Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,94 65,24 115,62 116,18 78,42 78,86 10,52 10,582 9,96 10,018 8,27 8,318 0,585 0,5884 95,5 95,06 GENGI GJALDMIÐLA 01.07.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 110,18 -0,13% 4 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR Samband um FARICE-sæstrenginn liggur niðri: Bilun vi› stóra brú í Skotlandi SÆSTRENGUR Netnotendur Símans og OgVodafone hafa orðið varir við hægari umferð vegna þess að samband Íslands um FARICE sæ- strenginn liggur niðri. Að sögn forsvarsmanna FARICE verður ekki gert við strenginn fyrr en að- faranótt sunnudags. „Sæstrengurinn sjálfur er í góðu lagi,“ segir Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri FARICE. „Sambandið er rofið vegna þess að ljósleiðari fór í sundur í landleiðinni Skotlandi. Bilunin er á mjög slæmum stað og erfitt að komast að henni vegna þess að strengurinn liggur yfir brú við Edinborg þar sem þarf að stöðva lestarumferð til að sinna viðgerðinni.“ Í yfirlýsingu frá Símanum kemur fram að bilunin hafi engin áhrif á talsímaumferð. Búið sé að komast fyrir truflanirnar sem urðu á netumferðinni með því að færa umferð yfir á eldri sæstreng en það var gert þegar í ljós kom að bilunin dragist á langinn. OgVodafone segir að bilunin hafi nákvæmlega sömu áhrif fyrir viðskiptavini OgVodafone og við- skiptavini Símans ■ Efast um hæfi saksóknara BAUGSMÁLIÐ Jón Ásgeir Jóhannes- son forstjóri Baugs gagnrýnir harðlega tæplega þriggja ára rannsókn lögreglu á meintum brotum tengdum fyrirtæki hans í bréfi sem hann ritaði Ríkislög- reglustjóra á fimmtudaginn. Hann fer fram á að kannað verði hvort Jón H. Snorrason, yfirmað- ur efnahagsbrotadeildar embætt- isins, væri vanhæfur til frekari meðferðar á Baugsmálinu. Jón Ásgeir segir rannsókn lög- reglu hafa hafist á „mjög óvæginn hátt“ með húsleitar- og handtöku- kröfu og telur að afla hefði mátt gagna með mildilegri hætti. „Allt var þetta að mínu mati byggt á heiftúðugri og ótrúverðugri kæru eins einstaklings og bar bersýni- lega keim af hefndaraðgerð, ann- ars vegar af persónulegum ástæð- um og hins vegar af óánægju með lok viðskipta við Baug,“ segir hann og telur að lögregla hafi ras- að um ráð fram í upphafi. „Allar síðari aðgerðir miðast augljóslega við að réttlæta upphafleg við- brögð,“ bætir hann við og telur varhugavert hvernig blandað er í málinu saman rannsóknar- og ákæruvaldi. „Sami einstaklingur tekur ákvarðanir um rannsóknar- aðgerðir og um hvort tilefni sé til ákæru. Með þessu fyrirkomulagi heyrir sjálfstætt mat ákæruvalds sögunni til.“ Í bréfinu rekur Jón Ásgeir upp- haf málsins til kæru Jóns Geralds Sullenbergers á ágústlok 2002. „Grundvöllur upphaflegra ásak- ana Jóns Geralds er löngu brost- inn,“ segir hann og undrast hvern- ig rannsóknin hefur dregist með- an ný sakarefni koma fram eftir því sem önnur eru hrakin. Að sama skapi gagnrýnir Jón Ásgeir hvernig fregnir af rannsókn lögreglu á Baugi hafi borist í fjöl- miðla. „Svo virðist sem einhver eða einhverjir innan embættis ríkislög- reglustjórans sjái sér hag í því að leka markvisst fréttum af rann- sókn málsins,“ segir hann og tekur dæmi um hvernig fregnir hafi borist af fyrirhuguðum yfirheyrsl- um, húsleitum og handtökum og verið á vitorði fjölmiðla áður en til þeirra hafi komið. „Blaðamenn hringdu í Magnús Guðmundsson, bankastjóra Kaupthing Bank í Lux- emborg, og spurðu frétta af hús- leitinni áður en lögreglan var kom- in í húsnæði Kaupthing.“ Jón H. Snorrason kvaðst ekki myndu tjá sig um gagnrýni Jóns Ásgeirs á rannsókn lögreglu að sinni. Sjá einnig síðu 10 olikr@frettabladid.is Léttir í hitabylgju: Byrja› a› rigna á Ítalíu ÍTALÍA, AP Margir Ítalir fögnuðu mjög þegar byrjaði að rigna í norðurhluta landsins og um mið- bik þess í gær. Rigningin kemur í kjölfar mikillar hitabylgju sem hefur kostað 21 einstakling lífið og léttir aðeins á þjáningum landsmanna og ferðamanna. Hitastigið féll nokkuð í gær þegar ský þöktu himininn víða og búist er við að hitastigið falli enn í dag. Hitinn hefur vart farið undir 35 gráður og hefur fjöldi eldri borgara látið lífið vegna hitanna. Þá hefur hitinn