Fréttablaðið - 24.06.2005, Side 46
34 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21 22 23 24 25 26 27
Föstudagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 KA tekur á móti HK á
Akureyrarvelli í 1.deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
07.00-8.30 Olíssport á Sýn.
16.05 Landsbankadeildin FH-ÍA á
Sýn.
16.50 Fótboltakvöld á RÚV.
17.45 Olíssport á Sýn.
19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.30 Motorworld á Sýn.
20.00 World Supercross á Sýn.
21.00 World Poker Tour á Sýn.
23.15 NBA Úrslitakeppnin á Sýn.
FORMÚLA 1 Þýska bílaframleiðslu-
fyrirtækið BMW hefur keypt
svissneska fyrirtækið Sauber,
sem er með keppnislið í Formúlu
eitt keppninni. Burkhard Göschel,
stjórnaður í BMW, segir samstarf-
ið við Williams-liðið, en BMW sér
því fyrir vélum í bíla sína, ekki
hafa gengið nógu vel síðustu miss-
eri.“
Við viljum ræða framtíðará-
horfin við Williams, til þess að
hægt sé að komast að góðri lausn
fyrir bæði lið. Því miður hefur
samstarfið ekki verið nógu gott
síðustu misseri.“ Mario Theissen,
framkvæmdastjóri bifreiða-
íþrótta hjá BMW, vonast til þess
að kaupin á Sauber muni verða til
þess að betri árangur náist með
keppnisvélinni frá BMW. „Gott
samstarf milli liða er nauðsynleg-
ur svo árangur náist. Vonandi
mun keppnisvélin frá BMW verða
sú besta eftir að reynsla er komin
á starfið.“ - mh
BMW að yfirgefa Williams?
BMW kaupir
Sauber
Enn eitt áfallið fyrir karlalið ÍBV í fótboltanum:
Magnús Már hættur
a› leika me› ÍBV
FÓTBOLTI Framherjinn Magnús
Már Lúðvíksson mun ekki leika
meira með Landsbankadeildarliði
ÍBV. Magnús Már var afar ósáttur
við þá vinnu sem félagið útvegaði
honum og þegar forráðamenn
félagsins sögðust ekki geta gert
betur lét Magnús sig hverfa frá
Eyjum, en hann hafði ekki skrifað
undir samning við félagið og því
var honum frjálst að fara.
„Ég var látinn moka skurði
fyrir hitaveituna og ég hef engan
áhuga á því að eyða níu tímum í
dag í að moka skurði. Það stóð
aldrei til að ég væri í erfiðis-
vinnu,“ sagði Magnús Már við
Fréttablaðið í gær en formaður
knattspyrnudeildar ÍBV, Viðar
Elíasson, hafði litla meðaumkun
með Magnúsi þegar leitað var
eftir viðbrögðum hans í gær.
„Ég vorkenni engum að vinna
og æfa fótbolta enda er ég alinn
upp við það sjálfur og hef átt
marga félaga í boltanum sem hafa
unnið mikið og staðið sig þar að
auki vel í boltanum. Mín reynsla
er sú að þeir sem nenna að vinna
nenna að vinna vinnuna sína á
vellinum,“ sagði Viðar Elíasson.
- hbg
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild karla:
KR–ÞRÓTTUR 3–2
FRAM–GRINDAVÍK 0–1
KEFLAVÍK–FYLKIR 2–2
FH–ÍA 2–0
ÍBV–Valur
Leik ÍBV og Vals var ekki lokið þegar Fréttablaðið
fór í prentun.
STAÐAN:
FH 7 7 0 0 18–2 21
VALUR 6 5 0 1 15–4 15
FYLKIR 7 3 2 2 12–9 11
KEFLAVÍK 7 3 2 2 12–16 11
KR 7 3 1 3 8–8 10
FRAM 7 2 2 3 7–6 8
GRINDAVÍK 7 2 1 4 8–14 7
ÍA 7 2 1 4 5–11 7
ÞRÓTTUR 7 1 1 5 10–14 4
ÍBV 6 1 0 4 5–16 3
MARKAHÆSTIR:
Tryggvi Guðmundsson, FH 8
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 5
Matthías Guðmundsson, Val 4
Allan Borgvardt, FH 4
Hrafnkell Helgason, Fylki 4
Andri Fannar Ottósson, Fram 3
Baldur Aðalsteinsson, Val 3
Hjörtur Hjartarson, ÍA 3
Páll Einarsson, Þrótti 3
1. deild karla:
BREIÐABLIK–VÍKINGUR 0–0
FARINN FRÁ EYJUM
Magnús Már
Lúðvíksson hefur
leikið sinn síðasta
leik fyrir ÍBV.
