Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 1
Körfuboltavellir sem
bófinn getur spila› á
Snoop á leið til landsins
FÓLK 32
TÓNLEIKAR
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
Fréttablaðið
skorar og skorar!
Íslendingar 18-49 ára
26%
39%
Lestur íþróttasíðna
*Lestur á íþróttasíður blaðanna á fimmtudögum.
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
*
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM og skúrir á
víð og dreif, einkum þó sunnan og vestan
til. Úrkomulítið síðdegis eða í kvöld. Hiti 10-
16 stig, hlýjast nyrðra
VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
2. júlí 2005 - 176. tölublað – 5. árgangur
Maður augnabliksins
Eggert Skúlason hjólar
um þessar mundir
hringinn í kringum
landið til styrktar hjart-
veikum. Hann er já-
kvæður og skemmtileg-
ur og segir skoðanir
sínar umbúðalaust en
stundum er stuttur í
honum þráðurinn. Eggert er maður
vikunnar.
MAÐUR VIKUNNAR 16
Framtíð íslenska fótboltans
Ný kynslóð er að koma upp í íslenskri
knattspyrnu. Þeir sem
fylgjast með yngri flokka
starfi á Íslandi eru flestir á
einu máli – fjöldi ungra
og framúrskarandi ís-
lenskra leikmanna er í
sögulegu hámarki
þar sem þeir allir
eiga það sameig-
inlegt að geta
náð eins langt
og þeir sjálfir
vilja.
ÍÞRÓTTIR 30-31
Bonham sá besti fyrr og síðar
John Bonham,
fyrrum trommari
Led Zeppelin, var
kjörinn besti
trymbill sögunnar
í úttekt sem
breska tímaritið
Classic Rock stóð fyrir. Íslandsvinurinn
Dave Grohl úr Nirvana og Foo Fighters
kemur á hæla hans. TÓNLIST 28
Brosir flegar hann
sér bílinn
GUÐJÓN JÓNSSON:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● bílar ● ferðir
▲
50 %
afsláttur
af nammibarnum
á laugardögum
V I R K S A M K E P P N I
VEÐRIÐ Í DAG
Útrás Kaupþings banka í Skandinavíu:
Finnskur banki í sigtinu
VIÐSKIPTI Tæplega þriggja ára
rannsókn efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra á meintum
brotum gegn almenningshlutafé-
laginu Baugi hf. lauk í gær með
útgáfu kæra á hendur sex manns
tengdum fyrirtækinu. Þar á meðal
eru Tryggvi Jónsson fyrrum for-
stjóri, Jón Ásgeir Jóhannesson
forstjóri, Kristín Jóhannesdóttir
stjórnarmaður og Jóhannes Jóns-
son einn aðaleigandi Baugs, auk
endurskoðendanna Stefáns Hilm-
arssonar og Önnu Þórðardóttur.
„Rannsókn málsins hefur verið
afar umfangsmikil og mjög tíma-
frek og krafist víðtækrar gagna-
öflunar og húsleitar í Færeyjum
og Lúxemborg. Yfirheyrslur í
málinu skipta hundruðum,“ segir í
tilkynningu Ríkislögreglustjóra.
Gert er ráð fyrir að málið verði
þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur 17. ágúst næstkomandi.
Jón H. Snorrason, saksóknari og
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra, sagðist að
sinni ekki vilja tjá sig um álitsgerð-
ir Jóns Ásgeirs eða álitsgerð sem
Jónatan Þórmundsson lagaprófess-
or vann fyrir Baug um rannsókn
lögreglu. Að öðru leyti vísaði hann
á tilkynningu embættisins um mál-
ið en þar kemur fram að takmörk
séu á hversu mikið lögregla getur
tjáð sig meðan málið er fyrir dómi.
Í tilkynningunni segir einnig að
möguleg skattalagabrot séu enn til
rannsóknar hjá embættinu, en
hluta málsins var vísað til Skatt-
rannsóknastjóra haustið 2003.
Stjórn Baugs hefur ákveðið að
höfða skaðabótamál á hendur rík-
inu vegna tjóns sem fyrirtækið
hefur orðið fyrir vegna rannsókn-
ar lögreglu. „Baugur Group hf.
stendur einhuga á bak við Jón Ás-
geir Jóhannesson, forstjóra, og
sakborninga málsins, en þeir hafa
allir staðfastlega haldið fram sak-
leysi sínu gagnvart öllum sakar-
giftum,“ segir í yfirlýsingu sem
Hreinn Loftsson, stjórnarformað-
ur Baugs, skrifar undir. Gestur
Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs,
áréttaði að hann vísaði sakargift-
um á bug, en ekki náðist í Jón Ás-
geir.
