Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Fréttablaðið
er leiðandi
Íslendingar 18-49 ára
samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
11%
37%
Lestur á leiðarasíðu
ÁFRAM SVIPAÐ með bjartvðri á
sunnan- og suðvestanverðu landinu en
skýjaðra og stöku él á Norður- og
Austurlandi. Hiti 0-9 stig að deginum,
mildast sunnan til. VEÐUR 4
SUNNUDAGUR
22. maí 2005 - 134. tölublað – 5. árgangur
OPI‹ 13-18
Krakka
dagar
Frábær tilbo›!
Ávextirnir skemmta kl. 14 og 16
Tyrkland og ESB:
Full a›ild
e›a ekkert
TYRKLAND, AP Tyrknesk stjórnvöld
munu ekki fallast á neitt minna en
fulla aðild að Evrópusambandinu.
Þessu lýsti talsmaður tyrkneska
utanríkisráðuneytisins yfir í gær
eftir að tyrknesk dagblöð birtu
fréttir af franskri tillögu um að
Tyrkjum yrði boðinn samningur
um náin tengsl við sambandið
frekar en fulla aðild.
Hugmyndin um að Tyrkland fái
fulla aðild að ESB er óvinsæl víða
í núverandi aðildarríkjum þess,
ekki síst í Frakklandi. Þar er búist
við að margir kjósendur greiði at-
kvæði gegn samþykkt hins nýja
stjórnarskrársáttmála í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um næstu helgi,
beinlínis vegna þess að þeir vilji
hindra að Tyrkland fái að semja
um inngöngu. ■
Arsenal bikarmeistari
Jens Lehmann var hetja
Arsenal þegar
liðið vann
Man. Utd. í
úrslitum
ensku
bikar-
keppn-
innar í
gær.
ÍÞRÓTTIR 61
Forystan er hópstarf
Tveir af hverjum flremur kusu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til a› gegna
embætti formanns Samfylkingarinnar. Ágúst Ólafur Ágústsson var kjörinn
varaforma›ur. Flokkurinn er stór og til alls líklegur, segir n‡kjörinn forma›ur.
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON VARAFORMAÐUR OG INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR FORMAÐUR Flokkurinn fól þeim að leiða Samfylk-
inguna næstu ár. Ingibjörg vann öruggan sigur á Össuri Skarphéðinssyni og Ágúst Ólafur var kjörinn varaformaður með miklum meirihluta.
SAMFYLKINGIN Liðlega tólf þúsund
manns, um 60 prósent af tuttugu
þúsund flokksmönnum, greiddu at-
kvæði í formannskjöri Samfylk-
ingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir hlaut 7.997 gildra atkvæða
en Össur Skarphéðinsson 3.970.
Ingibjörg Sólrún hlaut því tvö af
hverjum þremur gildra atkvæða.
Össur Skarphéðinsson, fráfar-
andi formaður Samfylkingarinn-
ar, sagði í ávarpi eftir að úrslit
voru kynnt á hádegi í gær að
sigurinn væri sterkur fyrir Sam-
fylkinguna og sterkur fyrir Ingi-
björgu Sólrúnu.
„Tækifæri Samfylkingarinnar
felst ekki í því hvort okkar Össur-
ar leiðir flokkinn í næstu kosning-
um,“ sagði Ingibjörg Sólrún í
ávarpi sínu. „Forysta er hópstarf
en ekki einstaklingsframtak. For-
maður er fremstur þeirra jafn-
ingja en hann kæmist hvorki lönd
né strönd ef hann hefði ekki góðan
málstað og gott fólk til að vinna
með sér,“ sagði Ingibjörg Sólrún
jafnframt og bar lof á drenglyndi
Össurar og stuðningsmanna hans.
„Þessi kosningabarátta er Össuri
og hans liðsmönnum til sóma. Ég
vil þakka honum fyrir drengilega
baráttu og segi honum um leið að
ég hlakka til að vinna með honum
að málefnum Samfylkingarinnar
um ókomin ár,“ sagði Ingibjörg
Sólrún enn fremur í ávarpi sínu.
Össur þakkaði hlý orð keppinaut-
arins í sínu ávarpi og hét því að
halda lengi áfram í stjórnmálum
enn, enda þætti honum þau bæði
skemmtileg og göfgandi.
Ingibjörg sagði í samtali við
Fréttablaðið að hún teldi að lands-
fundurinn nú væri tímamótafund-
ur. „Fundurinn er gríðarlega fjöl-
mennur og málefnalega vel undir-
búinn. Hér er mikil hugmyndaleg
deigla og forystan er ný. Flokkur-
inn er nú þeirrar stærðar og styrk-
ur hans það mikill að hann er til alls
líklegur í næstu þingkosningum.“
Mikil endurnýjun varð í forystu
Samfylkingarinnar í gær. Ágúst
Ólafur Ágústsson var kjörinn vara-
formaður og sigraði Lúðvík Berg-
vinsson með nokkrum yfirburðum.
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Flugmálastjórnar,
bauð sig fram til varaformanns í
gær en hlaut aðeins fáein atkvæði.
Sjá einnig síður 6 og 16
johannh@frettabladid.is
Er guð til?
Ólafur H. Torfason segir
Stjörnustríðs-
myndirnar
skrifaðar til
þess að fá
ungt fólk til
að velta því
fyrir sér
hvort guð
sé til.
BÍÓ 23
Talar fyrir
Sollu stirðu
Ólöf Kristín
Þorsteinsdóttir
er hörku-
dugleg og
ekkert
stirð.
FÓLK 38
FAGRA ÍSLAND
SKOÐANAKÖNNUN
Hvaða staður á Íslandi er fallegastur? Sitt sýnist hverjum og margir staðir
kallaðir til. Í nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins um fegursta stað lýð-
veldisins stóð þó einn staður upp úr: Þjóðardjásnið Þingvellir.
KÖNNUN 18
VEÐRIÐ Í DAG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Í BÓLI BJARNA Pólskur lögreglumaður á
vettvangi í bjarnargryfjunni eftir slysið.
Slys í dýragarði:
Kona lendir í
bjarnarkjafti
PÓLLAND, AP Fimm birnir í pólskum
dýragarði fengu óvænta máltíð á
föstudaginn. Kona nokkur sem var
gestkomandi í garðinum féll ofan í
gryfjuna til þeirra og átti þaðan
ekki afturkvæmt. Hún hafði
klifrað upp á grindverkið sem um-
lykur bjarnargryfjuna og féll ofan
af því. Konan var að sögn lögreglu
um fertugt. Ekki hafði reynst unnt
að bera kennsl á hana er AP-frétta-
stofan náði tali af talsmanni lög-
reglunnar í Chorzow, þar sem
dýragaðurinn er.
„Þeir tættu hana í sig,“ sagði
talsmaðurinn, „þetta er sorglegt
slys“. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
BANDARÍKIN, AP Nýjasta Star Wars-
myndin, sú síðasta í myndaflokkn-
um, sló tekjumet á fyrsta sýningar-
degi er 3.661 kvikmyndahús í
Bandaríkjunum með yfir 9.000 sýn-
ingarsölum hóf sýningar á „Star
Wars: Episode III: Revenge of the
Sith“ á fimmtudag. Aðgöngumiðar
seldust fyrir rétt rúmar fimmtíu
milljónir Bandaríkjadala, um 3.250
milljónir króna.
Fyrra tekjumet á einum sýning-
ardegi setti „Shrek 2“ í maí í fyrra,
er 44,8 milljónir dala, 2,9 milljarðar
króna, komu í kassann á einum
laugardegi. ■
SVERÐUM SVEIFLAÐ FYRIR FULLU HÚSI Obi-Wan Kenobi og Anakin Skywalker sveifla
geislasverðunum í lokamynd Star Wars-myndaflokksins.
LU
C
AS
FI
LM
/T
W
EN
TI
ET
H
C
EN
TU
RY
F
O
X/
AP
Stjörnustríðsmyndin Star Wars - Episode III - Revenge of the Sith:
Sló tekjumeti› á fyrsta degi