Fréttablaðið - 24.06.2005, Page 28
Sæmundur Kristjánsson á
Næstu grösum segir leyni-
vopnið felast í límónum.
Mörgum grænmetisætum finnst
þær vera útundan þegar grillað
er. Grill vill oft snúast mikið um
kjöt eða fisk og minna um það
sem með er haft eða sérstaka
grænmetisrétti. Sæmundur Krist-
jánsson, veitingamaður á græn-
metisveitingastaðnum Á næstu
grösum, hefur grillað grænmetis-
rétti í mörg ár með afar bragð-
góðum árangri. Hann segir leyni-
vopnið vera límónur.“ Mér finnst
nauðsynlegt, hvað sem er verið að
gera á grillinu, að kreista
límónusafa yfir það sem var grill-
að. Límónan æsir upp allt bragðið
af grillmatnum, hvort sem um
kjöt, fisk eða grænmeti er að
ræða. Það er hægt að grilla hvað
sem er. Smátt saxað grænmeti er
til dæmis hægt að setja í álpappír
og setja marineringu, hvítlauk
eða olíu, salt og pipar á og skella
því á grillið. Hvítlauk er gott að
grilla í álpappír með olíu, salti og
pipar og þá verður hann dísætur
og spýtist út úr hýðinu. Bæði er
hægt að nota hann þannig í salöt
og marineringar en hann er líka
mjög góður einn og sér.“ Sæ-
mundur gefur hér uppskriftir að
þríréttaðri grænmetisgrillveislu.
Döðlur
Döðlur eru ríkar af próteini, vítamínum og trefjum og eru góðar einar og
sér eða með mygluostum. Til dæmis er hægt að skera þær í tvennt, setja
í þær gráðost og bera fram sem fingurfæði í veislum. [ ]
S í m i : 5 6 8 6 4 4 0 | b u s a h o l d @ b u s a h o l d . i s
Stá lpottasett á góðu verði
Brúðhjónal istar og gjafakort
Erum flutt að Skólavörðustíg 16 í stærra og glæsilegra
húsnæði. Margar nýjar vörur og tilboð. *tilbúnir réttir
beint í ofninn, *ekta ítalskur ís og margt fleira.
Verið velkomin á Skólavörðustíginn
Yggdrasill
Lífrænt ræktaðar vörur frá 1986 • S: 562 4082
Grænmeti er gott á grillið
Sæmundur Kristjánsson grillar
af lífi og sál og límónurnar
örugglega ekki fjarri seilingar.
Gaman er að breyta til og
blanda grænmeti út í snúðana.
Nýbakaðir snúðar eru alltaf ljúf-
fengir og þegar búið er að blanda
smátt söxuðu grænmeti út í eru
þeir líka orðnir hollustufæði.
Þetta veit Sigríður Hafstað, hús-
freyja í Vík í Skagafirði, og
myndin sem hér birtist er tekin
við eldhúsborðið hjá henni.
6 dl mjólk
2 msk. hunang
1/2 dl olía
1 tsk. salt
1 kg hveiti
1 bréf þurrger
4 sneiðar skinka
1 græn paprika
1 rauð paprika
1/2 blaðlaukur
Smá mexíkó-ostur eða annar ostur
Mjólkin, hunangið og saltið er
yljað. Þurrefninu er blandað
saman og deigið hnoðað létt.
Látið lyfta sér í um hálftíma og á
meðan er grænmetið, skinkan og
osturinn skorið smátt. Síðan er
deigið flatt út, smurt með smá
smjöri og góðmetinu dreift yfir.
Rúllað upp og skorið í sneiðar
sem látnar eru á plötu. Breitt
yfir plötuna og snúðarnir látnir
lyfta sér í um 20 mínútur á
volgum stað áður en þeir eru
bakaðir við 200 gráðu hita þar til
þeir eru gullin brúnir. ■
Litglaðir snúðar
UPPSKRIFTIR
Grilluð fyllt paprika
með gorgonzola-osti fyrir fjóra
2 meðalstórar rauðar paprikur,
skornar í tvennt og fræhreinsaðar
3 tómatar, skornir í teninga
1 msk. gróft saxað kapers
2 msk. gróft saxaðar ólífur
1/2 fínt saxaður rauðlaukur
2 kvistar fínt skorið basillauf
4 sneiðar gorgonzola-ostur (eftir smekk)
1/2 lime til bragðauka
Jómfrúarólífuolía, salt og pipar
Aðferð
Öllu nema paprikunum og ostinum er
blandað saman í skál og smakkað til.
