Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 2
2 22. maí 2005 SUNNUDAGUR
Íslensk olíumiðlun ehf. í Neskaupstað:
Fékk fyrstu olíuna afhenta
OLÍUSALA Íslensk olíumiðlun ehf.
fékk afhenta sína fyrstu olíu í
Neskaupstað í gær, 3.300 tonn.
Fyrirtækið var stofnað í fyrra um
olíusölu til skipa.
„Við erum komin með einn
4.000 rúmmetra tank sem við fyll-
um núna,“ segir Ólafur Þ. Kjart-
ansson, framkvæmdastjóri Olíu-
miðlunar, og kvað dælingu hafa
gengið vel. „Við höfðum búið okk-
ur undir að vera hér í nótt, en
klárum þetta á 5 til 6 tímum.“
Hann segir olíusölu þegar geta
hafist, en fyrirtækið ætlar að
selja íslenskum skipum og erlend-
um. Þá hefur verið gerður samn-
ingur við Ríkiskaup um sölu til
Landhelgisgæslu og Hafrann-
sóknastofnunarinnar. Ólafur
segist ætla að keppa í verði, en
það muni sveiflast eftir heims-
markaðsverði á hverjum tíma.
„Við vinnum þetta í nánu sam-
starfi við Malik [Supply Ltd.],“
segir Ólafur, en það er danskt
olíufélag sem á meirihluta í Olíu-
miðlun. „Það aðstoðar við mark-
aðssetningu gagnvart erlendum
skipum, enda með 15 ára
reynslu,“ bætti hann við og kvað
alla aðstöðu mjög nútímalega. Til
dæmis væri verið að koma upp
mælum til að fylgjast með birgða-
stöðu á hverjum tíma. Viðstaddur
þessi tímamót í sögu Olíumiðlun-
ar var Sten Möller, framkvæmda-
stjóri Malik Supply. - óká
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra:
Fékk afhentan lykil
a› San Francisco
STJÓRNMÁL Við hátíðarkvöldverð í
Asíska listasafninu í San
Francisco í gær afhenti Gavin
Newsom, borgarstjóri San
Francisco, Halldóri Ásgrímssyni
forsætisráðherra lykilinn að borg
sinni.
Kvöldverðurinn var haldinn í
tilefni af fyrsta áætlunarflugi
Icelandair til San Francisco. Sagð-
ist borgarstjórinn fagna þessari
ákvörðun stjórnenda Icelandair
og vonaðist til að fljótlega yrði
flogið daglega. Áður en til kvöld-
verðar kom áttu Halldór og Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir borgar-
stjóri stuttan fund með borgar-
stjóranum í ráðhúsinu, þar sem
skipst var á gjöfum eftir stutt
spjall um kosti Íslands og San
Francisco. - ss
Misþyrmingar á föngum í Afganistan:
Karzai krefst refsinga
AFGANISTAN, AP Hamid Karzai, for-
seti Afganistans, krafðist þess í
gær að Bandaríkjaher gengi hart
fram í að draga þá liðsmenn hers-
ins til ábyrgðar sem gerst hefðu
sekir um að misþyrma föngum í
Afganistan.
The New York Times birti á
föstudag upplýsingar sem lekið
var úr tvö þúsund síðna skýrslu
um rannsókn á ásökunum um
fangamisþyrmingar í aðalher-
stöð Bandaríkjahers í Afganist-
an. Svo vildi til að sama dag lagði
Karzai Afganistanforseti upp í
fjögurra daga opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna. Er hann
ávarpaði blaðamenn á Kabúl-
flugvelli hét hann því að ræða
málið við bandaríska ráðamenn.
Hann sagðist líka mundu krefj-
ast þess að aðgerðir Bandaríkja-
hers í landinu sættu meira eftir-
liti, ekki síst skyldi bundinn endi
á að bandarískir hermenn réðust
inn á heimili manna og hand-
tækju án þess að tilkynnt væri
um aðgerðirnar til afgönsku
stjórnarinnar.
