Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.06.2005, Blaðsíða 10
VERUM VINIR Þótt mannfólkið umgangist hvert annað á stundum af fjandskap láta dýrin það ekki stöðva sig í vináttu sinni. Tík- in Sadie og hesturinn Paige eru til dæmis perluvinir en þau búa á bóndabæ í Kanada. 10 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR SÞ gagnrýna Bandaríkjastjórn: Segjast vita af pyntingum GENF, AP Sérfræðingar í mannrétt- indamálum á vegum Sameinuðu þjóðanna gagnrýna Bandaríkja- stjórn harðlega fyrir að hleypa þeim ekki inn í fangelsið í Guant- anamo-flóa á Kúbu. Sérfræðing- arnir segjast nær fullvissir um að þar séu fangar pyntaðir. Þetta kom fram á fundi sem mannrétt- indastofnun SÞ hélt í Genf í gær. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú reynt síðan snemma árs 2002 án árangurs að fá leyfi Bandaríkja- stjórnar til að senda mannrétt- indafulltrúa að rannsaka fangels- ið. Þeir hafa margsinnis ítrekað þá beiðni sína og segjast hafa heyrt frá áreiðanlegum heim- ildarmönnum að í fangelsinu séu stundaðar pyntingar, illgjörn meðferð á föngum og mannrétt- indi séu ítrekað þverbrotin. Einnig segjast þeir hafa heyrt af svipuðum mannréttindabrotum í bandarískum fangelsum í Írak og Afganistan. Austurríkismaðurinn Manfred Nowak sem er sérfræðingur um pyntingar segir þó að ekki sé hægt að dæma um sekt Bandaríkja- stjórnar í málinu nema mannrétt- indafulltrúar fái sjálfir að skoða aðstæður en tekur einnig fram að honum þyki líta út fyrir að verið sé að reyna að fela eitthvað mis- jafnt. ■ Geymir og ASÍ: Funda› um ágreiningsmál KJARABARÁTTA Forsvarsmenn Geymis ehf. og ASÍ funduðu í gær vegna máls pólska verkafólksins sem dvalið hefur hér á landi við störf að undanförnu og telur sig hlunnfarið. Halldór Grönvöld, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, segir að fundurinn hafi verið gagnlegur og nú sé unnið úr þeim gögnum sem lögð voru fram á fundinum. „Þeir lögðu fram gögn þar sem fram kom að þeir höfðu greitt vörsluskatta auk þess sem þeir lögðu fram ýmislegt varðandi þá afstöðu sem þeir hafa til þeirra launa sem fólkið á rétt á að fá. Við óskuðum eftir að gert yrði upp við fólkið á grundvelli okkar útreikn- inga en við ætlum að kynna okkur þeirra gögn,“ sagði Halldór. Eiríkur Elís Þorláksson, lög- maður Geymis, sagði að hann hefði komið gögnum frá umbjóð- anda sínum á framfæri, þar á meðal forsendum fyrir launa- útreikningum. „Okkar hugur stendur til að leysa þetta mál á sem bestan hátt fyrir alla aðila,“ sagði Eiríkur. -hb Sektir gætu fari› yfir 200 milljónir Vanskil vir›isaukaskatts og opinberra gjalda átta fyrirtækja sem tíu einstakling- ar eru ákær›ir fyrir nema yfir 104 milljónum króna. A› auki eru tveir úr hópn- um ákær›ir fyrir heimildarlausan yfirdrátt upp á tæpar 24 milljónir króna. DÓMSMÁL Tíu sæta ákærum í mál- um vegna fyrirtækja sem eru í eigu feðganna Sveins R. Eyjólfs- sonar og Eyjólfs Sveinssonar, eða þeim tengd. Kærurnar varða van- skil á virðisaukaskatti og opin- berum gjöldum, en að auki eru Eyjólfur og Svavar Ásbjörnsson, fyrrum fjármálastjóri Frétta- blaðsins ehf. og Vísis.is ehf. sak- aðir um umboðssvik. Þeir eru sagðir hafa millifært á tímabilinu 29. apríl til 27. maí 2002 tæpar 25 milljónir af reikningi Vísis.is yfir á reikning Fréttablaðsins ehf. þannig að heimildarlaus yfirdrátt- ur nam tæpum 24 milljónum króna. Alls nema vanskil á virðisauka- skatti og opinberum gjöldum rúmum 104 milljónum króna, en þau eru tengd rekstri fyrirtækj- anna Fréttablaðsins ehf., Vísis.is ehf., Dagsprents hf., Markhúss- ins-markaðsstofu ehf., Nota Bene hf., Info skiltagerðar ehf., Póst- flutninga ehf. og ÍP-prentþjónust- unnar ehf. Ákæru sæta fram- kvæmdastjórar og stjórnarmenn sem komu að rekstri fyrirtækj- anna, en málið höfðar fyrir hönd Ríkislögreglustjóra Jón H. Snorrason saksóknari, yfirmaður efnahagsbrotadeildar. Í yfirlýsingu sem lögmenn Sveins R. Eyjólfssonar og Eyjólfs Sveinssonar sendu út í gær segir að mikilvægt sé að mál sem teng- ist þeim feðgum „og hafi í 3 ár verið til umfjöllunar hjá opin- berum aðilum, með tilheyrandi fjölmiðlaathygli, séu nú loksins komin til