Fréttablaðið - 22.05.2005, Qupperneq 23
3
ATVINNA
Starf sérfræðings í klínískum rannsóknum á þróunarsviði
Starfsmenn í klínískum rannsóknum hafa umsjón með framkvæmd frásogsrannsókna og
klínískra rannsókna fyrir Actavis Group. Rannsóknir eru framkvæmdar bæði fyrir Evrópu-
og Bandaríkjamarkað. Deildin er í samstarfi við erlend rannsóknarfyrirtæki í Kanada,
Suður-Afríku og Tékklandi. Starfið krefst umtalsverðra samskipta við erlenda verkefnastjóra
rannsóknarfyrirtækja, sérfræðinga, starfsmenn fyrirtækisins og skráningaryfirvalda.
Helstu verkefni:
• Samantekt á upplýsingum um eiginleika lyfja
• Eftirlit með hönnun rannsóknaráætlana og rannsóknarskýrslna
• Umsjón með utanumhaldi á rannsóknargögnum
• Eftirfylgni með gildandi lögum, reglum og reglugerðum um klínískar rannsóknir bæði
í Evrópu og Bandaríkjunum
• Heimildaleit, pöntun og lestur tímaritsgreina
• Samvinna við erlend fyrirtæki
Þekkingar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í lyfjafræði eða hliðstæð menntun
• Þekking á GCP er kostur sem og reynsla af klínískum rannsóknum
• Góð ensku- og tölvukunnátta
Starf sérfræðings á lyfjaefnadeild á þróunarsviði
Val á viðeigandi lyfjaefnum (API) er lykilatriði fyrir velgengni samheitalyfja, allt frá þróun til
framleiðslu og sölu. Starfið krefst umtalsverðra samskipta við lyfjaefnaframleiðendur,
útvegun og utanumhald á gögnum auk innsýnar í efnafræðilega og skráningarlega þætti.
Helstu verkefni:
• Útvegun og mat á lyfjaefnum út frá gögnum og sýnum frá hráefnabirgjum
• Ákvarðanataka um val á birgja og gerð lyfjaefnis
• Tæknileg samskipti við hráefnabirgja og utanumhald á viðeigandi upplýsingum
• Leggja mat á skráningarskjöl (s.s. DMF og tæknipakka) frá hráefnabirgjum
• Umsjón með því að sýni af lyfjaefnum séu mæld/metin á viðeigandi hátt og mat á
þeim niðurstöðum
• Aðstoða skráningardeild við að svara athugasemdabréfum tengdum lyfjaefnum
Þekkingar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í efnafræði, lyfjafræði eða hliðstæð menntun
• Þekking og reynsla af lyfjaskráningum og leiðbeiningum yfirvalda (e. guidelines) er kostur
• Þekking og reynsla af efnafræði, efnagreiningum, gildingum, geymsluþoli eða öðrum
sviðum lyfjaefna og lyfjaframleiðslu er kostur
• Góð ensku- og tölvukunnátta
Starf sérfræðings geymsluþolsdeildar á þróunarsviði
Geymsluþolsdeild sér um mælingar og utanumhald á geymsluþolssýnum
á rannsóknarstofum Actavis Group. Starfið krefst nákvæmra og agaðra vinnubragða.
Helstu verkefni:
• Mælingar á geymsluþolssýnum (aðallega HPLC mælingar)
• Yfirferð á niðurstöðum mælinga
• Umsjón með tækjum á rannsóknarstofu
• Umsjón/yfirferð geymsluþolsáætlana
• Þátttaka í uppbyggingu deildarinnar ásamt ýmsum öðrum verkefnum
Þekkingar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í lyfjafræði eða hliðstæð menntun
• Reynsla af rannsóknarstörfum og HPLC er kostur
• Góð ensku- og tölvukunnátta
Starf sérfræðings við hráefnamælingar á mælideild gæðasviðs
Mælideild sér um gæðaeftirlitsmælingar á hráefnum og framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Starfið krefst nákvæmra og agaðra vinnubragða.
Helstu verkefni:
• Hráefnamælingar s.s. títranir, TLC, sannkennslispróf, HPLC mælingar, ljósmælingar
og önnur próf
• Úrvinnsla gagna og skýrslugerð
• Uppbygging gæðakerfis á rannsóknarstofu
• Umsjón og eftirlit með ýmsum tækjum
Þekkingar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í efnafræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða hliðstæð menntun
• Reynsla af rannsóknarstörfum er kostur
• Góð ensku- og tölvukunnátta
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is undir; Störf í boði fyrir 29. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lind Halldórsdóttir, ghalldorsdottir@actavis.is
Actavis leitast við að ráða starfsfólk sem:
er metnaðarfullt
hefur þjónustulund
er sveigjanlegt
vinnur vel í hópi
sýnir frumkvæði
hefur hagkvæmni að leiðarljósi
Starfsfólk Actavis er mikilvægasta auðlind fyrirtækisins. Því er markmið Actavis að
ráða, halda í og efla hæft og traust starfsfólk sem valið er til starfa vegna hæfileika
sinna sem grundvallast af reynslu, menntun og persónueinkennum.
Tækifæri hjá Actavis
Yfirmenn í eldhúsi
Hjá Leikskólum Reykjavíkur
er lög› áhersla á a› starfsfólk
njóti sín í starfi, geti n‡tt
flá menntun og hæfni sem
fla› b‡r yfir og auki›
flekkingu sína. Li›ur í flví er
me›al annars öflug
símenntun og handlei›sla.
Njóttu flín!
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nám á svi›i matrei›slu
Reynsla af vinnu vi› matrei›slu æskileg
fiekking og reynsla af verkstjórn æskileg
fiekking á rekstri eldhúsa æskileg
Færni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæ›i og árei›anleiki í starfi
Nánari uppl‡singar veitir Borgar Ævar Axelsson starfsrá›gjafi,
borgar.axelsson@reykjavik.is, í síma 563 5800. Einnig er hægt a› sko›a
lausar stö›ur á heimasí›u okkar www.leikskolar.is
Stö›ur yfirmanna í eldhúsum Leikskóla Reykjavíkur eru
lausar til umsóknar.
Leikskólar Reykjavíkur starfrækja 78 leikskóla flar sem starfa um 1800
einstaklingar.
Karlar eru hvattir til a› sækja um jafnt sem konur.