Fréttablaðið - 22.05.2005, Síða 62
30 22. maí 2005 SUNNUDAGUR
Áður fyrr státuðu
Íslendingar af
flestum metum
miðað við
höfðatölu. Vð
gengum stolt um
og hreyktum okk-
ur af Jóni Páli,
Hófí og Lindu,
hreinu vatni,
handboltalands-
liðinu og víkinga-
blóðinu. Þá var gaman að vera til.
Þá var Ísland best í heimi. En
varla lengur. Að minnsta kosti
ekki miðað við frammistöðu okk-
ar á alþjóðavettvangi á síðustu
mánuðum.
Íslenska landsliðið í handbolta
má muna sinn fífill fegri eftir
háðulega útreið á heimsmeistara-
mótinu í Túnis í byrjun árs. Þá
komumst við ekki upp úr riðla-
keppninni.
Í vikunni bárust fréttir af því
að íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu væri í 97. sæti á lista Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins og
hefur sennilega aldrei verið neð-
ar. Fyrir ofan okkur á listanum
eru þjóðir sem hafa aldrei getað
neitt í knattspyrnu og eiga fáa
sem enga atvinnumenn, þjóðir á
borð við Panama, Gíneu og
Búrkína Fasó.
Á sama tíma bárust fréttir af
því að besti þjálfari landsins hefði
svikið eitt sögufrægasta knatt-
spyrnulið þess til að taka við forn-
frægu liði á Englandi. Liðið
reyndist síðan það sjötta lélegasta
þar í landi.
Á fimmtudag var botninum náð
þegar við komumst ekki áfram úr
forkeppni Júróvisjón. Þvílík
skömm. Þvílík hneisa.
Sem betur fer státum við þó
enn af nokkrum metum. Íslend-
ingar eru skuldsettasta fólk í
heimi og vöruverð hér á landi er
það hæsta sem þekkist. Við erum í
toppbaráttunni í bílaeign og far-
síma- og internetnotkun og börnin
okkar eru alin upp af sjónvarpi og
rítalíni sem þau skola niður með
gosdrykkjum. Þetta eru dæmi um
met sem við gleymum stundum en
verða seint slegin af öðrum þjóð-
um. Þetta eru met sem gera okkur
að bestu þjóð í heimi. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
KRISTJÁN HJÁLMARSSON HEFUR ÁHYGGJUR AF ÞJÓÐINNI.
Metalaust Ísland
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
-Stærsti fjölmiðillinn
Fréttablaðið
skorar og skorar!
0
5
10
15
20
25
30
35
40
39%
26%
Íslendingar 18-49 ára
Tölurnar tala sínu máli.
Áhugamenn um íþróttir eru kröfuharður
hópur. Íþróttafréttmenn Fréttablaðsins
sinna þessum hópi vel eins og tölurnar
sanna. Á meðal 18-49 ára Íslendinga lesa
52% fleiri íþróttasíður Fréttablaðsins.
samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
Ég hangi á
múrvegg....
Maður í kjólföt-
um kemur inn...
Vondur maður
sem heldur á
míkrafón á
ógeðslegan hátt...
Kraftaverki líkast
bætast fleiri í hópinn,
klæddir eins og fífl.
Þeir byrja
að spila....
Og þeir
spila..
og þeir
spila...
og þeir
spila!
Þeir
hætta
aldrei!
Aldrei!!
*blika
djúp og
skær*
*Bláu
augun
þín...*
Svo þetta
er þín hug-
mynd af
helvíti. Verra
gerist
það ekki!
Tjahh... Í minni
útgáfu er ég
líka bundinn
fastur við vegg,
smurður í
eggjalíkjör og
klæddur eins
og Karl Breta-
prins og....
TAKK!!