Akureyri
mætti fullvinna i smærri verk-
Ekki verður
kannað hvers
vegna menn
mættu ekki
til vinnunnar
FB— Reykjavik.Margir munu hafa leitt hugann að þvi, hvað gert verður
varðandi það atriði, að starfsmenn rikisverksmiðjanna mættu ekki til
vinnu þrátt fyrir það, að rikisstjórnin hafði gefið út bráðabirgðalög, sem
ákvað, að vinna skyldi tekin upp að nýju. Samið mun hafa verið um það,
að verksmiðjurnar gerðu ekkert til þess að kynna sér, hvers vegna
mennirnir mættu ekki til vinnu, og það mál þvi látiö niður falla, eftir þvi
sem Timinn komst næst I gær.
‘ O
s>
15. ÞING S.U.F. 6
smiðjum á hinum ýmsu stöðum á
landinu.
Sjá íþróttir bls. 3/ 8 og 17.
Hvítárbrú lokað
vegna skemmda
Gsal—Reykjavik. — Bo.gabrúnni yfir Hvitá I Borgarfirði viö
Ferjukot var lokað I gær, þar eð brúin þótti orðin varasöm
ailri þungaumferð. Fólksbílar fengu þó að aka yfir hana i
gærdag. Hvitárbrúin hefur Iátið mikið á sjá siðustu daga, og
þvi þótti rétt að loka henni fyrir allri þungaumferö.
— Það var búið að skoða brúna áður, en I morgun kom I
ljós, að ástand hennar hafði versnaö mikið i gær og nótt, — og
þegar Jónas Gislason, brúarsmiður kannaði skemmdirnar á
brúnni I morgun, kom I Ijós að þær voru þess eðlis, að taliö
var rétt að loka brúnni fyrir allri þungaumferð, sagði Helgi
Hallgrimsson, deildarverkfræðingur hjá Vegagerö rikisins i
gær, þegar Timinn hafði tal af honum.
Helgi sagði að I augnablikinu væri brúin kannski ekki
hættuleg, en hún gæti hvenær sem er oröið það og auk þess
yrðu skemmdirnar meiri ef umferð yrði leyfð yfir hana
áfram.
Siðla dags I gær hófst undirbúningur að bráöabirgðavið-
gerð, og að sögn Helga, miðast viðgerðin að þvi, að allri um-
ferð verði hleypt yfir brúna á ný, — en ekki kvaöst Helgi geta
sagt til um þaö, hvenær viðgerð lyki.
Bogabrúin yfir Hvitá var byggö
árið 1928, og er brúin þvi komin til
ára sinna. Eins og öllum er kunn-
ugt er brúin hið fallegasta mann-
virki, en það gefur þó auga leið,
að hún er ekki byggð fyrir þann
þungaakstur sem nú tiðkast. Að
sögn BjarnaG. Sigurðssonar,
vegaeftirlitsmanns i Borgarnesi,
hafa skemmdirnar i brúnni veriö
að aukast nokkuð siðustu tvo
sólarhringa, og plata brúarinnar
hefði sigið talsvert á kafla.
Bjarni kvað sprungur hafa ver-
ið i brúnni um nokkurt árabil, en
þær hefðu stækkað að undan-
förnu, og þvi hefði ekki veriö um
neitt annað að ræða, en að loka
brúnni fyrir allri umferð stærri
ökutækja.
Að sögn Helga er gert ráð fyrir
þvi að nýja brúin yfir Borgarfjörð
taki við allri þungaumferð, sem
til þessa hefur farið yfir Hvitár-
brúna. Brúin verður styrkt núna
sagði hann og siðan verður hún
notuð áfram eins lengi og unnt er.
Flugumferðarstjórar:
AFTUR YFIRVINNUBANN
gébé—Reykjavik. — Flugum-
ferðarstjórar eru nú aftur
komnir i yfirvinnubann, sem
hófst kl. 19:30 I gærkvöldi. Nær
yfirvinnubannið til flugum-
ferðarstjóra i Reykjavik, Kefla-
vík, Akureyri og Egilsstöðum.
Gisli Guðjónsson, formaður
félags flugumferðarstjóra,
sagðistvongóður um að bannið
stæði ekki lengi.
Það var 13. mai sl. að yfir-
vinnubanninu var aflétt, og þá
ráðgert að viðræður við ráðu-
neytin hæfust 20. mai. Aðeins
þrir fundir hafa verið haldnir
siðan, en tveir hafa verið af-
boðaðir. — Okkur finnst við hafa
verið settir hjá út af öðrum mál-
um, sagði Gisli, við gerum
okkur auðvitað ljóst, að mikið
hefur verið að gera hjá fulltrú-
um ráðuneytanna, en okkur
finnst við hafa verið dregnir á
þessu of lengi, og að við höfum
sýnt nógu mikla þolinmæði.
Sáttafundur var i gærdag meö
fulltrúum úr samgöngu-
fjármála- og utanrikisráðuneyt-
inu, en varð árangurslitill, og
var annar fundur boðaður i dag.
Ágreiningsefnið er orlofsmál
flugumferðarstjóra, sem ,,eru
alveg i steik” eins og Gisli
komst að orði. Þá sagðist Gisli
vongóður um að bannið stæði
ekki nema i nokkra daga, og að
hægt væri að snúa sér að sátta-
fundum af fullum krafti með
fulltrúum ráðuneytanna, þar
sem nú hefur verið samið i deilu
starfsmanna rikisverksmiðj-
anna.