Fréttablaðið - 22.05.2005, Page 57
SUNNUDAGUR 22. maí 2005 25
ÓDÝRT
en gott
Við bjóðum
18
55
/
T
A
K
T
ÍK
n
r.
4
1
B
Stærð:
D: 100 cm
B: 290 cm
H: 250 cm
Tekur
9 bretti
Brettahillur
kr. 25.647,-
Næsta bil
kr. 19.920,-
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
www.straumur.is
fiór›ur ney›ist til a› hætta
Markma›urinn fiór›ur fiór›arson hefur ney›st til a› leggja skóna á hilluna vegna veikinda. fiór›ur fljáist
af flogaveiki og á ekki annarra kosta völ en a› hætta. Mjög miki› áfall, segir fljálfari ÍA.
FÓTBOLTI „Ég er niðurbrotinn
maður,“ sagði Þórður þegar
Fréttablaðið náði tali af honum í
gær. „Þetta er alveg hrikalegt. Ég
skrifaði undir nýjan tveggja ára
samning við ÍA ekki alls fyrir
löngu og taldi mig eiga 3-4 góð ár
eftir í boltanum. Það er afskap-
lega erfitt að kyngja þessu,“ sagði
Þórður, sem er 33 ára gamall og
hefur leikið með ÍA lengst af sín-
um ferli en jafnframt leikið með
KA og Val eitt tímabil ásamt því
að vera um tíma í atvinnu-
mennsku hjá Norköpping í Sví-
þjóð.
Þórður segir það hafa verið í
lokaleik síðasta tímabils gegn ÍBV
að veikin hafi látið á sér kræla.
„Ég hef fengið einstaka köst
síðustu tvö ár en eftir þann leik
var ég mjög slæmur í hausnum og
líkamanum. Ég var að drepast í
marga daga á eftir og eftir að hafa
gengist undir margar rannsóknir
kom í ljós að ég var með einhvers
konar afbrigði af flogaveiki,“
segir Þórður, sem æfði og lék lítið
með Skagamönnum á undirbún-
ingstímabilinu. Hann stóð þó á
milli stanganna í leiknum gegn
Þrótti í 1. umferðinni á þriðjudag
og stóð sig mjög vel.
„Þetta háir mér ekki í leikjum
en kemur eftir á. Ég er ennþá að
drepast í líkamanum eftir þann
leik,“ segir Þórður. Það var síðan
rétt fyrir helgi sem Þórður og
læknar hans komust að þeirri
niðurstöðu að réttast væri að
hætta. „Mér er ráðlagt að hætta
því ef ég held áfram er ég að ögra
líkamanum. Og hver veit hvað það
getur leitt af sér? Það er að
minnsta kosti ekki mikið vit í að
fórna heilsunni fyrir þá áhættu,“
segir Þórður.
Ólafur Þórðarson segir brott-
hvarf Þórðar vera mjög mikið
áfall fyrir lið ÍA. „Við vissum af
veikindunum og að til þessa gæti
komið en auðvitað vonuðumst við
til þess að svo yrði ekki. Hann
skilur eftir sig stórt skarð,“ segir
Ólafur en bætir við að það komi
maður í manns stað. „Við eigum
góðan markmann í Páli Gísla
(Jónssyni),“ segir Ólafur en hann
kom frá Breiðabliki fyrir tímabil-
ið.
Þórður mun þó ekki alveg
segja skilið við liðið því allar líkur
eru á því að Þórður muni taka að
sér markmannsþjálfun liðsins. Þá
hefur Bjarki Guðmundsson, fyrr-
verandi markmaður Keflavíkur
og KR, verið að æfa með Skaga-
mönnum undanfarnar vikur og er
mun hann að öllum líkindum
semja við liðið á allra næstu dög-
um.
vignir@frettabladid.is
ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON Hefur varið mark ÍA af stakri prýði síðustu ár og taldi sig eiga 3-4
góð ár eftir í boltanum.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild kvenna:
BREIÐABLIK–KEFLAVÍK 3–2
1–0 Edda Garðarsdóttir (37.), 1–1 Ólöf
Helga Pálsdóttir (38.), 1–2 Donna
Cheyne (41.), 2–2 Sandra Karlsdóttir
(73.), 3–2 Gréta M. Samúelsdóttir (88.).
