Tíminn - 04.07.1975, Síða 12
12
TÍMINN
Föstudagur 4. júli 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
61
„Ég skildi aldrei hvers vegna karlfauskurinn f lutti lík
telpunnar í aðra gröf," sagði hann við Kern. Hjart-
slátturinn var nú mun hægari. „Ég man eftir því er við
grófum hana upp. Ég man líka hvernig hún leit út eftir
að hafa legið þarna í sex mánuði. Ekki gleymi ég heldur
hvernig hann hafði leikið hana. Ég hugsaði með sjálfum
mér, að þetta hefði verið átakanlega einmannalegur
dauðdagi."
„Hvað kom yfir þig hér áðan?"
— „Ekki neitt. Læknirinn kallaði það þreytu."
— „Andlitið á þér var ámóta gráttog skyrtan þín."
Fleiri f lutningabílar skröltu framhjá. Vegna hávaðans
frá þeim komst Teasle hjá því að svara. Þá sveigði lög-
reglubifreið upp að flutningabílum, sem þeir voru í.
Ljósin á bílnum köstuðu bjarma á þá. Teasle vissi, að
hann myndi komast hjá því að svara.
„Ég verð víst að hafa mig af stað," sagði Kern treg-
lega. — „Þetta eru Labb-Rabb tækin. Það er eftir að
dreifa þeim." Hann gekk f átt að lögreglubílnum —
hikaði, en sneri svo við aftur. — „Þú gætir að minnsta
kosti lagst niður á bekkinn þann arna og sof nað svolitið á
meðan ég bregð mér frá. Þú finnur strákinn ekki með
því að einblína á landakortið. Líklega viltu vera hress og
vel upplagður þegar við leggjum af staðá morgun.
,, Ég halla mér ef ég þreytist. Ég vil vera þess f ullviss,
að allir séu á sínum stað. Það er eins gott að ég geri hér
eitthvertgagn. Ég er ekki í neinu ástandi til að fara með
þér upp í hæðirnar."
„Hmm. Varðandi það sem ég sagði á spítalanum um
lélega frammistöðu þína þarna uppfrá —"
„Það verður ekki aftur tekið. Gleymdu því.
— „Hlustaðu á mig. Ég veit að hverju þú stefnir. Þú ert
að hugsa um alla samstarfsmenn þína, sem hann skaut
niður. Þú ert að refsa sjálfum þér með því að ofreyna
líkammann. Ef til vill hef ég eitthvað til míns máls. Or-
val væri kannski enn á lifi ef þú hefðir strax haft mig
með í ráðum. En það var strákf jandinn sem skaut hann
ásamt öllum hinum. Ekki þú. Reyndu að hafa það hug-
fast."
Teasle þurfti ekki þessa áminningu. — „ Ríkislögreglu-
sveit númer nítján komin á sinn stað," sagði talstöðvar-
maðurinn. Teasle sogaði að sér sígarettureykinn og
fylgdist nákvæmlega með lögreglumanninum er hann
festi enn annan gulan pinna á austurhluta landakortsins.
ANNAR KAFLI
Uppdrátturinn á kortinu var allur mjög ónákvæmur. —
„Enginn hefur áður viljað nákvæman uppdrátt af
hæðunum fyrr," sagði landmælingamaður héraðsins sér
til afsökunar, er hann kom með uppdráttinn. —„Við ger-
um kannski nákvæmari uppdrátt, ef einhvern tíma
verður lagður vegur þarna. En landmælingar eru dýrt
fyrirtæki, sérstaklega í svo hrikalegu landslagi. Það
virtist aldrei skynsamlegt að eyða öllum sjóði okkar í
hlut, sem ósennilegt var að kæmi nokkrum að gagni."
Uppdrátturinn af nærliggjandi vegum var þó áreiðan-
legur. Vegirnir sem teygðust norður eftir kortinu
mynduðu ferning, en þeir sem lágu í suður mynduðu
hálfboga. Vörubtllinn, sem Teasle var i gegndi hlutverki
talstöðvarbíls, og var á einum af syðstu vegunum. Ríkis-
lögreglumaðurinn hafði f undið hann á svipuðum slóðum.
Rambo hafði síðast verið á þessum slóðum. Þess vegna
var leitinni stjórnað út frá þessu svæði.
Talstöðvarmaðurinn leitá Teasle. —„Ég heyri í þyrlu.
Mennirnir eru að segja eitthvað, en það er ógreinilegt.
