Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 18

Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 18
Margir hafa heyrt sögur af séra Baldri sem bera vitni um orð- heppinn mann en jafnframt nokk- uð kynlegan kvist. Færri þekkja sögupersónuna sjálfa. Árið 1956 var hann vígður til prests og sama ár tók hann við brauðinu í Vatnsfirði í Ísafjarðar- djúpi, þar sem hann er enn búsett- ur. Þar var hann af mörgum litinn hornauga í fyrstu enda umtalaður kommúnisti en flestir voru íhalds- menn í Djúpinu. Fljótlega varð hann þó dáður af flestum og þegar hann lét af störfum bæði sem kennari í Reykjanesi og svo sem prestur í Vatnsfirði sáu flestir að enginn gæti fyllt skarð þessa ein- staka manns. Hann viðurkennir að honum þyki gaman að koma fólki í opna skjöldu en er gáttaður á því að menn hafi endalaust gaman af þessum sögum. „Menn éta einhverjar sögur upp hver eftir öðrum,“ segir hann. Sumt af þessu er nú bara skrýtlur en það er fótur fyrir sumum sög- unum og þá kannski hönd fyrir hinum. En ef því fylgir einhver voðaleg virðing að vera þjóð- sagnapersóna þá hef ég örugglega ekki unnið fyrir henni.“ Sagan af svíninu Margir hafa heyrt söguna af svín- inu og því lék blaðamanni forvitni á að vita hvort hún væri sönn. „Já, hún er það góði,“ segir séra Bald- ur. „En þar sem ég hef ekki sagt þessa sögu nema nokkur hundruð sinnum fer nú bara vel á því að ég segi þér hana núna. Þannig var að ég var að keyra í Ísafirðinum, ekki kaupstaðnum heldur firðin- um; þeir höfðu nú ekki fyrir því þessir dönsku kaupmannsdjöflar að skíra kaupstaðinn eftir firðin- um sem hann er í en það er nú önnur saga. Nú, nú, það var glaða- sólskin og afskaplega heitt þarna í fjarðarbotninum og ég keyri afar hægt þar sem ég komst ekki fram úr bíl sem var fyrir framan mig. Svo finn ég þessa hræðilegu ná- lykt svo ég stoppa og sé rotnandi svín sem liggur þarna í vegar- kantinum. Ég hringi náttúrlega á lögregluna og segi henni að fjar- lægja þetta því lyktin sé svo hræðileg að það ætli alveg að drepa mann og svo eru margir ferðamenn sem eiga þarna leið um. Lögreglumaðurinn þekkti greinilega röddina því hann segir sposkur að prestinum ætti nú að vera hæg heimatökin að jarðsetja bara svínið. Ég segi honum að það sé ekkert mál en hins vegar hafi prestarnir það fyrir venju að láta aðstandendur vita fyrst. Og þannig var nú það, góði.“ Veldur fjaðrafoki á meðal presta Til er sú saga að séra Baldur hafi ollið verulegu fjaðrafoki á presta- stefnu sem haldin var þegar hneykslismál Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups, var í algleym- ingi. Átti hann þá að hafa kveðið sér hljóðs og sagt að nú færi al- deilis vel á því að prestarnir syngju saman lagið Ólafur reið með björgum fram. Séra Baldur harðneitar þessu. „Láttu ekki nokkurn mann heyra þetta,“ segir hann. En hann gengst þó við því að hafa leyst upp eina prestasam- komu með tilsvari sem hneykslaði marga. „Við vorum á einhverjum fundi eða prestastefnu, ég man það bara ekki, og það var þarna einhver maður frá hljóðvarpinu að spyrja okkur hvaða embættisverk okkur þætti nú skemmtilegust. Svona bara eins og krakka á leikskóla. Og hann spyr þann fyrsta og honum þótti skemmtilegast að ferma. Svo spyr hann þann næsta og honum þótti skemmtilegast að skíra og svona hélt þessi vitleysa áfram. Ég held ég hafi verið sá fimmti í röðinni og þetta var kom- ið út í tómt rugl svo þegar hann spyr mig: „Já, en þú séra Baldur minn, hvað finnst þér skemmti- legast?“ Þá svaraði ég því bara til að mér þætti langskemmtilegast að jarða framsóknarmenn. Og þar með var fundurinn leystur upp. Seinna var hringt í mig og mér þakkað fyrir að binda enda á þessa endemis vitleysu.“ Séra Baldur var þekktur fyrir kjarngóðar en stuttar ræður og hefur það gefið tilefni til einnar sögunar enn. Sagt er að hann hafi drifið messuna af í einum hvelli en farið svo bak við kirkju þar sem sóknarbörnin komu að hon- um reykjandi. Þegar þau spurðu hann hvað þetta ætti að þýða á Baldur að hafa sagt: „Já, maður verður að þjóna djöflinum líka.“ „Þetta er nú bara skrýtla,“ segir séra Baldur um þessa sögu. Steingrímur J. Sigfússon bestur Séra Baldur gerðist ungur komm- únisti og sér enga ástæðu til að breyta því þó það þyki ekki fín lat- ína í dag. „Ég spila aldrei eftir því sem hentar best heldur aðeins eftir sannfæringu minn hverju sinni. Enda þarf ég ekkert að ótt- ast, ég er viss um það að þegar ég verð laus við þetta hold, sem er mér sífellt til trafala, taki Lykla- Pétur nokkuð sæll á móti mér. Hann er heldur ekkert að grúska í því hvað menn kjósa enda er hann ekki í framboði. Þú verður líka að átta þig á því að mín kynslóð mótast af því að hingað kemur erlendur her í því yfirskyni að hann sé að vernda okkur. En ég skal nú segja þér það, góði minn, að ég vann sem næturvörður á hóteli í henni Reykjavík í nokkur sumur og þá sá ég nú þessa verndara og þeir voru ekki gæfulegri. Nei, þeir voru það ekki!