Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 39
Sigrí›ur og rá›herrarnir
27FÖSTUDAGUR 24. júní 2005
Gúlag okkar tíma?
Þessar mannlegu tilfinningar viðbjóðs
og andúðar hljóta að segja sína sögu
um siðferðilegt gildi þessarar athafnar
að drepa dýr. Ég hef meira að segja
pælt í hvort kynslóðir framtíðarinnar
eigi eftir að líta á sláturhús okkar tíma
með svipuðum augum og við lítum á
útrýmingarbúðir nasista. Ja, kannski
ekki alveg svo sterkt en eitthvað í
áttina þó.
Magnús Davíð Norðdahl – djofla-
eyjan.is
Lifi almenningssamgöngur
Á Íslandi ríkir sérkennilegur afturhalds-
og neikvæðnisandi gagnvart al-
menningssamgöngum þar sem þeim
er jafnan fundið allt til foráttu, stjórn-
málamenn, fjölmiðlar og kveinhornin
sameinast um að tína til öll rökin gegn
þeim: veðurfar, fjarlægðir, kostnað og
ímyndað þjóðareðli. En hér á ferðinni
samsvarandi rökstuðningur og hjá
gamalmenni sem bara ætlar ekki að fá
sér tölvu: Fólk er fast í eigin íhaldssemi
og rökin eru gervirök.
Ármann Jakobsson – murinn.is
Engar undanþágur
Sé það réttlætanlegt að taka fé með
valdi af skattgreiðendum og deila því
út til einhverra, þá er eðlilegt að það
séu lýðræðislega kjörnir valdhafar, eða
þá einhverjir sem lögum samkvæmt
starfa í þeirra umboði, sem taka slíka
ákvörðun. Það vald á ekki að færa til
fyrirtækja eða einstaklinga úti í bæ, þó
þau greiði háa skatta. Sá sem fær
skattaafslátt vegna framlaga sinna til
einhvers málefnis – með öðrum
orðum: Þarf að greiða lægra framlag til
ríkisins vegna framlags sem hann
ákvað að greiða einhverjum öðrum –
hefur þar með einfaldlega fengið út-
hlutunarvald yfir skattfé.
andriki.is
Varla normalt
Undirrituð er þó heppin að eiga sér
ferðafélaga í strætisvagninum, sem
kemur einnig úr Kragakjördæmi. Telst
þ.a.l. snarklikkaður, enda hefur hann
gert sér ferð með strætisvagni úr Set-
bergshverfi Hafnarfjarðar niður í Há-
skóla Íslands á skóladegi hverjum sl. 3
ár. Þetta telst varla normalt.
Dagbjört Hákonardóttir – politik.is
Frjálsleg athöfn
Í fyrradag var okkur boðið í brúðkaup
hjá fólki sem við kynntumst hérna,
stórri fjölskyldu frá Aþenu. Munkurinn
áðurnefndur framkvæmdi vígsluna við
annan mann í pínulítilli kirkju frá sext-
ándu öld hér uppi í fjallinu. Athöfnin
var furðu frjálsleg, gestirnir fóru í sígar-
ettupásur fyrir utan kirkjuna, það var
veitt raki, menn hlógu þegar klerkurinn
mismælti sig.
Egill Helgason – visir.is
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um mál-
efni líðandi stundar. Greinar og bréf
skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu
er tekið á móti efni sem sent er frá
Skoðanasíðunni á visir.is. Þar eru
nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður
hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi
eða í báðum miðlunum að hluta eða í
heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
M Y N D U P P L A U S N 1 2 8 0 X 9 6 0 P I X L A R • Ú T V A R P • M P 3 S P I L A R I • S T Æ K K A N L E G T M I N N I ( 3 2 M B M I N N I F Y L G I R ) • R A D D U P P T A K A • J A V A
X H T M L N E T V A F R I • K A L L K E R F I • M M S • B L U E T O O T H H Ó P L E I K I R • fi R I G G J A B A N D A • U S B - T E N G I N G • T Ö L V U P Ó S T U R • V E S K I • H Á T A L A R I
www.nokia.com
Te
n
g
in
g
o
g
s
am
h
æ
f›
u
r
b
ú
n
a›
u
r
er
n
au
›
sy
n
le
g
u
r
ti
l a
›
n
o
ta
s
u
m
a
va
lk
o
st
i s
ím
an
s.
H
ö
fu
n
d
ar
ré
tt
u
r
©
2
0
0
5
N
o
ki
a.
Ö
ll
ré
tt
in
d
i á
sk
ili
n
. N
o
ki
a,
N
o
ki
a
Co
n
n
ec
ti
n
g
P
eo
p
le
o
g
P
o
p
-P
o
rt
e
ru
v
ö
ru
m
er
ki
e
›
a
sk
rá
›
v
ö
ru
m
er
ki
s
em
t
ilh
ey
ra
N
o
ki
a
Co
rp
o
ra
ti
o
n
. Ö
n
n
u
r
vö
ru
h
ei
ti
o
g
h
ei
ti
f
yr
ir
tæ
kj
a
g
et
a
ve
ri
›
v
ö
ru
m
er
ki
e
›
a
vö
ru
h
ei
ti
v
i›
ko
m
an
d
i e
ig
en
d
a.
