Fréttablaðið - 13.06.2005, Page 72
MÁNUDAGUR 13. júní 2005
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni • www.skifan.is
...skemmtir þér ; )
TónlistDVD
Foo Fighters In Your Honor (2CD) 1.999
Foo Fighters In Your Honor (2CD+DVD) LTD 2.499
Queens Of The Stone Age Lullabies To Paralyze 1.999
Foo Fighters There Is Nothing Left To Lose 999
Foo Fighters Colour and the Shape 999
Foo Fighters Foo Fighters 999
Foo Fighters One By One 999
Queens Of The Stone Age Rated R 999
Queens Of The Stone Age Songs For The Deaf 999
Queens Of The Stone Age Queens of the Stone Age 1.799
Kyuss Wretch 999
Kyuss Blues For The Red Sun 999
Kyuss Welcome To The Sky Valley 999
Kyuss And the circus leaves town 999
Foo Fighters Everywhere But Here DVD 1.499
Plötur og DVD diskar á tilboði!
2.499
1.999
Foo Fighters - In Your Honour
Foo Fighters - In Your Honour
Queens Of The Stone Age - Lullabies
To Paralyze
Í tilefni af nýrri Foo Fighters plötu
og tónleikum Foo Fighters og
Queens Of The Stone Age í
Egilshöllinni 5. júlí, þá verða
plötur þeirra á tilboði í
verslunum Skífunnar
2CD+DVD 2CD
1.999
2–1
Hásteinsv., áhorf: 350 Magnús Þórisson (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–13 (7–5)
Varin skot Birkir 4 – Kristján 4
Horn 7–1
Aukaspyrnur fengnar 18–17
Rangstöður 5–1
1–0 Matthew Platt (27.)
2–0 Ian Jeffs (58.)
2–1 Andri Ólafsson, sjálfsmark (76.)
ÍBV
*MAÐUR LEIKSINS
ÍBV 4–3–3
Birkir 7
Bjarni Geir 6
Páll 7
Bjarni Hólm 6
Adolf 6
Andri 7
Atli 7
*Jeffs 8
Heimir Snær 7
Platt 7
(84. Steingrímur –)
Magnús Már 6
(72. Pétur Óskar 6)
KR 4–4–2
Kristján 7
Jökull 6
Gunnar E. 7
Ágúst 7
Gunnar K. 6
(82. Arnar –)
Sigurvin 5
(70. Bjarki 6)
Bjarnólfur 7
Rógvi 6
Sölvi 6
(45. Matute 6)
Garðar 6
Grétar Ólafur 7
KR
Þriðja tap KR-inga í jafn mörgum leikjum en fyrstu stig ÍBV:
fiurfum a› skora mörk
FÓTBOLTI „Ég hefði nú haldið að við
værum með nóg af markaskor-
urum en það virðist ekki vera. Við
þurfum að skoða í rólegheitum
hvað við þurfum að laga – það er
alveg ljóst. Við þurfum að skora
fleiri mörk,“ sagði Magnús
Gylfason, þjálfari KR, eftir tap
sinna manna gegn Eyjamönnum í
gær. ÍBV bar þar sigur úr býtum,
2–1, með mörkum Matthew Platt
og Ian Jeffs en KR-ingar komust á
blað með sjálfsmarki Andra
Ólafssonar. Þar með hafa sóknar-
menn KR-inga ekki enn náð að
setja mark sitt á mótið.
KR-ingar mættu ákveðnari til
leiks og var Grétar Ólafsson
atkvæðamikill á upphafsmínút-
unum. Hann slapp einn inn fyrir
vörn ÍBV á 4. mínútu en lét verja
frá sér. En Eyjamenn létu þetta
ekki á sig fá og komu sér inn í
leikinn með marki Platts á 27.
mínútu. Besti maður vallarins, Ian
Jeffs, var óheppinn að bæta ekki
öðru við í fyrri hálfleik er hann
var sloppinn inn fyrir og þá átti
Magnús Már Lúðvíksson gott skot
sem Kristján Finnbogason varði
vel.
En markið kom hjá Jeffs í
síðari hálfleik og við það féllu
Eyjamenn aftur á völlinn og
reyndu að halda fengnum hlut.
Þeir misstu svo mann út af á 75.
mínútu er Bjarni Hólm hrinti
Kristjáni markverði. Aðeins
mínútu síðar kom markið hjá KR-
ingum en allt kom fyrir ekki, þó
svo að tvíburabræðurnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir kæmu inn
af bekknum undir lok leiksins.
„Loksins, loksins unnum við og
spiluðum mun betri fótbolta í dag
en við höfum áður sýnt í sumar.
Við unnum allir saman í liðinu
enda vinnast leikirnir ekki nema
allir á vellinum leggi sitt að
mörkum. Mér skilst að ÍBV hafi
aldrei byrjað verr í efstu deild, en
ég hef trú á að þetta sé að koma
hjá okkur núna,“ sagði Ian Jeffs,
ÍBV, eftir leikinn. -jiá
Carlsberg-mótið í Eyjum:
Ragnhildur
og Hei›ar
Daví› unnu
GOLF Annað mót á Toyota-
mótaröðinni í golfi fór fram í
Vestmannaeyjum um helgina.
Heiðar Davíð Bragason, GKj, og
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR,
báru sigur úr býtum á mótinu.
Ragnhildur hafði talsverða yfir-
burði í flokki kvenna og hafði átta
högga forystu á næsta kylfing,
Önnu Lísu Jóhannsdóttur. Hún
spilaði samtals á sex höggum
undir pari vallarins.
Heiðar Davíð lék á fimm
höggum undir pari en Sigurpáll
Geir Sveinsson, GK, varð annar og
Magnús Lárusson, GKj, þriðji.
-esá
Íslenskir atvinnukylfingar:
Gott skor á
lokahringjum
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson
tókst að hífa sig upp í 30. sæti með
góðri frammistöðu síðustu tvo
dagana á móti í Esbjerg í
Danmörku. Hann hefur nú komist
í gegnum niðurskurðinn á öllum
mótum sem hann hefur tekið þátt í
á evrópsku áskorendamótaröðinni
og telst það afar góður árangur.
Ólöf María Jónsdóttir var að
keppa í Frakklandi og lauk keppni
í 41. sæti. Hún lék síðasta hringinn
á pari og alls á fimm höggum yfir
pari. Hún sagðist í samtali við
Fréttablaðið vera sátt við
frammistöðuna og vonast til að
þetta fleyti henni áfram á beinu
brautina.