Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,80 66,12
119,79 120,37
79,49 79,93
10,67 10,73
10,03 10,09
8,48 8,53
0,61 0,61
96,28 96,86
GENGI GJALDMIÐLA 23.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
4 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
Tony Blair ávarpaði fulltrúa á Evrópuþinginu í gær:
Evrópusambandi› breytist e›a deyi
EVRÓPUSAMBANDIÐ Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, brýndi
fyrir Evrópuþingmönnum í gær
nauðsyn þess að Evrópusamband-
ið tæki róttækum breytingum,
ella myndi það líða undir lok.
Bretar taka við forsæti ráð-
herraráðs Evrópusambandsins
um mánaðamótin en í gær kynnti
Blair fulltrúum á Evrópuþinginu
áherslur ríkisstjórnar sinnar í
þessum efnum. Hann sagði að
sambandið yrði að taka róttækum
breytingum ef það ætti ekki að
bregðast tilgangi sínum fullkom-
lega.
Blair sagði enn fremur að svo
virtist sem aðildarríkin gerðu sér
ekki fulla grein fyrir samkeppn-
inni sem að þeim steðjaði frá ríkj-
um á borð við Kína og Indland,
ESB gæti ekki barist gegn hnatt-
væðingunni heldur yrði það að
taka þátt í henni af fullum krafti.
Jean-Claude Juncker, forsætis-
ráðherra Lúxemborgar sem fer
nú með forsæti ESB, hefur kennt
Blair um að engin sátt hafi náðst
um fjárlög sambandsins næstu
árin. Blair vísaði hins vegar ásök-
ununum á bug í gær og sagði að
það væri einfaldlega of seint að
bíða til ársins 2014 með að endur-
skoða landbúnaðarstefnu ESB. Í
dag renna um 40 prósent útgjalda
sambandsins í þann málaflokk. ■
FJÁRLÖG Ríkisendurskoðun leggur
til í nýrri skýrslu um framkvæmd
fjárlaga að fjármálaráðuneytið
stöðvi greiðslur til stofnana sem
fari yfir fjögurra prósenta mörk-
in í fjárheimildum þar til gripið
hafi verið til viðeigandi ráðstaf-
ana.
Geir Haarde fjármálaráðherra
telur meinbugi á að frysta launa-
greiðslur enda þurfi að breyta
ákvæðum í lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins til
að það sé mögulegt. „Ég held að
þetta sé ekki raunhæft í því um-
hverfi sem við búum við. For-
stöðumönnunum ber að fara eftir
reglugerðum og halda sig innan
fjárheimilda. Geri þeir það ekki
getur því lyktað með áminningu
eða brottvikningu ef sakir eru
miklar,“ segir Geir.
Ríkisendurskoðun gefur til
kynna að forstöðumenn ríkisstofn-
ana starfi oft í góðri trú. Stundum
hafi þeir lagt til sparnaðaraðgerð-
ir en ráðuneytin beðið þá að
staldra við. „Þetta eigi sérstaklega
við þegar um sé að ræða skerð-
iðngu á þjónustu sem geti verið
pólítískt séð erfitt að réttlæta,“
eins og segir í skýrslunni. Rekstr-
arhalli stofnana hefur verið fjár-
magnaður úr ríkissjóði með
greiðslu launa og annars kostnað-
ar án þess að nauðsynlegar heim-
ildir til slíkra útgjalda væru til
staðar. Orðrétt segir: „Forstöðu-
menn hafa ýmist verið lattir til
þess að grípa til sparnaðarráðstaf-
ana, sérstaklega ef sýnt þykir að
þeim fylgi óþægilegur samdráttur
í starfsemi, eða þeir ekki verið
áminntir með þeim hætti sem lög
og reglugerðir gera ráð fyrir hlíti
þeir ekki fjárlögum“.
Geir Haarde fjármálaráðherra
segist ekki taka undir að þetta sé
raunin. „En ef svo er þá er það
vítavert.“
Geir er ekki sannfærður um að
auka eigi eftirlitshlutverk fjár-
laganefndar, enda gegni Ríkis-
endurskoðun slíku hlutverki fyrir
þingið. Fjármálaráðuneytið hafi
auk þess yfirumsjón með fram-
kvæmd fjárlaganna og hvert
ráðuneyti fyrir sig. „Það er gott að
allir leggi sig fram um að bæta
ástandið. Én ég hlýt að taka fram
að ástandið hefur batnað mjög
mikið á undanförnum árum.
