Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 66

Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 66
Kjaradómur og aldra›ir Hinn 9. júní 2005 úrskurðaði kjara- dómur að laun ráðherra, alþingis- manna og æðstu embættismanna ríkins skyldu hækka um 2% frá og með 1. júlí nk. og jafngildir þetta því að laun alþingismanna hækka um nálægt 9.000 kr. og ráðherra um rúmlega 16.000 kr. á mánuði. Þetta kemur ofan á hækkun til þessara aðila um síðustu áramót, sem nam þá nálægt 14.000 kr. hjá alþingis- mönnum og nálægt 24.000 kr. hjá ráðherrum. Með þessum dómi sín- um er kjaradómur að staðfesta það sem við aldraðir höfum haldið fram, að laun eða bætur frá Trygginga- stofnun eru enn að dragast aftur úr í launaþróuninni. Kjaradómur segir í rökstuðningi sínum m.a. að tekið sé tillit til þeirra breytinga sem orðið hafi á launakjörum á vinnumarkaði og metur að hækka beri laun ráð- herra og alþingismanna samkv. því um 2%. Með úrskurði kjaradóms fylgir launatafla og segir svo um hana: „Launatöflur sýna tilteknar hækkanir í prósentum, en þegar bet- ur er að gáð felast oft í kjarasamn- ingum tilfærslur á niðurröðun í launatöflur, aldurstilfærslur og margs konar önnur atriði, sem til samans valda því að laun þeirra sem taka laun samkvæmt viðkomandi kjarasamningi hækka meira en launatöflur einar og sér segja til um“. Þarna er kjaradómur að segja okkur að laun hafi almennt hækkað umfram kjarasamninga og því þurfi að bæta æðstu mönnum það, en mikið mega hæstvirtir alþingis- menn og ráðherrar, sem eru að fá hækkuð mánaðarlaun um 20 til 40 þúsund krónur á þessu ári, vera ánægðir með þær kjarabætur sem þeir úthluta til okkar aldraðra en hækkun á ellilífeyri var um síðustu áramót 744 kr. á mánuði. Full tekju- trygging hækkaði um 1.458 kr. á mánuði á sama tíma og síðan ekkert. Það er mikill munur á hugsunar- hætti hjá kjaradómsmönnum annars vegar og alþingismönnum og ráð- herrum hins vegar þegar kemur að launa- eða bótagreiðslum. Kjara- dómur, sem er settur af ráðherrum og alþingismönnum til að ákvarða laun þeirra, hefur með þessari síð- ustu ákvörðun sannað á ótvíræðan hátt að kjör okkar lægst launuðu aldraðra hafa dregist langt aftur úr kjörum annarra og þá sérstaklega ráðamanna, eins og sést á því eins og áður segir að meðan ellilífeyrir og tekjutrygging hækka um rúmlega tvö þúsund krónur á mánuði hækka laun ráðherra og alþingismanna um tuttugu til fjörutíu þúsund krónur á mánuði. Umhyggja og áhugi þessara ráðamanna til að standa vörð um og bæta kjör hinna lægst settu í hópi aldraðra virðist algjörlega horfinn frá þeim, þeir hugsa fyrst um sjálfa sig og á meðan eru aðrir gleymdir. Í frétt frá Alþýðusambandi Íslands föstudaginn 10. júní er sagt að laun ráðherra og alþingismanna hafi hækkað helmingi meira á þessu ári en almenn laun. Vitað er að almenn laun hafa lækkað mun meira en elli- lífeyrir til okkar aldraðra. Útkoman er alltaf sú sama, aldraðir mega sitja á hakanum og lifa við sultar- kjör því enn er langt í kosningar, en kannske verður slett í okkur ein- hverri hungurlús fyrir næstu kosn- ingar. Höfundur er eftirlaunaþegi. 17MÁNUDAGUR 13. júní 2005 Þrengsli á flugi Hafsteinn hringdi: Það var upplýsandi að heyra fréttir um að íslensku flugfélögin hafa þrengra á milli sæta en almennt gerist hjá flug- félögum sem fljúga lengri leiðir. Stund- um er það svo að stærsta fólk kemst varla fyrir milli sætaraðanna. Það er ekki mikil von til að Neytendasamtökin beiti sér í þessu máli frekar en flestum öðrum. Samt blasir við að það er verið að fara verr með farþega íslenskra flug- félaga en farþega annarra flugfélaga. Erfitt getur orðið að refsa flugfélögun- um. Íslendingar sýna sjaldnast andúð sína í verki. Þess vegna verður þetta háttalag viðhaft um komandi ár. KARL GÚSTAF ÁSGRÍMSSON SKRIFAR UM KJÖR EFTIRLAUNAÞEGA BRÉF TIL BLAÐSINS SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek- ið á móti efni sem sent er frá Skoðana- síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið- beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Umhyggja og áhugi flessara rá›amanna til a› standa vör› um og bæta kjör hinna lægst settu í hópi aldra›ra vir›ist al- gjörlega horfin frá fleim. Sparir á stefnuljós Magnús skrifar: Ekki er nóg að bæta og laga göturnar hérna í Reykjavík. Það þarf meira að koma til og einkum og sérstaklega bætt umferðarmenning. Segja má að stund- um teljist til undantekninga gefi öku- menn stefnuljós áður en þeir beygja. Sumir gefa stefnuljós eftir að þeir hafa skipt um akstursstefnu. Lögreglan verður að taka ábyrgð og koma í veg fyrir þessi lögbrot. Þá eykst öryggi allra. Aðalfundur Hjartaverndar Stjórn Hjartaverndar Boðað er til aðalfundar Hjartaverndar þriðjudaginn 14. júní næstkomandi að Holtasmára 1, Kópavogi, 4. hæð. Fund- urinn hefst klukkan 12.00 á hádegi. Fundarefni eru 1) venjuleg aðalfundar- störf, 2) Hjartavernd sjálfseignarstofnun, samþykkt skipulagsskrár og 3) önnur mál. Stjórnin. ÞARF ÞETTA AÐ VERA EINS OG ÞETTA ER?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.