Í grein New York Times um
illa meðferð bandarískra her-
manna á afgönskum föngum í
herstöð Bandaríkjamanna við
Bagram-flugvöll norður af Kabúl
er vitnað í trúnaðarupplýsingar
úr skýrslu rannsóknarnefndar
sem rannsakaði ásakanirnar. Efnt
var til rannsóknarinnar eftir
dauða tveggja fanga þar í desem-
ber 2002.
„Mér ofbýður gersamlega. Við
fordæmum þetta. Við viljum að
Bandaríkjastjórn grípi til mjög
afgerandi ráðstafana til að sjá til
þess að slíkir menn starfi ekki í
herliði hennar í Afganistan,“ tjáði
Karzai blaðamönnum en tók fram
að glæpsamlegar gerðir þessara
hermanna sem í hlut ættu skyldu
ekki verða landsmönnum hans til-
efni til að draga þá ályktun að all-
ir Bandaríkjamenn væru slæmir.
„Íbúar Bandaríkjanna eru vænsta
fólk,“ sagði hann.
Trent Duffy, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að George W. Bush
Bandaríkjaforseti væri hneyksl-
aður á hinum meintu fangamis-
þyrmingum og vildi að vandleg
rannsókn færi fram. Duffy sagði
að rannsóknin beindist nú einkum
að sjö sakborningum sem þjónað
hefðu í Bagram-herstöðinni. ■
SNÚA BÖKUM SAMAN
Fulltrúar á þingi íraskra súnní-araba hlýða
á ræðu í Bagdad í gær.
Írösk stjórnmál:
Súnní-arabar
fylkja li›i
ÍRAK, AP Súnní-arabar í Írak
ákváðu í gær að stofna pólitísk og
trúarleg samtök sem ætlað er að
vera málsvari þeirra sem minni-
hlutahóps í landinu. Ákvörðunin
þykir áfangi að því að fá súnní-
araba, sem voru kjarninn að baki
ríkisstjórnar Saddams, til liðs við
aðra þjóðfélagshópa við að móta
nýtt Írak. Súnní-arabar sniðgengu
að miklu leyti fyrstu lýðræðislegu
þingkosningarnar sem haldnar
voru í landinu í janúar og eiga því
fáa fulltrúa í stjórn landsins.
Ákvörðunin um stofnun nýrra
samtaka var tekin á samkomu um
eitt þúsund fulltrúa ættbálka
súnní-araba, stjórnmálaflokka og
trúarhreyfinga í Bagdad nú um
helgina. ■
SINUBRUNI Kristján Einarsson, slökkviliðs-
stjóri á Selfossi, segir sinu skapa hættu
bæði fyrir byggingar og fuglalíf.
Sinubrunar á vorin:
Óvitar a›
verki
ELDVARNIR Aðfaranótt laugardags
var slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins kallað út vegna sinuelds við
Rauðavatn. Vel gekk að slökkva
eldinn og engin slys urðu af honum.
Þurrt veður sunnan- og suð-
vestanlands undanfarið eykur
sinubrunahættu og biður Kristján
Einarsson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Árnessýslu, fólk að
fara varlega með eld og hafa var-
ann á. „Það eru aðallega krakkar
að fikta með eld sem valda sinu-
bruna,“ segir hann. „Ég vil bara
biðja foreldra um að brýna þetta
fyrir börnunum sínum og fela eld-
spýtustokka,“ bætti hann við.
-bg
LÖGREGLUFRÉTTIR
HRAÐAKSTUR OG ÖLVUNARAKST-
UR Lögreglan á Hvolsvelli hafði
afskipti af manni í gærmorgun
sem grunaður er um ölvunarakst-
ur. Grunurinn reyndist réttur og
fékk maðurinn meðhöndlun eftir
því. Í gærkvöldi stöðvaði lögregl-
an svo mann sem ók á 147 km
hraða. Hann var tekinn rétt hjá
Djúpadal og reyndist vera á leið-
inni frá framhaldsskólaballi FSU
sem að sögn lögreglu fór vel
fram fyrir utan tvær líkamsárás-
ir sem lögreglan hafði afskipti af.