—,,Við erum nýbúnir að senda tvær þyrlur. Þær ættu
ekki að vera komnar svona fljótt."
— „Kannski er þetta vélarbílun?"
— „Þyrlan er kannski alls ekki á okkar vegum. Þetta
gæti verið enn einn fréttamannahópurinn að taka
myndir. Sé svo, vil ég ekki að þeir fái að lenda."
Talstöðvarmaðurinn kom þessu til skila og bað um
kennimerki. En það kom ekkert svar. Þá heyrði Teasle
hvin skrúf ublaðanna og vélardyninn. Hann reis stirðlega
upp af bekknum og gekk með erf iðleikum að tjaldopinu á
bílpallinum. Fast við vörubílinn var akurinn, sem hann
hafði skrönglast yfir þennan sama morgun. Úti var
dimmt. Skyndilega sá hann plógförin greinilega, er
skærhvítt leitarljós kviknaði undir þyrlunni. Ljósið
f lökti um akurinn, og virtist sömu gerðar og Ijósið, sem
kvikmyndatökumennirnir höfðu notað skömmu áður.
— „Þeir eru á sveimi yfir okkur. Reyndu að ná sam-
bandi. Þeir mega ekki lenda, sagði Teasle við talstöðvar-
manninn.
En þyrlan hafði þegar tyllt sér, og vélardynurinn
hljóðnaði. Hvinur skrúfublaðanna hljóðnaði. Ljós var í
f lugstjórnarklefanum. Teasle sá mann klifra út úr hon-
um. Maðurinn gekk yf ir akurinn og i átt að vörubílnum,
stöðugur, teinréttur og liðugur. Teasle vissi undir eins að
þetta var ekki fréttamaður. Hann þurfti ekki einu sinni
að líta á fötin. Ekki var þetta heldur ríkislögreglumaður,
afturreka vegna vélarbilunar. Þetta var maðurinn, sem
Teasle hafði sent eftir.
jDrekigerir tilraun til að lifa
,,e61ilegu llfi”, /— —
iÞessi frádráttur minnkaBTN
jlaunin um helming, þóer )
Lnógfyrirmatoghúsnæöi. ■'
!~fí
Láttumigfá
peningana
eöa ég skýt!
Dreki stenst þaö aö
ráöast á þjófinn og
slá hannniöur.
Nei, ég er ekki aö eltast
viö þjófa, lögin sjá
um þetta.
FÖSTUDAGUR
4. júlí
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Geir Christensen les
söguna „Höddu” eftir
Rachel Field (11). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. Spjallaö viö bændur
kl. 10.05. Morgunpopp kl.
10.25. Morguntónleikar kl.
11:00: Ingrid Haebler leikur
Sónötu fyrir píanó i Es-dúr
op. 122 eftir Schubert/Fine
Arts kvartettinn leikur
Strengjakvartett i e-moll
op. 44 eftir Mendelssohn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar..
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Máttur
lifs og moldar” eftir Guö-
mund L. Friðfinnsson.
Höfundur les (7).
15.00 Miödegistónleikar.
Leontyne Price syngur ari-
ur úr „Grimudansleikn-
um”, „II Trovatore” og
„Valdi örlaganna” eftir
Verdi.
Filharmóniusveit New
York-borgar leikur „E1
Salón. Mexico”, hljóm-
sveitarsvitu eftir Aron
Copland, Leonard Bernstein
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
17.30 „Sýslaö i basiinu”, —
minningar Guðmundar
Jónssonar frá Selbekk Jón
frá Pálmholti skráði og les
(1).
18.00 „Mig hendir aldrei
neitt”,stuttur umferðarþátt-
ur i umsjá Kára Jónasson-
ar. Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frá sjónarhóli neytenda.
Þórunn Klemensdóttir sér
um þáttinn, sem fjallar um
verðlag.
20.00 Dúó fyrir klarinettu og
fagott nr. 1 i C-dúr og nr. 3 i
B-dúr eftir Beethoven. Béla
Kovács og Tibor Fulemile
leika.
20.30 Kristur og heimilið. Séra
Guðmundur Þorsteinsson
flytur syndouserindi.
21.00 Kór hollenzka útvarpsins
syngur andleg lög. Max
Boeckel stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Móöir-
in” eftir Maxim Gorki.
Sigurður Skúlason leikari
les (20).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. tþróttir.
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Ásmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Tímlnner
peningar
.Verjum
.SBgróöurJ
verndumi
landOT?/