Tíminn - 29.07.1975, Síða 3
Þriðjudagur 29. júll 1975.
TÍMINN
3
Þórður
Eyjólfsson
lótinn
Þórður Eyjólfsson, fyrr-
verandi hæstaréttardómari,
lézt að heimili sinu s.l. sunnu-
dag. Þórður er fæddur á
Kirkjubóli i Hvitársiðu 1897.
Hann lauk lögfræðiprófi frá
Háskóla íslands 1924 og stund-
aði framhaldsnám i Berlin og
Kaupmannahöfn 1928—’29.
Hann varði doktorsritgerð við
Háskóla íslands 1934.
Þórður varð prófessor i lög-
um 1934, og 1935 var hann
skipaður hæstaréttardómari,
og gegndi þvi embætti þar til
hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir. Þórður Eyjólfs-
son ritaði mikið um lögfræði-
leg efni og var lengi próf-
dómari við háskólann. Hann
gegndi mörgum trúnaðar-
störfum um ævina jafnframt
dómarastörfum við Hæsta-
rétt. Þórður var kvæntur
Halldóru Magnúsdóttur.
Bensínmál Morgunblaðs
manna til sakadóms
gébé Rvik — Eins ög iesendur
Timans muna var sagt frá þvl I
blaðinu fyrir skömmu, að nokkrir
starfsmenn Morgunblaðsins
hefðu verið staðnir að verki við
ólöglegan flutning á miklu magni
af bensini á Vatnsleysuströnd.
Rannsókn þessa máls hefur geng-
ið fremur hægt og er þar um að
kenna að erfitt var á ná I mann
þann, sem býr á Landakoti á
Vatnsleysuströnd, en þar var
benslnið geymt. Rannsóknarlög-
reglan i Keflavik hefur nú lokið
skýrsiugerð. I málinu og sent það
áfram til bæjarfógetans I Kefla-
vfk. Þaðan verður það sent næstu
daga til sakadóms Reykjavlkur.
Starfsmenn Morgunblaðsins
hafa viðurkennt að þetta bensin-
magn, um þrjúþúsund litrar, hafi
verið keypt vegna hættu á yfir-
vofandi verkfalli. Báðu þeir
mann þann, sem býr i Landakoti
á Vatnsleysuströnd að geyma
bensinið og sá hann ekkert
athugavert við að verða að ósk
þeirra. Þegar ljóst var að ekki
yrði úr verkfalli, var ákveðið að
flytja bensinið til Reykjavikur
aftur, i sendiferðabifreiðum
Morgunblaðsins en það er algör-
lega ólöglegt að flytja bensin á
þann hátt. Auðvelt er að gera sér i
hugarlund hvað komið hefði fyrir
ef ein eða fleiri af bifreiðunum
hefði t.d. lent i árekstri.
Guðmundur Kristjánsson full-
trúi bæjarfógeta i Keflavik, sagði
að málið myndi verða sent áfram
til sakadóms Reykjavikur til
áframhaldandi meðferðar.
Iðnnemar mófmæla
bróðabirgðalögunum
„Sprengjan" reyndist
vera útvarpstæki
FORMANNAFUNDUR aðildar-
félaga Iðnnemasambands íslands
haldinn 26. júli gerði svohljóðandi
samþykkt:
„Formannafundur aðildarfé-
laga Iðnnemasambands Islands
mótmælir harðlega bráðabirgða-
lögum um 12% vörugjald,sem er
ein sú svivirðilegasta aðgerð
gegn verkafólki. Þetta vörugjald
brýtur I bága við þau loforð sem
rikisstjórnin gaf við samninga-
gerð i vor um skattalækkun.
Vörugjaldið er ekkert annað en
falin hækkun á söluskatti.
Formannafundur INSI hvetur
verkafólk til baráttu gegn þessari
rikisstjórn, sem svo ötullega
vinnur að þvi að berja laun og
kjör vinnandi fólks niður i svað-
ið.”
