Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.06.2005, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 24.06.2005, Qupperneq 62
50 24. júní 2005 FÖSTUDAGUR Stór hópur reykvískra sjálfstæðis-manna mun nú vera að þrýsta mjög á Júlíus Vífil Ingvars- son um að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í haust. Þeir telja að sjónar- sviptir hafi orðið að Júlíusi Vífli þegar hann hvarf úr borgarmálunum fyrir það kjörtímabil sem nú er senn á enda. Hann kaus þá að einbeita sér að öðrum störfum fjarri hringiðu stjórnmál- anna. Júlíus Vífill vakti athygli fyrir vaska framgöngu í ýms- um málum þegar hann starfaði sem borgarfulltrúi. Sjálfur mun Júlíus Vífill vera að íhuga það alvarlega að gefa kost á sér en mun ekki hafa gefið neitt uppi um hvort af verði en stuðningsmenn hans leggja mikla áherslu á að hann gefi kost á sér. Davíð Smári vann hug og hjörtuÍslendinga þegar hann tók þátt í Idol stjörnuleit fyrr á árinu. Davíð Smári þótti harður í horn að taka en þegar líða fór á þáttaröðina kom ljúf- ur drengur í ljós bak við harða skelina. Davíð Smári er góð- mennskan uppmál- uð og ætlar að gefa fólkinu á sambýlinu Skagaseli eintak af nýjustu plötunni sinni, You Do Something to Me, sem kemur út í dag. Davíð vann á sambýl- inu áður en hann sló í gegn í Idol og hefur greinilega ekki gleymt sínum gömlu félögum. Steingrímur Ólafsson, hinn skel-eggi upplýsingafulltrúi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra, bland- ar greinilega ekki geði við marga flokksbræður yfirmanns síns og kann- ast að því er virðist lítið við kollega sína í stétt skósveina Framsóknar- flokksins. Þannig var mál með vexti að blaðamaður sem var að leita að Pétri Gunnarssyni, skrifstofustjóra flokksins og spunameistara, ákvað að freista gæfunnar og spyrja Steingrím hvort hann vissi hvar hægt væri að ná Pétur. Steingrímur varð hins vegar steinhlessa og skildi ekkert í að nokkrum skyldi detta í hug að spyrja sig út í einhvern Pétur hjá Fram- sóknarflokknum. Sjálfur ynni hann jú bara fyrir forsætisráðuneytið en væri annars í litlu sam- neyti við framsóknar- menn. Lárétt: 1 ljósa, 6 kyrra, 7 í röð, 8 bogi, 9 sofa laust, 10 land, 12 litdauf, 14 ánægð, 15 rykkorn, 16 til, 17 fugl, 18 skordýr. Lóðrétt:1 mannvirki í gatnagerð, 2 hestur, 3 samtök, 4 bindur, 5 hagnað, 9 vensla- mann, 11 ala, 13 óski, 14 . . frændi, 17 píla. LAUSN 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Stór Humar Hljómsveitin Leaves mun hita upp fyrir stórsveitina Duran Dur- an þegar hún heldur tónleika hér á landi þann 30. júní. Simon Le Bon og félagar völdu sjálfir hljóm- sveitina til þess að spila á und- an sér. Leaves er nýkomin úr tónleikaferð þar sem hún hitaði upp fyrir hljómsveitirnar Supergrass og Thirteen Senses. „Þetta er mjög gaman og kom reyndar frekar óvænt. Það var bara hringt skyndi- lega í okkur og spurt hvort við hefðum áhuga. Mér skilst að þeir hafi hafnað nokkrum hljómsveitum áður en þeir völdu okkur og þetta er auðvitað ekkert nema mikill heiður,“ segir Arnar Guðjónsson, söngvari hljómsveitarinnar. Nýlega kom ú t smáskífan The Spell og gengur hún vonum framar, að sögn um- boðsmanns sveitarinnar. „Ég held að ástæðan fyrir góðu gengi smáskífunnar sé að