Fréttablaðið - 24.06.2005, Side 48

Fréttablaðið - 24.06.2005, Side 48
xx 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR Bjartasti tími ársins er yndislegur. Það er erfitt að fara að sofa en auðvelt að vakna. Það er frábært að ferðast um landið, fara í laut- artúr, göngutúra og skoða sig um. Borða góðan mat og njóta lífsins. Tilheyrandi íslenska sumrinu er líka að fylgjast grannt með veðurspám. Ergja sig ef þær eru óhagstæðar ferðaplönum en gleðjast ef góða veðrið virðist ætla að fylgja ferðaleiðinni. Svo er að sjálfsögðu hægt að bölsótast út í veðurfræðingana ef góða veðrið sem lofað hafði verið sýnir sig ekki. Ég hef oft reynt að taka mið af veðurspám í ferðalögum innan- lands. Ákveðið með skömmum fyr- irvara hvert haldið skuli í útilegu. Reynt með öðrum orðum að elta veðrið. Það skal játað að þessi að- ferð hefur ekki gengið allt of vel. Ég ákvað því snemmvors að beita henni ekki í sumar. Gera bara mín sumarplön með minni fjölskyldu og sjá svo bara hversu góðir veð- urguðirnir ætluðu að vera við mig. Ég bjóst svo sem ekki við miklu enda hef ég ekki verið þekkt fyrir að vera í náðinni hjá þeim. Og ekki virðist það hafa breyst. Ég var til dæmis norður á Ströndum síðustu helgi. Þar var lágskýjað, suddi og fremur kalt. Í Reykjavík var víst mesta blíða sumarsins. Nú hygg ég á sumar- bústaðaferð á Mýrar í Borgarfirði og fæ ekki betur séð en þar sé spáð rigningu alla næstu viku. Góða veðrið á að vera norðan lands. Það mun þó eflaust breyt- ast þegar ég held þangað með minni fjölskyldu í júlí. Þá er næsta víst að veður mun snúast suðvesturhorninu í hag. En ég hef sem sagt tekið þá ákvörðun að taka íslenska sumar- veðrinu með stóískri ró. Njóta ein- faldlega lífsins og sumarleyfisins. Og taka regngallann með hvert sem ég fer. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SIGRÍÐUR B. TÓMASDÓTTIR ÆTLAR EKKI AÐ ELTA VEÐRIÐ Í SUMAR. Sumarið er tíminn M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N 1 1 . H V E R V I N N U R Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu komin/n í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Glæsilegur War of the worlds varningur DVD myndir • Coca Cola Margt fleira SENDU SMS SKEYTIÐ JA WBV Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Nei, nei og aftur nei! Þú getur ekki fengið vinnu hér. Farðu burt. You wanted the best and you got the best! Heitasti klæð- skiptingur heims er mættur... Jói! Ég fann þennan óskiljanlega miða í buxunum hans Palla áðan. Hmm, lát- um okkur nú sjá. Blekið er búið að klessast út um allt... það er ekki hægt að lesa hvað stendur. Það er það sem er svo óskiljanlegt! Snúlla. Þú verður að velja einn okkar. Bara einn. Það verður erfitt. Ég veit. Hæpabbigettuhvaðviðgerðumískóla numídagviðfengumaðsjámyndumhv alisemeruspendýrenekkifiskarogsvol ærðumviðstærðfræðioghlustuðumás öguumísbirnijæjaverðaðfarabæ! Það er aldeilis hvað Solla er að læra mikið á leikskólan- um. Hvenær held- urðu að þau læri að slaka á?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.