Fréttablaðið - 22.05.2005, Qupperneq 58
26 22. maí 2005 SUNNUDAGUR
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > SIGURJÓN SIGHVATSSON
„Þetta er með dýrustu heimild-
armyndum sem gerðar hafa verið
og er kostnaðurinn um þrjár millj-
ónir evra sem samsvarar um 200
milljónum íslenskra króna,“ sagði
Sigurjón þegar Fréttablaðið
ræddi við hann í vikunni þar sem
hann var staddur á hinni árlegu
kvikmyndahátíð í Cannes. Sjálfur
er Sigurjón frá Akranesi og þótt
hann fylgist ekki með fótbolta
„dagsdaglega“, eins og hann sjálf-
ur komst að orði, er Sigurjóni
vegna uppruna síns nánast skylt
að fylgjast með fótbolta. „Menn
komast ekki upp með annað á
Akranesi,“ segir hann.
Einn leikur skipti öllu máli
Sigurjón vissi vel deili á Zi-
dane áður en hugmynd um gerð
einskonar ævisögu hans var laum-
að að honum. „Hugmyndin að
þessari mynd kviknaði fyrir
tveimur árum og eru það tveir
franskir myndlistarmenn sem
leikstýra myndinni. Við hittum Zi-
dane, bárum undir hann hug-
myndina og honum leist vel á.
Þetta er óvenjuleg mynd að
mörgu leyti því hún er í svoköll-
uðu „Real-time“ formi. Meðal-
lengd bíómyndar er 90 mínútur,
rétt eins og einn fótboltaleikur, og
okkur fannst tilvalið að tvinna
þetta saman,“ segir Sigurjón þeg-
ar hann útskýrir hugsunina sem
liggur á bakvið myndina sem
þannig er í raun aðeins einn leikur
með Real Madrid.
„Áhugi minn á fótbolta er ekki
síður tengdur þessum listræna
þætti sem í honum felst. Í mínum
augum er Zidane ekki bara fót-
boltamaður, hann er listamaður.
Og það er þess vegna sem þetta er
svo áhugavert og í raun það sem
hugmyndin snýst um – að sýna Zi-
dane í listrænu ljósi,“ segir Sigur-
jón og bendir á að það sé fjarri því
að 90 mínútna löng myndin sé að-
eins hefðbundinn fótboltaleikur
þar sem öll augu beinast að einum
manni.
„Í gegnum myndina er fólk um
allan heim heimsótt þar sem það
er að horfa á leikinn, hvort sem
það er heima, á bar eða hvar sem
er. En alltaf er leikurinn í bak-
grunni og þegar lítið er um að
vera í honum mun Zidane tala
ofan í myndskeiðið um æsku sína,
feril sinn og drauma.“
Mikil áhætta
Tökum á myndinni, eða leikn-
um, er lokið. Fyrirfram var vitað
að myndin stæði og félli með þess-
um eina leik svo að vanda þurfti
valið.
Sigurjón segir að samningavið-
ræður við alla hluteigandi hafi
verið strembnar og öll trygginga-
mál hafi til að mynda þurft að
vera alveg á tæru þar sem fótbolti
geti verið algjörlega óútreiknan-
legur, eins og Sigurjón bendir á.
„Hvað ef Zidane hefði til dæm-
is meiðst eftir 10 mínútna leik,
eða einfaldlega verið tekinn út af
í hálfleik?“ spyr Sigurjón til að út-
skýra mál sitt. En allar áhyggjur
áttu eftir að reynast óþarfar því
ekki er hægt að segja annað en að
Sigurjón og félagar hafi dottið í
lukkupottinn.
„Við tókum hann upp í leik
Real Madrid og Villarreal sem
fram fór þann 23. apríl sl. Real
vann leikinn og Zidane var mjög
áberandi. Fyrst lagði hann upp
mark fyrir Ronaldo og á lokamín-
útunum fékk hann rauða spjaldið.
Það er ekki oft sem hann fær
rautt spjald þannig að þetta hefði
í raun ekki getað orðið betra.
Sannkallaður draumaleikur,“
segir Sigurjón.
Búið var að tryggja rándýru
framleiðsluna í bak og fyrir ef
hlutirnir færu á annan veg en von-
ast var eftir. „Við höfðum trygg-
ingu fyrir því ef hann myndi
meiðast á fyrstu 70 mínútunum.
En fyrir rauðu spjaldi höfðum við
enga tryggingu. Það var bara
áhætta sem við tókum. Sem betur
fer kom það á síðustu mínútunni,“
segir Sigurjón glottandi.
Notast var við 20 myndavélar í
leiknum sem allar beindust að
Zidane á einn eða annan hátt og
fylgdust nákvæmlega með hverri
hreyfingu hans. Möguleikarnir
eru þannig hámarkaðir eins og
Sigurjón bendir á. „Við sjáum allt
niður í fínustu svipbrigði á honum
í hverju atviki.“
Þungavigtarmenn
Eins og áður segir eru það eng-
ir aukvisar í bransanum sem Sig-
urjón fékk til að starfa með sér
við vinnslu myndarinnar. Allt eru
það þungavigtarmenn í
Hollywood sem hafa starfað að
stærstu kvikmyndum síðari ára,
til að mynda „Saving Private
Ryan“, „Toy Story“, „Jurassic
Park“ og „Terminator“, og eiga
hljóðmenn myndarinnar til dæm-
is hátt á þriðja tug óskarsverð-
launa á hillu sinni.