“ Að svo mæltu horfir hann brúnaþungur á blaða- mann. Þótt Baldur hafi ákveðnar skoðanir í pólitíkinni á hann vini úr öllum flokkum. Hann hefur þó haft það orð á sér að koma sér- staklega vel fram við þá sem minna mega sín. En hann kann líka að klingja við kónga, til dæmis tók hann vel á móti Guðna Ágústssyni og Kristni H. Gunn- arssyni þegar þá bar að garði í Vatnsfirði fyrir nokkrum árum. Annars er séra Baldur lítt hrifinn af pólitíkinni í dag. „Það er helst frændi minn hann Steingrímur J. Sigfússon sem stendur sig eins og hann á kyn til. Annars líst mér afskaplega illa á þetta allt saman. Það er eins og enginn geti gert neitt nema að það fari fyrir nefnd og svo í skoðun og þá er haldinn leynifundur og svona heldur þessi vitleysa áfram. Hugsaðu þér ef sjómenn hefðu haft þetta verklag; þeir hefðu þá aldrei komið með nokkurn fisk að landi.“ Gleðilegt ef ég hef verið ein- hverjum til gagns og gamans Á veggjum inni í stofu hanga þakklætisvottar frá fyrrum sókn- arbörnum Baldurs, sem greini- lega báru hlýjan hug til prestsins. Þessi ljúfi vitnisburður um starfsævi hans yljar Baldri nú þegar haustar að í lífi hans. En það er annað sem hann er ekki jafn sáttur við. „Hér er byggðin orðin frekar eyðileg, satt best að segja. Hér var öðruvísi umhorfs þegar ég kom hingað nýsleginn guðfræð- ingur. En ég er nú ágætur til heils- unnar ennþá. Það er helst að sjón- in sé að svíkja mig en það skiptir engu máli, þá þarf ég ekki að horfa upp á þessa vitfirringa. Nú, og ef ég hef orðið einhverj- um til gagns og gamans þá er það afskaplega gleðilegt í sjálfu sér. Ég er nú bara þannig að ég tek sjálfan mér ekki of hátíðlega en ég hef tekið eftir því að sumir halda að þeir séu afskaplega merkilegir og öðrum meiri. Það reynist iðulega vera hinn mesti misskilningur.“ ■ 18 22. maí 2005 SUNNUDAGUR Lykla-Pétur tekur á móti mér Séra Baldur Vilhelmsson í Vatnsfir›i er fljó›sagna- persóna í lifanda lífi. Jón Sigur›ur Eyjólfsson tók hús á honum og spur›i hann út í stjórnmálasko›anir hans og sögurnar af honum sem fyrir löngu eru or›nar a› fljó›sögum. Tveir fyrir einn til Prag 9. júní frá kr. 19.990 kr. 19.990 í viku Flugsæti með sköttum til Prag, 2 fyrir 1 tilboð, út 9. júní, heim 16. júní. Netverð á mann. Gisting frá kr. 3.400 Netverð á mann í tvíbýli á Hotel Quality, pr. nótt með morgunmat. Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel. Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag þann 9. júní. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Nú getur þú kynnst þessari fegurstu borg Evrópu á einstökum kjörum. Þú getur valið um úrval góðra hótel í hjarta Prag og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra okkar í Prag allan tímann. Síðustu sætin SÉRA BALDUR VILHELMSSON Nafn: Baldur Vilhelmsson. Fæddur: 22. júlí 1929 á Hofsósi. Fjölskylda: Kvæntist Ólafíu Sal- varsdóttur árið 1957. Þau eiga saman dæturnar Hallfríði og Ragnheiði og synina Þorvald, Stefán og Guðbrand. Menntun: Guðfræðingur. Starf: Var prestur í Vatnsfirði og kennari í Reykjanesskóla í Ísa- fjarðardjúpi en er nú kominn á eftirlaun. Áhugamál: Hlustar á Íslendinga- sögur og Ódysseifskviður af spól- um. Hefur mikinn áhuga á forn- leifafræði. SÉRA BALDUR VILHELMSSON Fyrrum prófastur í Vatnsfirði stendur stoltur inni í stofu sinni, enda er veggurinn í baksýn fullur af þakk- lætisvottum frá fyrrum sóknarbörnum Baldurs sem greinilega þótti vænt um prestinn sinn. Þannig hefur málum þó ekki alltaf verið hátt- að því mörgum varð um og ó þegar umtalaður kommúnisti fluttist í Djúpið, sem var nær fullsetið af íhaldsmönnum. FEÐGARNIR GUÐBRANDUR OG SÉRA BALDUR Séra Baldur segir Guðbrand son sinn vera stoð sína og styttu. Þeir vinna að ýmsum málum í Vatnsfirði og ætla jafnvel að láta til sín taka í ferðamannamálum á svæðinu. Þeir voru að huga að gamalli skektu þegar blaðamann bar að garði. SLAKAÐ Á Í HÚSBÓNDASTÓLNUM „Maður verður víst að þjóna djöflinum líka,“ á séra Baldur að hafa sagt þegar sóknarbörnin komu að honum reykjandi bak við kirkju. Hann segir þetta vera skrýtlu en ekki sanna sögu. Enda þarf ég ekkert að óttast, ég er viss um það að þegar ég verð laus við þetta hold, sem er mér sífellt til trafala, taki Lykla-Pétur nokkuð sæll á móti mér. Hann er heldur ekkert að grúska í því hvað menn kjósa enda er hann ekki í framboði. ,,

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.