Fréttablaðið - 22.05.2005, Side 56
22. maí 2005 SUNNUDAGUR
> Við finnum til með ...
Þórði Þórðarsyni, markverði ÍA, sem þarf
að hætta knattspyrnuiðkun
vegna veikinda. Hann er
annar leikmaðurinn á
tveimur árum sem
neyðist til að hætta
vegna veikinda en
Þorvaldur Makan
Sigbjörnsson, fyrrum
leikmaður Fram, þurfti
að hætta í upphafi
móts í fyrra.
Heyrst hefur ...
... að Guðjón Þórðarson ætli að temja sér
sömu siði hjá Notts County þegar undir-
búningstímabilið í Englandi hefst eftir
eftir rúman mánuð og hann gerði hjá
Keflvíkingum. Þá var hann með svo-
kallaða langa laugardaga en þar sem
atvinnumennska er við lýði hjá Notts
County er hægt að gera meiri kröfur. Því
verður um langa helgi að ræða ...
60
SEKÚNDUR
Mark Webber er... þolinmóður.
Formúla 1 er... hröð.
Kaffi eða te? Hvorugt.
Er glasið hálffullt eða hálftómt?
Hálffullt.
Ísland er... öðruvísi.
Átrúnaðargoð? Lance Armstrong.
Ferrari eða Renault? Renault.
Að keyra á 300 kílómetra hraða
er... mjög ánægjulegt.
Að keppa er... spennandi.
Alonso eða Schumacher? Prost.
Möguleikar þínir í ár eru... nokkuð
góðir.
Bílar eða konur? Konur.
Besta knattspyrulið í heimi? Chel-
sea.
Nýju reglurnar í formúlunni eru...
skrítnar.
Michael Schumacher er... fínn
náungi.
MEÐ MARK
WEBBER
sport@frettabladid.is
24
> Við hrósum ...
.... þeim íslensku
landsliðum sem
voru í eldlínunni í
gær en öll unnu
þau stóra sigra.
Stærstur allra var þó sigur
kvennalandsliðsins í körfubolta sem
vann lið Englands á afar sannfærandi
hátt.
John Obi Mikel segist hafa verið neyddur til Man. Utd.:
Beittur flr‡stingi e›a ein-
faldlega svona illa gefinn?
FÓTBOLTI Nígeríski táningurinn John
Obi Mikel, sem gekk frá félags-
skiptum frá Lyn til Manchester
United fyrir nokkrum vikum en
hefur æ síðan haldið því fram að
hann hafi verið neyddur til að
skrifa undir samning við félagið,
kom vægast sagt furðulega út úr
viðtali við fréttamann BBC,
Michael Crick, fyrir skemmstu.
Mikel er sem stendur miðdepill
mikillar deilu á milli Man. Utd. og
Chelsea um hver eigi rétt á
leikmanninum, en hann er talinn
einhver sá efnilegasti í heimi.
Mikel hefur sagt frá því að hann
hafi samið við Manchester-liðið.
gegn vilja sínum og að hann hafi
ávallt viljað heldur ganga til liðs
við Jose Mourinho og félaga hjá
Chelsea.
Mikel hefur ekki enn náð að
rökstyðja í hverju þrýstingur
forráðamanna Man. Utd. fólst og
vilja margir meina að það sé
hreinlega eitthvað að geðheilsu
Mikels. Ef eitthvað er að marka
viðtalið á BBC bendir að minnsta
kosti margt til þess. Hér á eftir fer
þýðing á viðtalinu og dæmi nú hver
fyrir sig.
VIÐTALIÐ Á BBC:
BBC: „Viltu spila fyrir Man. Utd.?“
JOM: „Nei.“
BBC: „Þú vilt það ekki?“
JOM: „Nei.“
BBC: „Af hverju ekki?“
JOM: (hlær) „Af því ég vil það ekki.“
BBC: „En þú skrifaðir undir samning við
félagið.“
JOM: „Já.“
BBC: „Af hverju gerðirðu það?“
JOM: „Ég veit það ekki. Það gerðist
eitthvað.“
BBC: „Hvað var það?“
JOM: „Nei, nei, nei. Ég vil ekki spila
fyrir þá.“
BBC: „Viltu spila fyrir Chelsea?“
JOM: „Já.“
BBC: „Þú vilt það?“
JOM: „Já.“
BBC: „Af hverju viltu spila fyrir
Chelsea?“
JOM: „Því ég elska Chelsea.“
BBC: „Þú elskar Chelsea?“
JOM: „Já. Og ég verð ánægður þegar ég
kem til þeirra.“
BBC: „Einmitt. Og hefurðu rætt við
Chelsea um þetta?“
JOM: „Já, þeir vita.“
BBC: „Gætirðu gefið mér vísbendingu
um af hverju þér snérist hugur?“
JOM: „Nei, ég vildi aldrei spila fyrir
Man. Utd.“
BBC: „Þú vilt það aldrei?“
JOM: „Einmitt.“
BBC: „Af hverju skrifaðirðu þá undir við
þá?“
JOM: „Ég var neyddur til þess.“
BBC: „Hvað neyddi þig til þess að skrifa
undir?“
JOM: Hvað neyddi mig.“
BBC: „Já?“
JOM: „Fólk.“
JOHN OBI MIKEL Virðist ekkert vita hvað
hann vill.
