Fréttablaðið - 13.06.2005, Síða 81

Fréttablaðið - 13.06.2005, Síða 81
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500 Þakviðgerðir Nánari upplýsingar á www.pace.is Málarameistari sér um þakið Síðan 1991 NISSAN X-TRAIL N‡r X-TRAIL er gullfallegur bíll sem hæfir íslensku ve›urfari. Hann flytur heilu fjölskyldurnar um landi› flvert og endilangt og sk‡st í innanbæjaraksturinn af lipur› og snerpu. fiú situr hátt í Nissan X-Trail og me› einu handtaki skiptir›u yfir í fjórhjóladrif ef fær› flyngist. Elegance 2,0 - Sjálfskiptur - 140 hestöfl - 5 dyra Sport 2,0 - Sjálfskiptur - 140 hestöfl - 5 dyra F í t o n / S Í A F I 0 1 3 1 0 4 www.nissan.is Nánari uppl‡singar um Nissan bílaflotann hjá Ingvari Helgasyni fær›u á www.nissan.is Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00 Hrísm‡ri 2a 800 Selfossi 482-3100 Eyrarlandi 1 530 Hvammstanga 451-2230 Sæmundargötu 3 550 Sau›árkróki 453-5141 Holtsgötu 52 260 Njar›vík 421-8808 Dalbraut 2b 300 Akranesi 431-1376 Víkurbraut 4 780 Höfn í Hornafir›i 478-1990 Bú›areyri 33 730 Rey›arfjör›ur 474-1453 Óseyri 5 603 Akureyri 461-2960 Sindragötu 3 400 Ísafjör›ur 456-4540 X-Trail Elegance Tilbo›sver›: 2.990.000 kr. 31.344 kr. á mán.* X-Trail Sport Tilbo›sver›: 2.790.000 kr. 29.257 á mán.* SKIPT_um væntingar MAÍTILBO‹ Á NISSAN HJÁ INGVARI HELGASYNI *Bílasamningur Glitnis me› 30% innborgun og eftirstö›var í 84 mánu›i. Nafli alheimsins Um nokkurt skeið hefur mann-kynið þvargað um það, hvar nafla alheimsins sé að finna. Borgir eins og Babílon, Aþena, Róm, London, París og nú síðast New York og Tókíó hafa allar gert tilkall til þess að teljast miðpunktur jarðar- innar. Líklegt má þó telja að líkt og heimsálfurnar sjálfar og jafnvel pól- arnir sé naflinn á sífelldri hreyfingu um jarðarkringluna, en um þessar mundir benda flest teikn til þess að hann sé að finna á Íslandi, sennilega á Reykjavíkursvæðinu. SEM dæmi um hversu nærri Ís- landi miðja veraldar hefur færst má nefna að sjálfur David Beckham (ásamt kryddkvendinu Viktoríu) var almennt talinn dveljast í höfuðborg Íslands um helgina. Þessi Íslands- heimsókn kappans vakti gífurlega athygli og varð tilefni umfangsmik- illar fjölmiðlaumfjöllunar. Erindi Davíðs Beckhams til Íslands var þó ekki að heilsa upp á nafna sinn Oddsson og þiggja úr hendi hans sendiherraembætti, heldur kom Beckham til þess að vera viðstaddur tískusýningu í skautahöll ásamt sér- völdum mikilmennum og mikil- kvendum. ÞAÐ er mál manna að jafnglæsileg uppákoma hafi ekki verið haldin á Íslandi síðan nærbuxnafyrirtækið Joe Boxer hélt dýrðlegt samkvæmi í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli. Það skorti þó upp á glæsileika nær- buxnasýningarinnar á sínum tíma að David Beckham var ekki meðal boðsgesta, en það stafaði af því að þá var Davíð Beckham hvorki orð- inn kynþroska né búinn að fága færni sína í aukaspyrnum. ÞAÐ var aðeins eitt sem skyggði á komu Beckham-hjónanna til Reykja- víkur um helgina, en það var sú staðreynd að þau komu ekki. Það er þó huggun harmi gegn að hið forna kyntröll Clint Eastwood mun vera væntanlegur hingað í sumar með vini sínum Stefáni Spielberg og hafa þeir í hyggju að rifja hér upp ljúfar minningar Bandaríkjamanna úr Síð- ari heimsstyrjöldinni og festa á filmu. Ennfremur eru uppi um það spásagnir hjá Gyðingum að koma Messíasar sé loksins í nánd og muni hann koma frá Íslandi en ekki Galí- leu (sem er fremur óspennandi landssvæði). Það er því ekki að undra að helsta afþreying Íslend- inga nú um stundir skuli vera ofur- lítið sjálfumglöð naflaskoðun. BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.