Framarar ollu miklum vonbrigðum á Laugardalsvelli í gærkvöld:
Kekic trygg›i Grindavík enn einn sigurinn
FÓTBOLTI Leikurinn á Laugardals-
velli fór rólega af stað og í raun
gerðist lítið fyrstu mínútur
leiksins.
Framarar sóttu ívið meira en
höfðu ekki erindi sem erfiði þar
sem vörn Grindvíkinga var þétt
fyrir. Grindvíkingar náðu góðum
tökum á leiknum síðustu tíu mín-
útur fyrir hálfleiks og komust
verðskuldað yfir á fertugustu og
annarri mínútu með góðu marki
frá Sinisa Kekic. Mounir Ahan-
dour kom þá hratt með boltann
upp með völlinn, dró að sér varn-
armann og sendi á Kekic hægra
megin í teignum, sem skoraði
með góðu skoti hægra megin
framhjá Gunnari Sigurðssyni,
markverði Fram.
Á 57. mínútu fengu Grindvík-
ingar vítaspyrnu. Paul McShane
var þá felldur inni í teignum eftir
að Kekic hafði stungið boltanum
inn fyrir á hann eftir falleg
tilþrif á vinstri kantinum. Óli
Stefán Flóventsson tók spyrnuna
en Gunnar Sigurðsson varði
spyrnuna vel. Leikurinn róaðist
talsvert eftir þetta en Grindvík-
ingar náðu þó að leika boltanum
betur á milli sín. Framarar voru
orðnir örvæntingarfullir og voru
að reyna of mikið af löngum
sendingum inn fyrir vörnina. Það
var helst Daninn Hans Mathiesen
sem var að reyna að taka boltann
niður og spila honum með jörð-
inni. Eins og oft áður í sigurleikj-
um Grindvíkinga var það fram
lag Sinisa Kekic sem réði úrslit-
um. Þrátt fyrir að eiga frekar ró-
legan dag tókst honum skora
markið sem réði úrslitum og
leggja upp færið sem vítið kom
upp úr.
Óli Stefán Flóventsson, leik-
maður Grindvíkinga, var ánægð-
ur með sigurinn. „Þetta var gríð-
arlega mikilvægur sigur fyrir
okkur. Við spiluðum ágætlega og
vorum þéttir fyrir í vörninni. Við
höfum spilað vörnina vel, og von-
andi náum við að gera það
áfram.“
Ríkharður Daðason, fyrirliði
Framara, var óánægður í leiks-
lok. „Við verðum að fara að byrja
leikina betur. Þetta er eitthvað
sálfræðilegt því við náum ekki að
byrja leikina nægilega einbeitt-
ir.“
- mh
0-1
Laugard., áhorf: 520 Jóhannes Valgeirsson (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–7 (2–3)
Varin skot Gunnar 1 – Savic 3
Horn 8–7
Aukaspyrnur fengnar 14–15
Rangstöður 2–2
Fram Grindavík
*MAÐUR LEIKSINS
FRAM 4–3–3
Gunnar 6
McLynn 3
(46. Kristófer 4)
Gunnar Þór 5
Þórhallur Dan 4
Kristján 5
Ingvar 5
Viðar 4
Hans 6
Víðir 4
(77. Andri Steinn –)
Andri Fannar 5
(64. Ívar B. 5)
Ríkharður 4
GRINDAV. 4–5–1
Savic 6
Óðinn 7
Óli Stefán 7
Jack 7
Eyþór Atli 6
Eysteinn 6
(90. Guðm. –)
McShane 6
Niestroj 5
Magnús Sverrir 6
(67. Óskar Örn 6)
Kekic 8*
Ahandour 6
(83. Zeyer –)
Grétar byrja›ur a› skora fyrir KR
Markahrókurinn Grétar Ólafur Hjartarson opnaði markareikning sinn fyrir KR í Landsbankadeildinni með
sigurmarki gegn Þrótti á KR-velli í gær. Lokatölur leiksins urðu 3–2 fyrir KR í fjörugum leik.
