Tíminn - 29.07.1975, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 29. júli 1975.
TÍMINN
11
NORÐUR AF STJÖRNUBORGINNl
HOLLYWOOD, VIÐ ÓSKÖP FÁBROTNA
GÖTU í SAN FERNNANDO,
STENDUR BÍLAVERKSTÆÐI. ÓSKÖP
VENJULEGT VIÐ FYRSTU
SÝN: FREKAR LÍTIÐ
OG RYKUGT — EN
INNI ER UNNIÐ
FYRIR UPPHÆÐIR,
SEAA ALDREI HEYRAST NEFNDAR
Þcnnan bil smiöaöi Barris
fyrir hljómsveitina The Raiders.
Á ÖÐRUM BÍLAVERKSTÆÐUM. ÞARNA FRAMLEIÐIR BARRIS SÉR-
SMÍÐAÐA BÍLA FYRIR MILLJÓNAMÆRINGA OG FYRIRTÆKI, SEM
HIKA HVERGI ÞÓ VERÐIÐ HLAUPI Á TUGUM MILLJÓNA KRÓNA.
bara út fallhlífar, þegar hann sér
snyrtilegan háls til að bita i.
—0—
George Barris er fæddur
Chicago-búi, sonur grisks
veitingahússeiganda. Þegar á
sjöunda ári, var hann farinn að
dunda sér við bilamódel og niu
ára var hann, þegar hann fyrst
vann til verðlauna fyrir þessa
tómstundaiðju. En alvaran hófst,
þegar vinur hans einn kom til
hans og bað hann að gera upp
fyrir sig 1936íírgerð af Ford, sem
var vægast sagt illa farinn. Þegar
vinurinn kom aftur að vitja um bil
sinn, fann hann ekki aðeins Ford
árgerð 1936 i ágætu lagi, heldur
hafði Barris og bætt i bilinn alls
kyns aukabúnaði og þægindum.
Og svo lakkaði hann bilinn.þannig.
að hann leit út eins og krókódils-
skinn.
Barris-fjölskyldan flutti svo til
Kalifomiu. Faðirinn vildi helzt að
sonur hans tæki við veitinga-
rekstrinum, en það átti illa við
drenginn að ganga um með
hvitan dúk á handleggnum og
hella vini i glös. Bilar voru hans
heimur og það var nóg að gera i
bilaviðgerðum á timum, þegar
framleiðendur hugsuðu um það
eitt að senda frá sér sem flesta
skriðdreka I striðsreksturinn.
Og svo uppgötvaði Barris sér-
kennilegheitin og komst að þvi,
að markaðurinn fyrir sérstæða
bila var ótæmandi. Smám saman
fór meira og meira orð af bilun-
um hans og nöfn eins og Jayne
Mansfield, Manie VanDore,
Spike Jones, Clark Gable og fleiri
og fleiri komust á viðskiptaskrá
hjá Barris.
Siðan hefur allt gengið upp á við
hjá Barris og ekkert lát á þörfinni
fyrirsérstaka ogsérsmiðaða bila.
(Þýtt og endursagt)
ÞJÓNUSTUMIDSTÖÐ VIÐ GRENSÁSVEG
BORGARHÚSGÖGN
HREYFILL 85522
LITAVER
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ VIÐ GRENSÁSVEG