Fréttablaðið - 22.05.2005, Síða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,60 64,90
118,72 119,30
81,55 82,01
10,95 11,02
10,04 10,10
8,87 8,93
0,60 0,60
96,26 96,84
GENGI GJALDMIÐLA 20.05.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
113,10 -0,25%
4 22. maí 2005 SUNNUDAGUR
Kosið í Nordrhein-Westfalen:
Helsta vígi krata gæti falli›
ÞÝSKALAND Úrslit héraðsþingkosn-
inga sem fara fram í dag í Nord-
rhein-Westfalen, einu hinna sextán
sambandslanda Þýskalands og því
fjölmennasta, þykja líkleg til að
verða forboði þess hver örlög ríkis-
stjórnar Gerhards Schröder kansl-
ara verða er næst verður kosið til
Sambandsþingsins að rúmu ári.
Jafnaðarmannaflokkur Schröd-
ers hefur haldið um héraðsstjórn-
artaumana í Nordrhein-Westfalen –
sem nær meðal annars yfir Ruhr-
dalinn – síðan árið 1966. En
óánægja með gerðir ríkisstjórnar
Schröders hefur hrakið marga
kjósendur frá stuðningi við jafnað-
armenn og því hefur Peer Stein-
brück, sem farið hefur fyrir hér-
aðsstjórninni undanfarið kjörtíma-
bil, átt á brattann að sækja í kosn-
ingabaráttunni, þrátt fyrir per-
sónulegar vinsældir. Síðustu mán-
uðina hafa kristilegir demókratar,
undir forystu Jürgens Rüttger,
mælst í skoðanakönnunum með
mjög afgerandi forskot.
En í þessu rótgróna vígi krata
virtist á endaspretti kosningabar-
áttunnar sem allnokkur hluti
óákveðinna kjósenda ætlaði að
snúast aftur á sveif með jafnaðar-
mönnum og skoðanakannanaspek-
ingar sögðu að af þessum völdum
mætti búast við því að mjög mjótt
yrði á mununum, að því er fram
kom á fréttavef Der Spiegel.
- aa
Karlar fá margfalt
fleiri punkta
Karlar fá fleiri refsipunkta og valda fleiri alvarlegum slysum en konur. fió telja
fleir sig mun betri ökumenn. N‡leg rannsókn segir fló engan mun á kynjunum
flegar kemur a› ökuleikni.
UMFERÐ Karlkyns ökumenn fá yfir
þrjá af hverjum fjórum refsi-
punktum sem lögreglan gefur
fyrir umferðarlagabrot.
Samkvæmt upplýsingum Ríkis-
lögreglustjóra hafa, frá árinu 1998
þegar refsipunktakerfið var tekið
upp, verið gefnir út 84.502 punktar,
þar af 65.198 til karla og 19.304 til
kvenna. Í fyrra fékk 92 ára gamall
karl punkt, elstur til að fá einn slík-
an til þessa, en áður hafa tveir á ní-
ræðisaldri fengið punkt árin 1998
og 2000. Síðustu ár hafa að jafnaði
verið gefnir út 14 til 15 þúsund
punktar á ári hverju.
„Við sjáum líka á slysaskýrsl-
um að fleiri karlmenn eru valdir
að alvarlegum slysum,“ segir Ein-
ar Magnús Magnússon, upplýs-
ingafulltrúi Umferðarstofu.
Einnig hefur komið fram í könnun
sem Umferðarstofa stóð að ásamt
Landsbjörg og Lýðheilsustöð að
karlar séu líklegri til að hafa börn
sín í ónægum eða óviðunandi
öryggisbúnaði í bílum. Einar
segist ekki telja að hærra hlutfall
karla í umferðinni en kvenna
skýri hversu miklu meiri slysa-
valdar þeir séu.
Þó eru vísbendingar um að
minni munur sé á ökuhæfni kynj-
anna en margur hefur talið til
þessa. Í rannsókn sem Rannveig
Þórisdóttir, Haukur Freyr Gylfa-
son og Marius Peersen unnu fyrir
Ríkislögrelustjóra síðasta vor
kemur fram að ökuleikni tengist
ekki kynferði. Gerð var rannsókn
meðal ungs fólks þar sem það var
spurt út í atferli sitt í umferðinni
og kom fram að ungar konur eru
ekki síður líklegar til að aka hratt
og ógætilega en ungir menn.
Rannveig Þórisdóttir, á töl-
fræðisviði Ríkislögreglustjóra,
segir fjölda refsipunkta sem karl-
ar fá ekki sýna vanhæfni þeirra
miðað við kvenkyns ökumenn.
„Það verður að taka mið af því að
bæði eru karlar mun fleiri í um-
ferðinni og svo eru líka miklu
fleiri karlar við stýrið á þjóðveg-
um úti á landi, en þar eru flestir
ökumenn teknir fyrir of hraðan
akstur,“ segir hún.
Einar tekur undir að hluti af
skýringunni kunni að felast í að
karlar sitji frekar undir stýri en
konur, en segir engu að síður
nokkuð vel rökstuddan grun
þeirra á Umferðarstofu að munur
sé á kynjunum, konum í vil.
Ekki þarf að taka það fram að
ungir karlökumenn telja sig kon-
um fremri í ökuleikni, en það kom
fram í könnun Ríkislögreglu-
stjóra.
jse@frettablaðið.is
Alcan á Íslandi:
Nor›urál fær
súrál lána›
ÁLVER Alcan á Íslandi lánar Norður-
áli 10.000 tonn af súráli, að sögn
Hrannars Péturssonar, upplýsinga-
fulltrúa Alcan.
