Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 47
VIKTOR UNNAR ILLUGASON {FD:1990} » BREIÐABLIK
Stór og feikilega öflugur örvfættur
leikmaður sem spilar jafnan sem
fremsti maður. Hefur farið til reynslu
til Feyonord og Ipswich og er undir
smásjá fleiri erlendra liða. Er lykil-
maður í gríðarlega öflugum árgangi
hjá Breiðabliki og hefur verið einstak-
lega sigursæll í gegnum tíðina. Hefur
stórkostlegt vald á fyrstu snertingu og
býr yfir leikskilningi sem þekkist vart
hjá öðrum leikmönnum á þessum
aldri. Einstaklega þroskaður miðað
við aldur og skynjar leikinn nánast
fullkomnlega. Hans eini löstur er
skallatæknin en veikleikann bætir
hann upp með öllum sínum kost-
um. Er auk þess metnaðarfullur og
með hugarfarið til að taka næsta skref
– atvinnumennskuna.
GÆTI ORÐIÐ HINN ÍSLENSKI:
ALAN SMITH
LAUGARDAGUR 2. júlí 2005 31
#
SÓ
K
N
A
R
M
A
Ð
U
R
ARNÓR SMÁRASON {FD:1988} » HEERENVEEN
Er fastamaður í U-19 ára liði Heeren-
veen og fékk tækifæri með varaliðinu
undir lok síðasta tímabils. Þá var
hann valinn í úrvalslið félagsins skip-
a𣣠leikmönnum 20 ára og yngri.
Hefur mest verið notaður sem
sóknarmaður en getur einnig leikið á
miðjunni og á köntunum. Er nánast
jafnvígur á báða fætur, mjög útsjón-
arsamur, fljótur og mikill markaskor-
ari. Ber af öðrum þegar kemur að
knattraki – hann getur rekið boltann
nánast á 100% spretti án þess að
missa hann frá sér. Er með ótrúlega
góða nýtingu á færum og útsjónar-
samur með eindæmum. Hann er
einn af þeim leikmönnum sem geta
unnið leiki upp á eigin spýtur.
GÆTI ORÐIÐ HINN ÍSLENSKI:
RYAN GIGGS
RÚRÍK GÍSLASON {FD:1988} » HK
Hefur verið að spila í fremstu víglínu HK í 1. deildinni í sumar eftir að hann sneri
heim úr atvinnumennsku hjá Anderlect. Þangað fór Rúrik strax að loknum grunn-
skóla en hann var gríðarlega eftirsóttur. Lýsingarorðin frá þjálfurum hans hjá And-
erlect voru á þann veg að Rúrik gæti orðið eins góður og hann vildi – hann
geti gert hluti sem aðeins útvaldir einstaklingar geta leikið eftir.
Brjósklos í baki olli því að hann sneri heim til uppeldisfélags síns í
HK þar sem hann er í raun að byrja upp á nýtt. Var alltaf yfirburða-
maður í sínum árangi í yngri flokkunum og í Digranesinu er enn þá
rætt um þegar hann, nánast upp á sitt einsdæmi, vann Íslandsmeist-
araitilinn fyrir HK í 4. flokki. Hann þykir beita líkamanum og fótunum
öðruvísi en flestir aðrir og hefur hreyfingum hans verið líkt við töfra.
GÆTI ORÐIÐ HINN ÍSLENSKI: ERIC CANTONA
#
SÓ
K
N
A
R
M
A
Ð
U
R
ÓSKAR PÉTURSSON {FD:1989} » GRINDAVÍK
Gerði atvinnumannasamning við Ipswich og fer þangað í ágúst. Er heldur
smár af markmanni að vera en mikill íþróttamaður. Hann æfði körfu-
bolta við hlið fótboltans með mjög góðum árangri og býr yfir frá-
bærum stökkkrafti og góðum staðsetningum. Mjög snöggur á milli
stanganna en er auk þess mjög frambærilegur útileikmaður og því mjög
öruggur þegar hann fær boltann til baka. Sýnir jafnan mikil tilþrif en er
um leið enginn ævintýramaður. Markvörður af gamla skólanum, ag-
aður, mikill keppnismaður en þekkir jafnframt sín takmörk. Þykir
jarðbundinn og vel upp alinn strákur með höfuðið í lagi.
GÆTI ORÐIÐ HINN ÍSLENSKI: IKER CASILLAS
#
M
A
R
K
VÖ
RÐ
U
R
» BJÖRN ORRI HERMANNSSON {FD:1989} » IPSWICH
Spilar jafnan aftarlega á vellinum en er á sama tíma það góður sóknarmaður að
hann getur sólað fimm andstæðinga á sama punktinum. Hreif forráðamenn
Ipswich upp úr skónum og gerði samning við félagið eftir fimm heimsóknir
þangað. Þar er hann hugsaður sem djúpur miðjumaður þrátt fyrir að hann
spili jafnan stöðu miðvarðar hjá Fylki og með U-17 ára landsliðinu. Þess má
geta að Ipswich hafði betur í keppni við Borussia Dortmund um leik-
manninn. Gríðarlega sterkur leikmaður og algjör leiðtogi. Spilaði alla
leiki U-17 ára landsliðsins í fyrra þrátt fyrir að vera árinu yngri en
flestir aðrir. Mjög teknískur, með gríðarlegan sprengikraft og ein-
staklega góður í því að taka andstæðinginn algjörlega úr umferð.
Sterkur í loftinu, sterkur í návígjum og mjög yfirvegaður.
GÆTI ORÐIÐ HINN ÍSLENSKI: ROY KEANE
#
VA
R
N
A
R/
M
IÐ
JU
M
A
Ð
U
R
#
SÓ
K
N
A
R
M
A
Ð
U
R