Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 6
6 22. maí 2005 SUNNUDAGUR
LANDSFUNDUR „Hvað get ég sagt? Ég
hef tapað og er hafinn upp til skýj-
anna bæði af ykkur og þeim sem
vinnur,“ sagði Össur Skarphéðins-
son að loknu sigurávarpi Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur á lands-
fundi Samfylkingarinnar í gær.
Össur hlaut um þriðjung gildra
atkvæða í formannskjörinu. „Við
höfum vissulega gefið hvort öðru
olnbogaskot. En það er rétt sem
Ingibjörg sagði, að þráðurinn hefur
aldrei slitnað millum okkar,“ sagði
Össur jafnframt.
Hann kvað úrslitin í formanns-
kjörinu sterk fyrir Samfylkinguna
og sterk fyrir Ingibjörgu Sólrúnu.
„Ingibjörg Sólrún hefur sýnt það
að hún er ákaflega sterkur leiðtogi
og hún hefur líka sýnt það í þessari
baráttu að það býr í henni mikill
kraftur. Hún sigraði vegna sinna
kosta og vegna þolgæðis síns,“
sagði Össur meðal annars og gat
einnig um sigra hennar í borgar-
stjórnarkosningum. „Ingibjörg
Sólrún sýndi það að með hjálp okk-
ar á þeim tíma tókst henni að
breyta Reykjavík. Og nú er það
hlutverk okkar allra sem hér erum
að hjálpa henni að breyta Íslandi.“
Össur Skarphéðinsson þakkaði
stuðningsmönnum í ávarpi sínu og
kvaðst þakklátur fyrir fimm ár á
formannsstóli Samfylkingarinnar.
Hann lauk ávarpinu með yfirlýs-
ingu um að hann ætlaði áfram að
gera það sem honum þætti gaman,
það er að vera miklu lengur í stjórn-
málum. - jh
Ágúst Ólafur Ágústsson er nýr varaformaður Samfylkingarinnar:
Kjörinn me› 62 prósentum atkvæ›a
VARAFORMAÐUR Ágúst Ólafur
Ágústsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, sigraði í varafor-
mannskjöri flokksins í gær. 839
landsfundarfulltrúar kusu. Þar af
hlaut Ágúst Ólafur 519 atkvæði,
um 62 prósent. Lúðvík Bergvins-
son, þingmaður Samfylkingarinn-
ar, hlaut 297 atkvæði, liðlega 36
prósent. Heimir Már Pétursson,
upplýsingafulltrúi Flugmála-
stjórnar, bauð sig einnig fram en
hann uppskar einungis 10 at-
kvæði.
„Ég tel að flokkurinn hafi sýnt
djörfung og þor og ég er ykkur af-
skaplega þakklátur fyrir þessa
útkomu,“ sagði Ágúst Ólafur í
ávarpi sínu þegar úrslit voru
kunn og þakkaði landsfundarfull-
trúum stuðninginn.
Mörgum viðmælendum Frétta-
blaðsins á landsfundinum þótti
stuðningsmenn Ágústs Ólafs hafa
gengið langt í smölun meðal ungliða
og þátttaka þeirra í atkvæðagreiðsl-
unni óeðlileg.
„Svona sögur fara alltaf af
stað,“ segir Ágúst. „Úrslitin sýna
að stuðningurinn við mig var
breiður og víðtækur. Það er mikill
áhugi á landsfundinum og ekkert
óeðlilegt við það. Það voru þús-
undir sem skráðu sig í flokkinn
fyrir formannskjörið,“ sagði
Ágúst Ólafur í samtali við blaða-
mann Fréttablaðsins.
johannh@frettabladid.is
NÝR FORMAÐUR Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hlaut 7.997 af 12.007
gildum atkvæðum í formanns-
kjöri Samfylkingarinnar. Össur
Skarphéðinsson hlaut 3.979 at-
kvæði. Því sem næst tveir af
hverjum þremur greiddu því
Ingibjörgu Sólrúnu atkvæði sitt.
Henni var ákaft fagnað á hádegi
í gær þegar úrslit kosninganna
voru kunngerð á landsfundi
Samfylkingarinnar.
„Úrslitin í dag skipta því að-
eins máli ef sigur vinnst í næstu
kosningum. Þar skrifum við sög-
una og mótum framtíðina,“
sagði Ingibjörg í ávarpi sínu.
Fulltrúar á landsfundinum
biðu spenntir eftir viðbrögðum
frambjóðendanna tveggja við
úrslitunum.
Ingibjörg Sólrún sagði að
engum dyldist að verkefni henn-
ar og Össurar allt frá síðustu al-
þingiskosningum hefði ekki
verið auðvelt en kvaðst hreykin
af því að þeim hefði báðum
tekist að leysa verkefnið af
hendi með þeim hætti að Sam-
fylkingin hefði ekki skaðast.
