Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 53

Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 53
SUNNUDAGUR 22. maí 2005 20 ■ SKRÝTNA FRÉTTIN Stjörnustríðin eru ekki bara ævintýramyndir Í fljótu bragði virðast Stjörnustríðsmyndirnar vera ævintýri um baráttu góðs og ills. Ólafur H. Torfason segir George Lucas hins vegar hafa skrifað þær í ákveðnum tilgangi. Að fá ungt fólk til þess að velta fyrir sér spurningunni: Er til guð eða ekki? Costa del Sol M all or ca Sóla rlottó Sí ðust u sæti n í sólina í júní og júlí. • Þú velur áfangastað og ferðadag og tekur þátt í lottóinu um hvar þú gistir. • Viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn. Sama sólin, sama fríið en á verði fyrir þig. *Innifalið er flug, gisting í 7 nætur, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. á mann miðað við 2 eða 4 í stúdíói eða íbúð. Enginn barnaafsláttur. Spilaðu með! Krít 6. 27. júní, 4. og 21. júlí Mallorca 25. maí, 15. júní, 6. 13. júlí og 17. ágúst Costa del Sol 2. 9. 16. 23. 30. júní 7. og 21. júlí Portúgal 20. 27. júní, 4. 11.18. júlí og 22. ágúst MANNÆTUFISKUR Velviljuð og hirðu- söm móðir slasaðist við þrif á fiskabúri sonarins. Kona þrífur píranafiskabúr Rússnesk kona slasaðist illa á fingrum þegar hún reyndi að þrífa fiskabúr sonar síns, án þess að vita að í því syntu mannætu- fiskar. Konan, sem er frá Saransk, sagði læknum að hún hefði staðið í þeirri trú að drengurinn væri með gullfiska í búrinu og vildi gleðja hann með að gera það skín- andi hreint. Um leið og hún dýfði höndunum ofan í vatnið réðust píranafiskar á hendur hennar, bitu sig fasta við fingurna og byrj- uðu að éta af græðgi. Átti konan í mestu vandræðum með að losa sig við fiskana, en eftir slagsmál og barning við gler búrsins náði hún blóðugum höndunum upp úr vatn- inu og hringdi á sjúkrabíl sem ók henni á næsta spítala. Konan missti allt hold af tveim- ur fingrum og segja læknar kon- una heppna að hafa ekki misst báðar hendur í árásinni, en hún þurfti að gangast undir flókna að- gerð til að bjarga fingrunum. ■ „Þeir sem eru að fara á Stjörnu- stríðsmyndina verða að gera sér grein fyrir því að þeir eru að fara á trúarsamkomu hjá trúar- söfnuði,“ segir Ólafur H. Torfa- son, kvikmyndarýnir og rithöf- undur. „Stjörnustríðsbálkurinn er uppfullur af goðsögnum,“ segir hann. „George Lucas gat ekki hugsað sér neitt verra en að ungt fólk væri hætt að hugsa um hvort guð væri til eða ekki,“ bætir Ólafur við og vísar í viðtal við Lucas þar sem hann segist meðal annars hafa sett Máttinn í myndirnar til að vekja upp ákveðna gerð af andlegheitum í ungu fólki: Trú á Guð fremur en trú í samræmi við eitthvert sér- stakt trúarbragðakerfi. Ólafur segir enn fremur að í Bandaríkjunum skipti miklu máli hvar leikstjórinn standi bæði hvað varði trúmál og pólitík, ólíkt því sem gerist hér heima. „Kvikmyndir í Banda- ríkjunum spila heilmikið inn á þjóðfélagsumræðuna og fjalla um samfélagið,“ segir hann og bendir á að Ridley Scott, sem gerði krossfaramyndina King- dom of Heaven, sé guðleysingi. „Það hlýtur að setja mynd í ann- að samhengi þegar guðleysingi fjallar um átök trúarbragða.“ Ólafur segir Lucas vera undir miklum áhrifum frá hugmynd- um Bandaríkjamannsins Josephs Campbell sem byggði kenningar sínar á sálfræði Carl Gustav Jung. „Stjörnustríðið er í raun unnið innan ramma Jungs og Campeblls,“ segir Ólafur en Campbell taldi meðal annars að allar miklar goðsögur þyrfti að endursegja með hverri kynslóð. „Hann fagnaði því að Lucas væri að gera þetta með Stjörnu- stríðsmyndunum á tungumáli okkar tíma, kvikmyndaform- inu,“ segir hann. „Campbell taldi enn fremur að til væri máttur sem enginn veit hver er en hver tími hefur sína eigin út- gáfu af guðdómnum,“ bætir Ólafur við og bendir á að Lucas hafi þróað gangverkið í Stjörnu- stríðsmyndunum upp úr þessum hugmyndum Campbells enda hafi hann sjálfur verið stjórnar- formaður Campbell-stofnunar- innar. „Lucas hefur aldrei þrætt fyrir þessa hluti heldur talað um þá á opinskáan hátt,“ segir hann en bætir við að Lucas hafi engu að síður aldrei viljað bendla sig við ein trúarbrögð en viður- kennt að hann vilji vekja athygli unga fólksins á mikilvægi trúar- bragðanna. „Það sem er kannski ótrúlegast er að boðberar nýrr- ar siðferðisskoðunar eru kvik- myndirnar,“ segir hann en allt þar til eftir seinni heimsstyrj- öldina voru kvikmyndirnar sagðar vera afþreyingarefni fyrir „almúgann“. Ótal vísanir eru í Stjörnu- stríðsmyndunum og má þar nefna Luke Skywalker sem nefndur er í höfuðið á höfundin- um sjálfum og hefur oft verið skilgreindur sem messíasar- gervingur. Sterkasta goðsagan er þó örugglega um föður hans, Anakin Skywalker, sem gengur hinu illa á hönd. „Við þekkjum þessa goðsögu meðal annars úr Bíblíunni í sögunum um hina föllnu engla en frægastur þeirra er Lúsifer sem ofmetnaðist og þráði meiri völd, líkt og Anakin. Lucas er með sögunni um Anak- in kannski að segja að allar verur geti verið breyskar og gert mistök, sama hversu góðar þær eru. Anakin er kannski hinn fallni engill sem sér síðan að sér,“ segir Ólafur. freyrgigja@frettabladid.is OBI-WAN OG ANAKIN Anakin, líkt og Lúsifer, gengur hinu illa á hönd vegna þrár sinnar eftir meiri völdum. ÓLAFUR H. TORFASON Þeir sem eru að fara á Stjörnustríðsmyndina verða gera sér grein fyrir því að þeir eru að fara á trúar- samkomu. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.