VALUR–STJARNAN 7–0
1–0 Rakel Logadóttir (19.), 2–0 Dóra
María Lárusdóttir, víti (27.), 3–0 Dóra
María Lárusdóttir (55.), 4–0 Margrét Lára
Viðarsdóttir (63.), 5–0 Nína Ósk
Kristinsdóttir (70.), 6–0 Nína Ósk
Kristinsdóttir (75.), 7–0 Rut Bjarnadóttir
(87.).
FH–ÍBV 1–0
1–0 Sif Atladóttir (70.).
ÍA–KR 1–7
0–1 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (8.), 0–2
Ásgerður Ingibergsdóttir (27.), 0–3
Ásgerður Ingibergsdóttir (53.), 0–4
Catherine Winsted (61.), 0–5 Hrefna
Jóhannsdóttir (65.), 1–5 Thelma Ýr
Gylfadóttir (71.), 1–6 Ásgerður
Ingibergsdóttir (83.), 1–7 Hrefna
Jóhannsdóttir (85.).
STAÐAN:
KR 2 2 0 0 10–2 6
BREIÐABLIK 2 2 0 0 7–3 6
ÍBV 2 1 0 1 12–3 3
VALUR 2 1 0 1 8–4 3
KEFLAVÍK 2 1 0 1 4–3 3
FH 2 1 0 1 1–2 3
STJARNAN 2 0 0 2 1–10 0
ÍA 2 0 0 2 3–19 0
Spænski handboltinn:
A. LEON–PORTL. SAN ANTONIO 36–25
CIUDAD REAL–TEUCRO 36–25
Ef Portland San Antonio hefði tapað eða gert
jafntefli hefðu Ólafur Stefánsson og félagar
orðið spænskir meistarar. Því miður fyrir okkar
mann gerðist það ekki og endaði Ciudad í öðru
sæti deildarinnar með 55 stig á meðan Portland
hlaut alls 56 stig. Ólafur skoraði 2 mörk í
leiknum. Adeamar Leon og Barcelona urðu í 3.
og 4. sæti, bæði með 50 stig.
Vináttulandsleikur í körfu:
ÍSLAND–ENGLAND 78–59
Stig Íslands: Birna Valgarðsdóttir 20 (10 ís-
lensk stig í röð í 3ja leikhluta), Helena Sverr-
isdóttir 19 (4 stoðs., hitti úr öllum 10 vítun-
um), Helga Þorvaldsdóttir 8 (50. landsleikur-
inn), María Ben Erlingsdóttir 6 (11 mín.),
Bryndís Guðmundsdóttir 5 (4 fráköst á 10
mín.), Stella Rún Kristjánsdóttir 5 (8 mín.),
Signý Hermannsdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir
4, Alda Leif Jónsdóttir 3 (7 fráköst, 4 stoðs.,
3 varin), Hildur Sigurðardóttir 2 (5 stoðs.),
Rannveig Randversdóttir 2.
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handbolta vann stóran sigur á
því færeyska í gær, 39-18, en
leikið var ytra. Eftir fyrri hálf-
leikinn var staðan 17-11, íslenska
liðinu í vil, en í þeim síðari settu
íslensku strákarnir í fluggírinn og
völtuðu yfir heimamenn. Marka-
hæstur í íslenska liðinu, sem ein-
göngu er skipað leikmönnum sem
leika á Íslandi, var Baldvin Þor-
steinsson úr Val með tíu mörk.
Andri Stefan og Vignir Svavars-
son úr Haukum komu næstir en
Andri skoraði sex mörk og Vignir
fjögur. Þá stóðu markmenn liðsins
sig afar vel og varði Birkir Ívar
Guðmundsson úr Haukum 13 skot
í fyrri hálfleik en Björgvin Páll
Gústavsson, leikmaður ÍBV, alls
14 skot í þeim síðari.
Liðin eigast við að nýju í dag og
er þá leikið í Þórshöfn.
Landsliðið í handbolta:
Stórsigur á
Færeyjum