mynd- bandið er að gera góða hluti og menn eru voðalega ánægðir með þetta allt saman. Þetta er gæðasmá- skífa sem fær góðar við- tökur. Platan, The Angela Test, kemur svo út í ágúst,“ segir Árni Ben, umboðsmaður Leaves. Leaves hitar upp fyrir Duran Leit stendur yfir að 500 stað- genglum og 25 Japönum búsettum á Íslandi, sem eiga að fara með hlutverk í stórmynd Clints Eastwood, Flags of Our Fathers, sem verður tekin upp að hluta til hér á landi dagana 12. ágúst til 7. september. Einnig hefjast í byrjun júlí prufur fyrir fimmtán textahlut- verk í myndinni. Þar geta íslenskir leikarar meðal annars fengið að spreyta sig auk þess sem settar verðar í næstu viku upp prufur fyrir bandaríska hermenn sem starfa á herstöðinni í Keflavík. „Það er byrjaður að koma svo- lítill fjöldi af fólki. Þetta er allt að fara af stað,“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir hjá Casting, sem sér um að skrá fólk í myndina. „Við erum að leita að 500 karlmönnum á aldrinum 18-40 ára til þess að leika hermenn og yfirmenn í hernum. Menn þurfa að hafa ákveðið lúkk og líta út fyrir að vera amerískir hermenn. Það eru allir velkomnir samt sem áður. Við leitum að mönnum með góðan amerískan hreim fyrir textahlutverkin. Þau eru sum með eina eða tvær línur en ein lína er hellingur ef það er í Eastwood-bíómynd,“ segir Alexía, sem hefur þegar fengið að lesa handrit myndarinnar. „Þetta er æðislegt handrit, alveg geggjað. Auðvitað er Hollywood-bragð af þessu en handritið er mjög fallegt. Það er byggt á sögunni um það sem gerðist á eyjunni Iwo Jima í síðari heimsstyrjöldinni og er saga eins manns sem var í stríðinu.“ Bandarískir búningahönnuðir sitja um þessar mundir sveittir við að sauma búninga fyrir myndina en þeir sem mæta í prufu verða allir mældir í bak og fyrir, auk þess sem teknar verða myndir af þeim. Í byrjun júlí mun kona sem hefur séð um að velja í hlutverk fyrir síðustu myndir Eastwoods, þar á meðal Óskarsverðlauna- myndina Million Dollar Baby, velja úr þá sem best henta fyrir myndina. Skömmu síðar fá menn að vita hvort og þá hvenær þeir eiga að mæta á tökustað. „Það er enginn á tökusetti allan tímann. Þetta er mjög misjafnt. Stundum þarf 500 staðgengla og stundum 200. Stundum eru menn bara í tvo daga og ekkert meira. Þetta er gríðarlegt púsluspil,“ segir Alexía. Fyrstu starfsmenn kvikmynda- tökuliðsins vegna myndarinnar eru nýkomnir til Reykjanesbæjar til að undirbúa upptökur í Stóru Sandvík í Reykjanesbæ og í Krýsuvík, sem er í landi Hafnar- fjarðar. Sjálfur Clint Eastwood er síðan væntanlegur til landsins 10. ágúst en daginn eftir verður fyrsti æfingadagurinn haldinn vegna myndarinnar. freyr@frettabladid.is FLAGS OF OUR FATHERS: EASTWOOD KEMUR 10. ÁGÚST Yfirmenn óskast í herinn MEÐ ÓSKAR FRÆNDA Óskarsverð- launahafinn Clint Eastwood kemur hingað til lands 10. ágúst. FRÉTTIR AF FÓLKI ... fær Rúnar Rúnarsson fyrir að fá aðalverðlaunin á stærstu stuttmyndahátíð Spánar, Huesca International Film Festival. HRÓSIÐ Ég komst að því um daginn að deit og fyrstu kynni eru að líða undir lok! Það er einfaldlega ekki lengur þörf fyrir þau! Með tilkomu leitarvéla á netinu eins og google.com og leit.is hefur skemmtilega ferlið þegar fólk er fyrst að kynn- ast og spyrja