Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 26
firátt fyrir a› flokkurinn hafi unni› markvisst undanfarin tíu ár a› endurskipulagningu samfélagsins, me› fla› a› markmi›i a› auka hagsæld og velfer›, hefur hann á sér ímynd afturhalds og sérhags- munapots. Sigur Ingibjargar í formannskjöri Samfylkingarinnar í síðasta mán- uði var óumdeildur og henni til sóma. Kjör hennar er sannfærandi endurkoma í stjórnmálin eftir tveggja ára hvíld og hér með er hún orðin óskoraður leiðtogi Sam- fylkingarinnar og má reikna með að hún beiti sér í samræmi við það. Össur skilaði til hennar flokki sem ekki er mikið annað en sund- urleit hjörð. Í formannstíð sinni náði hann að sameina flesta af vinstri vængnum undir merkjum fylkingarinnar en náði aldrei að búa til úr þessu gengi samhentan flokk. Málefnavinna þeirra á þingi hefur fram að þessu hvorki verið fugl né fiskur, hvert upphlaupið eftir annað til að elta athygli fjöl- miðla í von um að ná inn í frétta- tíma eða spjallþætti. Það verður því verkefni Ingi- bjargar að breyta þessum sundur- lausu fylkingum í heilsteyptan flokk sem veit fyrir hvað hann stendur og vinnur markvisst að þeim markmiðum. Við getum reiknað með því að sjá breyttar áherslur á þingi, þingflokkurinn mun líklegast verða mun samhent- ari og markvissari í vinnubrögð- um. Meiri óvissa er aftur á móti um málefnastarfið, framtíðarhóp- urinn stendur undir nafni – hann mun skila af sér í framtíðinni. En að öllu gríni slepptu, þar á Sam- fylkingin mikið og erfitt starf óunnið. Ná þarf lendingu í mörg- um erfiðum málum og verður það að teljast veikleiki landsfundar þeirra, að ekki skyldi tekið betur á fleiri málum þar. Staða Framsóknar Staða Framsóknarflokksins er erf- ið við þessar breyttu aðstæður. Ingibjörg ætlar sér augljóslega að sækja nær miðjunni og þrengja að Framsókn. Einnig er ljóst að íhald- ið mun ekki láta kyrrt liggja og sækja fast að miðjunni á næstu misserum til að verja sinn hlut þeim megin. Verkefni framsókn- armanna er að spyrja sig; fyrir hvað ætlum við að standa og hvernig tryggjum við stöðu okkar við þessar aðstæður? Á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins var unnin mikil málefnavinna og byggir flokkurinn á þeirri vinnu í komandi baráttu. Þar er af nógu að taka fyrir seinni hluta kjör- tímabilsins. Ímynd flokksins er hlutur sem þarf líka að skoða vel. Þrátt fyrir að flokkurinn hafi unnið mark- visst undanfarin tíu ár að endur- skipulagningu samfélagsins, með það að markmiði að auka hagsæld og velferð, hefur hann á sér ímynd afturhalds og sérhagsmunapots. Sú ímynd er í engu samræmi við verkin. Áherslur flokksins eru að opna markaði og auka samkeppni til að skapa samfélaginu auð sem megi síðan nota til að fjármagna öflugt velferðarkerfi. Okkur er ekki að takast að koma þessum boðskap til skila með trúverðug- um hætti. Staða ríkisstjórnarinnar Ríkisstjórnin er að vissu leyti fórnarlamb eigin árangurs. Svo mikið hefur áunnist undanfarin ár, að jafnvel góðæri er farið að líta út sem lélegur árangur. Að sumu leyti má segja að ríkis- stjórnin hafi áorkað það miklu af stefnumálum sínum að ástæða sé til þess að hún setji sér ný mark- mið fyrir seinni hluta kjörtíma- bilsins. Fyrsta verkefnið er að stokka upp skipan ráðuneyta eins og Halldór lagði til í ræðu sinni 17. júní. Meðal verkefna má nefna stofnun atvinnuvegaráðuneytis, innanríkisráðuneytis og tilfærslu einstakra málaflokka milli ráðu- neyta til að skapa skýrari verka- skiptingu. Einnig er skynsamlegt að skoða samhliða slíkri upp- stokkun verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Í framhaldi af þessari uppstokkun myndu flokk- arnir síðan stilla upp nýrri ríkis- stjórn, skipta út einstaka ráðherr- um, rótera öðrum og jafnvel skipta um málaflokka. Með slíka uppstokkun á borðinu og kraft- mikla ríkisstjórn hafa flokkarnir bætt stöðu sína fyrir komandi kosningar eftir tvö ár. Höfundur er félagi í Framsókn- arflokknum. Greinin birtist áður á timinn.is. 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR Breytt sta›a Framsóknar BERGÞÓR SKÚLASON TÖLVUNARFRÆÐINGUR UMRÆÐAN STAÐA FRAMSÓKN- ARFLOKKSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.