Þorvaldur
Þórarins-
son
lótinn
Þorvaldur Þórarinsson,
hæstaréttarlögmaður, lézt
s.l. föstudag, en hann hefur
átt við vanheilsu að striða
um langt skeið. Hann var
fæddur i Bergsholti á Vatns-
leysuströnd 1909.
Þorvaldur lauk lögfræði-
prófi 1937 og meistaraprófi i
þjóðarétti og stjórnlagafræði
við Cornell háskóla i Banda-
rikjunum 1942. Hann rak
málaflutningsskrifstofu I
Reykjavik um langt skeið.
Þorvaldur var einn af stofn-
endum Kommúnistaflokks
Islands 1930 og siðar
Sósialistaflokksins. Hann tók
þátt i ýmsum félagsmálum
og ritaði mikið i blöð og
timarit. Þorvaldur var
kvæntur Fríðu Knudsen.
BIl- Reykjavik. — Skelfing greip
um sig meðilfarþeganna um borð
Leiðrétting
I TÍMANUM laugardaginn 26.
júli, var fréttum rausnarlega gjöf
sem Krabbameinsfélagi íslands
barst nýlega. Þar var sagt að gef-
andinn, væri Sigurður Þórarins-
son, sem er ekki rétt. Sigurður er
Þórðarson, tannlæknir, en hann
gaf Krabbameinsfélaginu
vandaðan og dýran lampa, sem
sérstaklega er ætlaður til skoðana
á Leitarstöð-B. Sigurður Þórðar-
son gaf lampann til minningar
um konu sina, Hildi Vilhjálms-
dóttur. Hlutaðeigandi eru beðnir
velvirðingar á þessum mistök-
um.
i LL-200 flugvél á Keflavikurflug-
velli i gærmorgun, er flugvélin
var að leggja af stað til Luxem-
bourg á leið sinni frá New York.
Hafði fundizt grunsamlegur
pakki I einu sæti vélarinnar, og
þótti vissara að umgangast hann
með ,,sprengju”-varúð þar til
gengið hafði verið úr skugga um,
að i honum var aðeins útvarps-
tæki.
Eigandi tækisins reyndist vera
kona frá Israel, sem sat hin róleg-
asta inni i farþegaafgreiðslunni,
og hafði alls ekki heyrt brott-
fararkallið — en varð ekki
strandaglópur vegna þessarar til-
viljunar, sem tafði flugvélina um
klukkustund.
Farmonna og fiskimannasambandið:
ÁSTAND FISKSTOFNA SVO
UGGVÆNLEGT AÐ
ÚTFÆRSLA MÁTTI
EKKI DRAGAST LENGUR
Aír Viking hljóp
undir bagga með LL
BH-Reykjavik. — Loftleiða-
flugvélin, sem flytja skyldi hóp
islenzkra skáta á aiheimsmótið,
sem að þessu sinni er haldið i
Noregi, reyndist biluð, þegar að
brottfarartima kom kl. 16.00 sl.
sunnudag, og reyndist
ógjörningur að fá aðra vél til
þess að flytja skátana þann dag-
inn.
Næsta dag var útlitið sizt
betra með að fá vél fyrir skát-
ana og gerðust þeir uggandi um
sinn hag. En Flugleiðamenn
leysa allan vanda, og þeir komu
skátunum héðan af landi brott I
gær kl. 14:00 til áfangastaðar i
Noregi — i Air Viking — vél,
eftir að hafa leitað til forstjóra
Air Viking, Guðna Þórðarsonar,
sem brást fljótt og vel við mála-
leitaninni og skaut flugvél inni
undir skátana.
