Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 14

Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 14
Niðurstaðan kemur ekki áóvart en er ákaflegaánægjuleg,“ segir Sigurð- ur Oddsson, þjóðgarðsvörður og framkvæmdastjóri Þjóðgarðsins á Þingvöllum, þegar honum eru færðar niðurstöður skoðanakönn- unar Fréttablaðsins þar sem 800 Íslendingar af báðum kynjum voru spurðir álits um fallegasta stað landsins. Könnunin var fram- kvæmd 8. maí síðastliðinn og var svarhlutfall 86,62 prósent. Niður- staðan kom varla á óvart. Þing- vellir þóttu fegurstir í hjörtum flestra. „Sjálfum finnst mér Þingvellir feiknarlega fallegir og magnaðir,“ heldur Sigurður áfram. „Náttúra Þingvalla er stórbrotin og einstök á heimsvísu, og ekki síst saga þingsins. Þingvellir eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóð- anna vegna þess að þeir eru taldir einstakir í veröldinni hvað þetta tvennt snertir.“ Söguleg rómantík Sigurður segir Þingvelli hjart- fólgna íslensku þjóðinni þar sem allir stærri viðburðir Íslandssög- unnar tengist þeim töfrastað. „Allir vegir liggja til Þingvalla þeirra erinda, en Ísland er í raun allt magnað og sjálfum finnst mér Skaftafell og Þórsmörk undur- fagrar náttúruperlur. Hins vegar eru Þingvellir sérstakir því þar má sjá landrekskenninguna með augljósum hætti, sem hvergi á jörðinni má sjá jafn greinilega.“ Alls fara 600 þúsund manns ár- lega um Þingvelli. Þar af stoppar um helmingur í þjóðgarðinum til útivistar og ánægjustunda. Sig- urður segir umferð vaxandi, en könnun hefur leitt í ljós að 68 pró- sent útlendinga heimsækja Þing- velli í Íslandsheimsóknum sínum. „Fræðslumiðstöðin er opin all- ar helgar árið um kring og opnar alla daga 1. apríl. Þá strax verðum við vör við mikla traffík sem helst langt fram á haust. Skipulögð dag- skrá er um helgar og á fimmtu- dögum yfir sumarið, fimmtudags- göngur í fylgd aðkomumanns á sviði lista eða fræðimennsku, og svo gönguferðir inn að eyðibýlum og upp á Arnarfell á laugardögum og þinghelgigöngur á sunnu- dögum eftir messu. Messað er alla sunnudaga og sívinsælt að gifta sig á Þingvöllum, af bæði Íslend- ingum og útlendingum, í kirkj- unni sem og í Guðs grænni náttúr- unni.“ Þrátt fyrir vaxandi áhuga al- mennings á Þingvöllum stendur ekki til að rukka aðgangseyri, segir Sigurður og minnir á dag- skrá sumarsins á Þingvöllum sem kemur út um næstu mánaðamót og mun liggja í útibúum Lands- bankans og á netinu. Náttúruperlan Akureyri Alls voru 154 staðir nefndir til sögunnar þegar þjóðin var beðin um að nefna sinn fegursta stað. Kom berlega í ljós að hverjum finnst sinn fugl fagur, þótt hann sé bæði lítill og magur. Þannig fékk litli, ljóti andarungi Reykja- víkurborgar, Fellahverfið í Breið- holti, tilnefningar innan um virðu- legustu náttúruperlur lýðveldis- ins. Í öðru sæti var Þórsmörk og því þriðja höfuðstaður hins bjarta norðurs: Akureyri. Ragnar Hólm, sem starfar við kynningarmál fyrir Akureyrarbæ, segir fagurt álit landsmanna á Akureyri ekki koma á óvart því bærinn hljóti að teljast með fegurstu stöðum landsins. „En mikið óskaplega er gaman að vita til þessa. Það má líka segja að bærinn Akureyri sé nátt- úruperla í sjálfu sér, því óvíða er jafn mikill gróður í íslensku bæj- arfélagi. Í blóma sumarsins er bærinn eins og skógi vaxinn. Hingað koma hundruð þúsunda ferðamanna á ári hverju og eitt- hvað eru þeir nú að sækja hingað. Fjallasýnin er stórfengleg, bær- inn afgirtur af Vaðlaheiði, Hlíðar- fjalli og Kaldbaki, en ég held að Íslendingum finnist fegurðin fel- ast í bæjarstæðinu sjálfu, brekk- unum, gróðrinum, gömlu og virðulegu húsunum, fallegum miðbænum og sögunni. Allt þetta spilar saman á aðlaðandi hátt,“ segir Ragnar og bætir við að ómuna veðursæld sé fyrir norðan. „Ferðamannastraumurinn eykst jafnt og þétt og farið er að lengjast í ferðamannatímabilinu. Við sjáum ferðamenn fyrr á vorin og höfum þá lengur á haustin. Akureyri er vitaskuld að hluta til ferðamannabær og því erum við hamingjusamir með niðurstöð- una.“ 14 22. maí 2005 SUNNUDAGUR Fagra Ísland Hva›a sta›ur á Íslandi er fallegastur? Sitt s‡nist hverjum og margir sta›ir kalla›ir til. Í n‡legri sko›anakönnun Fréttabla›sins um fegursta sta› l‡›veldisins stó› fló einn sta›ur upp úr: fijó›ardjásni› fiingvellir. fiórdís Lilja Gunnarsdóttir tók ni›urstö›urnar sam- an og heyr›i í Sigur›i Oddssyni, fljó›gar›sver›i á fiingvöllum, og Ragnari Hólm, kynningarfulltrúa Akureyrarbæjar sem vermdi flri›ja sæti› í hjörtum landans. Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Höfum vegna gífurlegrar eftirspurnar, bætt við sætum til Alicante í júní. Bókaðu strax á meðan sæti eru laus Flugáætlun í júní 1. júní UPPSELT 2. júní NÝTT-laus sæti 8. júní UPPSELT 15. júní UPPSELT 16. júní NÝTT-laus sæti 22. júní UPPSELT 29. júní UPPSELT 30. júní NÝTT-laus sæti Akranes Askja Bíldudalur Bolungarvík Dettifoss Dynjandi Esjan Eyjafjöllin Fellahverfið í Breiðholti Flateyri Fljótshlíðin Gullfoss Grímsnesið Hafnarfjörður Hreppir Rang- árvallasýslu Hvalfjörður Ísafjörður Jökulsárlón Kaldársel Kárahnjúkar Kópavogur Langisandur Melrakkaslétta Patreksfjörður Reynisdrangar Seltjarnarnes Skagaströnd Svalbarðseyri Vatnajökull Öræfasveit Fleiri fagrir staðir sem Íslendingum eru hjartfólgnir MÝVATN Vermir fimmta sætið sem fegursti staður Íslands og er fagurt árið um kring. AKUREYRI Veðursæld, saga, fjallasýn, menning og gróska dregur gesti í Eyjafjörð. VESTMANNAEYJAR Í níunda sæti eru Vestmannaeyjar, ævintýralega fagrar. SNÆFELLSJÖKULL Dulmögnuð fegurðin undir Jökli lætur engan ósnortinn.ÁSBYRGI Hófafar Sleipnis er einstakt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.