Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 54

Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 54
Þegar maður kemur til Cannes í fyrsta skipti á miðja kvikmynda- hátíð er óhjákvæmilegt að tapa átt- um í augnablik. Þetta er eins og að stíga inn í aðra vídd þar sem allt snýst um kvikmyndir, tíminn er takmarkaður og allir eru eitthvað sérstakt eða þykjast í það minnsta vera eitthvað og það besta við þetta allt er að það komast allir upp með að upphefja sig og vera eitthvað annað og meira en þeir eru, af því að þetta er Cannes. Eftir að hafa skoðað okkur um í Palais de Festival, sem er aðalmið- stöð hátíðarinnar, lá beinast við að demba sér út í mannþröngina fyrir framan höllina og sjá hvert straumurinn leiddi mann. Við sett- umst á kaffihús og rýndum í sýn- ingarskrá dagsins og féllust hend- ur yfir úrvalinu sem var ótrúlegt; listrænar myndir í keppninni, áhugaverðar myndir nýrra kvik- myndargerðarmanna og alls konar drasl sem gæti lofað góðu. Það varð okkur til happs að hitta hressa Breta sem tóku sér frí frá kvikmyndakaupum til að fylgjast með leik West Ham og Ipswich á þægilegum breskum pöbb. Heimil- isleg stemninginn fékk mann til þess að gleyma um stundarsakir geðveikinni fyrir utan og að ráði Bretans var ákveðið að láta bíósnobbið lönd og leið og skoða myndina Dirty Love með Jenny McCarthy og Carmen Electra. Annar Bretinn var þegar búinn að kaupa sýningarréttinn, án þess að sjá myndina, fullviss um að þessar íturvöxnu leikkonur myndu trekkja að í Bretlandi. Þær munu sjálfsagt líka slá í gegn á Íslandi enda leynir myndin á sér og sýnir nýjar og óvæntar hliðar á stelpum sem hingað til hafa risið hæst á síð- um Playboy. Eftir bíó lá beinast við að elta Bretana á Grand Hotel þar sem gegndarlaus partý eru haldin alla hátíðardagana. Áfengið er selt á uppsprengdu verði sem gerir prís- ana í Reykjavík ásættanlega en það keppast þó allir við að kaupa í glas handa náunganum enda sigla allir undir því flaggi að þeir séu stórkaupendur, framleiðendur, leikstjórar eða handritshöfundar og þetta er staðurinn til að byggja upp sambönd. Minnstu kallarnir á staðnum voru tvímælalaust ís- lenskur blaðamennirnir. Stjörnustríð á sunnudegi Sunnudagurinn 15. maí var dagur Georges Lucas og Stjörnustríðsins hans og það var ekki ónýtt fyrir gamla Star Wars-aðdáendur að vera í Cannes þegar ósköpin gengu yfir. Það var ævintýralega brjáluð stemning í kringum blaða- mannafund sem haldinn var um hádegisbilið í Palais de Festival. Þar mætti Lucas ásamt Hayden Christiansen, Natalie Portman, Samuel L. Jackson og fleiri aðal- leikurum myndarinnar en það var óneitanlega skondið að þessir stór- leikarar stóðu allir í skugga Lucasar og fundurinn og flestar spurningar blaðamanna hverfðust um þennan höfuðpáfa Stjörnu- stríðanna. Að fundinum loknum trylltust blaðamenn og kvik- myndatökumenn í æsingnum við að reyna að ná augnabliks skyndi- myndum af stjörnunum á útleið. Það hlaut hver heilvita maður að sjá að þetta væri vonlaust en það var auðvitað enginn þarna með fullu viti. Nöfn leikaranna voru öskruð hástöfum í von um að þeir litu til myndavélanna en allt kom fyrir ekki. Stjörnustríðshetjurnar létu eins og þær heyrðu ekki neitt og héldu sínu striki. Við Íslending- arnir gátum ekki stillt okkur um að hlaupa með heimspressunni niður hliðarstiga til þess að freista þess að ná myndum af fólkinu. Þetta var vonlaust en það var samt frábær upplifun að taka sprettinn með trylltum fjölmiðlalýðnum. Íslenskt partí á ströndinni Það var öllu rólegri stemningin á bláa dreglinum við sýningarhöll- ina síðdegis þegar Dagur Kári Pét- ursson frumsýndi mynd sína Voksne mennesker. Það slógu þó mörg íslensk hjörtun hratt, þar sem þarna var óneitanlega um stóra stund á ferli eins efnilegasta kvikmyndaleikstjóra landsins að ræða. Viðtökurnar sem Dagur Kári og myndin fengu í höllinni voru frábærar; endalaust upp- klapp og í anddyrinu hópaðist fólk að leikstjóranum og dönsku leikur- unum til þess að óska til hamingju og snapa eiginhandaráritanir. Íslenskir framleiðendur Voksne mennesker, þeir Þórir Snær Sigurjónsson og Skúli Fr. Malmquist buðu til glæsilegs eft- irsýningarpartís á ströndinni þar