Færri stofnanir fara fram úr
heimildum og upphæðirnar eru
lægri en áður var. Það má hins
vegar beita þeim úrræðum sem til
eru og jafnvel fyrr en gert er,“
segir Geir Haarde.
johannh@frettabladid.is
ÁFORMIN ÚTLISTUÐ Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ávarpaði Evrópuþingmenn á
fundi þeirra í Brussel í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Eldsvoði við Grettisgötu:
Húsi› er
tali› ón‡tt
BRUNI Eldur kom upp í húsi við
Grettisgötu 54b í fyrrinótt og var
alelda þegar slökkviliðsmenn
komu að því klukkan rúmlega eitt.
Verið var að endurgera húsið
og því bjó enginn í því, að sögn
lögreglunnar í Reykjavík. Húsið
er talið ónýtt.
Um er að ræða tvílyft 80 fer-
metra timburhús sem stendur ör-
lítið frá öðrum húsum. Því var
ekki talin hætta á að eldurinn
breiddist út en vindátt var auk
þess hagstæð.
Greiðlega gekk að slökkva eld-
inn en slökkvistarfi var lokið um
klukkan fjögur.
Ekki er vitað hver tildrög brun-
ans eru en málið er í rannsókn.
- jse
BRÁÐINN FROSTPINNI Tilraun til
að gera stærsta frostpinna í
heimi mistókst heldur hrapallega
í miðborg New York í gær. Frost-
pinninn, sem var gerður úr
sautján og hálfu tonni af kíví- og
jarðarberjasafa, bráðnaði með
þeim afleiðingum að rýma þurfti
götur í nágrenninu á meðan
slökkviliðsmenn hreinsuðu upp
klístrið.
GRETTISGATA 54B Húsið er líklega ónýtt en
lögreglan segir að allt hafi brunnið sem
brunnið gat.
Huldufélagið í Icelandic:
Skylt a› gefa
uppl‡singar
VIÐSKIPTI Staðfest var með tilkynn-
ingu til Kauphallar Íslands í gær
að Serafin Shipping eignaðist tæp
sex prósent í Icelandic Group við
sameiningu SH og Sjóvíkur. Eins
og kom fram í Fréttablaðinu fékk
Serafin hlutinn í skiptum fyrir
hlut í Sjóvík.
Strax eftir sameininguna skipti
Serafin hlutnum niður á tvö félög;
Fordace Limited og Deeks Associ-
ates. Virðist það hafa verið gert til
að þurfa ekki að gefa Kauphöll Ís-
lands ákveðnar upplýsingar sam-
kvæmt lögum. Flöggunarskylda
myndast þegar félag eignast
meira en fimm prósent í öðru
félagi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu var forsvars-
mönnum Serafin skylt að flagga í
Kauphöllinni eftir sameininguna.
Það var ekki gert. – bg
Óskemmtilegur afli:
Tundurdufl
kom í neti›
LANDHELGISGÆSLAN Sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar
fóru á björgunarbát út í Aðal-
björgu RE-5 út af
Þorlákshöfn á
m i ð v i k u d a g s -
morgun vegna
t o r k e n n i l e g s
hlutar sem kom í
dragnót skipsins.
Reyndist þetta
vera sprengju-
efnistunna úr
tundurdufli frá
síðari heims-
styrjöld.
Sérfræðingarnir fjarlægðu
sprengibúnaðinn úr tunnunni og
fóru því næst með hann í land.
Sprengiefninu var eytt í sand-
gryfjum milli Þorlákshafnar og
Eyrarbakka. - grs
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
25% afsláttur
af Vigor línuskautum
og Concept hjólum
12, 16, 20 og 24 tommu.
Hjól verð frá 5.990 kr.
Línuskautar verð frá 2.990 kr.
línuskautar
Hjól og
- mikið úrval
TUNDURDUFLIÐ
Sprengjan var
brennd í sand-
gryfjum.
VEÐRIÐ Í DAG
BANDARÍKIN
GEIR HAARDE FJÁRMÁLARÁÐHERRA Hann telur ekki raunhæft að frysta framllög til stofn-
ana sem fara fram úr fjárheimildum líkt og Ríkisendurskoðun leggur til.
Stjórnvöld sög› letja
menn til sparna›ar
Ríkisendursko›un gefur í skyn a› stjórnvöld sporni gegn sparna›ara›ger›um
sem reynst geti óflægilegar e›a pólítískt erfitt a› réttlæta. Vítavert ef sú er
raunin, segir fjármálará›herra.