Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 65

Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 65
Merk hús í bænum Aðalbygging Háskóla Íslands Bygginguna og lóðina framan við hana skipulagði Guðjón Samúels- son á árunum 1936-1940. Hún er í klassískum byggingarstíl þar sem framhlið hennar er samhverf um miðju, með taktföstum gluggaröð- um báðum megin við framskot þar sem aðalinngangurinn er. Eftir að- alálmunni endilangri er gangur með skólastofum og skrifstofum til hvorrar handar, en fyrir miðju hús- inu er glæsilegur forsalur og liggja stigar þaðan upp á efri hæðir húss- ins. Vestan úr húsinu eru þrjár mis- stórar álmur. Innviðir hússins eru hinir glæsilegustu og er þar brydd- að upp á nýjunum í efnisnotkun. Gólf forsalarins er lagt hellum úr Öskjuhlíð, loftið er klætt silfur- bergi og súlur framan við hátíðar- salinn eru klæddar hrafntinnu. Há- skólabyggingin var síðasta stór- virki Guðjóns Samúelssonar. Þjóðminjasafn Íslands Ákveðið var á Alþingi að verja fé til nýrrar byggingar Þjóðminjasafns Íslands í tilefni stofnunar lýðveld- isins árið 1944 og voru arkitektarn- ir Sigurður Guðmundsson og Eirík- ur Einarsson ráðnir til verksins. Formræn uppbygging hússins er byggð á hugmyndafræði funkis- stefnunnar þar sem skiptast á lóð- rétt og lárétt form, með taktföstum gluggaröðum og hleðslugleri í stór- um gluggum sýningarsala og stiga- gangs. Viðbygging var reist eftir teikningum Ögmundar Skarphéð- inssonar og eru þar sýningarsalir og aðalinngangur safnsins. Hljómskálinn Þegar þetta litla sexhyrnda hús var byggt hafði verið ákveðið að gera skemmtigarð sunnan við Tjörnina og fór því vel á því að hafa þar lítið garðhýsi til tónlistarflutnings. Hús- ið var teiknað af Guðmundi H. Þor- lákssyni húsasmíðameistara, sem var undir áhrifum frá norrænni ný- klassík sem endurspeglast í arki- tektúr hússins. Húsið er fyrsta tón- listarhúsið hér á landi og notar Lúðrasveit Reykjavíkur það til æf- inga enn þann dag í dag. Heimildir úr bókinni Leiðsögn um íslenska byggingarlist. SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 0 50 100 150 200 250 300 FJÖLDI 29/4-5/5 132 6/5-12/5 188 13/5-19/5 20/5-26/5 27/5-2/6 119 204 189 3/6-10/6 175 SPURNING VIKUNNAR á fasteignavef Visis 78,5% Nei Já SPURNING SÍÐUSTU VIKU: Finnst þér mikilvægt að hafa að- gang að garði? 21,5% Leggurðu uppúr því að hafa bílskúr? Árbæjarsókn var gerð að sérstöku prestakalli 1971 og var bygging Ár- bæjarkirkju hafin í ágúst árið 1973. Kirkjuna hönnuðu Manfreð Vil- hjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitektar. Safnaðarheimilið var vígt 19. mars 1978 en það er nú jarðhæð kirkjunnar. Kirkjan var svo vígð þann 29. mars árið 1987. Eitt helsta listaverk kirkjunnar er altarisverkið Ljósstafir, sem fellur vel inn í kirkjuskipið þar sem sól- arljósið fellur inn um þakglukka kirkjunnar. Verkið er eftir listakon- una Rúrí. Fyrsti prestur sóknarinnar var séra Guðmundur Þorsteins- son en núverandi sóknarprestur er séra Þór Hauksson. Árbæjarkirkja

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.