meðferðar“. Þar segir að refsiábyrgð vegna vörslu- skatta sé að mörgu leyti gölluð og ekki rökrétt að sama refsiábyrgð fylgi því að greiða slíka skatta einum eða nokkrum dögum eftir gjalddaga og að greiða þá alls ekki. Lög kveða á um að sekt skuli nema að minnsta kosti tvöföldum vanskilum. „Þannig stendur á, og það mun koma fram við rekstur þessa dómsmáls, að langstærstur hluti þeirra fjárhæða sem til- greindar eru í ákæruskjali og tengjast fyrirtækjum skjólstæð- inga okkar hefur þegar verið greiddur,“ segir í yfirlýsingunni. Þá kemur fram að Sveinn og Eyjólfur telji að í ljós muni koma að í greiðsluerfiðleikum fyrir- tækja þeirra hafi verið fullur vilji til að fara að lögum. Áréttað er að þeir feðgar tengist ekki eigna- böndum þremur fyrirtækjanna sem nefnd eru í ákæru Ríkis- lögreglustjóra. -óká MANFRED NOWAK Sérfræðingur Samein- uðu þjóðanna um pyntingar segir að það líti út eins og Bandaríkjastjórn reyni að fela eitthvað misjafnt um meðferð fanga í fangelsinu í Guantanamo-flóa. Danska ríkisútvarpið: Hlutleysi› rannsaka› DANMÖRK Danska ríkisstjórnin ætlar að verja rúmum fimmtíu milljónum íslenskra króna í að rannsaka hvort fréttastofur danska ríkisútvarpsins rísi undir ábyrgð sinni að flytja „fjölbreytt- ar, hlutlausar og óháðar fréttir“. Brian Mikkelsen menntamála- ráðherra sagði í samtali við Jyllandsposten að þar sem ríkis- útvarpið fengi yfir 30 milljarða ís- lenskra króna á ári væri nauðsyn- legt að fréttaflutningur þess væri hafinn yfir allan vafa. Hann vísaði því hins vegar al- gjörlega á bug ásökunum stjórn- arandstæðinga um að rannsóknin væri átylla til að reka fréttamenn sem hefðu aðrar stjórnmálaskoð- anir en ríkisstjórnin. Einungis væri verið að styrkja stöðu stofnunarinnar. -shg Viðhorfskönnun Gallups: Seltirningar ánæg›ir SVEITARSTJÓRNARMÁL Seltirningar eru mjög ánægðir með þá þjón- ustu sem bærinn veitir, sam- kvæmt nýrri viðhorfskönnunn Gallups. Í könnuninni kemur fram að 85 prósent aðspurðra telja þjónustu bæjarins í heild vera góða og níu af hverjum tíu eru ánægðir með viðmót og framkomu bæjarstarfs- manna. Leikskólar bæjarins fá góða umsögn bæjarbúa en 95 pró- sent aðspurðra segja þá veita góða þjónustu. Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri er afar ánægður með niðurstöðurnar og segir þær viðurkenningu á því að bærinn vinni vel en einnig séu þær hvatn- ing til að gera enn betur í framtíð- inni. -jse                !"#$%%&     ' (       (   ) * +,,,,,,,, -        .$ / -  . % / -  . % / 0 $"1%%%2 3  3             *  '4   , ' *    5  ' 3  6  ')   * 4  * '     7 '  * 8  )   90  :4  "  & ;#&11  *  5 * $ (  '   2  * * *      !" #$$ < 3  )        %!  " %   &'(    !  ) $$$   * +"  ,        * -   .  %   ! /    .     #$$  000  1  2    /   = >  ? +;11@$AA  ( '+;11@$%% *'BC DDD #  Misnotaði debetkort: Kæra dróst um tvö ár DÓMSTÓLAR 27 ára gömul kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd til tveggja mánaða fangels- isvistar fyrir að misnota debet- reikning sumarið 2002 þannig að innistæðulaus skuldfærsla nam rúmri hálfri milljón. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár, meðal annars vegna drátt- ar sem varð á útgáfu ákæru, en hún var ekki gefin út fyrr en 12. apríl sl. Konan, sem var 25 ára þegar brotin voru framin, notaði kortið 178 sinnum án inneignar á tíma- bilinu frá 24. júní til 10. ágúst 2002. -óká Í SETUSTOFUNNI Pólsku verkamennirnir á heimili sínu á Höfða. SVEINN R. EYJÓLFSSON Lögmenn Sveins R. Eyjólfssonar, sem hér að ofan mætir í Héraðs- dóm Reykjavíkur í gær, og Eyjólfs Sveinssonar sendu í gær frá sér yfirlýsingu um að þeir feðgarnir myndu ekki tjá sig um mál á hendur þeim meðan það væri fyrir dómi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R MEINT VANSKIL Á VIRÐIS- AUKASKATTI OG OPINBERUM GJÖLDUM ÁRIN 2000 TIL 2003 Fyrirtæki Upphæð Nota Bene hf. 32.794.994 Markhúsið-markaðsstofa ehf. 23.859.984 Info skiltagerð ehf. 14.648.517 Fréttablaðið ehf. 12.852.397 ÍP-prentþjónusta ehf. 6.864.519 Vísir.is ehf. 5.709.837 Póstflutningar ehf. 5.398.195 Dagsprent hf. 2.021.617 Alls: 104.150.060
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.