Þvert á móti stæði hún sterkari
á eftir. „Þessi kosningabarátta
er Össuri og hans liðsmönnum
til sóma. Ég vil þakka honum
fyrir drengilega baráttu og segi
honum um leið að ég hlakka til
að vinna með honum að málefn-
um Samfylkingarinnar um
ókomin ár,“ sagði Ingibjörg.
Jafnframt sagði hún að mestu
máli skipti að þráðurinn milli
hennar og Össurar hefði aldrei
slitnað. „Tækifæri Samfylking-
arinnar felst ekki í því hvort
okkar Össurar leiðir flokkinn í
næstu kosningum. Foysta er
hópstarf en ekki einstaklings-
framtak. Formaður er fremstur
þeirra jafningja en hann kæmist
hvorki lönd né strönd ef hann
hefði ekki góðan málstað og gott
fólk til að vinna með sér.“
Ingibjörg Sólrún þakkaði
stuðningsmönnum sínum og
sagði að undirbúningur að
næstu alþingiskosningum hefði
hafist þegar eftir síðuustu þing-
kosningar. „Við höfum ekki setið
auðum höndum og við munum
ekki unna okkur hvíldar fyrr en
við höfum komið frá þeirri
ríkisstjórn misskiptingar og
valdstýringar sem nú situr... Við
erum á réttri leið og ætlum alla
leið.“
Ingibjörg Sólrún sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að úrslitin
hefðu ekki komið sér alls kostar
á óvart. „Þetta er nokkuð í takt
við skoðanakannanirnar sem
hafa verið gerðar. Þetta var per-
sónukjör og í því fólst ekki einu
sinni dómur yfir störfum okkar
í fortíðinni. Hér ráða væntingar
um framtíðina. Um hana erum
við að kjósa,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir.
johannh@frettabladid.is
Samfylkingin:
Forystan
endurn‡ju›
NÝ FORYSTA Mikil endurnýjun varð
í forystu Samfylkingarinnar á
landsfundinum í
gær. Gunnar Svav-
arsson, forseti bæj-
arstjórnar Hafnar-
fjarðar, var kjörinn
formaður fram-
kvæmdast jórnar
Samfylkingarinnar.
Hann tekur við af
Stefáni Jóni Hafstein, sem gaf
ekki kost á sér í embættið.
Helena Karlsdóttir var kjörin
ritari Samfylkingarinnar en mót-
frambjóeðndur hennar í embættið
voru Stefán Jón Hafstein og Val-
gerður Bjarnadóttir. Helena hlaut
um 49 prósent atkvæða, Stefán
Jón um 34 prósent og Valgerður
tæp 17 prósent.
Ari Skúlason var kjörinn gjald-
keri flokksins. - jh
Átti Ísland skili› a› detta út í
forkeppni Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstö›va?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Koma n‡fengin úrslit í for-
mannskjöri til me› a› styrkja
Samfylkinguna?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
64%
36%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON, FRÁFARANDI FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR
Össur segir úrslitin sterk fyrir Samfylkinguna og Ingibjörgu Sólrúnu. Hann kveðst ætla að
vera áfram í stjórnmálum um langa hríð.
Össur ætlar að vera miklu lengur í stjórnmálum:
Afgerandi úrslit og
sterk fyrir flokkinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, FOR-
MAÐUR SAMFYLKINGARINNAR Munum
ekki una okkur hvíldar fyrr en við höfum
komið frá þeirri ríkisstjórn misskiptingar
og valdstýringar sem nú situr.
Á réttri lei› og ætlum alla lei›
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut tvö af hverjum flremur greiddum atkvæ›um í formannskjöri Samfylk-
ingarinnar. Eftir a› úrslit voru kunngjör› kva›st hún hlakka til a› vinna me› Össuri Skarphé›inssyni a›
málefnum Samfylkingarinnar um ókomin ár.
Titringur vegna varaformanns:
Yfirbur›ir
Ágústs Ólafs
VARAFORMAÐUR Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir fagnar nýkjörnum
varaformanni Samfylkingarinnar.
„Ágúst Ólafur Ágústsson stimplar
sig mjög sterkt inn í pólítíkina
með framboði sínu til varafor-
mannsembættisins. Hann fékk af-
gerandi stuðning og það skiptir
máli,“ segir Ingibjörg. Hún kveðst
ekki hafa forsendur til þess að tjá
sig um aðferðir stuðningsmanna
Ágústs í varaformannskjörinu.
„Mér sýnist munurinn hafa verið
það mikill á honum og Lúðvík
Bergvinssyni að þær hafi ekki
skipt sköpum,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir. ■
AÐ LOKNUM VARAFORMANNSKOSNINGUM Lúðvík Bergvinsson og Ágúst Ólafur Ágústsson
takast í hendur eftir að ljóst var að Ágúst hafði haft betur í kosningunum.
GUNNAR
SVAVARSSON