Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 20
„Ég mun halda upp á afmælið mitt í Amalienborg,“ segir Magnús Skarphéðinsson, formaður Sálar- rannsóknafélagsins og skólastjóri Álfaskólans, sem vonast til að geta snætt með drottningunni í til- efni dagsins. „Ég hef sagt öllum vinum og vandamönnum að ef þeir vilji heiðra mig með nærveru sinni geti þeir hitt mig í Amalien- borg í Kaupmannahöfn,“ segir Magnús hlæjandi en bætir við að hann eigi að vísu eftir að semja við Margréti drottningu um að fá að sitja með henni til hásætis. „Það hlýtur að vera auðsótt mál,“ segir hann kíminn en í kvöld ætlar hann að skella sér í Tívolí og horfa á leikritsuppsetninguna H.C. And- ersen. Á þessum tímamótum segist Magnús bæði þakklátur og dapur. Þakklátur að hafa náð þessum aldri, sem hann segir ekki sjálf- gefið, og dapur þar sem hann sér fram á að þurfa um hundrað ár í viðbót til að rannsaka dulræn mál. Magnús segist ekki vera mikið fyrir gjafir. „En ég er mikið fyrir selskap,“ segir hann glaðlega og bætir við að skemmtilegasti sel- skapurinn sé Tilraunafélagið, sem hittist á sunnudagskvöldum í Reykjavík. „Ég hlakka alla vikuna til sunnudagskvöldanna,“ segir Magnús en hefur þar að auki gam- an af að hitta frænkur sínar og frændur sem þó allt of fá tilefni gefist til. „Það er hallærislegt að þegar maður er orðinn fimmtugur hittir maður ættingja yfirleitt bara í jarðarförum,“ segir Magn- ús, sem gleðst yfir dauða flestra, nema ef um ungt fólk er að ræða, enda sé dauðinn ekki endalok neins. Magnús segir alltaf mikið að gera í Sálarrannsóknafélaginu. Helsta starf hans sé að safna reynslusögum og skrá þær niður. „Væntanlegt er á næsta ári úrval þjóðsagna eftir Magnús Skarphéð- insson,“ segir Magnús en þar koma meðal annars við sögu draugar, fylgjur, álfar og meira að segja draugar í tölvum. „Ég er bú- inn að ná Jóni Árnasyni þjóð- sagnasafnara,“ segir Magnús en hann hefur skráð um fjögur þús- und frásagnir á tuttugu árum. ■ Fysta sumarstarf Iðunnar Steins- dóttur rithöfundar var í Kaupfélag- inu á Seyðisfirði sumarið 1956. Hún var þá sextán ára og afgreiddi frá morgni til kvölds því mikið var að gera. „Það var svo mikið af síldar- skipum inni,“ segir Iðunn, sem fannst vinnan skemmtileg. Iðunn man þó einna best eftir viðhorfinu gagnvart launum á þess- um tíma. Hún vann mikla eftir- vinnu sem hún fékk aldrei borgaða því allir voru á föstu kaupi. Þegar hún fór að spyrja vinnufélagana út í þetta var viðlitið þannig að fæstir kunnu við það að biðja um meira kaup enda léti kaupfélagsstjórinn þeim stundum í té nokkur hundruð krónur fyrir jólin. „Þar með var það afgreitt,“ hlær Iðunn sem finnst ólíklegt að slíkt myndi líðast nú. Iðunn man samt ekki hvað hún fékk í laun en var aðallega að safna sér fyrir veturinn þar sem hún var í Menntaskólanum á Akureyri á þess- um tíma. Sumar- hýran dugði þó skammt og þurftu foreldrarnir að borga það sem upp á vantaði. Iðunn vann í kaupfélaginu að- eins í eitt sumar og fór síðan að vinna á símanum. Þetta sumar hitti hún alls konar fólk, bæði bæjarbúa og útlendinga af skipunum. „Maður þurfti að geta talað skandinavísku,“ minnir hana en síðan komu einnig ákveðnir fastir kúnnar daglega til að spjalla. Ekki telur Iðunn sig hafa lært margt á þessu sumri þó hún telji alla reynslu góða. Helst hafi hún slípast í mannlegum samskipt- um. ■ 20 2. júlí 2005 LAUGARDAGUR JEAN-JACQUES ROUSSEAU (1712-1778) lést þennan dag. Gleðst yfir dauða flestra MAGNÚS SKARPHÉÐINSSON ER FIMMTUGUR. „Þakklæti er skylda sem ætti að borga en sem enginn getur ætlast til að fá.“ Jean-Jacques Rousseau var fransk-svissneskur heimspekingur, rithöfundur og sjálflært tónskáld. timamot@frettabladid.is Þennan dag árið 1937 hvarf flug- vél Amelíu Earhart og Frederick Noonan nærri Howland-eyju í Kyrrahafi. Þau voru að reyna að fljúga í kringum jörðina þegar þau gerðu mistök á erfiðasta kafla leiðarinnar frá Lae í Nýju Gíneu til Howland-eyju í miðju Kyrrahafi. Bandaríska strandgæslan hafði verið í risjóttu talstöðvarsambandi við Earhart þegar hún nálgaðist eyjuna og fékk skilaboð um að hún væri týnd og að verða bens- ínlaus. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir var ekki hægt að staðsetja flugvél- ina og Earhart fann ekki strand- gæsluskipið þrátt fyrir að það sendi upp svört reykmerki. Líklega hefur hún stuttu síðar reynt að brotlenda í sjónum en ef lendingin hefði tekist fullkomlega hefðu þau Earhart og Noonan getað sloppið í björgunarbát. Þrátt fyrir mikla leit fannst aldrei tangur né tetur af þeim. Amelía Earhart fæddist í Kansas árið 1897. Hún fór að fljúga um 24 ára aldur og varð brátt nokkuð þekkt sem ein af fyrstu kvenflug- mönnunum. Árið 1928 varð hún fyrsta konan til að fljúga yfir Atl- antshaf og hlaut talsverða frægð fyrir. Hún var af mörgum kölluð „Lady Lindy“. Á næstu árum tók hún sér á hendur ýmsar frum- kvöðlaferðir. Í mars árið 1937 reyndi hún við hringflug um hnöttinn en varð að hætta við vegna skemmdar á flugvélinni. 1. júní lagði hún af stað á ný ásamt Noonan. Þau höfðu lagt að baki 22 þúsund mílur og áttu einungis sjö þúsund eftir þegar slysið varð. 2. JÚLÍ 1937 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1839 Uppreisn er gerð á þræla- skipinu Amistad sem var á leið frá Afríku til Kúbu. 1876 Á áttunda hundrað Norð- lendingar leggja af stað til Nýja Íslands frá Akureyri. Þetta var fjölmennasta för- in héðan til Vesturheims. 1907 Tveir Þjóðverjar drukkna í Öskjuvatni. 1937 Einkasnekkja Adolfs Hitler, Aviso Grille, kemur til Reykjavíkur. Að vísu án Hitlers. 1964 Lyndon B. Johnson Banda- ríkjaforseti skrifar undir tímamótalög um borgara- leg réttindi. 2000 Paul McCartney kemur til Íslands ásamt vinkonu sinni og ferðast um landið í nokkra daga. Amelia Earhart hverfur í Kyrrahaf FYRSTA STARFIÐ IÐUNN STEINSDÓTTIR RITHÖFUNDUR Fékk ekki borga›a yfirvinnu www.steinsmidjan.is Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma 550 5000. ANDLÁT Hannes Þorsteinsson, fyrrum stórkaup- maður frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, Austur-Húnavatnssýslu, lést 21. júní. Út- förin hefur farið fram. Guðrún Ólína Gunnarsdóttir, Dverga- bakka 2, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut föstudaginn 24. júní. Árni Ásgrímur Þorbjörnsson lést mið- vikudaginn 29. júní. Hjörtur Benediktsson framkvæmda- stjóri, Laufengi 152, Reykjavík, áður Seiðakvísl 36, andaðist á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut mið- vikudaginn 29. júní. Karl Jóhann Karlsson, Kleppsvegi 144, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 29. júní. Laufey Andrésdóttir, Fjóluhvammi 4, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landakots- spítala miðvikudaginn 29. júní. JAR‹ARFARIR 11.00 Konráð Gíslason frá Frostastöð- um, Furulundi 4, Varmahlíð, verð- ur jarðsunginn frá Sauðárkróks- kirkju. 11.00 Ragnar Kristófersson, Ólafsvegi 14, Ólafsfirði, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju. 14.00 Gísli Ólafsson, Brúum, Aðaldal, verður jarðsunginn frá Grenjaðar- staðarkirkju. 14.00 Guðmundur Skúlason húsa- smíðameistari, Seljalandsvegi 8, Ísafirði, verður jarðsunginn frá Ísa- fjarðarkirkju. 14.00 Þorbjörg Sigurðardóttir, Hvera- mörk 2, Hveragerði, verður jarð- sungin frá Hveragerðiskirkju. 17.00 Guðmundur Skagfjörð Friðþjófs- son frá Siglufirði verður jarðsung- inn frá Siglufjarðarkirkju. AFMÆLI Sigurður Líndal prófessor er 74 ára. Jóhann Hjálmarsson rithöfundur er 66 ára. Magnús Jónsson veðurstofustjóri er 57 ára. Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir leikkona er 36 ára. Fjórir námsmenn fengu úthlutað námsstyrkjum Námsmannaþjón- ustu Sparisjóðsins í Keflavík í vikunni. Sparisjóðurinn veitir styrkina á hverju ári og fær hver og einn upphæð að andvirði 125 þúsund krónur. Þau sem hlutu styrk voru Ell- ert Hlöðversson, sem útskrifast með BS-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Ís- lands, Kolbrún Árnadóttir, en hún útskrifast með B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands sem grunnskólakennari, Ragnar Már Skúlason sem útskrifast með BS- gráðu í alþjóða viðskiptafræðum frá Webber International Uni- versity, og Sturlaugur Jón Björns- son, sem útskrifast með meistara- gráðu í hljóðfæraleik frá Boston University. Námsfólkið er allt frá Suður- nesjum og er markmiðið að styðja við bakið á námsmönnum frá því svæði. Námsstyrkirnir hafa verið veittir í fimmtán ár og hafa sam- tals 57 námsmenn fengið styrki. ■ STYRKÞEGAR Þau sem hlutu styrk voru Ellert Hlöðversson, Kolbrún Árnadóttir, Ragnar Már Skúlason og Sturlaugur Jón Björnsson. Fjórir námsmenn fá styrk FÆDDUST fiENNAN DAG 1877 Hermann Hesse, rithöfundur og nóbels- verðaunahafi. 1931 Imelda Marcos skósafnari. 1986 Lindsay Lohan leikkona. FIMMTUGUR Magnús segist bæði þakklátur og dapur á þessum tímamótum. Þakklátur fyrir að hafa náð þessum aldri og dapur því hann sér fram á að þurfa um hundrað ár í viðbót til að rannsaka dulræn mál. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.