FH kom grí›arlega á óvart í gær me› flví a› sigra li› ÍBV, 1–0, í annarri
umfer› Landsbankadeildar kvenna. Í Kópavoginum mör›u Blikar sigur á
n‡li›um Keflavíkur en önnur úrslit voru eftir bókinni.
Óvænt tap Eyjastúlkna
FÓTBOLTI FH-stúlkur komu
gríðarlega á óvart með sigrinum í
gær enda hefur lið ÍBV á
feikiöflugum mannskap að skipa á
meðan lið FH er að mestu skipað
ungum og óreyndum stúlkum sem
uppaldar eru hjá félaginu. Einnig
voru hlutskipti liðanna í fyrstu
umferðinni af ólíkum toga – þá
beið FH í lægri hlut fyrir
Keflavík, 2–0, á meðan ÍBV vann
stórsigur á ÍA, 12–2.
„Þetta er auðvitað frábært
afrek og sýnir að við getum staðið
í þeim bestu,“ sagði Sigurður
Víðisson, þjálfari FH, í samtali við
Fréttablaðið eftir leikinn. Það var
Sif Atladóttir sem skoraði markið
á 70. mínútu fyrir FH og eftir
markið náðu þær að halda út harða
atlögu gestanna sem tjölduðu öllu
til að jafna metin.
„Við erum búnar að lenda illa í
liði ÍBV síðustu ár og ætluðum
okkur að gera betur í dag. Það
tókst og þetta er óneitanlega góð
tilbreyting,“ bætti Sigurður við.
Í Kópavoginum veittu nýliðar
Keflavíkur heimastúlkum í
Breiðablik harða keppni en þurftu
á endanum að lúta í lægra haldi
eftir að hafa komist yfir í lok fyrri
hálfleiks.
„Svona er bara fótboltinn, þetta
er það skemmtilega við hann og
reyndar það leiðinlega líka. Við
gleymdum okkar tvisvar og feng-
um á okkur tvö mörk, vorum undir
nær allan leikinn en skoruðum fal-
leg mörk og náðum sigri,“ sagði
Úlfar Hinriksson, þjáfari Blika,
eftir leikinn.
„Gegn Val skoruðum við líka
fín mörk en það sýndi sig í dag að
það er margt sem við þurfum að
laga í okkar leik og við þurfum
bara að skoða það. Við eigum að
geta gert mikið betur og við vilj-
um gera það.“
Í fyrstu umferðinni unnu Blika-
stúlkur öruggan sigur á Val en
áttu í mesta basli með mótherja
sína á Kópavogsvellinum í gær.
Keflavíkurstúlkur börðust vel í
leiknum en náðu ekki að halda og
má þar að mestu kenna um
reynsluleysi. Það var tveimur
mínútum fyrir lok venjulegs leik-
tíma sem Gréta M. Samúelsdóttir
tryggði Breiðablik sigurinn með
fallegu langskoti sem hafnaði í
stönginni og inn.
Valsstúlkur unnu mjög öruggan
sigur á Stjörnunni á Hlíðarenda
þar sem Nína Ósk Kristinsdóttir
og Dóra María Lárusdóttir
skoruðu tvö mörk hvor. Þá gerðu
KR-stúlkur góða ferð upp á
Skipaskaga þar sem þær sigruðu
ÍA með sjö mörkum gegn einu.
STÓRSIGUR Dóra
María Lárusdóttir
sést hér fagna
öðru marka sinna
gegn Stjörnunni í
gær ásamt Írisi
Andrésdóttur,
fyrirliða
Valsstúlkna.