eyðilagt gróður og valdið bændum miklum skaða. ■ SANDGERÐISHÖFN Um níutíu prósent kvótans hurfu frá Sandgerði fyrir um sjö árum. Sandgerðisbær: Tvær kærur felldar ni›ur BYGGÐAKVÓTI Ríkissaksóknari úr- skurðar innan mánaðar hvort kærur á Sandgerðisbæ verði tekn- ar til greina eftir að Sýslumaður- inn í Keflavík vísaði þeim frá. Útgerðarmaður kærði sveitar- félagið fyrir bókhaldsbrot. Hann taldi sig ekki fá fullgilda skattnótu fyrir fé sem hann lagði inn á reikning á kennitölu bæjar- stjórans. Féð átti að nýta til kaupa á kvóta, en í Sandgerði skilyrða útgerðir sig til að leggja fram fé til slíkra kaupa sé þeim úthlutað byggðakvóta. Júlíus Magnússon, fulltrúi Sýslumannsins í Keflavík, segir kærum útgerðarmannsins tvíveg- is hafa verið vísað frá þar sem ekki þyki efni til að hefja rann- sókn á málinu. - gag Kynning á framkvæmdum við Hellisheiðarvirkjun Gestamóttakan í Skíðaskálanum í Hveradölum er opin mánudaga-laugardaga kl. 9-17 og sunnudaga kl. 13-18. Allar nánari upplýsingar í síma 516 6000 og á www.or.is Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir! ORKA ÚR IÐRUM JARÐAR www.or.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 2 87 51 06 /2 00 5 VEÐRIÐ Í DAG FARICE-SÆSTRENGURINN Bilunin er ekki í sæstrengnum sjálfum heldur rofnaði sambandið eftir að landlína í Skotlandi fór í sundur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA LÖGREGLUFRÉTTIR ÖFLUG GÆSLA Í ÓLAFSVÍK Fíkniefnahundur verður í öflugu gæsluliði lögreglunnar á Fær- eyskum dögum í Ólafsvík og á Fjórðungsmóti hestamanna á Kaldármelum. Lögreglumönnum fjölgar um helming í umdæmi lögreglunnar á Snæfellsnesi um helgina. Þeir eru níu en verða átján. Lögreglumenn úr Reykja- vík, Akranesi, Borgarnesi og Döl- unum bætast í hóp þeirra sem fyrir eru. Tíu björgunarsveitar- menn sjá einnig um gæslu í Ólafsvík. Jón Gerald Sullenberger í Kastljósinu: Sakar Jón Ásgeir um brot á trúna›arsamningi Jón Gerald Sullenberger sagðist í Kastljósi Sjónvarpins í gær- kvöldi ætla að stefna Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fyrir brot á trúnaðarsamkomulagi sem hann hafi rofið með því að opin- bera bréfaskriftir sínar til embættis Ríkislögreglustjóra. „Í þessum bréfum sem hann síðan dreifir um fjölmiðlana er hann náttúrlega að fara ofan í þessi mál og ofan í okkar samskipti,“ sagði hann og vísaði til samkomulags fyrir dómi í Bandaríkjunum þegar gengið var frá kröfum hans. „Þá var ákveðið að þetta mál yrði ekki rætt meira.“ Í sama viðtali ásakaði Jón Gerald Jónatan Þórmundsson lagaprófessor um að hafa fengið háar fjárhæðir greiddar fyrir álitsgerð sem væri sakborningum í Baugsmálinu í hag, en um hana er fjallað á síðu 10 í blaðinu. „Ég tel mig vita um margt sem vantar í þessa álitsgerð,“ sagði hann. Þá hafnaði Jón Gerald því alfarið að heift í garð Jóns Ásgeirs eða vonbrigði með viðskiptaslit hafi ráðið gjörðum hans þegar hann lagði fram kæru sína á haustdög- um 2002. „Það er alrangt, vegna þess að ég átti kröfur á þá sem þeir voru ekki að uppfylla, bæði viðskiptakröfur og reikninga. Það er mjög eðlilegt þegar þú selur fyrirtækjum vörur að þú viljir fá greitt fyrir þær. Þess vegna fór ég í mál.“ Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, gagnr‡nir har›lega rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglu- stjóra á honum og fleirum í tengslum vi› meint brot gegn fyrirtækinu. Hann segir líta út sem lögregla hafi reynt a› réttlæta illa ígrunda› upphaf málsins me› flví a› leita a› sakarefnum. JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Forstjóri Baugs Group segir í bréfi til Ríkislögreglustjóra að betur hefði verið staðar numið í rannsókn lögreglu í Baugsmálinu þegar ljóst hafi orðið að stofnað hafi verið til málsins í upphafi af einstaklingi „sem knúinn var áfram af hefnd- arhug eða öðrum álíka hvötum.“ JÓN GERALD SULLENBERGER INNRÁSIN Í BAUG 28. ÁGÚST 2002 Eftir kæru Jóns Geralds Sullenbergers, fyrrum við- skiptafélaga Baugs í Bandaríkjunum, lét efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra til skarar skríða með húsleit í höfuðstöðvum Baugs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.