U
p
p
l‡
si
n
g
ar
g
æ
tu
b
re
ys
t
án
f
yr
ir
va
ra
. L
jó
sm
yn
d
: H
en
ri
k
B
o
n
n
ev
ie
r/
ag
en
tm
o
lly
.c
o
m
Ger›u eigin stuttmyndir
Me› Kvikmyndaleikstjóranum b‡r› flú au›veldlega til eigin
stuttmyndir. Kvikmynda›u allt a› einnar klukkustundar langt efni,
klipptu til og bættu vi› brellum. Snjallsíminn
Nokia 3230 er búinn n‡justu tækni, stórum TFT-
skjá og 1,3 megapixla myndavél.
AF NETINU
Góð vinkona, sem lætur ekki
hugsa fyrir sig, sagði frá því sem
fyrir augu bar í ferð að Gullfossi.
Þar á meðal var bronsstytta af
konunni sem bjargaði fossinum
frá eyðileggingu virkjunarsinna.
Henni sem hét að varpa sér í
fossinn ef ekki yrði hætt við að
virkja þetta mesta djásn íslenskra
fossa. Sigríður í Brattholti var til-
búin að fórna lífi sínu til að vekja
þjóðina af sinnuleysisdvalanum
og sjá alvöru málsins. Hún vildi
fórna lífi sínu, dýrmætustu eign
sinni, fyrir land sitt og þjóð. Virkj-
unarsinnar létu sér fátt um finn-
ast, svo líklega hefði hún látið
verða af því, en athyglin sem við-
brögð hennar vöktu, urðu fyrir-
hyggjuleysinu ofviða. Sigríður
bjargaði Gullfossi, en þegar kom
að ómetanlegu víðerni norðan
Vatnajökuls, vantaði þá málsvara.
Það varði stutt því þegar fólk átt-
aði sig á hve aðförin að landinu
var skelfileg, og án nokkurar fyr-
irhyggju, varð hugarfarsbreyting.
Meirihluti þjóðarinnar varð
andsnúin skemmdarverkunum á
Kárahnjúkasvæðinu og stóriðju-
framkvæmdunum við Reyðar-
fjörð.
Á sama tíma og hugsandi ráða-
menn annarra þjóða hafa áttað sig
á mikilvægi heilnæms og óspillts
umhverfis, hamast þeir íslensku á
náttúru landsins sem mest þeir
mega. Þeim er ekkert heilagt í
þessum efnum og eru því landi og
þjóð stórhættulegir í bókstaflegri
merkingu. Þeir leggja fagurt
landslag í auðn, menga jörðina,
sjóinn, vötnin, árnar og himin-
geiminn. Umhugsunarverð er
veruleikafirring valdamestu ráð-
herra okkar, þegar nýjustu rann-
sóknir sérfræðinga benda til ís-
aldar eftir 200 ár, vegna eyðingar
ósonlagsins. En eyðing þess hefur
áhrif á Golfstrauminn. Nokkur
árangur hefur náðst með mót-
mælum prýðis fólks, sem lagt
hefur mikið á sig í kostnaði og
fyrirhöfn. Ráðstefnu innlendra og
útlendra óvina náttúrulegs um-
hverfis, samtökum mengunar-
sinna, var mótmælt á klaufalegan
en fórnfúsan hátt í síðustu viku. Ég
hefði kosið að sjá hreint íslenskt
vatn í flöskunum, því þarna var
ágætt tilefni til þess að ausa menn
vatni. Þvo af þeim óhreina hugun-
arháttinn með hreinni náttúruauð-
lind. Manneskjurnar þrjár, voru til
í að fórna sjálfum sér fyrir mál-
staðinn, en skyrslettuaðferðin og
sambærilegur kjánaskapur er
gengin sér til húðar. En hugurinn á
bak við er góður, hann þakka ég og
virði tilganginn.
Það er ekki öllum gefið að færa
fórnir sem sæmd er að og verður
að leita til hinna almennu borgara
að finna slíka. Þegar hins vegar er
horft til fórna valdamestu ráð-
herranna þarf að staldra við. Segja
má að stórmannlegt sé að færa svo
mannskemmandi fórnir, að trú-
verðugleiki geranda glatist. En
stórmennskan er lævi blandin,
þegar fórnin er á kostnað annarra.
Þegar allri þjóðinni og komandi
kynslóðum blæðir fyrir. Hluti
þjóðarinnar er að vísu neyddur til
daglegra fórna, vegna undir
liggjandi siðleysis og býr því við
þungbært misrétti. Stefnu stjórn-
valda er áfátt í mörgu, en í um-
hverfismálum er hún snarvitlaus
og ógnvekjandi. ■
ALBERT JENSEN
TRÉSMIÐUR
UMRÆÐAN
BORGARALEG
ÓHLÝÐNI