FÓTBOLTI „Það er fínt að geyma
þessi mörk svona þangað til í lok-
in,“ sagði Grétar Ólafur Hjartar-
son, hetja KR-inga gegn Þróttur-
um í gær, en hann opnaði marka-
reikning sinn á Íslandsmótinu í
sumar á besta mögulegan máta í
gærkvöld þegar hann skoraði
sigurmark leiksins á 85. mínútu.
„Það var alveg frábært að setja
hann svona og skiptir miklu máli
fyrir mig. Þetta mark gefur mér
mikið sjálfstraust,“ bætti Grétar
við.
KR-ingar hófu leikinn af mikl-
um krafti og stjórnuðu spilinu al-
gjörlega í fyrri hálfleik. Bjarki
Gunnlaugsson var arkitektinn að
flestum bestu sóknum KR í fyrri
hálfleiks og var óheppinn að ná
ekki að skora. Það gerði hins
vegar Rógvi Jacobsen þegar hann
braut ísinn á 41. mínútu og á síð-
ustu mínútu fyrri hálfleiks bætti
Sigurvin Ólafsson við öðru marki.
Tveggja marka forysta KR-inga í
hálfleik var fyllilega verðskulduð,
þeir voru mun sterkari en Þróttar-
ar og í raun furðulegt að sjá
hversu máttlausir gestirnir voru.
Það var ljóst strax frá fyrstu
mínútu síðari hálfleiks að Ásgeir
Elíasson, þjálfari Þróttar, hafði
skipað sínum mönnum að færa sig
framar á völlinn. Það skilaði strax
tilætluðum árangri og hefði ekki
verið fyrir stórkostlega mark-
vörslu Kristjáns Finnbogasonar í
þrígang hefðu Þróttarar hæglega
getað jafnað leikinn á fyrsta
stundarfjórðungi síðari hálfleiks.
Pressa Þróttara bar loks árang-
ur á 73. mínútu þegar Þórarinn
skoraði og tveimur mínútum síðar
hafði Josef Maruniak jafnað leik-
inn. Ótrúlegur viðsnúningur stað-
reynd en jafnframt með ólíkind-
um að horfa upp á hrun KR.
Á 85. mínútu gerðist síðan það
sem stuðningsmenn KR hafa
beðið eftir í allt sumar – Grétar
Ólafur Hjartarson batt enda á
markaleysi sitt í deildinni með því
að skora glæsilegt skallamark
sem átti eftir að skilja liðin að
þegar yfir lauk. Gestirnir reyndu
hvað þeir gátu til að jafna metin
en tíminn var einfaldlega of
knappur. Eins og gefur að skilja
var Magnús Gylfason, þjálfari
KR, ánægður með stigin, sem
hann sagði nauðsynleg.
„Ég er mjög ánægður með
karakterinn í okkar liði en við
gerðum okkur erfitt fyrir. Ég var
orðinn mjög hræddur á tímabili
en sem betur fer kláruðum við
leikinn.“
- vig, - bb
3-2
KR-völlur, áhorf: 1457 Egill Már Markússon (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–10 (9–6)
Varin skot Kristján 4 – Fjalar 6
Horn 5–5
Aukaspyrnur fengnar 22–21
Rangstöður 3–4
KR Þróttur
*MAÐUR LEIKSINS
KR 4–3–3
Kristján 7
Jökull 6
Tryggvi 6
Gunnar E. 5
Gunnar K. 8*
Bjarnólfur 5
Sigurvin 5
Bjarki 7
(90. Sölvi St. –)
Grétar 6
Rógvi 6
Garðar 6
(55. Sigmundur 4)
ÞRÓTTUR 3–5–2
Fjalar 8
Eysteinn 6
Jens 6
Ólafur T. 6
(69. Jaic 5)
Freyr 4
(86. Erlingur –)
Halldór 5
Páll 6
Þórarinn 6
Daníel 5
Henning 4
(63. Haukur Páll 6)
Maruniak 5
BARÁTTA Það var fast
tekist á hjá KR og
Þrótti í gær. Gunnar
Einarsson og Þórarinn
Kristjánsson Þróttari
takast hér á.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR