Tíminn - 29.07.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 29.07.1975, Blaðsíða 15
Þri&judagur 29. júli 1975. TÍMINN 15 Gylfi Kristinsson, form. hagsmunonefndar S.H.Í. I Að biðja sér bjarnargreiða Hvað er að gerast í stúdentaráði Háskóla íslands? Um þriggja ára skeið hafa vinstri stúdentar i Háskólanum haft meirihluta i Stúdentaráöi Háskóla Islands. Á þessum þrem- ur árum hafa birzt ýmiss konar furöuskrif um störf vinstrimeiri- hlutans i S.H.I. i Morgunblaöinu. Stundum er um mjög vel skipu- lagðar rógsherferöir aö ræða. sem hafa það að markmiöi aö stimpla þá, sem skipa þennan meirihluta, andlýöræöissinna, þjóöniöinga og jafnvel landráðamenn. I flestum tilfellum fara þessar rógsher- ferðir þannig af staö, aö fuiltrúar Vöku, félags lýöræðissinnaðra stúdenta (útibú Sjálfstæöisflokks- ins i Háskólanum), leggur fram fyrirvaralaust tillögur um ýmis mál á fundum Stúdentaráðs. Ein- kennandi er fyrir þessar tillögur hversu uppfullar þær eru af full- yrðingum, sem eiga sér enga stoð i raunveruleikanum. Auk þess fylgir . sjaldnast rökstuðningur eða greinargeröir tillögunum, eins og vaninn er hjá vinstri mönnum. Stundum viröist beinlinis aö þvi stefnt með flutn- ingi þessara tillagna aö þær nái ekki fram aö ganga. Meirihluti Stúdentaráðs hefur reynt að koma til móts viö þennan tillögu- flutning eins og frekast er unnt, og borið frani gagntillögur um aö þeim veröi visað* til nefnda. Þetta er gert I þeim tilgangi, að koma einhverju lagi á þær eða afla frekari gagna um þau mál sem tillögurnar fjalla um. 1 stað þess aö sætta sig við þessa meðferö, hafa fulltrúar minnihlutans, þ.e. Vöku, sent fjölmiðlum utan Háskólans (i Háskólanum er gefið út myndar- legt blað, Stúdentablaðið, sem kemur út að jafnaði mánaðarlega og stendur öllum stúdentum opiö með skrif sin) tillögurnar ásamt velvöldum lýsingarorðum um skólasystkini sin. Fæstir fjölmiöl- anna hafa séö ástæðu til þess að birta þessar yfirlýsingar Vöku- manna nema Morgunblaðið. Morgunblaðið hefur tekið grunnhyggni fúlltrúa Vöku tveim höndum og bókstaflega velt sér upp úr henni. Venjulega hefur gangur mála verið sá, að fyrst eftir birtingu yfirlýsinga Vöku- manna, hafa vinstri menn fengið smáskeyti i Staksteinum Morgunblaðsins. bá hefur verið skrifað greinarkorn af Vöku- manni eða haft viðtal við Vöku- mann (aldrei haft samband við þann- sem er verið að rægja, — Morgunblaöiö er ekki bezta fréttablaðið fyrir ekki neitt). Næst hefur birzt bréf i Velvak- anda, þar sem býsnast er yfir þvi hvað kommúnistar ráði miklu i Háskólanum. Nokkrum linum hefur svo verið varið til þess i leiðara að tala um ofstækisöflin i þjóðfélaginu og þá sérstaklega i Háskóla íslands og loks er klykkt út með klausu i Reykjavikurbréfi Morgunblaðsins og þá eiga stúdentar og aðrir landsmenn að vera orðnir ónæmir fyrir áróðri vinstri manna næsta hálfa árið, auk þess sem búið er að svipta hulunni af stúdentakommúnist- unum. Nú um þessar mundir stendur ein ónæmisaðgerðin yfir, og er hugmynd Vökumanna og læri- feðra þeirra á Morgunblaðinu að bólusetja þá, sem i haust setjast i fyrsta skipti á skólabekk i Háskóla íslands. Þar sem ég hef margoft rekiö mig á það, að þessar áróðursher- ferðir Moggamanna og læri- sveina þeirra i Vöku hafa vakið með mönnum alls kyns ranghug- myndir um Stúdentaráð verður litillega fjallað hér á eftir um skipulag ráðsins, störf þess og stefnu og þá hópa, sem mynda meirihluta og