INDLAND
VOPNASKAK Í KASMÍR Sex manns
féllu í átökum í hinum indverska
hluta Kasmír í gær og þúsundir
heimamanna söfnuðust saman í
kirkjugarði í Srinagar til að
minnast þeirra sem hafa barist
hafa fyrir aðskilnaði héraðsins
frá Indlandi og fallið í átökunum
þar síðastliðin fimmtán ár.
Forsætisráðherra Úkraínu:
Segist ekki
á förum
ÚKRAÍNA, AP Júlía Tímosjenkó, for-
sætisráðherra Úkraínu, bar í gær til
baka fréttir þess efnis að forsetinn
Viktor Jústsjenkó hefði lagt að
henni að segja af sér. Það hygðist
hún ekki gera og fréttir af djúp-
stæðum ágreiningi
milli hennar og
forsetans væru úr
lausi lofti gripnar.
T í m o s j e n k ó
fullyrti að sam-
band hennar og
forsetans væri
„eins innilegt og
ævinlega“, að því
er Unian-fréttastofan greindi frá.
Hún lét ummælin falla eftir að
vikublaðið Zerkalo Nedely, sem
gefið er út í Kíev, birti frétt um að
Jústsjenkó hefði lagt að henni að
segja af sér vegna meintra mis-
taka við að reyna að bæta úr elds-
neytisskorti í landinu. ■
Holtasmára 1 • 201 Kópavogi • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
114.990 kr.
Hua Hin
2 vikur í júlí
Verð á mann í tvíb. með sköttum
129.995 kr.
5 stjörnu lúxus
2 vikur í ágúst
Verð á mann í tvíb. með sköttum
118.900 kr.
Pattaya
2 vikur í júní
Verð á mann í tvíb. með sköttum
133.700 kr.
Bali 2 vikur í júlí
Verð á mann í tvíb. með sköttum
Fjölmargir
möguleikar
í sumar og
haust
Mannlífið í
Taílandi og á Bal
i
á ómótstæðilegu
verði
Ævintýraleg sumarsól
í Austurlöndum
draCretsaM
udnuM
!aninusívá
aðref
Nánari upplýsingar
um verðdæmin
er að finna á
heimsíðunni
www.kuoni.is
Verðdæmi
SPURNING DAGSINS
Palli, á fletta ekki bara a›
vera flátttaka í hinsta sinn?
„Nei, auðvitað höldum við áfram að taka
þátt í Eurovision og berum höfuðið hátt
alveg sama hvernig gengur.“
Páll Óskar Hjálmtýsson flutti á eftirminnilegan hátt
lagið „Minn hinsti dans“ í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva árið 1997 og varð í 20. sæti í að-
alkeppninni. Síðasta fimmtudag datt Ísland úr leik
í forkeppni söngvakeppninnar og var því ekki með
í aðalslagnum sem fram fór í gærkvöldi.
OLÍA AFHENT Í NESKAUPSTAÐ Framkvæmdastjóri Olíumiðlunar segir að í Neskaupstað sé
fyrirtækið með öflugan búnað til afgreiðslu olíu. Þá verði sá háttur á við afgreiðslu að
tekin verði sýni úr olíunni, eitt handa viðskiptavininum og annað handa fyrirtækinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A
G
U
Ð
M
U
N
D
SD
Ó
TT
IR
JÚLÍA TÍMOSJENKÓ
Forsætisráðherra
Úkraínu.
Á LEIÐ VESTUR Hamid Karzai Afganistanforseti ávarpar blaðamenn í Kabúl í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
STJÓRNMÁL
GEKKST UNDIR UPPSKURÐ Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
gekkst undir uppskurð í gær
vegna brjóskloss í baki. Aðgerðin
fór fram á Landspítala – Háskóla-
sjúkrahúsi og verður ráðherrann
í veikindaleyfi um óákveðinn
tíma. Þetta kom fram í tilkynn-
ingu sem Bergþór Ólason, aðstoð-
armaður samgönguráðherra,
sendi frá sér í gær.
LYKILL AFHENTUR Gavin Newsom afhenti
Halldóri Ásgrímssyni lykilinn að San
Francisco-borg á föstudagskvöld. Gavin
sagðist vonast til að sjá sem flesta Íslend-
inga í borginni.