Á fundi stjórnar Farmanna- og
fiskimannasambands íslands 28.
júli 1975 var gerð eftirfarandi
samþykkt: Stjórn FFSl lýsir
fyllsta stuðningi sinum við þá
ákvörðun rikisstjórnarinnar að
færa fiskveiðilögsöguna út i 200
sjómilur. Vegna þeirra ógnvekj-
andi upplýsinga, er þegar liggja
fyrir um ástand fiskistofna hér
við land telur stjórn FFSÍ að út-
færsla fiskveiðilögsögunnar hafi
ekki mátt dragast lengur. Við Is-
lendingar einir eigum nú nægi-
lega stóran og afkastamikinn
fiskiskipastól til að veiða það
magn fiskjar, sem skynsam-
legastmá telja að veitt sé hér við
land. Verður þó að sjálfsögðu
að setja okkur strangar reglur
varðandi veiðarnar og hlita þeim
ihvivetr.a, til að forða fiskistofn-
unum frá enn meiri rýrnun en
orðin er, og þjóðinni frá efna-
hagslegu hruni. Stjórn FFSI telur
að þeim ströngu veiðireglum sem
setja verður um fiskveiðarnar
innan 200 milnanna verði vart
framfylgtef öðrum þjóðum verða
veittar ivilnanir eða veiði-
heimildir innan markanna.
Stjórnin varar eindregið við þvi
að láta undan hótunum um við-
skiptaþvinganir af hendi erlendra
aðila. Ennfremur bendir stjórn
in á þá nauðsyn, að stórauka fiski
rannsóknir og sjórannsóknir á
umræddu hafsvæði.
BESSI AFLAHÆSTUR
MINNI TOGARANNA
BH-Reykjavik. — Vestfjarðatog-
arinn Bessi 1S 410 er aflahæstur
L
Ir
ii
(0
1
■ji i u 1111111 m m ifi 11111 irnu 11111111 iin
Frá Stangveiðifélagi
Reykjavikur
Friðrik Stefánsson sagði að
veiðin i Grimsá hefði gengið
ágætlega undanfarna daga, en á
sunnudagskvöld voru komnir
875 laxar upp úr henni. I siðasta
vikuholli fengu veiðimennirnir
rúmlega 227 laxa, I vikunni þar
á undan fékk hollið 250 laxa og
258 þar á undan. Þarna er veitt á
tiu stangir og allt á flugu.
Friðrik kvaðst vita um fjóra
laxa yfir tuttugu pundum og
veiddust tveir þeirra á Silver
Rat-flugu, einn á Black Tube og
sá fjórði einnig á Tube. Or
Elliðaámerunúkomnir á annað
þúsund laxar, sem er nokkur
aukning frá þvi á sama tima i
fyrrasumar, Nýlega fékkst þar
14 punda hængur, sem er mjög
stórt úr Elliðaám. I Gljúfurá
hefur veiðin gengið sklnandi vel
og á sunnudagskvöld voru 226
laxar komnir á land. A sama
tima i fyrrasumar voru aðeins
102 laxar komnir á land, litur
þvi mjög vel út með veiði i ánni I
sumar. A efsta svæðinu I
Norðurá,hefur veiðin verið all-
sæmileg og reyndar mjög góð
nú siðustu daga, sérstaklega á
sunnudag, en þá komu hvorki
meira né minna en 11 laxar bara
um morguninn. Friðrik kvaðst
ekki vita um heildartölu
laxanna sem hafa komið úr
henni.
Stóra Laxá i Hreppum.
Veiðihornið hafði samband
við Eyþór Sigmarsson, en hann
og Jón Þóroddsson voru saman
um stöng i Laxá á laugardag og
sunnudag og I og IÍ svæði og
lönduðuð átta löxum, frá fimm
til sextán pund á þyngd. Sagðist
Eyþór búast við að nú væru um
240—250 laxar komnir á land,
en veitt er á tiu stengur á öllum
svæðunum fjórum, þess ber þá
að gæta að veiðin hófst seint i
Stóru Laxá, og hefur aðeins
staðið i rúman mánuð nú. I
fyrrasumar veiddust aðeins 154
laxar á þrem mánuðum og var
þá meðalþyngd þeirra um ellefu
pund. I sumar höfum við orð-
ið varir við nokkuð mikinn smá-
lax, fimm til sex punda, en það
gefur visbendingu um að áin sé i
miklum uppgangi, sagði Éyþór.