hvort annað spjörunum úr verið sett í mikla hættu. Það er engin þörf fyrir spjall til að komast að hlut- um um fólk sem verða að teljast nauðsynlegir til þess að hægt sé að ákveða hvort aðilinn henti manni eða ekki. Það er alveg nóg að „gúgla“ bara manneskjuna og taka ákvörð- unina jafnvel áður en farið er á fyrsta deitið eða áður en fyrsta viðreynslan fær að eiga sér stað. Vinkona mín hefði til dæmis betur gúglað manninn sem hún fór á stefnumót með og komst svo síðar að því að hann var bróðir eins sem hún hafði verið með nokkrum árum áður. Þannig hefði hún getað komist hjá ansi vand- ræðalegum aðstæðum og símtölum og sparað sér fullt af uuu-um og sko-um. Svo frétti ég af einni vinkonu minni sem var að fara að hitta strák. Hún tók sig til og gúglaði hann í vinnunni daginn sem fyrsta deitið þeirra átti að fara fram. Þegar hún fór heim úr vinnunni að gera sig klára fyrir kvöldið var hún heldur betur margs vísari. Hún var búin að komast að því hvers son drengurinn var, hver voru systkini hans og foreldrar og við hvað hann starfaði. Þá fann hún ýmsar upplýsingar um hann á vefsíðu fyrir- tækisins þar sem hann vann. Þar sá hún hvaða menntun hann hafði og hvenær hann hafði út- skrifast. Síðan fann hún bloggsíðu hjá vini hans sem leiddi hana yfir á persónulegu myndasíðuna hans. Þar sá hún meðal annars myndir af fyrrver- andi kærustunni hans, sem hún kannaðist við síð- an úr grunnskóla, og af vinum hans. Svo fór hún út að borða með honum, þóttist ekkert um hann vita, svona eins og það hefði átt að vera, og lagði fyrir hann fullt af spurningum, vitandi svörin. Síðan í einni umræðunni missir hún út úr sér nafnið á fyrr- verandi kærustunni sem hann hafði aldrei nefnt á nafn heldur haldið sig við „mín fyrrverandi“ nefnið. Þá fór hún auðvitað alveg í kleinu og náði að bulla sig út úr því með því að segja að vinkona hennar hefði sagt henni það fyrr um daginn. Eldrauð í framan, með svitaperlur á enninu skipti hún um umræðuefni og tókst að halda andlitinu, eða svona hér um bil. Ég verð eiginlega að viðurkenna að mér finnst þetta upplýsingaflóð vera að fara fram úr öllu valdi og eyðileggja fyrir okk- ur spennuna og óvissuna sem fylgir því að kynnast. Fólk á einfaldlega ekki séns á að gefa þá mynd af sér sem því sýn- ist. Sjarminn af þessum annars stór- skemmtilegu stundum, þegar við erum að uppgötva hvort annað, er að verða að engu. Hins vegar getur þetta sparað manni leiðinleg kvöld á misheppnuð- um og óþörfum stefnumótum sem eru reyndar yfirleitt efni í hlátursköst og sögu- stundir með vinkonunum. Þess vegna ætla ég blátt áfram að mæla með því að við gefum fólki sjéns og gleymum gúglinu! „Gúglöldin” Lárétt: 1bjarta, 6róa,7jk,8ýr, 9mók,10 láð,12grá, 14sæl,15ar, 16að,17örn, 18maur. Lóðrétt: 1brýr, 2jór, 3aa,4tjóðrar, 5akk, 9mág,11fæða,13árni,14sam,17ör. REYKJAVÍKURNÆTUR > HÖRPU PÉTURSDÓTTUR FINNST UPPLÝSINGAFLÆÐIÐ VERA AÐ EYÐILEGGJA SPENNUNA ALEXÍA BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR Alexía hefur lesið handrit Flags of Our Fathers og segir það alveg geggjað. LEAVES Hljómsveitin mun hita upp fyrir hina stórvinsælu sveit Duran Duran þegar hún heldur tónleika hérlendis í lok júní.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.