sem allt flóði í guðaveigum og borð svignuðu undan gómsætum kræsingum. Reyndir matgæðing- ar úr bíóbransanum stóðu á blístri að máltíðinni lokinni og höfðu orð á að þetta væri með betri hlað- borðum sem þeir hefðu komist í. Rauði dregillinn Það er óhætt að fullyrða það að það hefur enginn komið til Cannes fyrr en hann hefur farið í spariföt og mætt á galafrumsýningu á rauða teppinu fyrir framan höllina. Við þekktum mann í Cannes sem þekkti mann sem þekkti mann og hann varð okkur úti um miða á galafrumsýningu myndar ítalska leikstjórans Marco Tullio Giord- ana. Það leit á tímabili út fyrir að ég yrði af þessari stærstu stund lífs míns sem blaðamaður og bíó- nörd þar sem ég villtist í Cannes og fann ekki íbúðina þar sem smókingurinn minn beið mín í gul- um Bónuspoka. Á elleftu stundu rambaði ég á húsið og dreif mig kófsveittur í sparigallann. Hafði engan tíma til að finna ermahnappa og slaufan varð eftir á Íslandi. Spretturinn var svo tekinn með fráhneppt hálsmál og flaksandi ermar í átt að höllinni og léttirinn var ólýsanlegur þegar ég sá að það var enn verið að hleypa inn. Næsta áfall kom í röðinni þegar dyravörð- urinn benti á hálsinn á mér og gaf til kynna á ruddalegri frönsku að ég færi ekki feti lengra nema með hálstau. Ég yppti vonlaus öxlum og sagði að slaufan væri „dans Is- landia“. Hann kippti mér úr röðinni og kastaði á bás þar sem hugguleg stúlka seldi slaufur á 15 evrur. Þeir hugsa fyrir öllu, blessaðir Frakk- arnir. Stúlkan átti þó enga skipti- mynt og á undan mér voru brjálað- ur Ítali og vandræðalegur Japani sem vildu ekki bjarga sér inn á myndina án þess að fá 5 evrur til baka. Íslendingurinn ruddist því fram fyrir og greiddi, með bros á vör, 20 evrur fyrir hálstauið. Síðan tók við stórfenglegur gangur í flóð- ljósum eftir rauða dreglinum innan um glæsilega frumsýningargesti, síðan var það vopnaleitin við inn- ganginn og myndin fór fyrir ofan garð og neðan þar sem ég sat í myrkvuðum salnum, sem er svo stór að Háskólabíó er eins og vinnuskúr í samanburðinum, og reyndi að melta þessa stórkostlegu lífsreynslu. Evrópa mætir heimsúrvalinu Fyrsta helgi kvikmyndahátíðar- innar er sú brjálaðasta og þessir tveir dagar, laugardagurinn og sunnudagurinn, liðu hratt og voru ótrúlega viðburðaríkir. Mánudag- urinn var öllu rólegri. Fólki var þegar byrjað að fækka enda kaup- endur margir hverjir búnir að ljúka störfum og farnir að tínast heimleiðis. Það var hins vegar komið að Íslands(ó)vininum Lars von Trier að sýna sína nýjustu mynd Manderlay en á meðan fólk hópaðist á gala-frumsýninguna var fastheldinn hópur Cannes- gesta að reima á sig takkaskóna og búa sig undir fótboltaleik í tengsl- um við kvikmyndamarkaðina í Cannes, Mílanó og Los Angeles takast á, lið Evrópu og heimsúrval og eru leikmennirnir flestir úr hópi kaupenda og seljenda á mark- aðnum. Nokkrir Íslendingar hafa tekið þátt í leikjunum í gegnum árin, Einar Logi hefur tekið þátt í þessum leikjum með heimsúrval- inu síðan 1994 en var með miklar áhyggjur af því að hann þyrfti að spila allar 90 mínúturnar sem hann taldi sig ekki eiga nokkra inneign fyrir. Formið ekki það sama og fyrir 10 árum en óttinn reyndist ástæðulaus, sama gilti um flesta aðra leikmenn og skipt var ótt og títt til að menn gætu jafnað sig. Leiknum lauk með sigri heimsúrvalsins 6-4 og segir markatalan nokkuð um form leik- manna og leikskipulag sem var afar frjálslegt. ■ 22 22. maí 2005 SUNNUDAGUR fia› eru allir stórlaxar í Cannes Allir sem vettlingi geta valdi› í bíóbransanum hrúg- ast til flessarar litlu borgar sem breytist á augabrag›i í marka›storg heimsfræg›arinnar flar sem stórstjörn- ur spóka sig á förnum vegi og allir sem ganga me› stóra drauma brosa framan í heiminn. fiórarinn fiór- arinsson og Einar Logi Vignisson voru í mi›ju mannhafinu en gleymdu flví fló aldrei a› fleir eru bara ósköp venjulegir Íslendingar. VOKSNE MENNESKER Framleiðandinn Skúli Fr. Malmquist í eftirpartíi á Miramar-ströndinni. Dagur Kári skírði eina sögupersónu myndarinnar eftir honum. RÖLT UPP RAUÐA TEPPIÐ Þórarinn með rándýru slaufuna og í lánssmóking á leið upp tröppur frægasta bíós í heimi.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.