Fréttablaðið - 13.06.2005, Side 14

Fréttablaðið - 13.06.2005, Side 14
Bættar fri›arhorfur í Erindreki Evrópusam- bandsins í sáttaumleit- unum í Darfur í Súdan segist bjarts‡nn á a› me› sameiginlegu átaki alfljó›asamfélagsins muni takast a› koma á fri›i flar sy›ra. Evrópusambandið hyggst gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða við að sátta- og frið- argæsluverkefni Afríkusam- bandsins (AU) í Darfur í Súdan skili áþreifanlegum árangri. Þetta sagði Sten Rylander, sér- legur sáttasemjari á vegum Evr- ópusambandsins í Darfur, í sam- tali við Fréttablaðið, en hann flutti erindi á málþingi sem haldið var í Norræna húsinu í tilefni af því að 7. júní voru rétt 100 ár liðin frá sambandsslitum Noregs og Svíþjóðar. Á málþing- inu, sem bar yfirskriftina „Nor- rænt frumkvæði til friðar“, var fjallað um þátt Noðurlanda í sáttamiðlun og friðargæslu á átakasvæðum heimsins. Rylander fjallaði í erindi sínu um reynsluna af viðleitni Evr- ópusambandsins til að miðla málum í Darfur. Rylander hefur starfað í sænsku utanríkisþjón- ustunni í yfir 30 ár og síðan árið 1979 hefur hann sérhæft sig í málefnum Afríku. Frá því í ágúst 2004 hefur hann starfað sem sérstakur sendiherra Sví- þjóðar í Afríkumálum og sem erindreki ESB í Darfur. Auk Rylanders töluðu á mál- þinginu Erik Solheim, sem síðan árið 2000 hefur starfað sem erindreki Noregs í norrænu friðarmiðlunarnefndinni á Sri Lanka, og Gunnar Snorri Gunn- arsson, ráðuneytisstjóri ís- lenska utanríkisráðuneytisins, en hann fjallaði um „íslenska sýn á friðarviðleitni“. ESB og NATO ræða verkaskipt- ingu Bæði ESB og Atlantshafsbanda- lagið hafa boðið að leggja Afríku- sambandinu til loftflutninga og þjálfun hinna 5.000 friðargæslu- liða sem það ætlar að senda til Darfur. Stofnanirnar tvær, ESB og NATO, hafa hins vegar ekki enn komið sér endanlega saman um hvor geri hvað. Málið var rætt á varnarmálaráðherrafundi NATO í Brussel fyrir helgina. Þar var samþykkt að NATO myndi sinna þessum liðsflutn- ingum. Bandaríkjastjórn vildi að NATO sæi um þá alla, en að kröfu Frakka mun hluta liðsins vera flogið í nafni ESB. „Aðal- atriðið er að aðstoðin sé veitt,“ sagði þýski utanríkisráðherrann Peter Struck. Ráðherrar ESB munu koma saman í þessari viku og ákveða nánar hvaða aðstoð sambandið muni veita. Brýnt þykir að friðargæslu- liðið verði komið á vettvang áður en regntíðin hefst í júlí. Talsmenn NATO hafa sagt að NATO muni aðeins sjá um að koma liðinu til Darfur og að- stoða við að koma upp stjórn- stöð fyrir það. Kanadamenn eru eina NATO-þjóðin sem hefur boðið þyrlur til að fljúga friðar- gæsluliðunum milli staða innan Darfur. Nú þegar eru um 2.700 friðar- gæsluliðar á vegum Afríkusam- bandsins í Darfur. „Ástandið á þessu svæði er hræðilegt, og við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur – í samstarfi við aðrar stofnanir, fyrst Evrópu- sambandið – til að aðstoða Afríkusambandið í viðleitni sinni,“ hafði AP-fréttastofan eftir Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra NATO. „Við gerum allt sem við get- um til að styðja Afríkusamband- ið í þessu verkefni, fyrst og fremst með fjárframlögum,“ segir Rylander um aðkomu ESB