Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 1

Fréttablaðið - 02.07.2005, Side 1
Körfuboltavellir sem bófinn getur spila› á Snoop á leið til landsins FÓLK 32 TÓNLEIKAR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 Fréttablaðið skorar og skorar! Íslendingar 18-49 ára 26% 39% Lestur íþróttasíðna *Lestur á íþróttasíður blaðanna á fimmtudögum. Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005 * SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM og skúrir á víð og dreif, einkum þó sunnan og vestan til. Úrkomulítið síðdegis eða í kvöld. Hiti 10- 16 stig, hlýjast nyrðra VEÐUR 4 LAUGARDAGUR 2. júlí 2005 - 176. tölublað – 5. árgangur Maður augnabliksins Eggert Skúlason hjólar um þessar mundir hringinn í kringum landið til styrktar hjart- veikum. Hann er já- kvæður og skemmtileg- ur og segir skoðanir sínar umbúðalaust en stundum er stuttur í honum þráðurinn. Eggert er maður vikunnar. MAÐUR VIKUNNAR 16 Framtíð íslenska fótboltans Ný kynslóð er að koma upp í íslenskri knattspyrnu. Þeir sem fylgjast með yngri flokka starfi á Íslandi eru flestir á einu máli – fjöldi ungra og framúrskarandi ís- lenskra leikmanna er í sögulegu hámarki þar sem þeir allir eiga það sameig- inlegt að geta náð eins langt og þeir sjálfir vilja. ÍÞRÓTTIR 30-31 Bonham sá besti fyrr og síðar John Bonham, fyrrum trommari Led Zeppelin, var kjörinn besti trymbill sögunnar í úttekt sem breska tímaritið Classic Rock stóð fyrir. Íslandsvinurinn Dave Grohl úr Nirvana og Foo Fighters kemur á hæla hans. TÓNLIST 28 Brosir flegar hann sér bílinn GUÐJÓN JÓNSSON: Í MIÐJU BLAÐSINS ● bílar ● ferðir ▲ 50 % afsláttur af nammibarnum á laugardögum V I R K S A M K E P P N I VEÐRIÐ Í DAG Útrás Kaupþings banka í Skandinavíu: Finnskur banki í sigtinu VIÐSKIPTI Tæplega þriggja ára rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á meintum brotum gegn almenningshlutafé- laginu Baugi hf. lauk í gær með útgáfu kæra á hendur sex manns tengdum fyrirtækinu. Þar á meðal eru Tryggvi Jónsson fyrrum for- stjóri, Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri, Kristín Jóhannesdóttir stjórnarmaður og Jóhannes Jóns- son einn aðaleigandi Baugs, auk endurskoðendanna Stefáns Hilm- arssonar og Önnu Þórðardóttur. „Rannsókn málsins hefur verið afar umfangsmikil og mjög tíma- frek og krafist víðtækrar gagna- öflunar og húsleitar í Færeyjum og Lúxemborg. Yfirheyrslur í málinu skipta hundruðum,“ segir í tilkynningu Ríkislögreglustjóra. Gert er ráð fyrir að málið verði þingfest í Héraðsdómi Reykjavík- ur 17. ágúst næstkomandi. Jón H. Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, sagðist að sinni ekki vilja tjá sig um álitsgerð- ir Jóns Ásgeirs eða álitsgerð sem Jónatan Þórmundsson lagaprófess- or vann fyrir Baug um rannsókn lögreglu. Að öðru leyti vísaði hann á tilkynningu embættisins um mál- ið en þar kemur fram að takmörk séu á hversu mikið lögregla getur tjáð sig meðan málið er fyrir dómi. Í tilkynningunni segir einnig að möguleg skattalagabrot séu enn til rannsóknar hjá embættinu, en hluta málsins var vísað til Skatt- rannsóknastjóra haustið 2003. Stjórn Baugs hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur rík- inu vegna tjóns sem fyrirtækið hefur orðið fyrir vegna rannsókn- ar lögreglu. „Baugur Group hf. stendur einhuga á bak við Jón Ás- geir Jóhannesson, forstjóra, og sakborninga málsins, en þeir hafa allir staðfastlega haldið fram sak- leysi sínu gagnvart öllum sakar- giftum,“ segir í yfirlýsingu sem Hreinn Loftsson, stjórnarformað- ur Baugs, skrifar undir. Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, áréttaði að hann vísaði sakargift- um á bug, en ekki náðist í Jón Ás- geir. Jóhannes Jónsson kvaðst vera í útlöndum og hafi því ekki séð ákæruna enn og ætli af þeim sök- um ekki að tjá sig um hana að svo stöddu. Sjá síður 4 og 10/- olikr VIÐSKIPTI Kaupþing banki hefur keypt tæplega tveggja prósenta hlut í finnska fjármálafyrirtæk- inu Sampo og er þar með þriðji til fjórði stærsti hluthafinn. Sampo er að stærstum hluta tryggingafélag, en samkvæmt heimildum beinist áhugi Kaup- þings að bankastarfsemi félags- ins. Markaðsvirði Sampo er hátt í sex hundruð milljarðar, en banka- starfsemin er metin á 150 til 200 milljarða króna. Sampo er stærsti finnski bankinn. Telja Kaupþings- menn áhuga hjá Sampo á að selja frá sér bankastarfsemina þótt verðhugmyndir Sampo séu enn sem komið er í hærri kantinum. Kaupþing banki kom víðar við í fréttum á Norðurlöndum. Norska Kauphöllin stöðvaði viðskipti með tryggingafélagið Storebrand vegna orðróms um kaup Kaup- þings í félaginu. Kaupþing hefur á stefnuskrá sinni að efla verulega starfsemi sína í Noregi og Finnlandi. Með kaupum á bankastarfsemi Sampo fengjust einnig mikilvæg tengsl við Eystrasaltsríkin og Rússland. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings banka, vildi að svo komnu máli ekkert tjá sig um að- komu bankans að Sampo og Stor- ebrand. -hh Sex ákær›ir í Baugsmálinu Ákæra Ríkislögreglustjóra í Baugsmálinu er í 40 li›um og snertir au›gunarkafla almennra hegningarlaga, lög um bókhald, ársreikninga, hlutafélög og tollalög. Stjórn Baugs segist standa me› ákær›u og undirb‡r ska›a- bótamál á hendur ríkinu. Rannsókn lögreglu sætir gagnr‡ni fyrir tíma og tengsl rannsakanda og ákæranda. Varnarmálaviðræður: Sendinefnd út í næstu viku STJÓRNMÁL Sjö til tíu manna nefnd mun fara til Washington í næstu viku til fundar við viðræðunefnd Bandaríkjamanna til að ræða framtíð varnarsamningsins og Keflavíkurflugvallar. Fundirnir verða haldnir á miðvikudag og fimmtudag í næstu viku. Davíð Oddsson utanríkisráð- herra segir það mjög þýðingar- mikið að viðræðunefnd Banda- ríkjamanna hafi nú samhæft sjón- armið milli ráðuneyta utanríkis- mála og varnarmála með atbeina Hvíta hússins. Hann gerir ráð fyr- ir að samningafundirnir muni byggja á þeim samtölum sem Davíð hefur átt við ráðamenn úti, þó svo hann búist ekki við að fyrsti fundurinn leiði til niður- stöðu. Sjá síðu 6/ -jh STUÐMENN POPPA GEGN FÁTÆKT Hópur tónlistarmanna ásamt Árna Snævarr hélt tónleika undir nafninu ÁttaLíf, í Hljómskálagarð- inum í gærkvöldi. Voru þeir í tilefni þess að í kvöld verða Live 8 tónleikar haldnir víða um heim þar sem þess er krafist að átta ríkustu lönd heims frysti skuldir fátækustu ríkjanna og auki þróunaraðstoð til þeirra en fundur þeirra fyrrnefndu fer fram í Skotlandi. Ekki var annað að sjá en að gestir og gangandi hefðu gaman af því að Hljómskálagarðurinn skyldi standa undir nafni. – Sjá síðu 46 SLYS Maður á miðjum aldri liggur mikið slasaður á slysadeild Land- spítalans í Fossvogi eftir árekstur jeppa og fólksbíls í Hveradölum seinni partinn í gær. Fimm voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn, fjórir farþegar úr jeppanum auk mannsins. Maðurinn var einn í fólksbílnum þegar bílarn- ir rákust saman en fjölskylda var í jeppanum. Hún slapp lítið meidd að sögn vakthafandi læknis. Tækjabíl slökkviliðsins í Hvera- gerði þurfti til að klippa einn hinna slösuðu úr flaki fólksbílsins. Orsök slyssins var ekki ljós þegar blaðið fór í prentun en lögreglan á Selfossi rannsakar málið. -bs FRÁ VETTVANGI Fólksbíllinn lagðist nánast saman við áreksturinn. Árekstur á Hellisheiði: Einn miki› slasa›ur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L B ER G M AN N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.