Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 29
9ATVINNA
9
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Lækjarskóli
Eftirtaldar stöður lausar til
umsóknar:
- Sérkennari
- Textílkennari
- Almennur kennari
- Bókasafnsfræðingur/kennari til starfa á skólabókasafni
- Aðstoðarmaður á skrifstofu (75% stöðuhlutfall)
- Matráður
Allar upplýsingar veita Haraldur Haraldsson
skólastjóri, s. 555 0585 /664 5877
haraldur@laekjarskoli.is eða Halla Þórðardóttir
aðstoðarskólastjóri, s. 555 0585/ 664 5875
halla@laekjarskoli.is
Hjúkrunarfræðingur eða bráðaliði (paramedic)
Heilbrigðisstofnun Austurlands leitar að hjúkrunarfræðingi eða bráðaliða (paramedic) til að starfa fyrir
Bechtel Inc á vinnusvæði og í starfsmannaþorpi við Reyðarfjörð. Starfshlutfall er 100%.
Starfstímabil er á meðan framkvæmdir við byggingu álvers standa yfir.
Hæfniskröfur:
Hjúkrunarfræðingurinn eða bráðaliðinn skal m.a. búa yfir hæfni og getu til að:
• Framkvæma líkamsmat og skoðun
• Halda nákvæmar og viðeigandi sjúkraskrár.
• Hafa samráð við lækna á svæðinu sem sinna samhæfingu,
• Geta á öruggan og viðeigandi hátt haft umsjón með lyfjagjöf og halda við einnota lyfjabirgðum og búnaði í sjúkraskýli.
• Þekkja og kunna að nota hefðbundinn búnað fyrir bráðaviðbrögð.
• Geta komið sjúklingi í stöðugt ástand og viðhaldið stuðningi við sjúkling á vettvangi.
• Geta borið kennsl á og veitt viðeigandi meðferð í almennum kvillum og meiðslum.
Viðkomandi þarf að búa yfir skipulagshæfileikum, færni í mannlegum samskiptum og vera sjálfstæður í vinnubrögðum.
Æskileg er reynsla af slysa- og/eða bráðadeild.
Umsóknir með upplýsingum m.a. um menntun og fyrri störf skulu berast til Þóris Aðalsteinssonar, rekstrarstjóra í síma
476-1630/ 860- 6848 netfang thorir@hsa.is eða Lilja Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 470-1404/ 860-1920
netfang lilja@hsa.is. Þau gefa nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Sumarafleysingastörf
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk í
vaktavinnu á fasteignasvið félagsins. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf 1. júní n.k. og geta starfað út ágústmánuð.
Starfið felst í ýmsum þjónustustörfum við farþega og er á vegum FLE hf.
Við leitum að reyklausum, snyrtilegum og þjónustuliprum
einstaklingum með góða tungumálakunnáttu og hæfni í mannlegum
samskiptum. Aldurstakmark 20 ár.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar hf. á 2. hæð og á heimasíðu flugstöðvarinnar www.airport.is.
Umsóknum með ljósmynd skal skila fyrir 23. maí n.k.
Upplýsingar um starfið veitir starfsþróunarsvið í síma 425 0432.
Tölvupóstfang: thorunn@fle.airport.is
M
Á
T
T
U
R
N
N
O
G
D
†
R
‹
IN
0
5
0
5
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Hlutverk Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar er að tryggja
framúrskarandi þjónustu á
Keflavíkurflugvelli.
Framtíðarsýn Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar er að vera í fremstu röð
flughafna. Að bjóða einstaka
upplifun og eftirsóknarverða
þjónustu og gera flughöfnina að
vinsælum viðkomustað sem stenst
samanburð við þá bestu í heimi.
Stuðningsfulltrúar
óskast á heimilisdeildir í Kópavogi til sumarafleysinga.
Starfshlutfall 100%.
Við leitum að fólki sem er ábyrgt og samviskusamt, stundvíst,
með góða samstarfshæfni, létta og góða lund. Umsóknir skulu
berast fyrir 5. júní nk. til Sigríðar Harðardóttur, hjúkrunarfram-
kvæmdarstjóra, sími 543 9210, netfang sighard@landspitali.is
og tekur hún jafnframt á móti umsóknum.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðher-
ra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu
starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Lausar stöður á Reykhólum í Austur-
Barðastrandarsýslu
Laus kennarastaða við Reykhólaskóla
Kennara vantar í almenna kennslu næsta vetur.
Meðal kennslugreina er tölvunotkun og stærðfræði
á unglingastigi. Fleira kemur til greina.
Nánari upplýsingar um kaup og kjör veitir skóla-
stjóri í síma 434 7806, 434 7731 og 894 1966.
Einnig sveitarstjóri í síma 434 7880.
Skrifstofustjóri Reykhólahrepps. Starfið er laust
frá 1. júlí 2005 til 1. september 2006.
Skrifstofustjórinn starfar sem launafulltrúi, bókari,
gjaldkeri og vinnur almenn skrifstofustörf. Unnið er
með SFS-bókhaldskerfi og launakerfið H-laun.
Reynsla af bókhaldi nauðsynleg. Laun samkv.
samningi launanefndar við Kjarna, félag opinberra
starfsmanna á Vestfjörðum.
Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð og einungis tæplega 3
tíma akstur til Reykjavíkur. Þar er öll almenn þjónusta fyrir
hendi s.s. leikskóli, grunnskóli, mjög góð sundlaug, bókasafn,
heilsugæsla og verslun. Nýtt og glæsilegt íþróttahús verður
tekið í notkun í vor.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 31. maí
2005 og sendist skrifstofu Reykhólahrepps, Mar-
íutröð 5A, Reykhólum, 380 Reykhólahreppi eða á
netfangið sveitarstjori@reykholar.is
Reykhólahreppur
Menn og M‡s er ört vaxandi hugbúna›arfyrirtæki sem
flróar, selur og fljónustar afbur›alausnir á svi›i DNS og
netumsjónar til margra af stærstu fyrirtækjum í heimi.
Vegna stóraukinna umsvifa leitum vi› a› framúrskarandi
einstaklingum til a› ganga til li›s vi› flróunardeild
okkar.
Hugbúna›arger›
Vi› leitum a› öflugum einstaklingi me› mikla
C++ e›a C# flekkingu.
Vi›komandi flarf a› geta starfa› vi› öll stig
hugbúna›arger›ar.
Háskólagrá›a e›a veruleg starfsreynsla vi›
hugbúna›arger› í krefjandi vinnuumhverfi
nau›synleg.
Fyrir réttan a›ila bjó›um vi›:
• Tækifæri til a› gegna lykilhlutverki í ört
vaxandi flróunardeild.
• Spennandi verkefni vi› hönnun og smí›i
n‡rra kerfa.
• Frábært starfsumhverfi.
www.menandmice.com
Allar frekari upplýsingar veitir Sigurður Ragnarsson,
siggi@menandmice.com.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní.
Vinsamlega skilið inn umsóknum ásamt ítarlegri starfsferilskrá
til Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík eða á
box@mbl.is merkt M-17158.
Öllum umsóknum verður svarað.
M
IX
A
• fít
• 5
0
6
8
7