minnihluta innan ráðsins. Stúdentaráð Háskóla Islands *» Samkvæmt Háskólalögunum nr. 84/1970 er gert ráð fyrir að I Háskóla íslands séu starfandi heilda rsa mtök stúdenta, Stúdentaráð. sem eigi að tilnefna fulltrúa til setu i ýmsum nefnd- um, sem starfandi eru á vegum Háskólans. I Háskólalögunum er ekki að finna neina skilgreiningu á hlutverki Stúdentaráös, en það er hins vegar skilgreint i lögum Stúdentaráðs. t annarri grein laga S.H.I. seg- ir, að Stúdentaráð skuli standa vörð um menningarlega og félagslega hagsmuni stúdenta og vera æðsti fulltrúi þeirra innan Háskólans, og i þriðju grein sömu laga er kveðið á um það, að S.H.I. skuli ver þeim félögum stúdenta sem annast almennt félagslif, til aöstoðar, ef þurfa þykir, enn- fremur beri ráðinu að vinna að þvi að félögin þjóni hlutverki sinu. I þeim kafla laga S.H.I., sem fjallar um kosningar, segir, að Stúdentaráð skuli skipað 28 fulltrúum háskólastúdenta, sem kosnir séu i hlutbundinni lista- kosningu. Kosning fari fram á timabilinu 1.-15. marz ár hvert og þá eigi að kjósa 13 menn i ráðið, og einn að auki.sem eigi bæði sæti i Stúdentaráði og Háskólaráði (Háskólaráð hefur úrskurðarvald um málefni Háskólans, en i þvi eiga sæti ásamt Háskólarektor, deildarforsetar, fulltrúar kenn- ara og fulltrúar stúdenta). bessir fulltrúar eru kosnir til tveggja ára, þannig að árlega er einungis kosinn helmingur fulltrúanna. Kosningarétt og kjörgengi hafa allir stúdentar, sem eru innritaðir i Háskóla Islands. Ekki er liöið nema eitt og hálft ár siðan listakosning leysti af hólmi einstaklingskosningu (þ.e. áður voru yfirleitt kosnir tveir fulltrúar úr hverri deild Háskól- ans til setu i Stúdentaráöi, hver deild var sérstök kjördeild, en nú teljast stúdentar allra deilda til sömu kjördeildar) og eru margir þeirrar skoðunar að sviptingarn- ar milli vinstri manna og þeirra sem halla sér til hægri hafi harðn- að til muna eftir breytinguna, Stúdentaráðskosningarnar hafi orðiö mun póiitiskari, en gott gæti talizt. Ég er ekki frá þvi aö þetta sé rétt. Aðilar sem eiga fulltrúa f Stúdentaráði Tvær meginfylkingar, ef svo má aö orði komast, eiga fulltrúa i Stúdentaráði. Annars vegar Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, og hins vegar vinstri menn. Vaka, sem hefur starfað innan Háskólans siðan 1935, hefur frá upphafi verið félag þeirra stúdenta er hafa stutt stefnu Sjálfstæðisflokksins i þjóömálum. Að visu leiddust nokkrir kratar til fylgis við félagið á viðreisnar- stjórnarárunum, -en það heyrir sögunni til. Afstaða Vöku til einstakra mikilvægra hagsmuna- mála stúdenta er ákaflega óljós. Til dæmis er stefna félagsins i lánamálum stúdenta sú, að námslán eigi að vera „hagstæð- ustu lán sem völ er á i þjóðfélag- inu á hverjum tima”, en félagið hefur enga skoðun á þvi, hvernig stúdentar eigi að endurgreiða lánin, en það skiptir miklu máli. 1 húsnæðis- og heimilismálum, er stefna Vöku, að húsnæðismál stúdenta eigi að leysa með bygg- ingu hjónagarða, einstaklings- garða og barnaheimila á þúfu i nágrenni Háskólans, helzt þó i hæfilegri fjarlægö frá heimsins glaumi.og brauðstriti hins vinn- andi manns, þannig að ekkert trufli blessaða stúdentana við fræöiiðkanirnar. Listi vinstri manna hefur boðiö fram i tvennum Stúdentaráðs- kosningum. 1 þeim fyrri, 1974, hlaut hann 56% greiddra atkvæða og 1975 hlaut hann 57% greiddra atkvæða. Að framboði lista vinstri manna hafa staðiö óform- leg samtök þeirra stúdenta, sem aðhyllast vinstri stefnu. Undirbúningur framboðs vinstri manna fer fram með þeim hætti, að meirihluti Stúdentaráðs boðar vinstri sinnaða stúdenta til opins fundar, tveimur til þremur mánuðum fyrir Stúdentaráðs- kosningarnar. A þessum fundi hafa verið kosnar ýmsar nefndir, t.d. uppstillingarnefnd og stefnu- skrárnefnd ásamt fleiri nefndum, sem vinna að kosningaundirbún- ingi. Eins og nafnið gefur til kynna er hlutverk stefnuskrár- nefndar að gera drög að stefnu- skrá fyrir listann. Drögin eru siöan lögð fyrir opna fundi stuðningsmanna og gerðar þar á þeim þær breytingar, sem aðilar eru sammála um að gera. Á þriggja ára valdatima vinstrimeirihlutans hefur margt áunnizt. Mótuð hefur verið stefna I lánamálum námsmanna, sem felur I sér kröfu um að lán nemi 100% umframfjárþarfar, á móti komi að námslán verði visitölu- tengd, og vaxtalaus með eftir- töldum ófrávikjanlegum skilyrð- um: 1. Þeir sem hafi miðlungs- tekjur eða lægri greiði lánin ekki til baka. 2. Þeir sem hafi meira en meðallaun greiði lánin til baka i raungildi eftir nánar tilgreindum reglum, þar sem tekið skuli fullt tillit til greiðslugetu lánþega. bessar tillögur eru settar fram með það i huga að þeim sem kom- ast i tekjudrjúg störf i þjóðfélag- inu vegna þeirrar menntunar, sem þeir hafa aflað sér meö að- stoð skattborgaranna, (Lánasjóð- ur isl. námsmanna er fjár- magnaður að langmestu leyti með framlagi úr rikissjóöi), sem oft hafa mun lægri tekjur en út- lærði menntamaðurinn, sé engin. vorkunn að borga sin lán til baka til lánasjóðsins. Lánasj. verður þá e'nn betur fær um að styrkja þá sem minna mega sin, til þess náms sem hugur þeirra girnist, hvort sem um er að ræða verklegt eða bóklegt nám. Þessar tillögur kölluðu fulltrúar Vöku s.l. vor „kjaraskerðingarstefnu vinstri manna” og hvöttu þeir stúdenta óspart til aö snúast gegn „kjaraskerðingarstefnu rikis- stjórnarinnar og Verðandimanna (átti auðvitað að vera vinstri menn, þvi Verðandi bauð ekki fram). I húsnæöismálum hafa vinstri menn og Stúdentaráð mótað ákveðna stefnu, en hún er á þann veg að stúdentar lifi i eðlilegum tengslum við aðra þjóðfélags- hópa, en einangrisig ekki með þvi að búa á sérstökum görðum eða fjölbýlishúsum. Vinstrimenn eru þeirrar skoöunar, að húsnæðis- mál stúdenta verði ekki leyst nema með samvinnu við rikis- valdið og launþegasamtökin. Hvað barnaheimiiismál snertir, þá eru vinstri menn þeirrar skoð- unar að fjölgun barna- heimilisrýma sé spurning um jafnrétti kynjanna til þess að ákveða lifsstarf sitt. Vinstri menn eru andvigir þvi, aö sérstök barnaheimili séu reist fyrir ákveðna þjóðfélagshópa þótt þeir hafi orðið að fara ilt i slikar framkvæmdir sjálfir af knýjandi þörf. Mun fleiri mál mætti minn- ast á, en það verður að biða betri tima. I Háskóla Islands starfar annaö skipulagsbundið stjórnmálafélag (stúdentafélag) en Vaka. Þetta félag er Verðandi, félag róttækra námsmanna. Verðandi hefur sett sér stefnuskrá, sem byggð er á visindalegum sósialisma, marxismanum. Félagið hefur ekki boðið fram sjálfstætt til Stúdentaráðs, en tekið beinan þátt i kosningum um hátiðanefnd 1. desember. Hátiðanefnd 1. desern^er sér um að minnast full- veldis Islands. Yfirleitt hafa vinstrim. fram að þessu flykkt sér um framboð félagsins sem hefur borið sigur úr býtum i fjög- ur skipti. Verðandi hefur einnig staðið fyrir fundahöldum um margvisleg máiefni einkum þeim sem snerta marxisma. Töluverö- ur hluti fulltrúa vinstri manna i S.H.I. hefur ekki talið sig eiga pilitiska samieið með Verðandi, og þar af leiðandi ekki gerzt félagar i þvi. Nokkuð góð sam- vinna hefur þó tekizt milli vinstri- manna og Verðandi innan ráðsins i flestum málum, t.d. baráttunni gegn herstöðvunum og Union Carbite. „ Portúgalsþáttur" Þá er komið að þeim þætti, sem varð þess valdandi að þessi grein var skrifuð. Eins og áður sagði standa Vaka og Morgunblaðið öðru hverju fyrir rógsherferðum gegn vinstrimeirihlutanum i S.H.l. I þvi skyni að gera hann tortryggilegan i augum stúdenta og almennings. Um þessar mund- ir stendur ein yfir. Málavextir eru þeir að 10. júli s.l. var haldinn Stúdentaráösfundur, og var hann boðaður með viku fyrirvara. A dagskrá fundarins var afgreiðsla fjögurra tiliagna. Var óskað eftir þvi i fundarboði, að stúdentaráðs- fulltrúar sæktu tvær tillagnanna á skrifstofu S.H.I. daginn áður en halda átti ráðsfundinn, til yfir- lestrar (hinar tvær tillögurnar fjölluðu um skipun manna i nefndir). Fimmti liðurinn á dag- skránni var önnur mál. A fundin- um voru áðurnefndar fjórar til- lögur afgreiddar. Þegar þvi var lokið var tekinn fyrir liðurinn önnur mál, þá var það sem einn fulltrúi Vöku kvaddi sér hljóðs. Fulltrúinn kvaðst vera með til- lögu til samþykktar um Portúgal. Þessa tillögu las hann upp og bætti við nokkrum orðum frá eigin brjósti og sagði, að tillagan skýrði sig sjálf. Eitthvað þótti oddvita Vöku i S.H.l. rökstuðn- ingur frummælenda tillögunnar bágborinn, þvi að hann bað næst- ur um oröið. Oddvitinn tók undir það með frummælanda „að eins og menn gætu séð, væri sjálfsagt að samþykkja tillöguna”. Við þessi orö fóru fulltrúar vinstri manna að kvarta yfir að hafa ekki tillöguna undir höndum og gagn- rýndu að hún skyldi ei hafa leg- iðframmi á skrifstofu S.H.I. með dags fyrirvara eins og þeirra til- lögur. Við þessa gagnrýni drógu fulitrúar Vöku upp nokkur ljósrit af tillögunni, og dreifðu, og kom þá i ljós að hún var 313 orð. 1 stuttu máli fjallaöi tillagan um að S.H.I. lýsti yfir stuðningi við lýð- ræðisöflin (letrubr. G.K.) i Portú- gal, ásamt þvi að skora á isl. lýð- ræðisflokka (leturbr. G.K.) og Alþingi að beita sér fyrir þvi að þeim flokkum, sem standa i brjóstvörn frelsis i landinu verði veittur efnahagslegur og stjórn- málalegur stuðningur til þess að berjast fyrir opnu lýðræðissam- félagi I Portúgal. Vinstri menn höfðu ýmislegt viö þennan málatilbúnað að at- huga. Gagnrýndu þeir fulltrúa Vöku harölega fyrir þau for- kastanlegu vinnubrögð að skella fram á miðjum fundum tiilögum með fullyrðingum, sem þeir hefðu engin tök á að athuga hvort væru réttar eða rangar. Þá kvörtuðu þeir yfir þvi, að greinargerð skyldi ekki fylgja Portúgalstillög- unni þar sem greint væri frá helztu heimildum Vöku um ástandiö þar i landi. Lýstu full- trúar vinstri manna þvi yfir, að ákaflega erfitt væri að átta sig á þvi sem væri að gerast i Portúgal þar sem isl. fjölmiðlar hefðu ekki tök á að senda fréttamenn til landsins (þetta var sagt áður en blaðam. Morgunblaðsins fór aö senda fréttir frá Portúgal, sá hinn sami, sem á sinum tima taldi að það stjórnarfar sem Grikkjum hentaði bezt væri hæfilegt ein- ræði), I þeim tilgangi að vega og meta ástandið þar frá islenzku sjónarhorni. Þess I stað neyddust þeir til þess að reiða sig á þær fréttastofur sem nú er sannað að C.I.A. hafi matað á ósönnum fréttum. Vinstri menn