Fréttablaðið - 13.06.2005, Síða 73

Fréttablaðið - 13.06.2005, Síða 73
24 13. júní 2005 MÁNUDAGUR Mike Tyson, maður- inn sem varð þekkt- ur fyrir að vera „baddest“, sá allra versti. Goðsagna- kenndur boxari sem öðlaðist frægð sína á síðari hluta níunda áratugsins fyrir afrekin í box- hringnum og síðar meir ekki síður fyrir ýmislegt misjafnara, sat meðal annars í fangelsi fyrir nauðgun. Þegar ég var polli og Sýn að byrja að sýna boxið var æðislegast að sjá Tyson, hann var reiður og lítill köggull, úttattóveraður og alveg hlægilega hjáróma. Síðan fór ferillinn að dala, Tyson beit í eyrað á Holyfield og tapaði svo fyrir Lennox Lewis og náði aldrei aftur fornri frægð ef marka má þá Ómar og Bubba. Síðustu árin hefur Tyson gert ít- rekaðar tilraunir til að endurvekja ferilinn. Mér er sérstaklega minn- isstæður bardagi sem ég sá á hótelherbergi á Ítalíu fyrir einum fimm, sex árum. Ég vakti fram undir morgun til að sjá tröllið og þegar bardaginn loksins hófst eftir fjölmarga leiðinlega bardaga í veltivigt eða eitthvað álíka þá var Tyson ekki nema einhverjar þrjár, fjórar sekúndur að ganga frá fall- byssufóðrinu, einhverjum grey hlunki sem settur hafði verið til höfuðs honum í gróðaskyni. Ég fór frekar svekktur að sofa þá nóttina. Nú um helgina lauk svo senni- lega síðasta kaflanum í boxferli Iron Mike Tyson. Enn ætlaði kall- inn að koma með kommbakk. Lát- inn slást við einhvern írskan hlunk sem fyrir fram var talinn vera gróðafóður fyrir okkar mann. En viti menn, gamli tuddinn bara gat ekki neitt og þjálfari hans henti inn handklæðinu eftir sex leiðin- legar lotur þar sem Tyson sýndi lítið annað en það að hann kann enn að beita fantabrögðum. Svo var þetta grey tekið í viðtal: „hefur ekki lengur sigurviljann“ og „ætlar að sinna fjölskyldunni meira“. Tuddinn orðinn ljúfur sem lamb. Ég var bæði svekktur yfir því hvað hann gat lítið og sáttur að sjá að hann hefur loksins kyngt stoltinu, þó allt of seint sé. STUÐ MILLI STRÍÐA ODDUR ÁSTRÁÐSSON SÁ MIKE TYSON LJÚKA FERLI SÍNUM. Ljúfur sem lamb, urrandi tuddi M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eintak á 199kr? Sendu SMS skeytið BTL BF2V á númerið 1900 og þú gætir unnið. 12. hver vinnur. D3 Taktu þátt þú gætir unnið: Battlefield 2 • Battlefield Vietnam • Battlefield 1942 • Battlefield Secret Weapons of WWII Kippur af Coca Cola • DVD myndir • Aðra tölvuleiki og margt fleira! Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Ó, já! Jógúrt í morgunmat! Það er eitthvað mjög undarlegt á seyði! Þú hefur líka tekið eftir því? Steikurnar, hengirúmið, spa-baðið.... af hverju ert þú að kaupa þessa hluti? Ég?? Ég hélt að þú hefðir keypt þá! Ó, NEI... Þú heldur þó ekki að Palli standi á bak við þetta? Standi á bak við hvað? Af með lokið... ....og hrista! ...eða var það öfugt? Nei, ekki aftur! Ahhh.... enn einn sólríkur og full- kominn dagur! Pósturinn er kominn! Við skulum ná í hann!! Var enginn póstur? Neibb. Ég gæti vanist þessu „fljúga suður“ dæmi! JA HÁ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.