„Og þar sem þetta er svo
óvenjulegt og spennandi verkefni
þá voru allir reiðubúnir að taka
þátt í þessu fyrir mun lægri
greiðslu en þeir eru vanir.“
Áætlunin er að frumsýna
myndina á kvikmyndahátíðinni í
Cannes á næsta ári, en það var í
þeirri borg sem Zidane hóf
einmitt að spila fótbolta. Hann-
hefur auk þess áætlað að leggja
skóna á hilluna að loknu næsta
tímabili. Myndin mun því koma til
með að rekja feril þessa eins
fremsta knattspyrnumanns allra
tíma á nánast sama tíma og hon-
um lýkur. Í framhaldinu er fyrir-
hugað að myndin verði sýnd í
kvikmyndahúsum úti um allan
heim og segir Sigurjón að dreifing
hennar gangi vel. „Hún mun svo
sannarlega vera sýnd á Íslandi
þar sem fótboltaáhugi er mikill,“
segir Skagamaðurinn Sigurjón
Sighvatsson að lokum.
vignir@frettabladid.is
LISTAMAÐUR EKKI SÍÐUR
EN FÓTBOLTAMAÐUR
Margfaldir óskarsver›launahafar í myndatöku, hljó›-
vinnslu og listrænni stjórnun vinna nú me› Sigurjóni
Sighvatssyni, athafnamanninum og kvikmyndafram-
lei›andanum gó›kunna, a› n‡stárlegri heimildar-
mynd um knattspyrnumanninn Zinedine Zidane.
Myndin er ein sú d‡rasta sinnar tegundar í sögunni.
SIGURJÓN SIGHVATSSON Hefur hingað til haldið sig að mestu við framleiðslu á leiknum
Hollywood-myndum en er að feta nýjar brautir með heimildarmynd um Zidane.
FARÐU Í STURTU, VINURINN
Zidane hlaut rauða spjaldið á
síðustu andartökum leiksins
gegn Villarreal. Sigurjón segir
það hafa verið æðislega við-
bót við myndina og algjöran
bónus við það sem lagt var
upp með í upptökum.
Og þar sem þetta er
svo óvenjulegt og
spennandi verkefni þá voru
allir reiðubúnir að taka þátt
í þessu fyrir mun lægri
greiðslu en þeir eru vanir.
,,
KÖRFUBOLTI „Áður en einvígið hófst
var ég ekki viss um hvort hann
hefði átt skilið að vera valinn
verðmætasti leikmaður deildar-
innar en nú er ég viss. Hann er bú-
inn að vera ótrúlegur í þessum
leikjum gegn okkur,“ sagði bak-
vörður Dallas, Jerry Stackhouse,
eftir að hafa horft upp á Steve
Nash, leikstjórnanda Phoenix og
nýkjörinn verðmætasta leikmann
deildarinnar, nánast einan síns
liðs slá út lið Dallas í úrslita-
keppninni í NBA. Nash átti sann-
kallaðan stórleik í fyrrinótt í
sjötta leiknum gegn Dallas og
tryggði liði sínu meðal annars
framlenginu með þriggja stiga
körfu í blálok venjulegs leiktíma.
Undir forystu Nash og Shawn
Marion var Phoenix sterkari aðil-
inn í framlengingunni og fór að
lokum með sigur af hólmi, 130-
126, og vann þar með einvígið 4-2.
Nash vantaði aðeins eitt frá-
kast upp á þrefalda tvennu en
hann skoraði 39 stig, gaf 12
stoðsendingar og tók níu fráköst.
Marion var ekki síðri og skoraði
39 stig ásamt því að taka 16 frá-
köst, þar sem 11 af stigum hans
komu í framlengingunni.
Þar með er ljóst að það verða
Phoenix og San Antonio sem leiða
saman hesta sína í undanúrslitum
Vesturdeildarinnar á meðan
Miami og Detroit eigast við í und-
anúrslitum Austurdeildarinnar.
„Ég á varla orð yfir frammi-
stöðu Nash gegn okkur,“ sagði
gáttaður Avery Johnson, þjálfari
Dallas, eftir leikinn en í síðustu
fjórum leikjum einvígisins skor-
aði Nash 37 stig að meðaltali, gaf
11,5 stoðsendingar og tók sjö frá-
köst. „Hann hefur aldrei spilað
betri körfubolta á sínum ferli og
getur auðveldlega farið alla leið
með þetta lið,“ bætti Johnson við.
„Þetta voru frábærir leikir
tveggja frábærra liða og ég er
mjög feginn að hafa farið með sig-
ur af hólmi,“ sagði Mike D’Antoni,
þjálfari Phoenix, eftir leikinn.
„Góðu fréttirnar eru þær að við
erum komnir áfram en vondu
fréttirnar eru þær að San Antonio
bíður eftir okkur með útglenntan
kjaftinn. Það einvígi á eftir að
verða rosalegt.“ - vig
MIKLIR FÉLAGAR Steve Nash hjá Pheonix og Dirk Nowitzki hjá Dallas féllust í faðma eftir
leikinn í fyrrinótt enda voru þeir liðsfélagar í nokkur ár hjá Dallas áður en Nash skipti um
félag fyrir tímabilið í ár.
Átta liða úrslitunum lokið í NBA-deildinni:
Nash betri en enginn