Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 16
24. júní 2005 FÖSTUDAGUR RJF-hópurinn til Texas: Sárnar a› fá ekki vi›brög› RÉTTINDABARÁTTA Stuðningsmenn Arons Pálma Ágústssonar, hinn svokallaði RJF-hópur, ætlar að halda út til Bandaríkjanna um miðjan júlí ef engin viðbrögð hafa þá borist frá Náðunar- og reynslu- lausnanefnd Texas-ríkis vegna erinda hópsins. Að sögn Einars S. Einarssonar, talsmanns hópsins, er tilgangurinn með ferðinni að reyna að fá Aron Pálma fluttan heim til Íslands. „Okkur hefur sárnað að fá engin viðbrögð við erindum okkar og finnst snautlegt að hundsa menn með þessum hætti. Okkur er því ekki annað fært en að knýja þarna dyra. Við höfum reynt að hafa samband út en enginn virðist vita neitt um erindi okkar,“ segir Einar. Hann segir að fyrst verði haldið til Washington þar sem gögn málsins liggi fyrir hjá ís- lenska sendiráðinu og í fram- haldinu verði haldið til Houston til þess að reyna að banka upp á hjá ríkisstjóra. „Þetta virðist vera okkar eina leið til að nálgast málið og þá förum við hana,“ segir hann. -hb Öldrun þjóða í Evrópu og Bandaríkjunum: Getur haft alvarleg áhrif á efnahagslíf RÁÐSTEFNA Öldrun þjóða í Evrópu og Bandaríkjunum getur komið af stað alvarlegum þrengingum í efnahagskerfinu ef ekki veður gripið til viðeigandi aðgerða. Þetta segir Gylfi Magnússon, for- seti viðskipta- og hagfræðideildar HÍ, en deildin stóð nýverið fyrir ráðstefnu um þessi mál í sam- starfi við Columbia-háskóla. Ástæður þessa eru að ef hlutfall ellilífeyrisþega miðað við fólk á vinnumarkaði er of hátt stendur þjóðarbúskapurinn varla undir því að greiða öllum lífeyri. „Við Íslendingar stöndum nokkuð vel í alþjóðlegum saman- burði,“ segir Gylfi, en þrátt fyrir það kemur vandinn við Ís- lendinga. Um er að ræða eins konar innfluttann vanda því það hefur sannarlega áhrif hér á landi ef helstu viðskiptalönd okkar lenda í vandræðum. „Við Íslendingar höfum miðlað talsverðu til umheimsins með þeim ráðstöfunum sem við höfum gripið til, sérstaklega í lífeyris- málum og með þeim sveigjanleika sem við höfum hvað varðar þátt- töku á vinnumarkaði.“ - AT Trukkur slítur vegum á vi› tíu flúsund fólksbíla Umfer› um fljó›vegi landsins hefur stóraukist sí›ustu ár. fiví mælist lítil aukning í flungaumfer› sem hlutfalli af almennri umfer›, flrátt fyrir a› hún hafi margfaldast eftir flví sem sjóflutningar hafa lagst af. SAMGÖNGUR Samhliða því að flutningar á sjó hafa aflagst smám saman undanfarin ár hafa þungaflutningar um þjóðvegi landsins margfaldast. Við- miðunartölur gera ráð fyrir því að vegslit af völdum þungs bíls á borð við vöruflutningabíl sé um það bil 10 þús- und sinnum meira en af völdum fólks- bíls. Friðleifur Ingi Brynjars- son, verkefna- stjóri í um- f e r ð a r d e i l d Vegagerðar- innar, segir umferð um þjóðvegi landsins hafa stóraukist síðustu ár og það kunni að fela þá aukningu sem orðið hefur í þungaflutningum. Hann segir mælingar sem gerðar voru í Hvalfirði árin 1990 og 2002 til dæmis einungis sýna hlutfalls- aukningu þungaumferðar upp á eitt prósentustig, úr um sjö í átta prósent af almennri umferð. Á fimmtán ára tímabili, frá 1989 til 2004 segir hann hins vegar um- ferð þungra bíla á hringveginum við gatnamót Akranesvegar hafa þrefaldast, farið úr um 95 í um 290 þunga bíla á sólarhring. „Þó svo að þungaumferð hafi stór- aukist, þá drukknar sú aukning í fólksbílaaukningunni,“ segir hann. Jón Rögnvaldsson vegamála- stjóri segir vegakemmdir af völdum þungaflutninga hafa verið skoðaðar en fátt sé nýtt í þeim efnum. „Flutningar hafa verið að færast af sjó upp á þjóðvega- kerfið síðustu fimmtán ár. Um síðustu áramót gerðist ekki annað en síðasta skipið hætti.“ Vegsig segir Jón hins vegar ekki skrifast á þungaflutinga, heldur skipti þar undirlag meira máli. Vegsig og mishæðóttir vegir séu því eilífðarvandamál að fást við. „Hitt er svo annað mál að þungir bílar brjóta vegakerfið heilmikið niður og við því verðum við bara að bregðast.“ olikr@frettabladid.is Battlefield 2 fylgir með BTnet áskriftum í verslunum BT* V16 extra • • 4 Mb/s hraði • • 3 póstföng Afnot af þráðlausum beini Mánaðaráskrift á tónlist.is Allt þetta á aðeins 3.890 kr. á mánuði allt innifalið m.v. 12 mánaða samning! extra light V16 • • Ótakmark að niðurhal ! light *Tilboð gildir á meðan birgðir endast og aðeins í verslunum BT. www.btnet.is. Official Battlefield 2 EA Server. Aðeins á www.BTnet.is! ÞUNGAFLUTNINGAR Á ÞJÓÐVEGI Vegagerðin gengur út frá því að meðalöxulþungi þungra bíla sé 10 tonn og meðalöxulþungi fólksbíla sé eitt tonn og því slíti einn þungur bíll vegum landsins á við 10.000 fólksbíla. AUKNING MEÐALUMFERÐAR Á FIMM ÁRA TÍMABILI: Hringvegurinn - Borgarfjarðarbraut Ár Fjöldi bíla á dag 2000 2.723 2001 3.040 2002 3.156 2003 3.317 2004 3.566 Umferðaraukning milli 2000 og 2004 er 30,95 prósent. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R JÓN RÖGNVALDSSON GYLFI MAGNÚSSON Deildarforseti við- skipta- og hagfræðideildar HÍ. EINAR S. EINARSSON Heldur til Texas til að reyna að fá Aron Pálma heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.