Jóhannes Jónsson kvaðst vera í
útlöndum og hafi því ekki séð
ákæruna enn og ætli af þeim sök-
um ekki að tjá sig um hana að svo
stöddu.
Sjá síður 4 og 10/- olikr
VIÐSKIPTI Kaupþing banki hefur
keypt tæplega tveggja prósenta
hlut í finnska fjármálafyrirtæk-
inu Sampo og er þar með þriðji til
fjórði stærsti hluthafinn.
Sampo er að stærstum hluta
tryggingafélag, en samkvæmt
heimildum beinist áhugi Kaup-
þings að bankastarfsemi félags-
ins. Markaðsvirði Sampo er hátt í
sex hundruð milljarðar, en banka-
starfsemin er metin á 150 til 200
milljarða króna. Sampo er stærsti
finnski bankinn. Telja Kaupþings-
menn áhuga hjá Sampo á að selja
frá sér bankastarfsemina þótt
verðhugmyndir Sampo séu enn
sem komið er í hærri kantinum.
Kaupþing banki kom víðar við í
fréttum á Norðurlöndum. Norska
Kauphöllin stöðvaði viðskipti með
tryggingafélagið Storebrand
vegna orðróms um kaup Kaup-
þings í félaginu.
Kaupþing hefur á stefnuskrá
sinni að efla verulega starfsemi
sína í Noregi og Finnlandi. Með
kaupum á bankastarfsemi Sampo
fengjust einnig mikilvæg tengsl
við Eystrasaltsríkin og Rússland.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
Kaupþings banka, vildi að svo
komnu máli ekkert tjá sig um að-
komu bankans að Sampo og Stor-
ebrand.
-hh
Sex ákær›ir í Baugsmálinu
Ákæra Ríkislögreglustjóra í Baugsmálinu er í 40 li›um og snertir au›gunarkafla almennra hegningarlaga, lög
um bókhald, ársreikninga, hlutafélög og tollalög. Stjórn Baugs segist standa me› ákær›u og undirb‡r ska›a-
bótamál á hendur ríkinu. Rannsókn lögreglu sætir gagnr‡ni fyrir tíma og tengsl rannsakanda og ákæranda.
Varnarmálaviðræður:
Sendinefnd út
í næstu viku
STJÓRNMÁL Sjö til tíu manna nefnd
mun fara til Washington í næstu
viku til fundar við viðræðunefnd
Bandaríkjamanna til að ræða
framtíð varnarsamningsins og
Keflavíkurflugvallar. Fundirnir
verða haldnir á miðvikudag og
fimmtudag í næstu viku.
Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra segir það mjög þýðingar-
mikið að viðræðunefnd Banda-
ríkjamanna hafi nú samhæft sjón-
armið milli ráðuneyta utanríkis-
mála og varnarmála með atbeina
Hvíta hússins. Hann gerir ráð fyr-
ir að samningafundirnir muni
byggja á þeim samtölum sem
Davíð hefur átt við ráðamenn úti,
þó svo hann búist ekki við að
fyrsti fundurinn leiði til niður-
stöðu. Sjá síðu 6/ -jh
STUÐMENN POPPA GEGN FÁTÆKT Hópur tónlistarmanna ásamt Árna Snævarr hélt tónleika undir nafninu ÁttaLíf, í Hljómskálagarð-
inum í gærkvöldi. Voru þeir í tilefni þess að í kvöld verða Live 8 tónleikar haldnir víða um heim þar sem þess er krafist að átta ríkustu
lönd heims frysti skuldir fátækustu ríkjanna og auki þróunaraðstoð til þeirra en fundur þeirra fyrrnefndu fer fram í Skotlandi. Ekki var
annað að sjá en að gestir og gangandi hefðu gaman af því að Hljómskálagarðurinn skyldi standa undir nafni. – Sjá síðu 46
SLYS Maður á miðjum aldri liggur
mikið slasaður á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi eftir árekstur
jeppa og fólksbíls í Hveradölum
seinni partinn í gær.
Fimm voru fluttir á slysadeild
eftir áreksturinn, fjórir farþegar úr
jeppanum auk mannsins. Maðurinn
var einn í fólksbílnum þegar bílarn-
ir rákust saman en fjölskylda var í
jeppanum. Hún slapp lítið meidd að
sögn vakthafandi læknis.
Tækjabíl slökkviliðsins í Hvera-
gerði þurfti til að klippa einn hinna
slösuðu úr flaki fólksbílsins. Orsök
slyssins var ekki ljós þegar blaðið
fór í prentun en lögreglan á Selfossi
rannsakar málið. -bs
FRÁ VETTVANGI Fólksbíllinn lagðist nánast
saman við áreksturinn.
Árekstur á Hellisheiði:
Einn miki›
slasa›ur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
N