Tíminn - 22.06.1975, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 24. júni 1975,
Liza Minnelli
með Ijóst
hrokkið hár!
Þau virtust ekkert hrifin af þvi
að láta taka mynd af sér þarna
Burt Reynolds og Liza Minnelli.
Burt Reynolds hafði verið með
Dinah Shore, söng- og leikkonu
undanfarna mánuði og jafnvel
ár. Aldursmunur var töluverður
á þeim (Dinah er 58 en Burt 39)
og þess vegna var stundum ver-
ið að bollaleggja um það af
þeim, sem skrifa um leikara og
einkallf þeirra, að það væri
ótrúlegt, að samband þetta
héldist lengi. En vinskapur
þeirra var traustur og þau sáust
stöðugt saman, þangað til ný-
lega, að samband þeirra breytt-
ist, að þvl þau segja, og nú fara
þau sitt í hvoru lagi út að
skemmta sér, og þá þurfti ekki
meira til, en Burt gaf sig á tal
við Lizu Minnelli í samkvæmi,
og þá komust á kreik sögusagnir
um, að hann hefði yfirgefið
Dinah vegna Lizu, og ætti
aldursmunurinn sinn þátt i þvi.
Þau urðu bæði móðguð og reið,
og gáfu yfirlýsingar um, að slikt
tal væri eintóm vitleysa, og
einkum varð Lizu illa við þvi að
hún er svo til nýgift leikstjóran-
um Jack Haley jr. og auðvitað
ástfangin upp yfir höfuð af hon-
um. Burt sagði eitthvað á þá
leið, — að það væri orðið vandT
lifað fyrir sig, hann mætti ekki
snúa sér við, þá væri komin ný
saga á stúfana! Ljósmyndarinn,
sem tók myndina var annars
aðallega að hugsa um hár-
greiðslu Lizu Minnelli, þvi að
hún er svo óllk hinni venjulegu,
sléttgreidda, dökka hári henn-
ar, að það var freistandi að
smella af henni mynd.
Stúlkurnar í
Sarawak
1 Sarawak á Borneo eru taldar
vera mjög fallegar stúlkur. Sjó-
menn á langferðaskipum segja
oft sögur af þvi, þegar heim
kemur, hve þeir hafi séö og
kynnzt fallegum stúlkum á
þessum slóðum, en einn þeirra
lét ekki þar við sitja að segja af
þvl sögur, heldur fékk blóma-
rósimar til þess að setjast á
strámottu fyrir utan aðalhúsið I
þorpi þeirra og tók svo af þeim
þessa fallegu mynd. Myndina
sendi hann svo i samkeppni,
sem norskt vikublað efndi til og
fékk hann verðlaun fyrir.
★ ★ ★ ★
Brenna bíla og fremja vopnuð rán
Tvær tölur hafa vakið nokkra
athygli I skýrslu frönsku lög-
reglunnar um afbrot þar I landi.
1 fyrsta lagi er það sú stað-
reynd, að þar eru framkvæmd
að minnsta kosti 3 vopnuð rán á
dag, og I öðru lagi, að brennu-
vargur, trúlega einn og sami
maðurinn I öllum tilfellum, hef-
ur 180 sinnum kveikt I Mehari-
jeppa á götum Parísar. Jeppi
þessi er framleiddur af Citroen,
og er að mestu búinn til úr
plasti. Svo langt hefur brennu-
æði þetta gengið, að allt upp I
400lögreglumenn I Paris hafa á
einni og sömu nóttunni verið
látnir fylgjast náið með öllum
Mehari-bllum, sem vitað hefur
verið um, I von um að finna
brennuvarginn. Einn maður
hefur látið lifið vegna bilbrun-
anna. Hann hafði búið I herbergi
rétt fyrir ofan þar sem Mehari-
jeppi stóð, og þegar bíllinn fuðr-
aði upp fyrir utan opinn glugga
mannsins varð það til þess að
hann dó af reykeitrun.
mt-
Ég sé hérna fallega unga
stúlku, en hvað hún sér við þig,
get ég nú ekki séð.
Plparinn spyr, hvort það sé I
lagi, að hann komi ekki fyrr en á
morgun, hverju á ég að svarak
y!Srrt"honum?
DENNI
DÆMALAUSI
Þetta er allt I lagi mamma.
Venjulegi rakarinn minn segir
þetta alltaf.