Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 12
12 13. júní 2005 MÁNUDAGUR
„Ég hef verið við leik- og söngæfingar að undanförnu,“ segir
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi. Sig-
ríður Arnþórsdóttir vinkona hennar hélt upp á sextugs-
afmæli sitt á laugardagskvöldið og tóku Guðný og fleiri vin-
konur sig til og sömdu dagskrá um Sigríði. „Okkur finnst við
vera ákaflega fyndnar en það er spurning hvað öðrum
finnst,“ segir Guðný og hlær. Hún segist syngja og leika
þegar svo beri undir enda þurfi fólk til sveita að bregða sér
í alls konar líki.
Ekki er annað að merkja á Guðnýju sveitarstjóra en að
allt gott sé að frétta úr Grýtubakkahreppi en hann stendur
við Eyjafjörðinn austanverðan og þar er kauptúnið Grenivík.
„Sunnanáttin er loksins komin en það vantar vætuna,“ segir
Guðný og bætir við að bændur séu farnir að reka fé sitt á
fjall. Og eitt og annað er á seyði á Grenivík hvað snertir
íþróttir. „Við erum hér í óðaönn að útbúa KSÍ sparkvöll og
keppumst við að ljúka viðbyggingu við íþróttamiðstöðina svo
hægt verði að opna sundlaugina.“
Þó að Grýtubakkahreppur og Grenivík kunni að vera úr
leið margra ferðamanna segir Guðný þeim sífellt fjölga sem
þangað leggi leið sína. „Fjörðurnar eru mjög vinsælar og
verða vinsælli með ári hverju. Göngu-
ferðirnar sem þar er boðið upp á með
trússjeppa eru geysimagnaðar og
vinsælar,“ segir sveitarstjórinn og
talar þar af reynslu. Á dögunum
gekk hún hins vegar aðra leið, upp
á Laufáshnjúk sem er í sjö til átta
hundruð metra hæð, og var útsýn-
ið þaðan himneskt að hennar sögn.
Guðný ætlar ekki að taka sér
langt frí í sumar heldur hyggur á
styttri ferðir með fellihýsið í togi. Hún
tekur sér lengri leyfi yfir vetrar-
tímann og fer þá helst til Kanarí-
eyja.
Okkur finnst vi› ákaflega fyndnar
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐNÝ SVERRISDÓTTIR SVEITARSTJÓRI
nær og fjær
„Vi›ey er í raun tvær
eyjar, Austurey og
Vesturey.“
GESTUR GUNNARSSON TÆKNIFRÆÐ-
INGUR UM VIÐEY Í FRÉTTABLAÐINU.
„Ég var búinn a› láta
mér detta í hug a› fla›
væri lax flarna.“
ÓLAFUR HAUKUR ÓLAFSSON FRÁ
VALDASTÖÐUM, SEM VEIDDI LAX VIÐ
LAXFOSS Í LAXÁ Í KJÓS. MORGUN-
BLAÐIÐ.
OR‹RÉTT„ “
Sendu SMS skeytið JA MMF á
númerið 1900 og þú gætir unnið.
12. hver vinnur.
Vinningar eru:
Miðar f. 2 Mr & Mrs Smith
Glæsilegur varningur tengdur
myndinni t.d. úr og bolir
DVD myndir
Margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið.
SMS leikur
Fisfélag Reykjavíkur hélt
árlegt mót við Hafrafell á
dögunum. Þar flugu ýms-
ar furðuverur um loftið
þar sem helmingur stiga
fékkst fyrir hugmynda-
ríkan grímubúning. Svif-
hlífar eiga vaxandi vin-
sældum að fagna á Ís-
landi.
Púki með horn og hala sveif til
jarðar á dögunum. Hann var hluti
af stærri hópi furðufugla sem
kepptu á árlegu móti Fisfélags
Reykjavíkur sem kallast því
skemmtilega nafni Hafragrautur.
Mótið var haldið við Hafravatn og
Hafrafell og dregur þar helming
nafnsins. Sá síðari stafar af því að
mótið er sambland af grímubún-
ings- og punktlendingarkeppni en
helmingur stiga fékkst fyrir hug-
myndaríkan búning.
Síðar í júní verður haldið Celt-
ic Cup mót sem er árlegt mót Íra,
Skota og Walesbúa. Íslendingar fá
að vera með og verður þetta í ann-
að sinn sem mótið er haldið hér á
landi en síðast var það haldið hér
árið 1997. Hópur erlendra kepp-
enda kemur til landsins ásamt
áhangendum. Mótið verður haldið
á Búrfelli í Landssveit en þar eru
einnig Íslandsmót fisfélagsins
haldin en því verður steypt saman
við Celtic Cup í ár.
Fisfélag Reykjavíkur á sér
langa sögu. Svifdrekafélag var
stofnað árið 1978 en síðar var
nafninu breytt þar sem nokkur
þróun hefur verið í flugi og bæði
véldrekar og svifhlífar hafa bæst
í hópinn en allt flokkast þetta
undir fis. Svifdrekar eru upp-
spenntir vængir en svifhlífar eru
eins og fallhlífar sem spennast úr
í vindi. Mesta nýliðunin er í svif-
hlífunum en þær eru auðveldar í
meðförum og komast fyrir í ein-
um bakboka. Ekki þarf heilan
jeppa með toppgrind til að flytja
þær eins og svifdrekana.
„Við erum með draumaland
fyrir þetta sport,“ segir Friðrik
Kingo Andersen, félagi í Fisfélag-
inu. „Við höfum ekki há tré eða
brjálaða bændur sem vilja verja
akra sína,“ segir hann og vill
meina að hægt sé að stunda sport-
ið allan ársins hring.
solveig@frettabladid.is
Hafragrautur á flugi
SVIFIÐ TIL JARÐAR María Norðdahl kemur inn til lendingar í Hafragrautarkeppninni.
FURÐUVERUR Einar Garðarsson var sigurvegari Hafragrautsins og er hann til hægri á
myndinni. Hann vakti athygli fyrir sérstaklega skrautlegan búning en hann sveif til jarðar
með horn og hala. Með honum á myndinni er Kristján B.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
IN
G
O