lögðu þvi til að tillögunni yrði visað til utan- rikisnefndar en hún er ein fjög- urra fastanefnda ráðsins. Henni yröi falið að afla sér gagna um at- burðina i Portúgal og að lokinni þeirri gagnasöfnun, skyldi nefnd- Gylfi Kristinsson in leggja fram skýrslu og þær ályktanir sem niðurstöður gagna- söfnunarinnar leyföu. Þessi til- laga var samþykkt. Eftirleikurinn Gagnaöflunin um ástandið i Portúgal hófst þremur dögum siðar með fundi i utanrikisnefnd. Héldu flestir að þar með hefði til- laga Vöku fengið þá afgreiðslu, sem fulltrúar gætu sætt sig við. En það var ööru nær. Þegar á þriðjudag 15. júli birtist frétta- tilkynning frá Vöku i Morgun- blaðinu, þar sem gerö var grein fyrir þvi að Vaka hefði nýlega samþykkt tillögu til stuðnings lýðræðisöflunum i Portúgal og var tillagan birt. Við þessu er að sjálfsögðu ekkert að segja. Hins vegar er þess getið i fréttatil- kynningunni, að tillagan hafi ver- ið borin upp til samþykktar i Stúdentaráði Háskóla Islands, en meirihlutinn hafi ekki treyst sér til að samþykkja hana vegna skorts á upplýsingum, sem er rétt. Þaö, sem er rangt i frétta- tilkynningu Vöku, er að þaö er dylgjað um að skortur vinstri manna á áreiðanlegum upp- lýsingum hafi stafað af einhverj- um annarlegum orsökum. Daginn eftir birtist klausa i þeim slúður dálki, sem sendi ráðherrum vinstri stjórnarinnar hvað óvandaðastar kveðjurnar, Stak- steinum Morgunblaðsins. Klaus- an fjallaði um þá lýðræðislegu meðferö, sem tillaga Vöku um Portúgal hafði fengið i Stúdenta- ráði. Eftir lestur greinarinnar var lesandinn ekki i nokkrum vafa um það, hvað réði afstöðu og gerðum meirihluta Stúdentaráös. Það voru kommúnistar sem réðu ferðinni. Það var eina ályktunin sem lesandinn gat dregið. Þessi grein birtist á blaðsiðu 7. A blað- siðu 8 i Morgunblaðinu þénnan sama dag birtist grein eftir odd- vita Vöku i Stúdentaráði og bar hún yfirskriftina Vesöld vinstri manna. Greinin hefst á mikilli þakkar- gerð til ritstjóra Morgunblaðsins fyrir að hafa séð sér fært að birta hana i blaðinu. Þar næst er Portúgalstillaga Vöku birt enn á ný, og eru þá upptalin þau atriði sem i greininni er fjallað um á málefnalegan hátt. Oddvitinn fer i pistlinum aö lýsa tilfinningum sinum og umræðum á Stúdenta- ráðsfundinum, Hann segir m.a.: „Við höfðum, þ.e. Vökumenn (innsk. G.K.), sem sé talið okkur trú um aö félagar okkar i stúdentaráði væru ekki lýðræðis- fjandsamlegir (leturbr. G.K.) og að þeir sæju ekkert athugavert að lýsa yfir stuðningi við lýðræöi i Portúgal og frelsi portúgala”. Hér vakna ýmsar spurningar. Telst það virkilega andlýðræðis- legt i hugum fulltrúa Vöku, að aðrir fulltrúar i S.H.l óski eftir þvi að fá tækifæri til þess að kanna þau mál, sem þeim er ætlað að setja nafn sitt undir? Ef svo er, þá er það vist að lýðræðis- hugmyndir þeirra Vökumanna eiga meiri samstöðu með þeim hugmyndum, sem eru rikjandi i löndum.sem búa við einræði. Þar eiga menn að samþykkja það sem að þeim er rétt og þegja. 1 þessu sambandi er rétt að geta þess að oddviti Vöku hafði i hót- unum við fulltrúa vinstri manna á fundinum um að ef tillagan feng- ist ekki samþykkt þá.... þá skyldi alþjóð fá vitnesku um það. Og þjóðin hefur fengið sina vitneskju, það er að segja þá vit- neskju, sem Morgunblaðiö og Vaka félag „lýðræðissinnaðra” stúdenta telja sér bezt henta. Oddvitinn vék i greinarkorninu Framhald á 19. siðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.