Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 8

Fréttablaðið - 02.07.2005, Page 8
1Hvað heitir söngvari Duran Duran? 2Hvað heitir utanríkisráðherra Taí-vans sem kom til landsins í gær? 3Hver er stjórnarformaður Lífeyris-sjóðs bankamanna? SVÖRIN ERU Á BLS. 46 VEISTU SVARIÐ? 8 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR STANGVEIÐI Til stendur að flytja 20 hrygningarpör úr Elliðaám upp fyrir Elliðavatn í Suðurá og Hólmsá. Ástæðan er sú að sífellt hrygna færri laxar á þessum slóðum og þykir fiskifræðingum það áhyggjuefni. Vonast er til að þessar að- gerðir verði til þess að lax fari aftur að hrygna ofan við vatnið í auknum mæli sem aftur yrði til þess að stækka stofninn. Einnig er þeim tilmælum beint til veiðimanna að þeir sleppi þeim laxi aftur sem þeir veiða á meðan ástand ánna er ekki betra. Í veiðihúsi Stang- veiðifélags Reykjavíkur verða tiltækar upplýsingar til veiði- manna um það hvernig best er að sleppa laxi ósködduðum. Litlar skýringar eru á því af- hverju laxastofninn er orðinn jafn lítill og raun ber vitni í El- liðaám. Hluta skýringarinnar má þó rekja til þess þegar stofn- inn hrundi í kjölfar kýlaveiki árið 1996. Síðasta sumar veiddust rúm- lega 600 laxar í ánum, það sem af er sumri hafa veiðst 33 laxar og 59 laxar hafa farið gegnum teljara við Rafstöðina. - oá Lagning strengja: Lægsta bo› frá Selfossi IÐNAÐUR Fyrirtækið Nesey á Sel- fossi átti lægsta boð í lagningu strengja fyrir Landsvirkjun milli Ufsar- og Kelduárslóns vegna Kárahnjúkavirkjunar, tæpar 14,5 milljónir króna, um 43 prósentum undir kostnaðaráætlun. Tilboð voru opnuð í byrjun vik- unnar og tóku fimm fyrirtæki þátt. Kostnaðaráætlun ráðgjafa Landsvirkjunar hljóðaði upp á tæpar 25,6 milljónir Næstlægsta boð áttu Austfirskir verktakar á Egilstöðum, tæpar 15,8 milljónir króna, en hæsta boð átti Vinnuvél- ar Símonar Skarphéðinssonar á Sauðárkróki, rúmar 25,3 milljónir. -óká NÁM „Umsóknir um skólavist í Menntaskólanum Hraðbraut voru á annað hundrað, en við getum ekki tekið við nema rétt rúmlega 80 nem- endum,“ segir Ólafur Haukur John- son, skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut. Hann segir námsárangur ráða því hvort nemendur komist að en fjöldi nemenda sem sóttu um hafi ekki þær einkunnir sem þurfi til að stunda nám við skólann.“ ■ STEFÁN JÓN HAFSTEIN Formaður samráðs- hóps um Elliðaárnar kynnti í gær niður- stöður skýrslu um ástand laxastofnsins í Elliðaám. VINNINGSHAFI Silja Stefnisdóttir, vinnings- hafi í leik á vegum Bylgjunnar og Office 1 í tengslum við innritun nemenda í Mennta- skólann Hraðbraut. NEYTENDUR Úrval af lífrænum mat- vörum í verslunum á höfuð- borgarsvæðinu er takmarkað og vörurnar mun dýrari en hefðbundn- ar matvörur, samkvæmt úttekt Al- þýðusambands Íslands. Mikill verðmundur er á milli verslana. Heilsuhúsið reyndist oftast með hæst verð, í níu tilvikum, en Fjarð- arkaup í Hafnarfirði bauð lægsta verðið á sjö vörum af þeim sautján sem kannaðar voru. Sé litið til al- gengari matvara reyndist sú líf- ræna mun dýrari kostur. Íslenskir lífrænt ræktaðir tómatar voru 135 prósentum dýrari en aðrir. Þá mun- aði 184 prósentum á verði lífrænt ræktuðum tómötum og appelsínum. Verðmunur er sagður felast í meiri kostnaði við lífræna ræktun, auk þess sem uppskera verður oft rýrari. -aöe Ítölsk stjórnvöld: CIA-mönnum vísa› á brott RÓM, AP Ítalía undirbýr kröfu um að þrettán starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar CIA verði reknir úr landi. Ástæða kröfunnar er rökstudd- ur grunur um að mennirnir hafi rænt meintum hryðjuverkamanni frá Ítalíu og flutt hann til Egypta- lands þar sem hann var pyntaður. CIA er talið hafa handsamað og flutt meinta hryðjuverkamenn til annarra landa án dómsúrskurðar, sérstaklega til þeirra ríkja sem stunda pyntingar. ■ Laxastofninn í Elliðaám of lítill: Laxinn fluttur upp fyrir Elli›avatn SAMGÖNGUR Lög um olíugjald gengu í gildi um mánaðamótin en við það féll niður þungaskattur á dísilbif- reiðum undir tíu tonnum og greiða eigendur þeirra í staðinn olíugjald sem er reikn- að inn í verð á d í s i l o l í u . H æ k k a ð i verðið á dísil umtalsvert af þessum sök- um, upp í tæplega 110 krónur. Leigubif- reiðar eru flestar dí- silknúnar og reikna bif- reiðastjórar með að breytingin muni auka rekstrarkostnað hjá sér að jafnaði um 400.000 krónur á ári. Að sögn Guðmundar Barkar Thorarensen, framkvæmdastjóra BSR, þyrfti að hækka taxtann um fimmtán prósent til að brúa það bil en til þess þarf reglugerðarbreyt- ingu hjá samgönguráðuneytinu. „Við viljum hins vegar ekki hækka taxtann svo mikið heldur vonum við að hið opinbera komi til móts við okkur á einhvern hátt.“ Í dag fá leigubílstjórar hluta vörugjalda á bílum sínum felld nið- ur en Guðmundur segir bílstjóra hafa rætt um að fá þau niðurfelld með öllu til að vega upp á móti laga- breytingunni. Auk þess vilja þeir geta selt bíla sína eftir átján mánuði í stað 36 mánaða án þess að þurfa að endurgreiða niðurfellda gjaldið. Fallist ráðuneytið á þessa útfærslu þyrfti einungis að hækka taxtann um fimm prósent. Strætó bs. þarf í dag ekki að greiða nema hluta þungaskatts og því býst Hörður Gíslason, fjármála- stjóri fyrirtækisins, við að eftir breytinguna muni það fá hluta olíu- gjaldsins endurgreiddan. „Mér sýn- ist samt að nokkur kostnaðarauki sé af innheimtu gjaldsins fyrir okkur vegna aukinnar fjárbindingar.“ Þótt ekki hafi verið fullrætt hvernig honum verður mætt segir Hörður að í augnablikinu séu engar líkur á fargjaldahækkunum. Fyrirtæki í vöruflutningaþjón- ustu reikna með að kostnaður vegna eldsneytiskaupa muni aukast vegna breytingarinnar. „Þetta verður kostnaðarauki á þessum styttri áætlunarleiðum þar sem menn eru ekki að aka með tengivagn og bíl,“ segir Óskar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri innanlandssviðs Landflutninga-Samskipa. „Svo svo er bara spurning hvort við getum hagrætt á móti svo þetta þurfi ekki að fara út í verðskrána.“ sveinng@frettabladid.is Olíugjaldi› eykur kostna› Reynt ver›ur a› hagræ›a vegna breytinga á innheimtu skatta af díselolíu, en hækkanir á gjald- skrá eru fló í einhverjum tilvikum óumfl‡janlegar. www.yamaha.is Nýbýlavegi 2 200 Kópavogi S. 570 5300 Ný sending af vélhjóla- fatnaði frá Nazran. Full búð af fatnaði, bæði fyrir krossara og götuhjól. Vandaðar flíkur á mjög góðu verði; eitthvað sem allt hjólafólk hefur beðið eftir. Vertu í stíl við krómið og kraftinn ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 28 89 1 6 /2 00 5 FATNAÐUR ÓSKAR ÓSKARSSON HJÁ LANDFLUTNINGUM- SAMSKIPUM TAXTAR HÆKKAÐIR Meðalrekstrarkostnaður leigubíla mun aukast um 400.000 krónur á ári. Í besta falli verður að hækka gjaldskrá um fimm prósent. Verð á lífrænt ræktuðu: Miklu munar á verslunum LÍFRÆN RÆKTUN Þeim fer fjölgandi sem slíkt stunda hérlendis. Menntaskólinn Hraðbraut: Námsárangur ræ›ur för

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.