að Darfur-verkefninu. Að hans sögn er Súdanstjórn nú orðin mun samvinnuþýðari en áður og hann sé bjartsýnn á að takast muni að koma á friði. Á ríði að fá alla málsaðila að samninga- borðinu, en ný lota sáttavið- ræðna hófst eftir hálfs árs hlé í Abuja í Nígeríu nú um helgina. Þar eru saman komnir fulltrúar súdönsku ríkisstjórnarinnar og uppreisnarhreyfinga Darfurbúa 14 13. júní 2005 MÁNUDAGUR Hvernig hófust átökin? Átökin í Darfur, héraði í vesturhluta Súdan, hófust snemma árs árið 2003, eftir að uppreisn- arhópur hóf að gera árásir á fulltrúa ríkisstjórn- arinnar. Uppreisnarmennirnir héldu því fram að stjórnarherrarnir í höfuðborginni hefðu vanrækt svæðið og að stjórnvöld hygluðu arabískum íbúm þess á kostnað svartra. Hverjir eru uppreisnarmennirnir? Tveir helstu hópar uppreisnarmanna eru Súdanski frelsisherinn (SLA) og Réttlætis- og jafnræðishreyfingin (Jem). Báðar þessar hreyf- ingar hafa verið tengdar Hassan al-Turabi, hátt- settum súdönskum stjórnmálamanni í stjórnar- andstöðu. Á móti kemur sveit arabískra vígamanna, djandjavíd, sem ríkisstjórnin er sökuð um að beita fyrir sig, auk stjórnarhersins, til að hreinsa stór svæði Darfur af svörtum íbúum. Flóttamenn af svæðinu segja að í kjölfar loftárása stjórnar- hersins ríði djandjavíd-sveitir inn í þorpin á hest- um og kameldýrum, drepi menn, nauðgi konum og steli öllu steini léttara. Tilkynnt hefur verið um fjölda kvenna sem hefur verið rænt af djandjavíd-liðsmönnum og haldið sem kynlífs- þrælum vikum saman áður en þeim er sleppt. Hvað er ríkisstjórnin að gera? Ríkisstjórnin neitar að hún stjórni á einhvern hátt djandjavíd-sveitunum og forseti Súdan, Omar al-Bashir, hefur kallað liðsmenn þeirra „þjófa og þorpara“. Þrátt fyrir loforð ríkisstjórnar- innar um að afvopna sveitirnar hefur lítið borið á slíkri afvopnun hingað til. Þúsundir vara- lögreglumanna hafa verið sendir á svæðið, en flóttamenn hafa litla trú á súdönskum öryggis- sveitum. Átökin í Darfur FBL GREINING: fréttir og fró›leikur SVONA ERUM VIÐ Neysla á sykri á mann á Íslandi Heimild: Hagstofan 1995 2000 2003 5 4 ,6 k g 5 1 ,2 k g 5 0 ,9 k g Synir lögreglu- manns börðu menntaskóla- nema til óbóta Fórnarlambinu flogið með sjúkraflugi til Reykjavíkur NÝ SAMNINGALOTA Abdul Waheed Mohammed, leiðtogi Frelsishreyfingar Súdan (SLM), ávarpar friðarsamningafund í Abuja í Nígeríu á föstudag. Að baki honum sést í Sten Rylander. Á FLÓTTA Flóttafólk frá Darfur-héraði bíður læknishjálpar í sandbyl nærri borginni Bamina í Tsjad, austur af Súdan. AUÐUNN ARNÓRSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING FRIÐARMIÐLUN Í SÚDAN M YN D /A P AFRÍKUSAMBANDIÐ SINNIR FRIÐARGÆSLU Afríkusambandið (AU), samtök 53 Afríkuríkja sem áður hétu Einingarsamtök Afríku (OAU), hefur tekið að sér að sinna friðar- gæslu í Darfur. Þar eru nú á þriðja þúsund friðargæsluliða á vegum samtakanna, meðal annars frá Nígeríu, en til stendur að fjölga þeim um 5.000. Sumir eru þó efins um að það lið dugi til að framfylgja friðarsamkomulagi milli uppreisnarmanna og súdanska stjórnar- hersins á landsvæði sem er stærra en Frakkland að flatarmáli.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.