Mjög gott vatn er I henni núna,
en framan af veiðitimanum var
hún of vatnsmikil, en nú er hún
með allra liflegasta móti.
Nóg virðist af laxi I henni og
þá er ekki úr vegi að benda á að
Stóra Laxá i Hreppum er ein
ódýrasta áin, stöngin á dag
kostar aðeins þrjúþúsund krón-
ur, sem ekki telst mikið nú á
dögum.
minni skuttogaranna frá áramót-
um til júnDoka, og er afli lians,
miðað við slægðan fisk — sem
landað hefur verið hérlendis —
samtals 2.055.446 kg., og hefur
Bessi Iandað 22 sinnum á þessu
timabili. Næstir honum að afla-
magni úr hópi minni skuttogar-
anna eru þeir Uagstjarnan KE
með 2.084.474 kg. 119 löndunum og
Guðbjörg ÍS með 1.983.902 i 20
iöndunum.
- Timinn fékk i gær skýrslu
Fiskifélags Islands um aflamagn
minni skuttogaranna frá áramót-
um, til siðustu mánaðamóta og
fer hún hér á eftir. Við athugun
hennar ber að gæta þess, að i
þessari töflu er ýmist um að ræða
slægðan afla með haus eða
óslægðan. Afli Vestfjarðatogar-
anna er miðaður við slægðan afla,
en afli hinna miðast við landað
magn.
Hér á eftir fer afli minni skut-
togaranna, og er fjöldi landana á
eftir aflamagninu:
Aflamagn i iLand-
kilógrömmum | anir
Vestmannaey VE 1.584.037 — 16
Dagstjarnan KE 2.048.474 — 19
Suðurnes GK 865.306— 9
FramtiðinKE 1.448.275 — 15
Aðalvik KE 1.795.085 — 14
Jón Vidalin AR 1.537.550 — 15
Otur GK 1.457.557- -11
Krossvik AK 1.771.088- -17
Runólfur SH 1.221.164- - 14
Arnar HU 1.675.187- -15
Gullver NS 1.482.800- -17
Bjartur NK 1.582.600- 18
Barði NK 1.677.800 — 19
Hólmanes SU 1.643.900 - 17
HólmatindurSU 1.598.700 — 18
Framnes IIS 1.873.765 — 20
Trausti IS 1.011.080 — 17
Guðbjartur IS 1.764.317 — 18
Guðbjörg IS 1.983.902 — 20
Július Geirmunds 1.904.173- 21
son IS
Páll Pálsson IS 1.324.313 — 17
Bessi IS 2.055.446 — 22
Hvalbakur SU 1.054.677 — 12
DagnýSI 1.133.000 — 11
Skafti SK 1.052.380 — 14
Stálvik SI 1.022.000 — 12
Sigluvik SI 933.200 — 14
Ólafur Bekkur ÓF 1.405.935 — 15
Björgvin EA 1.723.600 — 17
Rauðinúpur ÞH 1.144.000 — 12
Ljósafell SU 1.671.600 — 18
Dagrún SI 1.658.080 — 18
Hegranes SK 822.430 — 11
Drangey SK 1.316.000 — 13
Sólberg ÓF 1.881.500 — 17
Brettingur NS 1.101.400 — 11
Mestum afla i júnimánuð;
landaði Sólberg frá Ólafsfirði, eða
503.500 kg. i 4 veiðiferðum. Þá
sigldi Siglufjarðartogarinn
Dagný með afla sinn i april-
mánuði og var þvi ekki um neinar
landanir hér að ræöa.