Þetta er síðan sett í paprikuna og ost-
inum er komið fyrir í miðjunni. Paprikan
er sett á meðalheitt grillið og látin vera
þar góða stund, helst með hjálminn yfir.
Jurtakryddaðir portobello-
sveppir í sveitabrauði –
„Portobello-borgari“ fyrir fjóra
8 meðalstórir portobello-sveppir
Marinering:
1/4 búnt ítölsk steinselja
1/4 búnt kóríander
4 hvítlauksgeirar
2 msk. dijon-sinnep
1cm, fínt saxað engifer
4 msk. jómfrúarolía
1/2 lime, kreist yfir í blálokin þegar
sveppirnir eru eldaðir
Salt og pipar
Aðferð
Allt sett í
blandara nema
sveppirnir og
maukað vel.
Blandan er sett
á sveppina og
þeir svo grillað-
ir á góðum hita
og lime kreist
yfir í lokin og
kryddað með
salti og pipar.
Meðlæti og sveitabrauð
1 sæt kartafla í 1/2 cm þykkum sneiðum
1 eggaldin í 1/2 cm þykkum sneiðum
1 rauðlaukur í sneiðum
4 tómatar, skornir í tvennt
1 hringlótt brauð sem er þokkalega þétt
í sér skorið í 8 sneiðar
Aðferð
Allt penslað með ólífuolíu og grillað á
mjög heitu grilli báðum megin. Látið
jafna sig á efri grind á grillinu góða
stund.
Brauðið er penslað með olíu eða marin-
eringunni og grillað síðast við góðan
hita, báðum megin.
Gott er að smyrja brauðið með dijon-
sinnepi og sýrðum rjóma eftir smekk og
svo er raðað saman sætum kartöflum,
eggaldini, tómötum, sveppum og rauð-
lauk á brauðið og önnur sneið jafnvel
sett ofan á.
Kanilbragðbættir bananar
og perur í skjóðu fyrir fjóra
2 perur, fræhreinsaðar og skrældar
skornar í 1/2 cm sneiðar
2 bananar, afhýddir og skornir í 1/2 cm
sneiðar
4 ferskjur, skornar í tvennt og skrældar
Safi úr hálfri appelsínu
Safi úr hálfri límónu
1/4 tsk. kanilldufti stráð yfir eða 1/2
kanilstöng sett í
30 g smjör sett með ávöxtunum
2 tsk. appelsínumarmelaði
Aðferð
Búið til tvöfalt þykkt umslag úr álpappír
40x30 cm sem er lokað í þrjá kanta.
Fyllið umslagið með ávöxtunum og
lokið vel og vandlega. Setjið síðan á vel
heitt grillið þangað til umslagið er farið
að bólgna en þá ætti eftirrétturinn að
vera tilbúinn. Skerið eina góða rauf í og
snæðið! Verði ykkur að góðu!
Það er alltaf skemmtilegt að rekast á
gæðavöru sem er á góðu verði. Það
verður þó að teljast einstakt að geta
keypt hálfs lítra dós af hinum vel-
þekkta danska Harboe Premium
Lager bjór á aðeins 148 kr. sem gerir
Harboe að einum ódýrasta bjór Vín-
búðanna í dag. Harboe Premium
Lager er tiltölulega nýr á íslenska
markaðnum, en er vel þekktur í Dan-
mörku fyrir bragðgæði og hagstætt
verð. Harboe Premium Lager er
4,4%, fallega gullinn bjór með létta
fyllingu, mildri sýru og litla beiskju.
Hann hefur ferskt kornbragð og svo-
lítinn karamellukeim. Það verður að
segjast að Harboe er hreint út sagt
magnaður!
Verð í Vínbúðum
148 kr. í 500 ml. dós.
HARBOE: Danskur gæðabjór
á ótrúlegu verði!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
.