„Þetta er aðalhráefnið sem álver
vinna með. Það yrði algjört neyðar-
ástand ef aðeins væri eitt álver í
landinu og þetta vantaði. Súrálið
átti að koma beint til okkar með
skipi en í staðinn fer skipið fyrst í
Norðurál með tíu þúsund tonn.
Þegar þeirra skip kemur skila þeir
svo tonnunum aftur.“
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Norð-
uráls, vildi þó ekkert kannast við
súrálsskortinn. - bg
Rótarýklúbbur í Reykjavík:
Fórnarlömb
fá báta gefins
INDLAND Rótarýklúbburinn
Reykjavík-Austurbær hefur
ákveðið að styrkja fórnarlömb
flóðbylgjunnar í Asíu og gefur
fjóra báta ásamt veiðarfærum til
fiskimannafjölskyldna í Andra
Pradesh-héraði á Indlandi. Það
var á þess-
um slóðum
sem þús-
u n d i r
misstu al-
eigu sína í
flóðbylgj-
unni og er
g j ö f i n
hluti af
samstarfs-
v e r k e f n i
rótarýhreyfingarinnar í Andra
Pradesh og 65 rótarýklúbba í tíu
löndum. Alls voru 180 bátar gefn-
ir til íbúa svæðisins, ásamt veið-
arfærum. Þetta ætti að koma íbú-
um svæðisins vel þar sem fisk-
veiðar eru meginatvinnugrein
íbúanna og með einum báti er
mögulegt að sjá tveimur fjöl-
skyldum farborða. ■
Samningur gegn mansali:
Amnesty
fagnar
MANNRÉTTINDI „Íslandsdeild Am-
nesty International fagnar undir-
skrift Íslands á nýjum samningi
gegn mansali.“ Svo segir í fréttatil-
kynningu frá Amnesty hér á landi.
Davíð Oddsson skrifaði nýver-
ið undir samning Evrópuráðsins
fyrir hönd Íslands þar sem lögð er
áhersla á að mansal sé brot á
mannréttindum og árás á mann-
lega reisn. Ríki sem gerast aðilar
að samningnum skulu gera ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir
mansal, sækja þá til saka sem
stunda mansal og virða réttindi
fórnarlamba mansals. -oá
Samkeppniseftirlit:
N‡ stjórn
skipu›
STJÓRNMÁL Ný stjórn Samkeppnis-
eftirlits hefur verið skipuð af við-
skiptaráðherra og tekur stjórnin
til starfa hinn 1. júlí næstkomandi
samkvæmt nýjum samkeppnis-
lögum. Þriggja manna stjórn skip-
uð af viðskiptaráðherra fer með
yfirstjórn Samkeppniseftirlitsins
og eru þrír varamenn skipaðir
með sama hætti. Ráðherra skipar
svo einnig formann stjórnarinnar,
en hlutverk hennar er að móta
áherslur í starfi og fylgjast með
starfsemi og rekstri Samkeppnis-
eftirlitsins. - bg
LÖGREGLUMÁL
ÖLVUNARAKSTUR Lögreglan í Dal-
vík tók mann fyrir ölvunarakstur
um klukkan hálfellefu að kvöldi
föstudags. Bílstjóri keyrði út af
veginum á leið til Akureyrar en
slasaðist þó ekki og bifreiðin slapp
vel miðað við aðstæður. Maðurinn
er á fertugsaldri.
HRAÐAKSTUR Lögreglan á Ólafs-
vík tók sex manns fyrir hraðakst-
ur á Snæfellsnesvegi seinnipart
föstudags. Ekki var um veruleg-
an hraðakstur að ræða en einn
bílstjórinn var þó látinn blása
vegna gruns um ölvunarakstur.
Sá var þó talsvert undir mörkun-
um og því ekki sektaður en var
gert að hætta akstri.
BANDARÍKIN
TÓKU BÍL MEÐ BARNI Innheimtu-
menn í San Antonio í Texas gerð-
ust fullfrekir til fjörsins í vik-
unni. Þeir tóku í vörslu sína bif-
reið sem kona nokkur hafði ekki
greitt afborganir af en gáðu ekki
að því að í bílnum var barn sof-
andi í bílstól. Konan hafði sam-
band við lögreglu og tókst að
hafa uppi á bílnum áður en króg-
inn vaknaði.
• Vefsmíði – MySQL & ASP 24. maí
• FrontPage grunnur 23. maí
• FreeHand 23. maí
• Excel grunnur 25. maí
• Flash 1. júní
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
N Æ S T U N Á M S K E I Ð :
VEÐRIÐ Í DAG
BARÁTTUGLAÐIR Þeir Franz Müntefering,
formaður SPD, Gerhard Schröder kanslari,
spænski forsætisráðherrann Jose Luis
Rodriguez Zapatero og Peer Steinbrück,
forsætisráðherra héraðsstjórnar Nordrhein-
Westfalen, reyndu sitt besta til að hleypa
hug í mannskapinn á lokafundi kosninga-
baráttunnar í Dortmund á föstudaginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
UMFERÐARÓHAPP Karlmenn telja sig betri ökumenn en konur, en það endurspeglast þó
ekki í refsipunktagjöf lögreglu, því karlar fá þar þrjá af hverjum fjórum punktum. Myndin
sýnir frá óhappi þegar jeppabifreið rakst á strætisvagn í apríl síðastliðnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
ANDRA PRADESH Einn bát-
anna sem Rótarýklúbburinn
gaf.